Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1996, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
Fréttir
Skýrsla starfshóps fjármálaráðherra um samkeppnisstöðu íslands:
Þriðjungur atvinnulífs
án allrar samkeppni
- íslendingar hafa dregist aftur úr í menntun
Þriðjungur allrar atvinnustarf-
semi í landinu er án samkeppni.
Auka þarf samkeppni í atvinnulíf-
inu til að auka samkeppni. í örri
framvindu tæknisamfélagsins hefur
þjóðin dregist aftur úr í menntun.
Mikilvægt er að efla tæknimenntun
á lægri skólastigum til að rétta hlut
okkar gagnvart samkeppnisþjóðun-
um. Takmörkuð málakunnátta er
íslendingum fjötur um fót. Árið 2010
geta íslendingar vænst þess að tekj-
ur þeirra og framleiðsla hafí aukist
um 25-30% á mann ef vel tekst til.
Þetta má m.a. lesa í skýrslu
starfshóps sem Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra skipaði í ágúst
1994 til að kanna samkeppnisstöðu
íslands gagnvart öðrum löndum og
gera tillögur um hvernig megi
styrkja hana. í starfshópnum voru
Sigurður B. Stefánson, fram-
kvæmdastjóri VÍB, sem jafnframt
var formaður hópsins, Geir A.
Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri
Marels, og Hörður Sigurgestsson,
forstjóri Eimskips. Með hópnum
störfuðu Katrín Ólafsdóttir, hag-
fræðingur í fjármálaráðuneytinu,
og Þór Sigfússon, ráðgjafi fjármála-
ráðherra. Starfshópurinn hefur skil-
að skýrslunni til fjármálaráðherra
en hún hefur ekki verið gerð opin-
ber fyrr en nú.
Miðað við að tekjur íslendinga og
framleiðsla árið 2010 hafi aukist um
25-30% á mann verður að jafnaði
2,6% havöxtur næstu fjórtán árin.
Það er svipaður hagvöxtur og reikn-
að er með til aldamóta innan ann-
arra ríkja OECD en helmingi betri
en íslendingar hafa náð síðustu tíu
árin.
Ferðaþjónustan mikilvægust
2010
Skýrsluhöfundar leggja áherslu á
að til að auka megi framleiðni og
samkeppnisstöðu atvinnulífsins
þurfi íslendingar að búa sig sem
best undir upplýsingabyltinguna og
útbreiðslu markaðshagkerfisins.
Hagvöxturinn til 2010 muni eiga sér
aðrar skýringar en framleiðslu-
aukningu síðustu fimm áratugina. í
skýrslunni er sagt að ferðaþjónusta
gæti verið mikilvægasta atvinnu-
grein þjóðarinnar árið 2010. Þar
þurfi þó að koma á skýrari stefnu-
mörkun og auka menntun í ferða-
þjónustugreinum.
Að mati skýrsluhöfunda verður
sjávarútvegur áfram undirstaða út-
flutningstekna þjóðarinnar og fiski-
miðin verðmætasta eignin. „Til að
hagnýta fiskistofnana sem best er
mikilvægt að efla þorskstofninn en
nýting hans er nú langt frá því að
skila hámarksafrakstri. Efling
þorskstofnsins á næstu árum getur
aukið verðmætasköpun í sjávarút-
vegi mikið þegar til lengri tíma er
litið," segir í skýrslunni.
Starfshópurinn telur líklegt að í
framtíðinni verði lögð aukin
áhersla á endurnýjanlega orkugjafa
sem ekki valda mengun. Á árunum
2005 til 2010 geti útflutningur á raf-
orku um sæstreng til ríkja Evrópu-
sambandsins hafist og markað upp-
haf á nýju skeiði í orkubúskap Is-
lendinga.
Úrbóta virðist einkum þörf á
þremur sviðum, að mati skýrsluhöf-
unda, til að auka megi tekjur íslend-
inga til jafns við aðrar þjóðir á
næstu árum. í fyrsta lagi að auka al-
menna menntun og tækniþekkingu,
að frjáls og eðlileg samk'eppni verði
hvar sem er í atvinnulífinu og í
þriðja' lagi að aðhalds og hófsemi
verði gætt í fjármálum og þau
skipulögð til lengri tíma en áður.
Eins og áður sagði telja skýrslu-
höfundar að þriðjungur allrar at-
vinnustarfsemi í landinu sé án sam-
keppni og með opinbera íhlutun.
Þar er nefnd til sögunnar fram-
leiðsla og dreifing á raforku, um-
fangsmikil starfsemi ríkisins á fjár-
málamarkaði, hluti af samgöngu- og
fjarskiptakerfi þjóðarinnar, heil-
brigðiskerfið og skólakerfið. Bent er
á að raforkukostnaður í Bretlandi
lækkaði um 30% eftir að samkeppni
í orkusölu var innleidd þar og síma-
kostnaður Breta lækkaði einnig um
30% eftir að ríkið hætti afskiptum
af rekstri símans.
10 þúsundir vinnandi manna
óþarfar?
í skýrslunni er athygli beint að
lítilli framleiðni íslenskra fyrir-
tækja og stofnana sem bent geti til
þess að þau kunni að vera ofmönn-
uð. Síðan segir í skýrslunni:
„Með því að binda fólk við störf
með minnkandi framleiðni er dreg-
ið úr orku þjóðarbúsins til að nýta
vinnuaflið þar sem það skilar
mestu. Til viðbótar við þá fjögur til
fimm þúsund íslendinga sem skráð-
ir eru atvinnulausir nú kynnu að
vera um tíu þúsundir vinnandi
manna sem eru í reynd atvinnu-
lausir en þó á fullum launum. Þeir
eru atvinnulausir í þeim skilningi
að framleiðsla fyrirtækja þeirra,
stofnana eða atvinnugreina þyrfti
ekki að minnka þótt þeir hyrfu úr
starfi."
Atvinnulífið pungar út 3
milljörðum í eftirlitsstarf-
semi hins opinbera
í samanburði við önnur lönd er
arðsemi íslenskra fyrirtækja léleg.
Skýrsluhöfundar telja að auka þurfi
fjárfestingu fyrirtækja um leið og
minnka beri umsvif hins opinbera.
Á meðfylgjandi grafi má sjá þróun
fjárfestingar fyrirtækja annars veg-
ar og hins opinbera hins vegar. Þar
hefur þróunin verið eins og svart og
hvítt. I skýrslunni er áætlað að
kostnaður atvinnulifsins vegna eft-
irlitsstarfsemi hins opinbera sé um
3 milljarðar króna. Afleiðingarnar
séu þær að frá 1985 hafi störfum í at-
vinnulífinu fækkað um 3 þúsund en
fjölgað um 4 þúsund á sama tíma
hjá hinu opinbera. -bjb
Dagfari _______________________________
Forsetaframbjóðandi fær kynningu
Jæja, þá er loks farið að færast
líf í forsetaframboðsmálin. Einkum
af hálfu þeirra sem telja sjálfa sig
þurfa að kynna sig fyrir þjóðinni.
Sem er sjálfsögð kurteisi af hálfu
frambjóðenda sem ætla að verða
forsetar yfir þjóðinni. Þjóðin verð-
ur að fá að kynnast væntanlegum
forseta og það er ekki ráð nema i
tíma sé tekið. Þetta finnst fjölmiðl-
um líka og þannig ákvað Ríkissjón-
varpið að kynna Guðrúnu Péturs-
dóttur rækilega í Dagsljósi nú í
vikunni á þeirri forsendu að eng-
inn þekkti til hennar. Guðrún hef-
ur sjálfsagt metið stöðuna með
sama hætti enda kom hún fram í
þættinum á þeirri forsendu að hún
þarfnaðist kynningar.
Aðra frambjóðendur kynnti RÚV
ekki, enda hafa þeir kynnt sig sjálf-
ir með störfum sínum og þess
vegna þarf að kynna þá sem ekki
hafa kynnt sig sjálfir með störfum
sínum. Það sama gildir um Ragnar
Jónsson organista sem er að vísu
búinn að tilkynna framboð og er sá
eini sem það hefur gert, þvi allir
hinir eru að kynna sig og kynna
sér hvort fólk þekki þá nógu vel
eða jafnvel of vel áður en þeir til-
kynna framboð. Sannleikurinn er
nefnilega sá að sá sem er of vel
sér og ekki er það verra sem hann
hefur tekið að sér: huggun gagn-
vart sorgmæddri húsmóður, skjól-
stæðingur barnaverndarnefnda,
i- .J, ■ - - I U«.. r-j l >i>i
kennari í tónlist, hljómsveitarmað-
ur, handlangari og auðmjúkur
þjónn Krists í baráttunni fyrir guð-
rækninni. Og svo endar þessi mað-
ur með því að hlaupa í skarðið í
Langholtskirkju þegar Jón Stefáns-
son og Flóki koma sér ekki saman
um að halda jól! Er hægt að fá betri
auglýsingu?
Að því leyti var óþarfi að kynna
Ragnar frekar í DV, því maðurinn
hefur leikið aðalhlutverkið í einu
hádramatískasta sakamálaleikriti
samtímans á sviðinu í Langholts-
kirkju. Að hinu leytinu er það vel
til fundið hjá fjölmiðlum að taka
menn á beinið þegar þeir hafa til-
kynnt framboð og þennan feril
Ragnars Jónssonar organista hefði
almenningur aldrei fengið upplýs-
ingar um, ef þessi sami Ragnar
hefði ekki látið sér detta í hug að
verða forseti.
Þannig munu forsetaframboðin
leiða fram í dagsljósið bílaþjófnaði
og málverkastuldi á færibandi og
rannsóknarlögreglan þarf ekki
annað en líta á listann yfir forseta-
frambjóðendur framtíðarinnar til
að grafa upp sökudólga og
landskunna skúrka sem hafa horf-
ið inn í guðshúsin. Það verður svo
sannarlega forvitnilegt að fylgjast
með frambjóðendakynningum á
næstu vikum ef fleira svona á eftir
að koma í ljós.
Dagfari
kynntur og þekktur hefur litla sem
enga möguleika til að ná kjöri, því
fólk veit of mikið upp á hann sök-
ina og syndina til að hann fái fylgi
í forsetakjöri.
Ragnar organisti fær sína kynn-
ingu í DV í gær. Þar er upplýst að
hann sé sakaður um stuld á mál-
verki, óuppgerðar sakir við fjöl-
margt fólk á landsbyggðinni og svo
hefur hann tekið bíl ófrjálsri hendi
þegar hann vann sem handlangari
við múrverk norður á Þórshöfn.
Raunar er ferill Ragnars sam-
kvæmt upplýsingum DV hinn
skrautlegasti og spannar sá ferill
hans allt frá Flateyri vestur,
Króksfjarðarnesi, Tálknafirði,
Reykhólasveit og til Reykjavíkur.
Er ljóst af þessu að Ragnar er
þekktur um allt land og ætti það í
sjálfu sér að verða honum til fram-
dráttar í kosningabaráttunni.
Þessi maður hefur svo sannar-
lega kynnt sér landið og þjóðina og
eiginlega er það misskilningur hjá
DV að hann þurfi þessarar kynn-
ingar við. Það þekkja hann allir
fyrir vestan og norðan og austan
þegar að er gáð. Er nema von að
svona maður fari í framboð og telji
sig verðugan á Bessastaði? Þekktur
um allt land. Meö slóðann á eftir