Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1996, Qupperneq 32
36
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
Hluti verkamanna er kominn í
stjórnarandstöðu í sínu félagi.
Verðum á
herðunum á
þeim
„Það er komin upp ákveðin
stjórnarandstaða í Dagsbrún.
Við verðum á herðunum á þeim
hér eftir."
Kristján Árnason, í DV.
Mesta böl lands
og þjóðar
„Starfið hefur veitt mér inn-
sýn í það sem ég tel vera það
mesta böl sem yfir land og þjóð
hefur dunið. Það tengist þessu
svokallaða félagslega kerfl.“
Örn Kærnested byggingarverktaki, í
Morgunblaðinu.
Ummæli
Prestlausar byggðir
„Ef þær forsendur eru gefnar
að hver söfnuður yrði að standa
á eigin fótum sé ég prestlausar
byggðir úti um allt land.“
Óláfur Skúlason biskup, í DV.
Allt blóði drifið
„íslendingasögurnar eru blóð-
ugar og Grimmsævintýrin og
Biblían, þetta er allt blóði drif-
ið.“
Guðbjörg Kolbeins, í Tímanum.
Óteljandi stjörnur eru á himin-
hvolfinu, flestar ógnarlangt í
burtu.
Vetrarbrautir
Hér á landi köllum við
stjörnuþyrpingar í alheiminum
vetrarbrautir og skipta vetrar-
brautir tugum þúsunda. Stjörnu-
rnar sem sjást á næturhimnin-
um eru hluti af vetrarbrautinni
sem okkar sólkerfi er í. Enginn
veit nákvæmlega hve margar
stjörnur eru í vetrarbrautinni,
en það gætu verið allt að 100.000
milljónir, en að sjálfsögðu sjást
þær ekki allar. Þar til nýlega hef-
ur ekki verið hægt að sanna til-
vist reikistjarna, nema í sólkerfi
okkar, en nú eru vísindamenn
búnir að staðfesta tvær aðrar
reikistjörnur í sólkerfum sem
eru 35 til 40 ljósár í burtu.
Blessuð veröldin
Gormlaga vetrarbraut
Sólkerfi okkar er í jaðrinum á
vetrarbrautinni og þegar horft
er í átt að miðju má sjá bjar-
mann frá öðrum stjörnum og
stjörnuþokum. Stjörnufræðingar
hafa reiknað út hvernig vetrar-
brautin okkar er í laginu með
því að skoða aðrar vetrarbrautir
og mæla hreyfingar gasskýja
milli stjarnanna. Hún er flatur
gormur eða spírall, um það bil
100.000 ljósár á breidd með
tveimur „örmum" sem vefjast
kringum skæran gúlp í miðj-
unni.
Rigning og síðan slydduél
í dag verður suðaustan stinn-
ingskaldi eða allhvasst vestan til á
landinu en hægari suðaustanátt
austan til. Um landið vestanvert
verður rigning, smáskúrir suðaust-
an til en léttskýjað um landið norð-
austanvert. Síðdegis verður suðvest-
Veðrið í dag
angola eða kaldi með slydduéljum
vestanlands. Þá verður sunnangola
eða kaldi og dálítil súld eða rigning
með köflum suðaustanlands en
slydduél norðaustan til. í nótt verð-
ur hæg suðvestlæg átt og dálítil
snjó- eða slydduél víða um land.
Hiti verður á bilinu 1 til 6 stig í
fyrstu en síðan fer að kólna, fyrst
um landið vestanvert. í nótt verður
hiti á bilinu 0 til 3 stig víðast hvar.
Á höfuðborgarsvæðinu verður suð-
austan stinningskaldi og súld eða
rigning fram að hádegi en síðan
suðvestangola eða kaldi með slydd-
uéljum. Hiti verður á bilinu 3 tfl 5
stig fram að hádegi en síðan 1 til 3
stig.
Sólarlag í Reykjavík: 16.44
Sólarupprás á morgun: 10.33.
Síðdegisflóð í Reykjavik: 20.43.
Árdegisflóð á morgun: 9.05.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrió kl. 6 í morgun:
Akureyri
Akurnes
Bergstaóir
Bolungarvík
Egilsstaöir
Keflavíkurflugv.
Kirkjubkl.
Raufarhöfn
Reykjavík
Stórhöfói
Helsinki
Kaupmannah.
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Amsterdam
Barcelona
Bergen
Chicago
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
Los Angeles
Madríd
París
Róm
Mallorca
New York
Nice
Nuuk
Orlando
Valencia
Vín
Washington
heiöskírt
léttskýjaö
léttskýjaó
skúr á síö.klst.
hálfskýjaö
rigning og súld
skúr
heiðskírt
rignin
rigning
snjókoma
alskýjaö
alskýjaö
frostúöi
skýjaö
þokumóða
rigning
léttskýjaö
alskýjaö
skýjaö
mistur
skýjaó
mistur
heióskírt
skýjaö
alskyjaö
þokumóöa
rigning
alskýjaö
alskýjaó
Sjók. á síö.kl.
hálfskýjaö
skýjaó
þokumóóa
þokumóöa
2
2
2
6
3
4
2
1
5
5
-6
-4
-6
-3
4
-5
13
-3
2
-5
4
-7
4
10
7
4
12
16
3
12
-9
18
12
-6
-1
Stefán Geir Karlsson, skipatæknifræðingur og myndlistarmaður:
Var alltaf að smíða eitthvað
„Það má kannski segja að þessi
stóru verk tengist öll æskuminn-
ingum á einhvern hátt. Herðatréð
er gert eftir gömlu heimasmíðuðu
herðatré, sem til var á heimili
mínu. Blokkflautan, sem kom
næst, var einnig byggð á
æskuminningum. Ég er uppalinn í
Keflavík og þar var mér eins og
öllum í bekknum þrælað í að læra
á blokkflautu. Þetta var mikið mál
fyrir mig og þess vegna er flautan
svona snúin, þvi mér fannst nám-
ið mjög snúið og gat aldrei lært á
flautuna. Dómaraflautan var svo
gerð fyrir HM á íslandi," segir
Stefán Karl Geirsson, skipatækni-
Maður dagsins
fræðingur og myndlistarmaður, en
nýlega var honum afhent viður-
kenningarskjal fyrir að komast í
Heimsmetabók Guinness fyrir að
hafa smíðað stærstu blokkflaut-
una. Fyrir hafði hann fengið skráð
met fyrir stærsta herðatréð og
dómaraflautan er til athugunar
hjá bókinni.
Stefán sagði að öll þessi þrjú
verk væru við íþróttamannvirki:
Stefán Geir Karlsson.
„Reykjavíkurborg á bæði herða-
tréð og blokkflautuna. Herðatréð
er í anddyrinu á Laugardalslaug
og blokkflautan er úti í garði í Ár-
bæjarlaug. Mig dreymir um að
hafa blokkflautuna liggjandi lá-
rétta og tengja við hana loft
þannig að hægt sé að spila á hana,
enda var það skilyrði þess að hún
færi í heimsmetabókina að hægt
væri að spila á hana. Dómaraflaut-
an er á Laugardalsvellinum, en
KSÍ keypti hana af mér, en hún er
ekki komin á endanlegan stað á
vellinum.“
Stefán sagði aðspurður að hann
væri meö eitt verk í farveginum:
„Ég er í samræðum við menn á
Höfn 1 Hornafírði, en þar rak á
land mikinn trjábol sem er tæpur
metri í þvermál og sex metrar á
lengd og það stendur til að ég geri
úr honum lindarpenna og að hann
standi á milli tveggja skólabygg-
inga.“
Stefán er skipatæknifræðingur,
en upphafið að myndlistinni kem-
ur úr fyrra námi: „Ég er einnig
lærður plötu- og ketilsmiður og
það var strax sem lærlingur í járn-
smíðinni, að ég fór að gera hluti
með fram náminu, en ég hef ekk-
ert eiginlegt myndlistarnám að
baki. Ég hef einnig fengist við
hefðbundnari myndlist og er með í
samsýningu margra listamanna í
Gallerí Greip um þessar mundir."
Eiginkona Stefáns er Magnea
Reinaldsdóttir og þau eiga tvær
dætur.
-HK
Stjarnan-FH í 1.
deild kvenna
Það er frekar rólegt í keppnis-
íþróttum hér á landi í kvöld, en
þó er á dagskrá einn leikur í 1.
deild kvenna í handbolta, er það
viðureign Stjömunnar og FH.
Fer leikurinn fram í Ásgarði í
Garðabæ og eru Stjörnustúlkur
mun sigurstranglegri á sínum
heimavefli, auk þess sem þær
eru núverandi íslandsmeistarar
íþróttir
og eru efstar í deildinni. Leikur-
inn hefst kl. 20.30. Það verður
leikið áfram í l. deild kvenna
annað kvöld, auk þess sem þá
verður einnig leikið í 2. deild
karla.
í körfuboltanum eru í kvöld á
dagskrá þrír leikir í unglinga-
flokki, Keflavík leikur gegn
Breiðabliki í Keflavík, ÍR leikur
gegn Njarðvík í Seljaskóla og á
sama stað leikur unglingaliðið
gegn Fylki.
24 olíumyndir í
Borgarnesi
í Safnhúsi Borgarfjarðar stend-
ur nú yfir sýning á 24 olíumynd-
um eftir Einar Ingimundarson,
málara í Borgarnesi. Um er að
ræða myndir sem listamaðurinn
hefur málað af landslagi og bygg-
ingum vitt og breitt um héraðið.
Sýningar
Einar hélt sína fyrstu mál-
verkasýningu 1947, en síðan varð
hlé á listamannsferlinum fram
yfir 1980 á meðan hann starfaði
við húsamálun, en þá tók hann
fram strigann og litaspjaldið á ný
og hefur haldið nokkrar sýningar.
Einar hefur. lagt áherslu á að
safna myndrænum heimildum úr
Borgarnesi og meðal annars mál-
að fjölmargar myndir af bænum
eins og hann leit út á fyrstu ára-
tugum aldarinnar.
Bridge
Árið 1954 voru Bandaríkjamenn
og Frakkar með sterkustu landslið
heims í bridge. Frakkar voru Evr-
ópumeistarar og þessar þjóðir mætt-
ust í einvígi í heimsmeistarakeppn-
inni en franska liðið var styrkt með
Jean Besse frá Sviss og Karl
Schneider frá Austurríki. Banda-
ríkjamennirnir höfðu sigur í úr-
slitaleiknum en í þessu spili úr
leiknum var það Jean Besse sem lét
ljós sitt skína. Sagnir gengu þannig,
allir utan hættu og vestur gjafari:
* 7-
* AKD10742
* KD873
* 4
f Á107632
«* 63
♦ 94
* 972
4 K4
V 5
* 62
* ÁDG108653
Vestur Norður Austur Suður
pass 2* pass 3*
pass 3-f pass 5*
pass 6* p/h
Gegn sex laufum byrjaði vestur á
því að spila út tígulás og síðan var
hjartaníunni spilað. Besse drap á
hjartaásinn í blindum og spilaði
strax laufi á ásinn! Af hverju ætli
Besse hafi fundið þessa spilaleið?
Ekki vegna þeirrar hjátrúar að lauf-
kóngurinn væri oftar einspil en
önnur spil! Fyrsta vísbendingin,
sem Besse fór eftir, var útspil vest-
urs. Varnarspilarar, sem byrja á því
að taka slag á ás gegm slemmu í lit
sem andstæðingarnir segja, eiga
mjög oft von á því að fá slag annars
staðar síðar í spilinu. Hin vísbend-
ingin fólst í því spili sem vestur
spilaði í öðrum slag. Ef vestur hefði
ekki átt laufkónginn þá er ekki ólík-
legt að hann hefði spilað spaða í
þeirri von að fjarlægja trompið í
blindum svo að ekki væri hægt að
svína litnum.
♦ DG985
«» G98
ÁG105
* K
Beinmyndun
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi
isak Örn Sigurðsson