Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1996, Blaðsíða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANUAR 1996
23
íþróttir
íþróttir
Körfubolti:
Sterkur Kani
á Egilsstöðum
Öflugur Bandaríkjamaöur,
Willie Rhines að nafhi, er geng-
inn til liðs við 1. deildar lið Hatt-
ar frá Egilsstöðum, með góðum
árangri. Höttur tapaði öllum 10
leikjum sínum fyrir áramót, en
hefur hins vegar unnið alla þrjá
síðan Rhines kom til liðsins fyrr
í þessum mánuði.
Rhines er rúmlega þrítugur
bakvörður, aðeins 1,80 m á hæð,
en með gífurlegan stökkkraft.
Hann skoraði 46 stig á laugar-
daginn þegar Höttur vann mikil-
vægan sigur á Stjörnunni, fyrir
fullu húsi áhorfenda ,á Egilsstöð-
um.
Valsmenn áttu kost á því að fá
Rhines til liðs við sig, en völdu
Ronald Bayless í staðinn. Senni-
lega rétt hjá þeim, en Rhines hef-
ur líka sýnt að hann er snjall
leikmaður.
Sigur Hattar var afar mikil-
vægur í hinni hörðu fallbaráttu
1. deildarinnar en staðan er nú
þannig:
Snæfell 13 11 2 1262-958 22
ÍS 12 10 2 925-860 20
KFÍ 12 10 2 1045-915 20
ReynirS. 12 6 6 996-1067 12
Þór Þ 12 6 6 1022-992 12
Leiknir R. 12 5 7 964-993 10
Selfoss 12 4 8 972-954 8
ÍH 12 3 9 985-1109 6
Stjarnan 12 3 9 867-1001 6
Höttur 13 3 10 868-1047 6
-vs
Golf:
Sigurjón í
sautjánda sæti
á atvinnumóti
Sigurjón Arnarsson keppti á
tveimur atvinnumannamótum í
Tommy Armour mótaröðinni í
Orlando í Flórída um síðustu
helgi.
Sigurjón hafnaði í 17. sæti af
75 keppendum í fyrra mótinu,
sem var eins dags mót. Hann lék
á 74 höggum en par vallarins er
72 högg og erfiðleikastuðull 75.
Á síðara mótinu hafnaði Sig-
urjón í 48. sæti af 170 keppend-
um á 146 höggum, en það var
tveggja daga mót. Par vallarins
er 72 högg og erfiðleikastuðull
73.
Badminton:
Heimamenn
unnu tvisvar
HSK átti tvo sigurvegara en
TBR þrjá á opnu badmintonmóti
HSK sem fram fór í íþróttahús-
inu á Flúðum í Hrunamanna-
hreppi á laugardaginn.
I A-flokki sigraði Indriöi
Björnsson, TBR, í einliðaleik
karla og Sigríður M. Jónsdóttir,
TBR, í einliðaleik kvenna. Þau
sigruðu síðan saman í tvenndar-
leik. Reynir Guðmundsson og
Óskar Bragason, HSK, sigruðu í
tvíliðaleik karla. I B-flokki sigr-
aði síðan Hrafnkell Björnsson,
HSK, í einliðaleik karla.
Keila:
Átta lið eftir
í bikarnum
Sextán liða úrslitin i bikar-
keppni karla i keilu fóru fram
síðasta fimmtudag. Úrslit urðu
þessi:
Lærlingar-KR b.. 2353-1993
Keiluvinir-Stormsveitin . 2081-2096
Keflavík a-Þröstur. 2136-2089
KR a-Gammarnir..... 2093-1951
Úlfamir-Keiluböðlar ... 1930-1897
Keilulandssveitin-KR d . 2274-2011
Spilabræð.-Stjömugengi . 2009-1927
Lávarðamir-JP-kast .... 2184-2157
R',: ívisAl'i-
Damon Stoudamire og félagar hans f Toronto Raptors lögðu Boston á
heimavelli sínum í Kanada í fyrrinótt. Stoudamire var mjög sterkur í liði
Toronto og skoraði 24 stig og þessi snaggaralegi nýliði í NBA-deildinni
hefur svo sannarlega vakið mikla athygli fyrir góða frammistöðu í vetur.
Hér sýnir hann listir sínar í leik með Toronto á dögunum.
NBA-deildin í körfuknattleik:
Þriðja tap meist
aranna í röð
Meisturum Houston hefur heldur
betur fatast flugið í NBA-deildinni að
undanförnu. í nótt máttu þeir þola sinn
þriðja ósigur í röð, nú í Atlanta, 105-96.
Steve Smith, Craig Ehlo og Mookie
Blaylock áttu allir stórleik með Atlanta
og það.var of mikið fyrir Houston.
„Það var sama hvað við gerðum. Ef
við náðum frákasti hirtu þeir boltann
af okkur,“ sagði Clyde Drexler von-
svikinn í leikslok.
Úrslitin í nótt:
Miami-San Antonio .............96-89
Chapman 25, Mouming 25 -
Atlanta-Houston...............105-96
Smith 26, Ehlo 25, Blaylock 20 - Drexler 23,
Olajuwon 20.
Milwaukee-Vancouver ..........92-100
- Reeves 22, Anthony 18, Edwards 18.
Miami hefur ekki gengið vel að
undanfornu, en í nótt náði liðið að
snúa blaðinu við og sigra hið sterka liö
San Antonio. Rex Chapman var
Knattspyrna:
Hörður Már
með slitin
krossbönd?
Allar líkur eru á að Hörður
Már Magnússon, knattspymu-
maður úr Val, sé með slitin
krossbönd í hné eftir að hafa
meiðst í úrslitaleik Vals og KR
á íslandsmótinu innanhúss á
dögunum.
„Þetta kemur í ljós á mið-
vikudaginn þegar ég fer í
myndatöku en eins og þetta lít-
ur út núna er líklegt að þetta sé
krossbandaslit. Ef svo reynist
er ljóst að ég verð frá í ein-
hverja mánuði en vonandi verð
ég búinn að ná mér áður en ís-
landsmótið hefst,“ sagði Hörð-
ur Már í samtali við DV í gær.
-GH
Auður með
slitin liðbönd
Auður Skúladóttir, landsliðs-
kona úr Stjörnunni, meiddist
illa á hné í leik með Stjörnunni
á íslandsmótinu innanhúss
sem fram fór á dögunum. í ljós
hefur komið að liðbönd á inn-
anverðu hné eru slitin.
„Ég slepp við uppskurð en
þarf að vera 6 vikur í spelkum.
Ég má fara að hlaupa í vikunni
og lyfta til að styrkja hnéð,“
sagði Auður í samtali við DV í
gær.
-ih
Leikmenn og þjálfari Drammen vel upplýstir um lið Aftureldingar:
Fengu upplýsingar frá þjálfara
1. deildar liðs á íslandi
- Einari neitað um upplýsingar um Drammen í Noregi
Leikmenn og þjálfari norska liðs-
ins Drammen komu ekki að tómum
kofunum þegar þeir léku gegn Aft-
ureldingu í Borgarkeppni Evrópu í
handknattleik í fyrradag. Svíinn
Kent Harry Anderson, þjálfari
Drammen, hafði aflað sér ítarlegra
upplýsinga um lið Aftureldingar og
fengið spólur af leik liðsins og sá
sem færði honum þessar upplýsing-
ar var þjálfari 1. deildar liðs á ís-
landi.
Éihar Þorvarðarson,'þjálfarí Aft-
ureldingar, þurfti að fara aðrar leið-
ir til að fá upplýsingar um lið
Drammen. Hann þurfti að leita á
náðir íslendinga sem búsettir eru í
Noregi til að fá upplýsingar um lið
Drammen eftir að hafa fengið neit-
un hjá forráðamönnum Sandefjörd,
sem léku deildarleik gegn
Drammen fyrir skömmu. Einar
fékk þau svör frá Sandefjörd að það
tíðkaðist ekki að veita andstæðing-
um norskra liða í Evrópukeppni
upplýsingar og að'hann þyrfti að
leita á önnur mið til að fá þær.
Stuðningsmenn Aftureldingar
þurfa ekki að óttast samkeppni frá
kollegum sínum í Drammen þegar
síöari Evrópuleikur liðanna fer
fram í Mosfellsbæ á fimmtudags-
kvöld. Stuðningsmenn Drammen
sáu sér ekki fært að koma til ís-
lands og eru ástæðumar tvær. Sú
fyrri er að leikurinn fer fram á
virkum degi í miðri viku og sú
síðari hversu dýrt er að ferðast til
íslands. ' ' 'v ‘ '
drjúgur á lokakaflanum og skoraði þá
7 stig fyrir Miami.
Vancouver vann loks á útivelli eftir
16 ósigra þar í röð. Fjórir fyrrum
leikmenn Milwaukee spila með Van-
couver, og þeir vom í lykilhlutverkum,
enda nánast á heimavelli.
Við höfum ekkert gert ennþá
Michael Jordan var hógvær þegar
hann var spurður um frábært gengi
Chicago eftir öruggan sigur í Detroit í
fyrrinótt. „Við höfum bara byrjað vel
og erum ekki orðnir að neinu stórliði.
Sjáum til hvernig þetta endar, við höf-
um-ekkert gert ennþá,“ sagði Jordan.
Hann skoraði 36 stig i leiknum og
hefur náð 30 stigum í sjö leikjum í röð.
Úrslitin í fyrrinótt:
Detroit-Chicago...............96-111
- Jordan 36, Pippen 22.
Toronto-Boston.................97-95
Stoudamire 23 - Fox 20, Radja 17.
Houston-Orlando................96-97
Olajuwon 30 - Shaq 29, Hardaway 28.
Indiana-Washington ..........106-96
Smits 24, Miller 23 -
Philadelphia-San Antonio.....88-118
Stackhouse 20, Weatherspoon 17 - Robinson
23, Lohaus 18.
Seattle-Dallas..............108-101
Payton 29, Kemp 26 - McCloud 26, Kidd 22.
Phoenix-Sacramento ..........111-97
Barkley 22 -
Portland-Cleveland............88-81
Robinson 22 - Ferry 29, Brandon 25.
Shaq með sigurkörfuna gegn
Houston
Shaquille O’Neal skoraði sigurkörf-
una 4 sekúndum fyrir leikslok þegar
Orlando vann sætan útisigur á Hou-
ston, keppinautunum um titilinn í
fyrravor.
Charles Barkley lék á ný með Phoen-
ix eftir tveggja vikna fjarveru vegna
uppskurðar á tá, og lið hans vann lang-
þráðan sigur. -VS
Leikdagar landsliðsins í HM ákveðnir í dag:
Líklega fimm
leikir á þessu ári
- fyrsti landsliðshópur Loga lítur dagsins ljós eftir næstu helgi
Það ætti að skýrast í dag hvernig
leikdagarnir hjá íslenska landslið-
inu í knattspymu líta út í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins
sem hefst á þessu ári. Eins og kom-
ið hefur fram drógust fslendingar í
riðil með írum, Rúmenum,
Liechtensteinum og Makedóníu-
mönnum og hitta Eggert Magnús-
son, formaður KSÍ, og Logi Ólafsson
landsliðsþjálfari fulltrúa þessara
þjóða á fundi í Liechtenstein í dag
þar sem leikdagar verða ákveðnir.
Viljum mæta Rúmenum eftir
Evrópukeppnina
„Ég býst fastlega við að við spil-
um fimm leiki á þessu ári í und-
ankeppninni. Við vitum að
Liechtenstein vill spila við okkur á
heimavelli sínum um mánaðamótin
apríl-maí en við erum ekki ýkja
spenntir fyrir því. Við munum
reyna að forðast að mæta írum og
Rúmenum á þessum árstíma og ós-
kastaðan er að mæta Rúmenum á
heimavelli eftir Evrópukeppnina.
Líklega verður fyrsti heimaleikur
okkar i keppninni um mánaðamót-
in maí-júní en þetta ætti að skýrast
allt saman á fundinum á morgun (í
dag),“ sagði Eggert Magnússon við
DV í gærkvöldi.
Logi valdi 30 leikmenn
Það styttist í fyrsta verkefni Loga
Ólafssonar með landsliðið en íslend-
ingar leika á æfingamóti á Möltu í
byrjun næsta mánaðar. 7. febrúar
verður leikið gegn Slóvenum, 9.
febrúar gegn Rússum og á móti
Möltu þann 11. febrúar.
Logi hefúr valið 30 manna hóp af
leikmönnum sem leika á íslandi og
hefur ákveðið að búa til úr honum
tvö lið sem leika um næstu helgi.
„Eftir þessa tvo leiki mun það
skýrast hvernig hópurinn sem fer út
verður skipaður. Við höfum verið
að vinna í því að fá þá leikmenn
sem leika erlendis í eitthvað af þess-
um leikjum og það lítur ágætlega út.
Þeir leikmenn sem leika í
Þýskalandi eru lausir en ég geri
mér grein fyrir að það verður ekki
hlaupið að því að fá þá leikmenn
sem spila á Englandi í alla leikina
Mikið af nýjum andlitum
I þessum 30 manna hópi sem leik-
ur um helgina er mikið af nýjum
andlitum og þar eru strákar sem
hafa verið að standa sig vel og ég vil
skoða nánar,“ sagði Logi í samtali
við DV í gærkvöldi.'
-GH
Kvennakarfa:
Auðveldur
ÍR-sigur á
Stúdínum
ÍR-stúlkur unnu auðveldan
sigur, 49-58, á Stúdínum í
íþróttahúsi Kennaraháskólans í
gær þegar liðin mættust í 1.
deild kvenna.
Sigurinn dugar þó ÍR-stúlkum
varla til að komast í úrslita-
keppnina, þær eru sem stendur í
5. sæti, með 12 stig, fjórum stig-
um á eftir Grindavík og KR sem
hafa 16 stig.
ÍR náði fljótlega 15 stiga for-
skoti, 6-21, og leiddi með 11 stig-
um í hálfleik, 21-32.
Stórleikur Ulriku Hettler i síð-
ari hálfleik hélt Stúdínum á floti
í síðari hálfleiknum. Ulrika,
sem er um 2 metrar á hæð, hirti
hvert frákastið af öðru, bæði í
vöm og sókn, og skoraði 16 stig í
röð fyrir Stúdínur.
Anna Dís Sveinbjörnsdóttir
var stigahæst í liði ÍR, skoraði 18
stig en Linda Stefánsdóttir skor-
aði 17 stig. Gréta Grétarsdóttir
lék ekki með íR i gær, en hún er
tognuð í baki.
Ulrika Hettler var að leika
sinn besta leik í vetur, var lang-
stig£ihæst i liði ÍS með 26 stig.
Eins og staðan lítur út eru
Breiðablik og Keflavík örugg í
úrslitakeppnina og Grindavík og
KR hafa vænlega stöðu. ÍS og
Akranes berjast á botni deildar-
innar með aðeins 2 stig.
Staðan í 1. deild kvenna:
Breiðablik 12 11 1 923-662 22
Keflavík 12 10 2 997-630 20
Grindavík 12 9 3 844-662 18
KR 12 9 3 844-665 18
Njarðvík 12 6 6 729-716 12
ÍR 12 6 6 803-774 12
Tindastóll 12 4 8 730-831 8
Valur 12 3 9 600-790 6
ÍS 12 1 11 532-894 2
Akranes 12 1 11 557-935 2
-ih
United slapp
með skrekkinn
- Cantona tryggöi United sigur á West Ham
Mark Eric Cantona á 8.
mínútu tryggði Manch-
ester United sigur á West
Ham á Upton Park í
Lundúnum í gær og þar
með endurheimti United
annað sætið í deildinni.
Markið skoraði Cantona
úr þröngu færi eftir lag-
legan undirbúning Ryan
Giggs.
West Ham veitti United
harða keppni og fékk
nokkur góð marktæki-
færi sem ekki nýttust.
Leikurinn var annars
nokkuð harður og þegar
15 mínútur voru til
leiksloka var Nicky Butt,
leikmanni United, vikið
af leikvelli fyrir brot á
Julian Dicks.
Þetta var annar sigur
Manchester United á
Upton Park í 22 leikjum
en á síðustu árum hefur
West Ham gert United
skráveifu og kom til
dæmis í veg fyrir í fyrra
að meistaratitillinn færi
til Old Trafford þegar lið-
ið náði stigi gegn United i
lokaumferðinni.
Eftir þennan sigur er
United 9 stigum á eftir
Newcastle sem á leik til
góða.
-GH
Svíþjóð:
Gó5 byrjun
hjá Kristjáni
DV, Svíþjóð:
Það er ekki hægt að segja annað en að
byrjunin hafi verið góð hjá Kristjáni
Jónssyni sem var að leika sinn fyrsta leik
með sænska 2. deildar liðinu Elfsborg um
helgina.
Elfsborg sigraði þá Varberg, 19-ú, en
leikurinn var liður í sænsku bikar-
keppninni. Þjálfari Elfsborg sagði í sam-
tali við DV að Kristján hefði staðið sig
mjög vel þó svo að hann hefði ekki verið á
meðal markaskorara.
Leikurinn var spilaður innandyra á
stórum velli en sá háttur er hafður í
sænsku bikarkeppninni að keppnin er
spiluð innandyra yfir vetrarmánuðina en
úti þegar veður og aðstæður fara batn-
andi.
-EH
Hreinsanir
fram undan
hjá Arsenal
Eftir frekar dapurt gengi á
keppnistímabilinu hafa stjórn-
endur Arsenal ákveðið að
hreinsa aðeins til í herbúðum
sínum. Níu leikmenn hafa verið
settir á sölulista og á salan á
þeim, ef hún tekst, að koma upp
í væntanleg kaup Arsenal á Gi-
anluca Lentini hjá AC Milan.
Meðal þeirra sem settir hafa
verið á sölulista eru: David Hilli-
er, Steve Morrow, Eddie McGold-
rick, Chris Kiwomya og Scott
Marshall.
Batty til Newcastle?
David Batty er á fórum frá
Blackbum og er Kevin Keegan,
stjóri Newcastle, sagður reiðubú-
inn að kaupa þennan öfluga mið-
vallarleikmann á 300 milljónir
króna.
Eric Cantona kom Manchester United til bjargar enn einu sinni í gær þegar
hann skoraði sigurmarkið gegn West Ham. Cantona kom meira við sögu í
leiknum en róaði félaga sinn, Andy Cole, undir lokin og bjargaði honum frá
brottrekstri.
Góð frammistaða
Daníels í göngu
Daníel Ólafsson, skiðagöngumað-
ur frá Ólafsfirði, stóð sig með ágæt-
um á sænska meistaramótinu í
göngu um helgina. Daníel keptti í 30
km göngu með frjálsri aðferð og var
hann meirihluta leiðarinnar í sjö-
unda sæti en datt niður í 13. sæti á
síðustu kílómetrum leiðarinnar.
Þetta var góö ganga hjá Daníel en
allir bestu skíðamenn Svíþjóðar
tóku þátt í þessu móti. Það var
Rússinn Vladimir Smirnov sem
kom fyrstur í mark i göngunni. í
öðru sæti varð Niklas Jonsson frá
Svíþjóð og þriðji í mark kom
Torgny Mogren.
Asama, klúbbur Daníels, varð í
fyrsta sæti í liðakeppninni en þrír
bestu í hverju liði eru teknir út og
stig þeirra reiknuð saman. Daníel
varð þriðji af liðsmönnum Asarna
og því komu stig hans til útreikn-
ings. Sænska meistaramótið heldur
áfram í dag og verður keppt í 15 km
frjálsri aðferð, 50 km hefðbundinni
göngu og 3x10 km boðgöngu. -JKS
Islensk stúlka
sló í gegn
Vala bætti eigið
íslands- og
Norðurlandamet
Ikvöld
Handbolti kvenna:
Stjaman-FH...........18.15
Handbolti - Nissandeild:
Stjaman-Haukar ...... 20.00
- á móti í listhlaupi
Karen Eygló Pétursdóttir, 17 ára ís-
lensk stúlka sem búsett er í Kanada,
gerði það gott á móti í listhlaupi á skaut-
um sem fram fór í Winnipeg um helgina.
Karen Eygló hlaut þrenn gullverðlaun
á mótinu og tryggði sér þáttttökurétt á
stóru svæðismóti.
Karen hefur verið búsett í Árborg,
á skautum í Kanada
skammt frá Winnipeg, frá tveggja ára
aldri en hún er íslenskur ríkisborgari.
Frammistaða hennar hefur vakið tals-
verða athygli og þjálfari hennar er sá
sami og þjálfaði heimsmeistarann í
karlaflokki, Elvis Stojko.
-VS
Vala Flosadóttir bætti eigið ís-
lands- og Norðurlandamet í stang-
arstökki á móti í Malmö á sunnu-
daginn var. Vala stökk 3,90 metra
og sýndi mikið öryggi. Hún fór fyrst
yfir 3,85 metra og lét þá hækka í
3,90 metra. Eldra metið var 3,82
metrar og sett fyrir um viku síðan.
Vala býr sig nú undir þátttöku í
Evrópumeistaramótinu í mars.
Næsta mót hins vegar sem hún
tekur þátt í verður sænska innan-
hússmeistaramótið sem haldiö
verður í Gautaborg um næstu helgi.
Á því móti keppa einnig Jón Arnar
Magnússon, Geirlaug B. Geirlaugs-
dóttir og Jóhannes Már Marteins-
son. Þau tvö síðastnefndu reyna við
lágmörk fyrir Evrópumeistaramót-
ið,
Jón Arnar Magnússon, nýkjörinn
íþróttamaður ársins, keppir á mót-
inu í Gautaborg í 60 metra hlaupi
og 60 metra grindahlaupi. -JKS
Asprilla til
Newcastle?
Skýrt var frá því á sjónvarps-
stöðinni Sky í morgun að Kevin
Keegan, framkvæmdastjóri
enska knattspyrnufélagsins
Newcastle, hefði komist að
samkomulagi við Parma á Ítalíu
um kaup á kólumbíska sókn-
armanninum Faustino Asprilla.
Kaupverðið var sagt 670 millj-
ónir króna.
Bætt viö hópinn
Robbie Fowler og Stan
Collymore, sóknarmenn úr
Liverpool, bættust í gær í lands-
liðshópinn hjá Terry Venables,
þjálfara enska landsliðsins. Þeir
léku báðir mjög vel þegar Liver-
pool burstaði Leeds, 5-0, á laug-
ardaginn.
Rush til
Sunderland?
Enska 1. deildar liðið Sunder-
land ætlar að freista þess að fá
Ian Rush að láni frá Liverpool út
tímabilið. Rush á ekki fast sæti í
liði Liverpool en hefur oft verið
ómetanlegur þegar hann hefur
leyst aðra sóknarmenn af hólmi.
Celtic leitar
í Hoilandi
Skoska liðið Celtic er búið að
bjóða 100 milljónir króna i fram-
línumanninn Dennis de Noijier
hjá Sparta í Rotterdam. Hann er
mikifl markaskorari, hefur skor-
að 12 mörk í 19 leikjum. Fleiri
lið hafa verið á eftir þessum
marksækna leikmanni.
Platt ekki með?
Bresk dagblöð voru með get-
gátur um það um helgina að
meiðsli Davids Platts væru það
alvarleg að hann gæti ekki leik-
ið með enska landsliðinu í Evr-
ópukeppninni í sumar. Platt fór
nefnilega í aðgerð fyrir helgina.
Barist um leikmann
Liverpool og Blackburn berj-
ast nú um 3. deildar leikmann-
inn Paul Murray hjá Carlisle.
Njósnarar frá félögunum fylgd-
ust með Murray i síðustu viku
en hann er talinn vera 200
milljóna króna virði.
Lentini til Englands?
Svo gæti farið að hinn kunni
leikmaður Lentini hjá AC Milan
sé á förum frá liðinu. Lentini
hefur ekki átt fast sæti í byrjun-
arliði Milan og vill reyna fyrir
sér annars staðar. Arsenal hefur
að undanfomu fylgst með Lent-
ini og hefur hann heyrt af áhuga
enska liðsins. „Auk þess að leika
á Englandi gæfi það mér mögu-
leika að læra tungumálið og kon-
an mín er þessu sammála,” sagði
Lentini við Cazzette della Sport í
gær.
Moos stefnir Bremen
Aad De Moos, þjálfarinn sem
Werder Bremen rak um áramót-
in, hefur stefnt þýska liðinu fyr-
ir samningsbrot. Hann vill að
Bremen standi við samninginn
sem átti að gilda til júní 1997.
Moos vill að félagið greiði sér
litlar þrjár milljónir á mánuði til
júní 1997.
Semur Beardsley
til aldamóta?
Samningur Peters Beardsley
við Newcastle
fellur úr gildi
1998. Nú eru
umræður
komnar af stað
að framlengja
hann til ársins
2000. „Það
kæmi mér ekki á óvart að við
framlengdum hann til 2000, hann
er jú bara 35 ára gamafl,” sagði
Kevin Keegan, stjóri Newcastle,
á Sky Sport.