Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1996, Blaðsíða 28
60
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996
Hefur frjálslyndisarmi Sjálfstæð-
isflokksins verið drekkt? Myndin
er frá landsfundi.
Drekkt í súrri
sláturtunnu
„Því miður hefur frjálslyndis-
armi Sjálfstæðisflokksins verið
drekkt í súrri sláturtunnu aust-
ur í Nesjum.“
Þröstur Olafsson, í DV:
Vel mæltir á eigin tungu
„Menn ættu ekki að engjast
svo mjög af áhyggjum út af
Ummæli
kunnáttu frambjóðenda í erlend-
um tungumálum, en hlusta frem-
ur eftir því hversu vel þeir eru
mæltir á sína eigin tungu.
Ingvar Gíslason, um forsetafram-
boð, í Tímanum.
Teknir í bólinu
„Við ákváðum því að taka þá í
bólinu.“
Logi Olafsson, um leikinn gegn
Möltu, í Morgunblaðinu.
Láta tuðið nægja
„Nei, ég á ekki von á því að
sjómenn grípi til aðgerða. Ætli
þeir láti ekki tuðið nægja.“
Þorsteinn Kristjánsson skipstjóri, í
DV.
Kljúfa sveitarfélagið
„Ef yfirmaður sveitarstjórnar-
mála er máttlítill í þessu máli og
telur sig ekki geta gripið inn í þá
höfum við ekkert annað ráð en
að kljúfa sveitarfélagiö."
Hjörleifur Sigurðarson, bóndi í
Mývatnssveit.
Títuprjónar koma að gagni þegar
verið er að sníða föt.
Nálar og títuprjónar
Nálar hafa verið notaðar leng-
ur en nokkrar heimildir greina
frá. Fyrr á öldum voru þær bún-
ar til úr beini og var þá borað
auga á þær, annaðhvort á annan
endann eða á miðju. Nálar hafa
fundist í elstu mannvistarlögum
Trjóu. í Grikklandi voru notaðar
filabeinsnálar til forna. í Egypta-
landi voru notaðar nálar úr kop-
ar og bronsi og í Róm saumuðu
menn með járnnálum til forna.
Árið 1370 var Núrnberg orðin
Blessuð veröldin
miðstöð í smíði og skipun járnn-
ála, en uppfinning þeirra var
eignuð aröbum. Nálar af þessu
tagi urðu þó ekki almannaeign
fyrr en um miðja 16. öld í Frakk-
landi og á 18. öld í Englandi.
Títuprjónn
Árið 1817 sótti Bandaríkja-
maðurinn Seth Hunt um einka-
leyfi á uppfinningu sinni, sjálf-
virkri vél til framleiðslu á títu-
prjónum í heilu lagi - nál, haus
og oddi. Vél hans var ekki tekin
í notkun fyrr en 1824, er Samuel
Wright sótti um svipað einka-
leyfi í Englandi. England varð
miðstöð iðnvæddrar títuprjóna-
framleiðslu eftir að John Tilsby
stofnaði fyrstu stóru títuprjóna-
verksmiðjuna 1825.
Áfram sunnanátt
Á norðanverðu Grænlandssundi
er 985 millíbara lægð sem hreyfist
norðaustur og önnur skammt aust-
ur af Nýfundnalandi, einnig á norð-
austurleið. í dag verður áfram suð-
vestan- og sunnanátt á landinu, I
Veðrið í dag
fyrstu allhvöss suðaustan- og aust-
anlands, en mun hægari þegar líður
á daginn, léttir til um austan- og
norðaustanvert landið. Hiti verður
3 til 6 stig. Á höfuðborgarsvæðinu
verður suðvestankaldi eða stinn-
ingskaldi og skúrir í dag, en sunnan
og suðaustan stinningskaldi og rign-
ing í nótt og fyrramálið. Hiti 5 til 6
stig.
Sólarlag i Reykjavík: 17.57.
Sólarupprás á morgun: 9.25.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 14.07.
Árdegisflóð á morgun: 2.58.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrid kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjaó 6
Akurnes alskýjaó 6
Bergstaöir úrk. i gr. 4
Bolungarvík skúr á s. klst. 4
Egilsstaóir alskýjaö 5
Keflavíkurflugv. þokumóóa 4
Kirkjubkl. rigning 4
Raufarhöfn alskýjaó 2
Reykjavík þokumóða 4
Stórhöföi rign. og súld 6
Helsinki snjókoma -9
Kaupmannah. þokumóóa -1
Ósló skýjað -15
Stokkhólmur léttskýjað -17
Þórshöfn rigning 6
Amsterdam þokumóða 0
Barcelona rigning 9
Chicago heiðskirt -2
Frankfurt snjókoma 0
Glasgow heiðskírt -4
Hamborg þokumóða 0
London skýjað 3
Los Angeles þoka 13
Lúxemborg snjókoma -1
París skýjað 2
Róm þokumóóa 6
Mallorca skýjað 11
New York léttskýjað -3
Nice léttskýjað 6
Nuuk skafrenningur -2
Orlando heióskírt 5
Vín þokumóða -2
Washington alskýjaó 1
Winnipeg alskýjaó -4
Birgir Brynjólfsson, frumkvöðull í hálendisferðum að vetri til:
Alltaf spennandi að prófa eitthvað nýtt
„Það hefur þvi miður lítið verið
hægt að fara upp á hálendið í vet-
ur vegna snjóleysis, en nú er gam-
anið að fara að byrja og nægur
snjór kominn, segir Birgir Brynj-
ólfsson, guðfaðir allra þeirra sem
stunda jeppakstur á háíendinu að
vetri til. í tuttugu ár hefur hann á
hverjum vetri farið vítt og breitt
um hálendið og margir hafa farið
sína fyrstu ferð með honum og
smitast af áhuga hans. Þegar ferill
hans I háfjallaferöum að vetri til
er skoðaður þá kemur það ekki á
óvart að Birgir gengur undir nafn-
inu Fjalla-Eyvindur. Hann á að
baki mikið brautryðjendastarf.
Ástæðuna fyrir því að Birgir fór
Maður dagsins
að ferðast um hálendið að vetri til
segir hann vera þá að hann ásamt
fleirum hafi í raun verið hraktir af
hálendinu: „Við fórum alltaf síðla
hausts í ferðir en eftir að farið var
að gera slíkar ferðir að atvinnu-
grein þá sáum við okkur ekki fært
annað en að færa okkur yfir á vet-
urinn. Staðreyndin er að ef á að
fara inn á hálendið að sumri til þá
verður að panta skálapláss löngu
Birgir Brynjólfsson.
fyrir fram og borga fyrir það eins
og fyrir hótelgistingu."
Birgir sagði að þótt snjóleysið
hafi verið mikið í vetur þá mættu
menn ekki flaska á því að meta
stöðuna eftir því hverig er í borg-
inni og nágrenni hennar: „Ég var
inn á miðhálendinu fyrir fáum
dögum og þar er snjór. Það má
segja að þessi ferð hafi verið nokk-
urs konar æfinga- og könnunar-
ferð mér til skemmtunar og af-
þreyingar."
Birgir var spurður hvort hann
væri með eitthvað spennandi á
döfinni: „Þaö er éitthvað að gerj-
ast í manni frá ári til árs og það
eru alltaf einhverjar óskaleiðir á
listanum, en sá listi styttist og það
verður alltaf erfiðara að finna eitt-
hvað nýtt og framkvæma það. Það
sem gerir brautryðjendastarfið
spennandi og ævintýrakennt er að
vera að prufa eitthvað nýtt. Nú er
stefnt á að keyra eftir Tröllaskag-
anum en ég veit ekki til þess að
það hafi verið gert áður og mun ég
næstu daga fljúga yfir og kanna
aðstæöur.“
Birgir sagði aðspurður að fara
upp á hálendið á góðum jeppa
væri alltaf jafn spennandi: „Ferða-
lög á eigin bíl sameina áhugamál-
in. Fyrst og fremst er það áhugi á
að ferðast, þá er það áhugi á fólki
almennt, það er svo margt fólk
sem maður kynnist og ég verð
aldrei leiður á að virða það fyrir
mér, svo er það áhuginn á bílum,
ímyndunaraflið og sköpunargleðin
fær útrás í að eiga við eigin bfl
sem búiö er að breyta."
Eiginkona Birgis er Viktoría
Vilhjálmsdóttir og eiga þau upp-
komin börn en þau eiga einnig
þrjú ung börn sem þau ættleiddu:
„Það veitir manni mikið aö byrja
aftur að ala upp böm, maður er
orðinn eldri og þroskaðri og gefur
sér meiri tíma en þetta er einnig
mjög kref]andi.“
-HK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1443:
Myndgátan hér að ofan Iýsir hvorugkynsorði
KA er enn ósigrað í 1. deild. í
kvöld leikur félagið í Garðabæ
gegn Stjörnunni.
Stjarnan-KA í
handboltanum
Það eru hvorki meira né
minna en fjórtán leikir í hand-
boltanum í kvöld og er meðal
annars leikið bæði í 1. deild
karla og kvenna. Stórleikur
kvöldsins er vafalaust viðureign
Stjörnunnar og KA í Ásgarði í
íþróttir
Garðabæ, en KA er enn ósigrað í
deildinni, en Stjörnumenn verða
örugglega erfiðir heim að sækja.
Aðrir leikir í 1. deild karla eru:
Selfoss-ÍR á Selfossi, Hauk-
ar-Grótta í Hafnarfirði, í Vals-
heimilinu leika Valur- FH, í
Mosfellssveit Afturelding-ÍBA
og í Víkinni leika Víkingur-KR.
Allir leikirnir hefjast kl. 20.
í 1. deild kvenna leika Hauk-
ar- Fylkir, hefst sá leikur kl.
18.15 í Hafnarfirði, KR-Stjarnan
leika í Laugardalshöll kl. 18.30
og í Vestmannaeyjum leika
ÍBV-FH kl. 20. í kvöld er einnig
leikið í Meistaraflokki karla B, 2.
defld karla og 1. flokki karla.
Bridge
Jón Þorvarðarson og Sverrir
Kristinsson stóðu sig vel á Dan-
merkurmótinu í tvímenningi sem
haldið var dagana 3.-4. febrúar. Þeir
félagarnir enduðu í 6. sæti en næsta
öruggir sigurvegarar urðu Jens
Auken og Dennis Koch-Palmund.
Jón Þorvarðarson og Sverrir Krist-
insson munu verða meðal þátttak-
enda á stórmóti Flugleiða um næstu
helgi. Skoðum hér eitt spil úr úr-
slitakeppninni frá viðureign sigur-
vegarnna við parið sem endaði í
öðru sæti, Cohen- Munksgaard.
Auken og Koch riðu ekki feitum
hesti úr þeirri viðureign. Sagnir
gengu þannig, suður gjafari og eng-
inn á hættu:
* K854
5
♦ DG105
* DG53
* DG102
•* D
* K842
* K942
♦ Á93
•* G109764
♦ 63
* 106
Suður Vestur Norður Austur
Auken Munksg. Koch Cohen
2* pass pass dobl
p/h
Munksgaard var að sjálfsögðu
áfjáður í að passa úttektardobl fé-
laga síns og með góðri vörn tryggðu
þeir félagarnir sér góða skor. Útspil
vesturs var spaðasjöa sem Auken
drap á ás. Auken spilaði laufi sem
drepið var á ás og síðan kom spaði
á kónginn í blindum. Nú kom hjarta
á drottningu austurs, sem tók slag á
spaðagosa, laufkóng og spilaði síðan
spaðadrottningu. Auken kastaði
tígli og einnig vestur. Cohen gerði
nú vel í því að leggja niður tígul-
kóng áður en hann spilaði laufi.
Auken trompaði með gosa og
Munksgaard með kóng og spilaði
síðan tígulásnum. Auken trompaði,
tók slag á hjartatíu en vörnin átti
tvo næstu slagi á Á8 í trompi. Fjór-
ir niður var mjög nálægt toppskori
fyrir a-v í spilinu.
ísak Örn Sigurðsson
* 76
* ÁK832
* Á97
* Á87