Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1996, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1996, Page 25
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996 37 Einleikari á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitarinnar í kvöld er II- ana Vered. Jón Leifs, Grieg og Sibelius Noræn tónskáld eru í háveg- um höfð á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar íslands í Háskóla- bíói í kvöld, en tónlistin, sem leikin verður, er sýnishorn af þeirri tónlist sem hljómsveitin mun leika í tónleikaferð sinni í Bandaríkjunum. Fyrst ber að nefna Forleik af Galdra-Lofti eftir Jón Leifs en strax á unga aldri varð hann fyrir miklum áhrifum af leikriti Jóhanns Sigurjónssonar. í for- leiknum heyrist klukknahljóm- ur, sálmasöngur, særingar, graf- arhljóð og þrumugnýr. Píanó- konsert Griegs er einn þekktasti píanókonsert í heimi og þótt Tónleikar konsertinn hafi fengið afbrags- viðtökur þegar hann var frum- fluttur 1869 var Grieg ekki ánægður og átti eftir að gera ótal breytingar þar til sú útgáfa sem leikin er í dag leit dagsins ljós. Sibelius var á fertugsaldri þegar hann samdi aðra sinfóníu sína. Sagt hefur verið að Sibeli- us sé í sinfóníunni að lýsa landi sínu og þjóð í vaknandi frelsis- þrá. Stjórnandi Sinfóníunnar í kvöld er Osmo Vanska og ein- leikari er Ilana Vered sem kem- ur frá ísrael og hefur leikið með helstu hljómsveitum vestan hafs og austan. Tjalz Gizur í Rósenberg- kjallaranum Hljómsveitin Tjalz Gizur skemmtir í Rósenbergkjallaran- um í kvöld. Hefur hún leik um kl. 23.00. Fimmtudagskvöld með Kvennakórnum Fimmtudagskvöld Kvenna- kórs Reykjavíkur byrja aftur í kvöld kl. 20.30 í húsnæði kórsins að Ægisgötu 7. Kvöldið í kvöld er með Sibyl Urbancic. Samkomur Bundið slitlag á John Doe Blússveitin Bundið slitlag skemmtir á John Doe (áður Jazzbarinn) í kvöld. Lög með Cr- eam og Jimi Hendrix verða í heiðri höfð. Bundið slitlag hefur leik um kl. 23.00. Tvímenningur í Risinu Á vegum Félags eldri borgara í Reykjavík verður bridství- menningur í Risinu í dag kl. 13.00. Eyfirðingafélagið í Reykjavík Félagsvist verður í kvöld kl. 20.30 að Hallveigarstöðum. Allir velkomnir. Skíðalyftur á Hengilssvæði Ný og breytt Sabrina kemur á heimaslóðir. Julia Ormond í hlut- verki sínu. Sabrina Háskólabíó hóf sýningar um síðustu helgi á Sabrinu sem er endurgerð klassiskrar kvik- myndar sem gerð var 1954 meö Audrey Hepburn, Humphrey Bogart og William Holden í aðal- hlutverkum og er óhætt að segja að það hafi verið erfið spor fyrir hina ungu, ensku leikkonu, Juliu Ormond, að feta í fótspor Hepburn sem heillaði marga í þessu öskubuskuhlutverki. Sagan er um Sabrinu sem búin er að vera ástfangin af glaumgosanum David Larrabee allt frá því hún var smástelpa en hann eyðir tímanum annaðhvort á tennisvellinum eða á kvenna- fari á meðan eldri bróðirinn Lin- Hótel ísland: Karaokekeppni félagsmiðstöðva í kvöld verður haldin kara- okekeppni félagsmiðstöðva á Hótel ís- landi. Þetta er úrslitakeppnin en und- anfarið hefur farið fram undankeppni í fimmtán félagsmiðstöðvum á suð- vesturhorni landsins. Þetta er í fimmta skiptið sem þessi keppni er haldin, tvær fyrstu fóru fram í Danshúsinu Glæsibæ, næstu tvær í félagsmiðstöðinni Þróttheim- um og nú er keppnin komin á Hótel ísland. Keppt er bæði í einstaklings- og hópakeppni. Ár hvert koma fram á Skemmtaiiir sjónarsviðið mjög svo frambærilegir söngvarar í keppninni og hafa nokkr- ir þeirra þegar sungið inn á plötur. Mikið er talað um unglinga í dag og hvað þeir gera sér til dægradvalar og hér er á ferðinni eitt að því jákvæða sem unglingar gera og er víst að margir verða til að styðja við bakið á unglingunum í kvöld á Hótel íslandi en keppnin hefst kl. 20.00. Frá undankeppni í Þróttheimum. Tvær ungar söngkonur lifa sig inn í flutninginn. Steingríms- fjarðarheiði ófær Ófært er um Steingrímsfjarðar- heiði vegna hríðarveðurs. Fært er Færð á vegum um alla helstu þjóðvegi landsins, en víða um land er hálka á vegum, einkum á Vestfjörðum. Þá er sums staðar snjór á vegum, sérstaklega á heiðum sem liggja hátt. Á Austfjörð- um er nokkur hálka og sama má segja um útvegi í öðrum landshlut- um. Á Fróðárheiði, Holtavörðu- heiði, Bröttubrekku og i Hrútafirði er dálítill skafrenningur. Ástand vega EJ Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir C^) LokaörSt°ÖU ® ÞunSfært © Fært fíallabílum Fimmta barn Ingunnar og Kristjáns Myndarlegi drengurinn á mynd- inni fæddist á fæðingardeild Land- spítalans 7. febrúar kl. 6.15. Hann reyndist vera 4130 grömm að Barn dagsins þyngd. Foreldrar hans er Ingunn Guðmundsdóttir og Kristján Stef- ánsson og er hann fimmta barn þeirra. Systkin hans eru Jóhann, 14 ára, Helga, 12 ára, Stefán, 10 ára, og Halldóra, 4 ára. Kvikmyndir us sér um fjölskylduauðinn. Hvorugur bræðranna hefur nokkru sinni tekið sérstaklega eftir Sabrinu fyrr en hún kemur til baka eftir tveggja ára dvöl í París. Bræðurnir eru leiknir af Harrison Ford og Greg Kinnear en leikstjóri myndarinnar er hinn reyndi Sidney Pollack sem á að baki margar úrvalsmyndir. Nýjar myndir Háskólabíó: Sabrina Laugarásbíó: Seven Saga-bíó: Eitthvað til að tala um Bíóhöllin: Peningalestin Bíóborgin: Heat Regnboginn: Waiting to Exhale Stjörnubíó: Körfuboltadagbækurnar Gengið Almennt gengi LÍ nr. 34 15. febrúar 1996 kl. 9,15 Eininfl Kaup Sala Tollnenai Dollar 66,100 66,440 67,300þþ Pund 101,860 102,380 101,150þþ Kan. dollar 47,900 48,200 48,820þþ Dönsk kr. 11,6650 11,7260 11,6830þ Norsk kr. 10,2820 10,3390 10,3150þ Sænsk kr. 9,5150 9,5680 9,5980þ Fi. mark 14,4190 14,5050 14.7830Þ Fra. franki 13,0980 13,1730 13,1390þ Belg. franki 2,1937 2,2069 2,1985þ Sviss. franki 55,3400 55,6400 55,5000þ Holl. gyllini 40,3000 40,5400 40,3500þ Þýskt mark 45,1500 45,3800 45,1900jí ít. líra 0,04165 0,04191 0,04194 Aust. sch. 6,4170 6,4570 6,4290þ Port. escudo 0,4337 0,4363 0,4343þ Spá. peseti 0,5348 0,5382 0,5328þ Jap. yen 0,62480 0,62850 0,63150 írskt pund 104,590 105,240 104,990þþ SDR 96,85000 97,43000 97,83000 ECU 82,6900 83,1900 82,6300þ Simsvari vegna gengisskráningar 5623270 Krossgátan 7 3 "I r L IT- 8 n <7 ir 10 j t" 1 H S- IU ' I * TT j * J L Lárétt: 1 taugaáfall, 5 óvirða, 8 ógilda, 9 stólpa, 11 varðandi, 12 heið- ursmerki, 13 stía, 15 drepsótt, 17 dæld, 19 vísa, 20 ætíð, 21 árás. Lóðrétt: 1 háttur, 2 uppi, 3 hnusa, 4 drykkur, 5 bragða, 6 skordýr, 7 tré, 10 trufla, 12 heift, 14 frábrugðin, 16 stefna, 18 spil. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 hörguls, 7 erill, 9 ei, 10 mysa, 12 egg, 13 oft, 14 ugga, 16 frómir, 19 sina, 21 lóð, 22 iðn, 23 flan. Lóðrétt. 1 hem, 2 ör, 3 rist, 4 glaum, 5 legg, 6 sig, 11 yfrið, 13 ofsi, 15 auðn, 17 ónn, 18 róa, 20 af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.