Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1996, Side 9
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1996
Utlönd
Keppinautarnir hæöast aö Bob Dole í Arizona:
Dole mætti ekki til
umræðna í sjónvarpi
Öldungadeilarþingmaðurinn og
forsetakandídatinn Bob Dole kallaði
yfir sig hæönisglósur keppinauta
sinna í gærkvöldi þegar hann huns-
aði umræðuþátt sem sendur var
beint frá sjónvarpsstöð í Arizona.
Forkosningar éru í ríkinu á þriðju-
dag, þær fyrstu sem haldnar eru i
vesturríkjum Bandaríkjanna. Pat
Buchanan og Lamar Alexander,
helstu keppinautar Doles um til-
nefningu sem forstaefni repúblik-
ana, deildu hart hvor á annan en
voru saman um að gangrýna Dole.
Fjarvera Doles var aðalumræðu-
efni á ljósvakanum í Arizona og for-
síðufrétt eins_stærsta dagblaðs rík-
isins. Þótti Dole vera móðgandi
gagnvart íbúum ríkisins og þeim
sem starfa að forkosningunum fyrir
frambjóðenduma. Varð Dole einnig
fyrir gagnrýni úr röðum stuðnings-
manna sinna sem töldu fjarveru
hans mistök sem gætu orsakað tap í
forkosningunum á þriðjudag.
Bob Dole hunsaði sjónvarpsþátt.
Símamynd Reuter
Dole, sem staddur var í Colorado,
svaraði gagnrýninni strax. „Við lát-
um ekki aðra ákveða dagskrá okk-
ar, við sjáum sjáif um það. Við vilj-
um vinna tilnefhinguna. Ég tek þátt
í kappræðum í þinginu á hverjum
degi en þessir menn kunna ekki að
taka þátt í slíku,“ sagði Dole.
Fyrir umræðurnar sagðist Pat
Buchanan fordæma móðursýkisleg-
ar árásir af hálfu forustu flokksins í
austurríkjunum en hann var sakað-
ur um að hafa tekið málstað stríðs-
glæpamanns nasista sem vísað var
úr landi fyrir nokkrum árum. Sagði
hann hættu á að sú fjöldahreyflng
sem myndast hefði um sig mundi yf-
irgefa flokkinn. Hvatti Buchanan
keppinauta sína til að halda sig við
málefhin en hætta persónulegu skít-
kasti sem ógnaði samstöðu í flokkn-
vun. Buchanan neitaði hins vegar að
svara þráföldum spumingum um
hvort hann mundi styðja keppi-
nauta sína sem forsetaefhi hlytu
þeir útneöiingu Qokksins i sumar.
Reuter
Opið alla daga 11-22
Kentucky Fríed Chicken
lamfení 2, Keykjavík Mjallahrautt 15, Mafmrfirði
SÍmi 56 $0 5S8 s‘mi 55 50 828
Þú mætir
aldrei of
seint
í skólann!
Viltu öðlast meira sjálfstraust og
auka starfsréttindi þín og starfsframa?
Laugardagurinn 24. febrúar er dagur símenntunar.
Þá verður opið hús kl. 13-17 í 50 skólum og öðrum
fræðslustofnunum um allt land bar sem þér er boðið að
setjast á skólabekk og taka pátt í tuttugu mínútna
kennslustundum, allt frá beinaskurði til stjörnufræðiforrita.
Það er aldrei of seint að læra eitthvað nýtt og
auka við menntun sína.
Menntun er eina fjárfestingin sem aldrei verður frá þér tekin!
Þér standa opnar dyr á eftirtöldum stöðum:
Bankamannaskólinn - fræðslumiðstöð bankamanna, Snorrabraut 29
Bréfaskólinn, Hlemmur 5
Búnaðarbanki islands - fjármálanámskeið, Tryggvagata 24
Farskóli Þingeyinga, Framhaldsskólarnir á Husavik og Laugum
Ferðamálaskóli íslands, Höfðabakki 9
Félags- og fræðslumiðstöð iðnaðarins, Hallveigarstígur I
Félag íslenskra gullsmiða
Félag meistara og sveina í fataiðn
Félag pípulagningarmeistara í Reykjavík
Fræðsluráð byggingariðnaðarins
Fræðsluráð málmiðnaðarins
Hárgreiðslumeistarafélag íslands
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavik
Landssamband bakarameistara
Ljósmyndarafélag íslands
Prenttæknistofnun
Samband íslenskra tannsmiðameistara
Samstarfsnefnd atvinnulifs og skóla
Úrsmiðafélag íslands
Félagsmálaskóli UMFÍ, Fellsmúli 26, Hreyfilshúsið
Fjölbrautarskólinn við Ármúla, Ármúli 12
Fjölbrautaskóli Suðurlands / Farskóli Suðurlands, Selfoss
Framhaldsskóli Vestfjarða / Farskóli Vestfjarða, Torfnesi, ísafjörður
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjar
Fræðslumiðstöð i fiknivörnum, Grensásvegur 16
Fullorðinsfræðslan, Gerðuberg I
Háskólinn á Akureyri, Oddfellow-húsið v/Sjafnarstíg, Akureyri
Heimilisiðnaðarskólinn, Laufásvegur 2
Hvammshlíðarskóli: Fullorðinsfræðsla fatlaðra á Akureyri, Hvammshlið 6
Iðntæknistofnun - fræðslusvið, Keldnaholt
Kvöldskóli Kópavogs, Snælandsskóli v/Furugrund
Leiklistarstúdíó Eddu Björgvins og Gisla Rúnars, Sogavegur 129
Menntaskólinn við Hamrahlið - Oldungadeild, Hamrahlíð
Myndlistaskólinn i Reykjavík, Tryggvagata IS
Námsflokkar Reykjavikur, Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur I
Prenttæknistofnun, Hallveigarstígur I
Slysavarnaskóli sjómanna:
Skólaskipið Sæbjörg v/Grófarbryggju í Reykjavíkurhöfn
Starfsþjálfun fatlaðra, Hátún 10 d
Stjórntækniskóli íslands, Höfðabakki 9
Stjórnunarfélag íslands, Ánanaust IS
Stjórnunarskólinn, Sogavegur 69
Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegur 16
Tölvuskóli íslands, Höfðabakki 9
Tölvuskóli Reykjavíkur, Borgartún 28
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Viðskipta- og tölvuskóJinn, Ánanaust IS
Vitund, Laugavegur 47
Vímulaus æska, Grensásvegur 16
Ökuskólinn i Mjódd, Þarabakki 3
Lífið
er retti
tíminn
til aö læra
&
Rannsóknaþjónusta Háskólans
Evrópskt ár símenntunar 1996