Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1996, Page 36
ÚlHt Lérrfj«aaðí' landsmenn
igAju&.næstti dögum tekið
fiwari&autana M muni því
ekRfvaðfflýÉBþ'aelg þaö sem
eftir llfir viKunrrar eins og
þessi dfenguPgérði í gær.
Samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar í morgun er
gert ráð fyrir kaldri vest-
lægri átt um allt land fram á
DV-mynd BG
laugardag.
FR ETTAS KOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
-- -síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
550 5000
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANUAR 1996
Röntgentæknar:
Vaktavinna
tekin upp
Eldur „fast-
ur“ í húsi
Notalegur eldur í arni varð til
þess að slökkviliðið var í gærkvöldi
kallað að húsi í Grafarvogi. Vegfar-
endur höfðu séð glampa á glugga og
töldu að eldur væri laus í húsinu.
Þegar til kom reyndist þó aðeins
skíðloga i'aminum og engin hætta
var á ferðum. Ekki var slökkt í.
-GK
Fíkniefnaleit
heldur áfram
Lögreglan heldur áfram að leita
uppi fikniefni og fíkniefnaneytend-
ur í Reykjavík eftir að umfangsmik-
il „rassía“ hófst um helgina. Af-
skipti hafa verið höfð af tugum
manna.
Fíkniefni hafa fundist og neytend-
ur hafa verið sektaðir. Þá hefur
töluvert fundist af þýfi. Ætlunin er
halda aðgerðum áfram næstu daga.
-GK
Utburður um
mánaðamót
„Það stefnir í að hann verði hor-
inn út eftir mánaðamótin. Ég vona
þó að lausn finnist áður en til að-
gerða kemur,“ segir Andrés Valdi-
marsson, sýslumaður á Selfossi, en
hann hefur úrskurðað að Björgvin
Valdimarsson, refabóndi á Hvoli í
Ölfusi, verði að víkja af jörðinni nú
um mánaðamótin.
Ríkið átti jörðina en hún hefur
nú verið seld. Björgvin segist ekki
ætla að fara. Sýslumaður sagði að
varla yrði ráðist í útburð á tilsett-
um degi heldur þá enn reynt að ná
samkomulagi um málið. Ef það tæk-
ist ekki þá yrði að beita útburði.
-GK
HANN VIRÐIST
HÁLFGERDUR REFUR
ÞESSI!
Samningamenn röntgentækna og
Landspítalans hafa komið sér sam-
an um drög að samkomulagi í deil-
unni um uppsögn fastra yfirvinnu-
tíma. Samkvæmt þeim verður tekin
upp vaktavinna á röntgendeild og
uppsögnin dregin til baka.
Drögin verða væntanlega lögð
fram á fundi með röntgentæknum í
dag. Hljóti þau samþykki heíja
röntgentæknar líklega störf á morg-
un.
„Við vorum að ganga frá drögum
í gærkvöldi. Ég vona að samkomu-
lag takist. Mér finnst vera góðar lík-
ur á því,“ segir Sigrún M. Magnús-
dóttir röntgentæknir.
-GHS
Viðhaldsstöð Flugleiða:
I samningum um að
skoða 20 Fokkera SAS
Um 200 milljóna króna samningur
DV Suðurnesjum:
„Ef samningar takast þá verður
þetta stói’samningur, sá stærsti
sem við höfum gert. Um er að
ræða skoðanir á flugvélum SAS.
Við erum í samningaviðræðum
við þá og það ræðst í næsta mán-
uði hvort við fáum verkið," sagði
Valdimar Sæmundsson, yfirmaður
skipulags- og tæknisöludeildar
viðhaldsstöðvar Flugleiða á Kefla-
víkurflugvelli, í samtali við DV.
Flugleiðir hafa unnið fyrir SAS
og þeir hafa verið ánægðir með
verkin hjá viðhaldsstöðinni. Það
er verið að semja um stórskoðun á
20 Fokkervélum og samkvæmt
heimildum er um 200 milljóna
króna samning að ræða. Það er
hæsta upphæð sem rætt hefur ver-
ið um í samningum við viðhalds-
stöðina.
Viðhaldsstöðin hefur getið sér
gott orð og er mikið að gera þar. í
stöðinni vinna um 200 manns, þar
af 130 flugvirkjar. í maí og júní
verða skoðaðar tvær Fokkervélar
danska flugfélagsins Maersk Air
og tekur skoðunin tvær vikur á
hvora vél.
-ÆMK
—
U
Síldarviðræðurnar:
Samstarf við
Færeyinga semj
ist ekki í Moskvu
- segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
„Ef það semst ekki á fundinum í
Moskvu á morgun þá liggur fyrir
pólitísk yfirlýsing mín og færeyska
sjávarútvegsráðherrans um að við
munum taka upp samstarf við síld-
veiðamar með svipuðum hætti og í
fyrra,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra í morgun.
í fyrramálið hefst fundur Rússa,
íslendinga, Færeyinga og Norð-
manna um skiptingu aflakvóta
norsk-íslenska síldarstofnsins.
„Við byggjum okkar málflutning
á skýrslu vísindamanna um dreif-
ingu stofnsins. Við höfum hins veg-
ar sagt að þangað til síldin tekur
upp hið gamla göngumunstur, þurfi
að finna bráðabirgðalausn, sem að-
lögun að þeirri niðurstöðu. Síðan
mun það væntanlega koma í ljós á
fundinum í Moskvu á morgun hvað
Rússar leggja til í málinu," sagði
Þorsteinn.
Samkvæmt þessari skýrslu, sem
ráðherra vitnar í, eiga íslendingar
rétt á 30 til 40 þúsund lesta síldark-
vóta, miðað við aflareynslu.
Þorsteinn sagði að eftir síðasta
fund um skiptingu síldarkvótans
hefði staðan verið þannig að Rússar
lögðu til að gefinn yrði út bráða-
birgðakvóti sem ákveðið hlutfall af
kvóta hverrar þjóðar síðastliðið ár.
Um það urðu allir sammála nema
Norðmenn. Síðan hafa þeir gefið út
einhliða kvóta sem er 725 þúsund
lestir. Allir eru sammála um að
æskilegt sé að takmarka síldveið-
arnar við eina milljón lesta.
Þorsteinn var spurður hvort
hann ætti von á einhverri niður-
stöðu á fundinum í Moskvu á morg-
un?
„Það er mjög erfitt að segja um
það. Það eitt er víst að þetta verða
flóknar og erfiðar viðræður," sagði
Þorsteinn Pálsson.
-S.dór
^ Viðar Egpertsson leikhússtjóri:
Oljóst hversu mórgum verður sagt upp
„Það er ekki ljóst á þessari
stundu hve mörgum verður sagt
upp. Það mun skýrast fyrir 1. mars.
Það þótti tilhlýðilegt að auglýsa
fastar stöður leikara og leikstjóra
lausar til umsóknar, ekki síst þar
sem leikhússtjóraskipti fara fram.
Það hljóta að verða áherslubreyting-
ar þegar nýr leikhússtjóri kemur til
starfa," sagði Viðar Eggertsson,
leikhússtjóri Borgarleikhússins, í
samtali við DV frá Helsinki í morg-
un en hann hefur auglýst stöður
leikara og leikstjóra hjá Leikfélagi
Reykjavíkur lausar til umsóknar.
Óvissa og ólga ríkir í Borgarleik-
húsinu þessa dagana vegna starfs-
mannahalds. Upplýst er að einum
leikara hefur verið sagt upp, Guð-
mundi Ólafssyni, en hann er sá eini
með sex mánaða uppsagnarfrest.
Viðar sagði að uppsögn Guðmundar
væri ekki vantraust á hann heldur
hefði ráðningarsamningur hans
verið öðruvísi en annarra.
„Föstum samningi Guðmundar er
sagt upp en hann er alls ekki útilok-
aður sem leikari við húsið í einstök-
um verkefnum," sagði Viðar.
-bjb
- sjá nánar bls. 26
Veðrið á morgun:
Víðast
þurrt
Á morgun verður hæg suð-
læg eða breytileg átt og víðast
þurrt. Hiti á bilinu -2 til +5
stig.
Veðrið í dag er
á bls. 36
brother
Litla
merkivélin
Loksins
meö ÞogÐ
Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443
itnt
alltaf á
Miðvikudögum
f
í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i