Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1996, Page 22
34
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
Andlát
Karl Kristján Karlsson
Karl Kristján Karlsson stór-
kaupmaður, Tjamargötu lOa,
Reykjavlk, sem dvaldi síðustu
árin á Hjúkrunarheimilinu Eir
við Gagnveg í Reykjavik, lést að
kvöldi 16.1. sl. Hann verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í dag,
fimmtudaginn 25.1. kl. 13.30. Jarð-
að verður í Garðakirkjugarði á
Álftanesi. Að athöfn lokinni verð-
ur erfidrykkja í Oddfellow-húsinu
við Vonarstræti.
Starfsferill
Karl fæddist á Húsavik 7.3. 1919
og ólst þar upp og á Akureyri hjá
móður sinni og ömmu. Karl var
ófæddur þegar faðir hans lést en
auk þess var hann á barnsaldri
þegar móðir hans lést og vart orð-
inn unglingur þegar hann missti
ömmu sína. Hann gerðist þá
messadrengur og komst þannig til
Danmerkur þar sem hann var um
skeið hjá afa sínum í föðurætt en
hann lést einnig skömmu siðar.
Karl lauk gagnfræðaprófl á
Akureyri 1935, var verslunarmað-
ur á Akureyri hjá Heildverslun
Valgarðs Stefánssonar 1935-39,
var við nám í Kobmandsskolen í
Kaupmannahöfn 1939-40, í þýsku-
námi og starfi í Hamborg á árun-
um 1940-42 og í Kobmandshvile í
Rungsted í Danmörku 1942-43.
Hann starfaði hjá Deutsche
Verkehrs Nachrichten 1940-42 og
var fréttaritari í Hamborg 1944-45.
Eftir að Karl kom heim eftir
stríð rak hann eigið heildsölufyr-
irtæki í Reykjavík frá 1946 en
hann var m.a. umboðsmaður fyrir
postulínsverksmiðjuna Bing og
Grondahl og fyrir Carlsberg öl.
Auk þess var hann framkvæmda-
stjóri I. Guðmundsson og Co. um
skeið, rak listaverkaverslun við
Hverfisgötu í nokkur ár og starf-
rækti Pappírsiðjuna um skeið.
Karl sat m.a. i stjórn Bifreiða-
og landbúnaðarvéla, í stjórn líf-
tryggingafélags á vegum Al-
mennra trygginga, sat i stjómum
og varastjórnum fleiri fyrirtækja,
sat í þjóðhátíðarnefnd fyrir þjóð-
hátíö 1974 og starfaði mikið í Odd-
fellow-reglunni frá 1950.
Fjölskylda
Eiginkona Karls var Helga Stef-
áns Ingvarsdóttir, f. 28.12. 1924,
húsmóðir, dóttir Ingvars Guðjóns-
sonar útgerðarmanns og k.h., Soff-
íu Stefánsdóttur handavinnukenn-
ara. Karl og Helga skildu.
Börn Karls og Helgu eru Ingvar
Jónadab Karlsson, f. 13.9. 1947,
læknir og framkvæmdastjóri í
Reykjavik, en sambýliskona hans
er Kristbjörg Stella Hjaltadóttir og
á hann tvær dætur, Jóhönnu Mar-
gréti og Helgu, en sonur Ingvars
og Kristbjargar Stellu er Hjörvar
Logi; Guðrún Soffia, f. 20.7. 1957,
húsmóðir í Stykkishólmi, gift
Jóni Bjarnasyni heimilislækni og
eru börn þeirra Karl Kristján,
Magnús, Soffia, Björn og Steinar;
Hildur Halldóra, f. 31.8. 1959, hús-
móðir í Reykjavík, gift dr. Gunn-
ari Rafni Birgissyni sálfræðingi
og eru dætur þeirra Gunnhildur
og ísgerður.
Karl var eina barn foreldra
sinna.
Foreldrar hans voru Karl Krist-
ian Christensen frá Fredriksberg,
bryti í Kaupmannahöfn, og Ein-
hildur Halldórsdóttir frá Nýjabæ
á Húsavík.
Ætt
Foreldrar Karls Kristians voru
Karl Kristian Christensen og
Alma Christensen, f. Tarnell, af
frönskum ættum.
Hálfsystir Einhildar, sam-
mæðra, var Guðrún Árnadóttir,
lengi yfirljósmóðir við Landspítal-
ann. Einhildur var dóttir Hall-
dórs, frá Norðtungu í Þverárhlíð,
Einarssonar, útvegsb. í Nýjabæ og
í Prestshúsum á Akranesi, Einars-
sonar. Móðir Halldórs var Guðrún
Jónsdóttir frá Norðtungu.
Karl Kristján Karlsson.
Móðir Einhildar var Guðrún,
ljósmóðir, Eldjárnsdóttir, b. og
smiðs á Kjalarlandi og Hafurs-
stöðum, Sveinssonar, á Skarði í
Dalsmynni í Suður-Þingeyjar-
sýslu, Jónssonar. Móðir Guðrúnar
Eldjárnsdóttur var Guðbjörg Pét-
ursdóttir, b. á Vaglagerði og Þor-
leifsstöðum í Blönduhlíð, Skúla-
sonar.
Til hamingju með
afmælið 25. janúar
80 ára
Kristfn Hinriksdóttir,
Skólavörðutíg 22 A, Reykjavík.
70 ára
Björgvin Hannesson,
Kópavogsbraut 1 A, Kópavogi.
Gísli M. Guðmundsson,
Efstalandi 16, Reykjavík.
Halldór Jónsson,
Selvogsgrunni 24, Reykjavík.
60 áxa
Valborg Jónsdóttir,
Túngötu 14, Sandgerði.
Stefán Gestsson,
Amarstöðum II, Hofshreppi.
50 ára
Kjartan Jónsson,
Háagerði 23, Reykjavík.
Jón B. Sveinsson,
Stallaseli 2, Reykjavík.
Stefanía Vallý Sverrisdóttir,
Baldursgarði 6, Keflavík.
Björg Oliv Ólafsdóttir,
Smáragötu 10, Reykjavík.
Þórey Gunnþórsdóttir,
Borgarhrauni 17, Grindavík.
Guðmundur Aðalsteinsson,
Reykholti, Hafnarfirði.
Sigurjón Ríkharðsson,
Hjallabraut 5, Hafnarfirði.
Gunnar Guðmundsson,
Unnarstig 4, Flateyri.
Hann er að heiman.
40 ára
Högni Jóhann Sigurjónsson,
Völvufelli 26, Reykjavik.
Margrét Gísladóttir,
Brekkustíg 10, Reykjavík.
Sigmundur Ásgeirsson,
Austurtúni 8, Bessastaðahreppi.
Þorsteinn Stefán Jónsson,
Skarðshlíð 6 G, Akureyri.
Halldór Vagn Jónsson,
Árvöllum 2, ísafirði.
Laufey Sigríður Sigmundsdóttir,
Miðvangi 41, Hafnarfirði.
Sigríður Jónsdóttir,
Lágengi 25, Selfossi.
Ólafur Gísli Jónsson,
Bollagörðum 93, Selljarnarnesi.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
GUÐBJARGAR GUÐJÓNSDÓTTUR
SELTÚNI 6, HELLU
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Lundar
fyrir góða umönnun
Sigríður Ágústsdóttir
Eyvindur Ágústsson Guðrún Aradóttir
Kristján Ágústsson Gerður S. Elimarsdóttir
Bóel Ágústsdóttir Viðar Marmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Alþjóðleg og öðruvísi
kennaramenntun
Det Nodvendige Seminarium í Danmörku býður uppá 4ra ára kennaranám
fyrir unga Evrópubúa, sem vilja afla sér menntunar í alþjóðlegu umhverfi.
Lagt er stund á nám í mörgum fögum í tengslum við starfsnám í skólum
í Danmörku og öðrum löndum: Samfélagsfræði, sálfræði, uppeldisfræði,
listum, tónlist, íþróttum, dönsku, öðrum Evrópumálum, stærðfræði, trúar-
þragðafræði og heimspeki.
4ra mánaða námsferð með langferðabíl gegnum Evrópu og Asíu til
Indlands. (ferðinni er aflað upplýsinga um lifnaðarhætti fólks í ýmsum
löndum.
Unnið við kennslu í Afrkíu: I 8 mánuði tekur þú þátt í að mennta riýja
kennara í Mosambík og Angóla.
Allir nemendur búa við skólann. Byrjað 1. september 1996.
Kynningarfundur í Hótel Reykjavík laugardaginn 27. janúar kl. 16.
Det Nodvendige Seminarium, Tvind, DK-6990 Ulfborg.
Fax 00 45 43 99 5982. Sími 00 45 4399 5544.
Una Jóhannesdóttir
Una Jóhannesdóttir frá Gaul,
húsmóðir, til heimilis að Stekkj-
arholti 20, Akranesi, lést á
Sjúkrahúsi Akraness sunnudag-
inn 21.1. sl. Hún verður jarðsung-
in frá Akraneskirkju fostudaginn
26.1. kl 14.
Starfsferill
Una fæddist á Slitvindastöðum
í Staðarsveit 12.9. 1908 og ólst
upp í foreldrahúsum en réðst
kaupakona þegar hún var fimmt-
án ára til Guðjóns Péturssonar,
b. í Arnartungu í Staðarsveit.
Þau fóru síðar að búa saman og
bjuggu í Arnartungu til 1929. Þau
bjuggu síðan á tveimur öðrum
bæjum í sveitinni en fluttu að
Gaul 1934 og bjuggu þar meðan
Guðjón lifði en hann lést 1968.
Eftir lát Guðjóns hélt Una
áfram húsfreyjustörfum að Gaul
hjá Guðmundi syni sínum sem
þá tók við jörðinni en þau bjuggu
þar til 1985. Þá fluttu þau til
Akraness þar sem Una átti heima
síðan.
Fjölskylda
Eiginmaður Unu var Guðjón
Pétursson, f. 6.5. 1894, d. 7.8. 1968,
bóndi. Hann var sonur Péturs
Péturssonar, b. á Hrólfbjargar-
stöðum, og k.h., Ingibjargar Vig-
fúsdóttur húsfreyju.
Una og Guöjón eignuðust fjórt-
án böm og eru ellefu þeirra á lífi:
Jón, f. 10.7. 1926, vélstjóri hjá HB
hf. á Akranesi, kvæntur Sigrúnu
Níelsdóttur húsmóður; Pétur
Ingiberg, f. 25.5. 1928, fyrrv. bif-
vélavirki á Akranesi, kvæntur
Sigrúnu Clausen húsmóður; Jó-
hannes Matthías, f. 14.7. 1929,
lengst af b. á Furubrekku í Stað-
arsveit, nú búsettur í Kópavogi,
kvæntur Ásgerði Halldórsdóttir
húsmóður; Jóhann Kjartan, f.
30.11. 1930, stýrimaður á Akra-
nesi, kvæntur Hrefnu Björnsdótt-
ur húsmóður; Vilhjálmur Maríus,
f. 4.3. 1932, d. 27.12. 1988, vélstjóri
á Akranesi, var kvæntur Hall-
dóru Lárusdóttur húsmóður;
Sveinn, f. 8.10. 1933, b. á Stekkjar-
völlum í Staðarsveit, kvæntur
Ragnheiði Þorsteinsdóttur hús-
freyju; Gunnar Hildiberg, f. 11.10.
1934, b. í Borgarholti í Mikla-
holtshreppi, kvæntur Ingibjörgu
Ágústsdóttur húsmóður; Ólína
Anna, f. 8.4. 1937, húsfreyja í Eið-
húsum í Miklaholtshreppi, gift
Erling Jóhannessyni, bónda þar;
Guðmundur Björn, f. 23.9. 1938,
lengst af b. í Gaul, nú verkamað-
ur á Akranesi en hann hélt heim-
Una Jóhannesdóttir.
ili með móður sinni; Sigurjón
Magnús, f. 1.10.1940, bifvélavirki
í Svíþjóð; Soffia Hulda, f. 18.3.
1942, húsfreyja á Hofstöðum i
Miklaholtshreppi, gift Kjartani
Eggertssyni, bónda þar; Vilborg
Inga, f. 1.5. 1950, húsmóðir á
Akranesi, gift Finnboga Þórarins-
syni verkamanni.
Afkomendur Unu eru nú orðn-
ir hundrað fjörutíu og þrír.
Una var elst tólf systkina.
Foreldrar Unu voru Jóhannes
Guðmundsson, b. á Slitvindastöð-
um, og k.h., Vilborg Matthildur
Kjartansdóttir.
Hringiðan
Fjölmargir gestir komu í Búnaöarbankann í Vík í Mýrdal í tilefni af 20 ára afmæli hans og gæddu sér á tertum og öðru
góðgæti. Áður var þar starfandi Sparisjóður V- Skaftfellinga sem Búnaöarbankinn yfirtók. Fimm starfsmenn vinna í
bankanum og eru þeir, talið frá vinstri, Þorgerður Einarsdóttir, Hulda Finnsdóttir, Helga Elsa Hermannsdóttir,
ús Krlátjáhsson b'g Anna S. Þálsdóttir útibússtjóri..................... i ’ ’’ 1 'f TTemyf1<r