Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1996, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1996, Side 24
44 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 (Jöponn f Misvitrir peningamenn sitja í bankaráðum. Óþarfi að hafa vit á banka- rekstri „Það hefur aldrei skipt veru- legu máli hvort menn hefðu mik- ið vit á bankarekstri til að sitja í bankaráði á íslandi." Birgir Hermannsson, í Alþýðblað- inu. Ummæli Málið ekki í gíslingu „Ég hef enga löngun til að setja þetta mál til gíslingar hjá þessari baknefnd verkalýðshreyfingarinn- ar.“ Páll Pétursson, um lagabreytingu á sáttastörf og vinnudeilur, í DV. Útspil Jóns Baldvins „Utspil Jóns Baldvins er opn- un á það að við hugsum okkur enn alvarlegar inn í nýtt póli- tískt umhverfí." Svanfríður Jónasdóttir, Þjóðvaka, í Alþýðublaðinu. Stjörnusjónaukar geta verið risa- stórir eins og þessi sem er í Rússlandi. Ósýnileg stjörnufræði Með venjulegum stjömukíki er hægt að sjá birtuna frá stjörn- um og vetrarbrautum en það er ekki hægt að sjá annars konar geislun sem frá þeim stafar, svo sem röntgengeisla, útvarpsbylgj- ur og útfjólubláa og innrauða geisla. Þessi geislun ber í sér upplýsingar sem auðvelda stjörnufræðingum að skilja hvernig alheimurinn er. Með út- varpsbylgjum geta þeir greint risastór gasský í geimnum og þannig hefur þeim tekist að kort- leggja lögun vetrarbrautar okk- ar. Röntgengeislar sýna stjörnu- fræðingum hvar ofsafengin virkni á sér stað, svo sem stjörnusprengingar eða jafnvel gas að hverfa inn í svarthol. Með innrauðri geislun geta þeir „séð“ ungar stjörnur myndast. Útfjólu- blátt ljós kemur frá alheitustu stjörnunum. Þar sem lofthjúpur jarðar kemur í veg fyrir að mik- ill hluti af þessari geislun nái til jarðar eru gervitungl notuð til að ná upplýsingum. Blessuð veröldin Útvarpssjónaukar Útvarpssjónaukar safna út- varpsgeislum i íbjúgan loftnets- disk. Stjarnfræðingar þurfa geysistóra útvarpssjónauka til að ná nákvæmum myndum og þess vegna nota þeir allmarga smærri sjónauka sem gera sama gagn og einn risastór. Til að mynda er til útvarpssjónauki sem hefur 27 diska. í sameiningu eru þeir jafnnákvæmir og einn útvarpssjónauki sem væri 34 kílómetrar í þvermál. Víða léttskýjað Yfir Grænlandshafi er minnkandi lægðardrag en hæð er yfír Skandin- avíu. Langt suðvestur í hafi er all- djúp lægð sem hreyfíst austur. I dag verður hæg breytileg eða suðvest- Veðrið í dag læg átt á landinu. Smáél við suð- vestur- og vesturströndina en ann- ars þurrt og víða léttskýjað. Hiti ná- lægt frostmarki. Á höfuðborgar- svæðinu er hæg breytileg eða suð- læg átt. Stöku él í dag en annars þurrt. Hiti er nálægt frostmarki. Sólarlag i Reykjavík: 16.47 Sólarupprás á morgun: 10.30. Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.30. Árdegisflóð á morgxm: 9.53. Heimild: Almanak Háskólans. Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skýjaó 0 Akurnes léttskýjaó 0 Bergstaðir alskýjaö 1 Bolungarvík snjóél 1 Egilsstaöir heiðskírt -1 Keflavíkurflugv. skýjaö 1 Kirkjubkl. alskýjaó 1 Raufarhöfn alskýjað 0 Reykjavík úrk. ígr. 1 Stórhöfði úrk. í gr. 2 Helsinki snjókoma -10 Kaupmannah. alskýjað -A Ósló snjókoma -6 Stokkhólmur alskýjað -5 Þórshöfn alskýjað 5 Amsterdam þokumóða -A Barcelona súld 14 Bergen alskýjaó -5 Chicago snjókoma -2 Frankfurt alskýjað -2 Glasgow skýjaö 3 Hamborg heióskírt -8 London rigning 4 Los Angeles léttskýjað 9 Madríd súld 6 París þokumóða 2 Róm alskýjað 14 Mallorca skýjað 15 New York alskýjað 5 Nice rigning 8 Nuuk skafrenningur -4 Orlando Valencia alskýjað 18 Vín slydda -5 Washington alskýjað 6 Winnipeg heiðsklrt -31 Bergleif Joensen hótelstjóri: Þeim finnst mat- urinn svo góður DV, Eskiíirði: „Það hefur verið nóg að gera fram að þessu og nýting verið góð og allt gengið vel,“ segir hinn eld- hressi Bergleif Joensen, hótelstjóri Hótel Öskju á Eskifirði. Bergleif er nú orðinn hóteleigandi þar sem hann keypti hótelið af bæjarsjóði Eskifjarðar síðastliðið haust. Síð- ustu þrjú árin var hann með hótel- ið á leigu, en annars hefur hótelið Maður dagsins verið baggi á bæjarsjóði Eskifjarð- ar og tugir milljóna af skattpen- ingum bæjarbúa hafa glutrast í hótelhaldið síðan bærinn eignað- ist það á áttunda áratugnum. „Með útsjónarsemi er vel hægt að láta enda ná saman. Ég legg mikið upp úr því að veita sem besta þjónustu og ég verð var við aö sömu kúnnamir koma aftur og aftur, af því að þeim finnst matur- Bergleif Joensen. inn svo góður. Vinnudagurinn hjá mér og Jakobínu Óskarsdóttur, eiginkonu minni, er að vísu lang- ur, eða frá átta á morgnana tO miðnættis. Við höfum eina stúlku sem starfar hjá okkur og bætum við íhlaupafólki þegar mestu ann- irnar eru.“ Gróskumikið atvinnulif á Eski- firði er að sjálfsögðu grunnurinn að velgengni hótelhaldsins, því mikið er að gera í sambandi við at- vinnuna og þjónustu tengda henni. En hótelið sjálft hefur einnig sitt aðdráttarafl. „Mér þykir alltaf vænt um það sem Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra sagði við mig eitt sinn er hann hafði gist hjá mér eina nótt þegar hann var með fundar- höld í kjördæminu. Hann sagði: „Ég var á Hilton hótelinu í Stokk- hólmi í fyrrinótt, sem er mjög glæsilegt hótel, en mér finnst miklu betra að vera á Hótel Öskju, hér er svo heimilislegt og nota- legt.“ Við erum búin að endurbæta hótelið fyrir 2-3 milljónir króna síðan kaupin fóru fram, þannig að ný rúm hafa verið keypt, gluggar teknir í gegn, ný húsgögn og hótel- ið málað," sagði Bergleif, sem lítur björtum augum til framtíðarinnar. -ET Myndgátan Lausn á gátu nr. 1425: Margir leikir í handboltanum Það verður mikið um að vera í handboltanum i kvöld þótt ekki sé leikið í 1. deild karla. Það verða aftur á móti þrír leikir í 1. deild kvenna. í Valsheimilinu leika Valur og KR og í Vest- mannaeyjum leika ÍBV og Vík- ingur. Þessir leikir hefjast kl. 20. Hálftíma síðar leika ÍBA og Fylk- ir í KA-heimilinu á Akureyri. íþróttir Það er einnig leikið í 2. deild karla og fara fram fjórir leikir. í Fjölnishúsi leika Fjölnir og Fylk- ir, í Laugardalshöll leika Ár- mann og ÍH, í Höllinni á Akur- eyri leika Þór og HK og í Smár- anum í Kópavogi leika Breiða- blik og Fram. Allir þessi leikir hefjast ki. 20. Lög Sonny Rollins á Kringlukránni í kvöld munu þeir Björn Thoroddsen gítarleikari, Tómas R. Einarsson bassaleikari og Ein- ar Valur Scheving trommuleikari leika á Kringlukránni. Á efnis- skrá eru eingöngu verk eftir ten- órsaxófónleikarann Sonny Roll- ins, sem þykir einnig liðtækur lagasmiður. Lög eftir hann eru of- Tónleikar arlega á lista hjá djassleikurum um allan heim og er ekki ólíklegt að lög eins og Oleo, St. Thomas, Airegin og Doxy verði á dagskrá tríósins í kvöld ásamt mörgum öðrum lögum djasssnillingsins. Tónleikarnir hefjast kl. 22. Bridge Þetta spO er mjög forvitnilegt en það kom fyrir í undanúrslitaleikjum Reykjavíkurmótsins í sveitakeppni síðastliöinn laugardag. I leik Búlka gegn Landsbréfum náðu bæði pörin í NS að ségja sig í 6 laufa samning. Við fyrstu sýn virðist sem samningurinn standi vegna hagstæðrar legu spaða- gosans en ekki er allt sem sýnist. Spil- ið er þess eðlis að flestir betri spilarar myndu spila spOinu niður. Skoðum hvernig það gerist. Sagnir' gengu þannig í opnum sal, austur gjafari og AV á hættu: a D83 v ÁG * Á109 * D7642 * Á976 ** 1082 * K8732 * G * K1054 * K3 ■f 4 * ÁK9853 Austur Suður Vestur Norður Þorlákur Bragi Sverrir Sigtr. 2* 3* 3«» 4» pass 4f pass 6* p/h Vestur spOaði út hjartatvisti og Bragi reyndi strax að byggja upp ein- hverja mynd um skiptingu spilanna. Hann drap fyrsta slaginn heima á kóng, lagði niður laufás, spOaði tígli á ás, trompaði tígul, spOaði hjarta á ás og trompaði tígul. Nú tók hann tvisvar sinnum tromp og þó að AV hafi ekki upplýst ná- kvæmlega skiptingu tígullitarins var líklegt að skipting spilanna væri 4-3-5- 1 hjá vestri og 2-6-4-1 hjá austri (opnun austurs lofaði sexlit). Með það fyrir augum var rétt aö spila spaða á kónginn. Ef austur átti ásinn annan yrði hann að spOa næst í tvöfalda eyðu og ef vestur ætti ásinn voru líkur á að hann ætti einnig gos- ann. Vestur drap á ás og spilaði lágum spaða sem Bragi hleypti yfir tO aust- urs og fór niður á spOinu. Hið merki- lega er að sagnir gengu á svipaðan hátt fyrir sig á hinu borðinu og sagn- hafi fór niður á sama hátt og spOið féU. ísak Örn Sigurðsson Gerist brotlegur Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.