Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1996, Blaðsíða 24
36
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
Jón Baldvin og Jóhanna. Vinir á
ny?Síung og sí-
fersk í anda
„Sjálfur fagna ég því mjög að
fá að starfa aftur með gömlum fé-
laga mínum, Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, sem er síung og sífersk í
anda.“
Össur Skarphéðinsson, í Tímanum.
Ummæli
Bónorð í fjölmiðlum
„Ef menn vilja samstarf byrja
þeir ekki á því að senda bónorðs-
bréf í fjölmiðlum."
Svavar Gestsson, í Alþýðublaðinu.
Dálítið góður leikari
Ég tel að ég sé dálítið góður
leikari. Ef ég teldi það ekki þá
væri ég löngu hættur i þessu
starfi.“
Guðmundur Ólafsson, í DV
Handbolti í viðtengingar-
hætti
„Hins vegar vinnast ekki leik-
ir í viðtengingarhætti."
Árni Indriðason þjálfari, í Morgun-
blaðinu.
Kompudótið búið?
„Það sem vantar mest er
kompudót, vinsælt, notað dót.
Það virðist uppurið í landinu."
Jens Ingólfsson, Kolaportinu, í DV.
Háskólanemendur geta verið á
öllum aldri.
Bráðgáfaðir
nemendur
Mikill var þroski lærdóms-
mannsins Williams Thomsons
(1824-1907) sem síðar varð Kelvin
lávarður. Hann var tíu ára þegar
hann innritaðist í Glasgow-há-
skóla. Annar bráðþroska gáfu-
maður er Adragon Eastwood De
Mello, fæddur 1976. Hann lauk
BA-prófi í stærðfræði frá Kali-
forníuháskóla í Santa Cruz tæpra
tólf ára. Ruth Lawrence, fædd
1971 í Huddersfield í Englandi,
hóf skólavist í Oxford 12 ára.
Blessuð veröldin
Yngsti og elsti
prófessorinn
Colin MacLaurin (1698-1746)
mun yngstur manna hafa gegnt
prófessorstöðu en hann var skip-
aður prófessor í stærðfræði við
Marischal College í Aberdeen, 19
ára gamall. Sex árum síðar var
hann ráðinn prófessor við Edin-
borgarháskóla og var það Isaac
Newton sem mælti með honum.
Úthaldsbesti prófessorinn til
þessa var dr. Joe HUdebrand
(1881- 1983). Hann varð prófessor
við University of California í eðl-
isefnafræði árið 1913. Áriö sem
hann varð hundrað ára gaf hann
út 275. vísindagreiningu sína.
i ■ ■.' ,„»
Austan gola og skýjað
Yfir vestanverðu Grænlandshafi
er minnkandi lægðardrag um 1050
mb hæð er yfir Skandinavíu. Langt
suður í hafi er lægð sem hreyfist
austur. í dag verður austan gola,
skýjað og hætt við lítils háttar rign-
Veðrið í dag
ingu eða slyddu við suðurströndina
en hæg breytileg átt og víðast þurrt
í öðrum landshlutum. Léttskýjað á
Norðausturlandi. Hiti frá 4 stigum
niður í 5 stiga frost, kaldast norð-
austanlands. Á höfuðborgarsvæðinu
verður hægviðri eða austangola og
léttir til í nótt. Hiti um 1 stig í dag
en kólnar í nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 16.50
Sólarupprás á morgun: 10.27.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.18
Árdegisflóð á morgun: 10.43.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjaö -1
Akurnes alskýjaö 1
Bergstaöir skýjaö -2
Bolungarvík hálfskýjaö 1
Egilsstaöir heiöskírt -5
Keflavíkurflugv. skýjaö 1
Kirkjubkl. skúr 2
Raufarhöfn heiöskírt -3
Reykjavík slydda 1
Stórhöfði alskýjáó 4
Helsinki heióskírt -16
Kaupmannah. snjókoma -4
Ósló kornsnjór -6
Stokkhólmur snjókoma -4
Þórshöfn alskýjaö 4
Amsterdam léttskýjaö -9
Barcelona léttskýjaö 8
Chicago léttskýjaó -12
Frankfurt skýjaó -6
Glasgow skýjaö 3
Hamborg ' heiöskírt -12
London mistur 0
Los Angeles léttskýjaö 12
Madrid léttskýjaö 1
Paris skýjaö 0
Róm skýjaö 11
Mallorca hálfskýjaó 5
New York skýjaö 6
Nice rigning 8
Nuuk skafrenningur -10
Orlando skúr á siö. klst. 16
Vín snjókoma -8
Washington alskýjaö 3
Winnipeg heiöskírt -30
Eiríkur Einarsson, formaður Bítlaklúbbsins:
Fólk á öllum aldri í klúbbnum
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum að mikil Bitlavakning hef-
ur farið eins og elding um allan
heim í kjölfar sjónvarpsþátta um
þessa frægustu hljómsveit sem
uppi hefur verið. Við íslendingar
höfum ekki verið neinir eftirbátar
í þessum málum. í uppsiglingu er
mikil Bítlahátíð á Hótel íslandi
sem mun standa fram á vor og í
síðustu viku var stofnaöur fyrsti
Bítlaklúbburinn á íslandi. Áðal-
hvatamaður að stofnun klúbbsins
er Eiríkur Einarsson og var hann
kosinn formaður. í stuttu spjalli
var hann fyrst spurður um aðdrag-
andann að stofnun Bítlaklúbbsins:
„Þetta hefur gerjast í mér í lang-
Maður dagsins
an tíma en það sem kveikti endan-
lega í mér var för mín til Liver-
pool fyrir tveimur árum. Þá
kynntist ég þessu mikla fyrirtæki
sem er í kringum The Beatles en
þar eru skipuiagðar ferðir á alia
staði þar sem tengjast Bítlunum
og rakin saga þeirra í máli og
myndum. Fólk frá öllum heims-
hornum kom í nokkurs konar píla-
grímsför til Liverpool. Ég fór í
Eiríkur Einarsson.
framhaldi að grenslast um þennan
mikla áhuga og komst þá að ýmsu
skemmtilegu, meðal annars að á
hverju ári í ágúst er Bítlahátíð."
Eiríkur sagðist hafa komið
heim uppfullur af hugmyndum um
að stofna klúbb: „Það hjálpaði síð-
an allt til að láta verða af þessu
núna, sjónvarpsþættimir, plötuút-
gáfa með áður óþekktum upptök-
um. Svo er Rás 2 með Bítlaviku í
byrjun febrúar og strax þar á eftir
hefst Bítlahátíðin á Hótel íslandi.
Þannig að það var ekkert annað en
að drífa í þessu og viðbrögðin
voru svo sannarleg góð og fjöldi
manns sótti stofnfundinn og enn
eru að koma símbréf frá öllum
landshlutum þar sem fólk er að
óska eftir að gerast meðlimir.“
Eiríkur sagði að næst væri aö
opna Bítlaskrifstofu í Garðastræti.
„Þar ætlum við að komast í sam-
band við Intemetið og geta félagar
í klúbbnum komið og fengið sér
kaffi og leitað uppi nýjustu fréttir
af Bítlunum. Einnig er hugmynd
að vera með verslun þarna og
pöntunarþónustu. Þá er nú verið
að skipuleggja ferð á Bítlahátíðina
í ágúst.“
Eiríkur sagði aðspurður að það
væri fólk á öllum aldri í Bítla-
klúbbnum: „The Beatles höfða til
allra og nú er ungt fólk að sjá að
tónlist þeirra er mjög góð og er í
auknum mæli að hlusta á The
Beatles, auk þess sem nokkrar
vinsælar hljómsveitir í dag hafa
The Beatles að leiöarljósi.
Eiríkur er búinn af vera bítlaað-
dáandi frá því 1970 og á mikið
magn af plötum og bókum og blöð-
um sem hafa komið út um hljóm-
sveitina.
-HK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1426:
Hefiur.bein í .hendi Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði
\
Drammen skorar eitt af mörkum
sínum gegn Aftureldingu í fyrri
leiknum f Noregi.
Aftureld-
ing-Drammen
Afturelding, sem er eina ís-
lenska handboltaliðið sem eftir
er í Evrópukeppni, fór enga
frægðarför til Noregs um síðustu
helgi en þá lék það fyrri leikinn
íþróttir
gegn Drammen. Fór svo að Aft-
urelding tapaði með miklum
mun og skoraði aðeins þrjú
mörk í fyrri hálfleik. Nú er kom-
ið að Áftureldingu að taka á
móti Drammen í Mosfellsbæ og
víst er að leikmenn hafa fullan
hug á að hefna ófaranna í Noregi
og þó þeir veröi að teljast sigur-
stranglegri í leiknum þá þurfa
þeir að vinna með minnst átta
mörkum til að eiga möguleika á
að komast áfram.
Einn annar leikur er í hand-
boltanum í kvöld. Fram og
Haukar keppa í Framhúsi í 1.
deild kvenna og hefst leikurinn
kl. 18.30. í körfuboltanum eru
tveir leikir í 1. deild karla. í
Kennarháskólanum keppa ÍS og
Leiknir og í Stykkishólmi leika
Snæfell og Stjarnan. Báðir leik-
irnir hefjast kl. 20.
Bridge
Leikirnir í undanúrslitum
Reykjavíkurmótsins í sveitakeppni
voru fjörugir og sveiflur oft miklar.
í leikjunum tveimur áttust við
sveitir Landsbréfa - Búlka annars
vegar og Samvinnuferða/Landsýnar
- Ólafs Lárussonar hins vegar. Báð-
ir leikirnir enduðu með næsta ör-
uggum sigri fyrrnefndu sveitanna.
Sveit Landsbréfa græddi heila 17
impa á þessu spili í leik sínum við
Búlka. Sagnir gengu þannig í opn-
um sal, suður gjafari og SV á hættu:
* --
*» KD98
♦ Á85
* ÁG7532
Suður Vestur Norður Austur
Bragi Sverrir Sigtr. Sævar
1- f 1* pass 2*
2- f 4f 5f 6*
p/h
Þetta eru góðar sagnir hjá Sverri
Ármannssyni og Sævari Þorbjörns-
syni sem gerðu þeim kleift að ná
ágætis slemmu á 25 punkta sam-
legu. Fjögurra tígla sögn Sverris er
lykillinn að slemmunni og þrátt fyr-
ir að trompin lægju 3-0 hjá andstöð-
unni vafðist það ekki fyrir Sævar að
vinna slemmuna. Hann trompaði
tvisvar spaðá heima og þegar kóng-
urinn kom fljúgandi var slemman í
höfn. Á hinu borðinu virðist hafa
orðið sagnmisskOningur hjá AV því
sagnir enduðu í fjórum spöðum.
Þann samning var ekki hægt að
vinna og fór reyndar tvo niður svo
gróðinn var 17 impar til sveitar
Landsbréfa (1370 + 200).
ísak Örn Sigurðsson
f AD9842
764
f --
* KD109
« G106
V G105:
f D107Í
* —
N
V A
S
f K75
4» Á
f KG94
* 864