Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1996, Page 13
FÖSTUDAGUR 29. MARS 1996
13
PV_______________________________________Fréttir
Þakiö bráönaöi af íshelli Kristleifs á Húsafelli:
Grefur annan stærri í sumar
„Þessi fyrsti íshellir lá ekki nógu
djúpt í jöklinum þannig að þakið
bráðnaði af honum síðasta haust.
Við ætlum þó ekki að gefast upp og
í sumar verður graflnn nýr hellir,
bæði stærri og dýpri,“ segir Krist-
leifur Þorsteinsson, ferðafrömuður
á Húsafelli í Borgarfirði, í samtali
við DV.
íshellir hans í Langjökli er nú
ónýtur en þakið á honum var 3,5
metrar. Bráðnunin var svo mikil á
jöklinum í sumar leið að þakið
hvarf alveg. Nú reiknar Kristleifur
með að hafa þakið mun þykkara og
eins er ætlunin að grafa lengra inn
í jökulinn. Hellirinn sem graflnn
verður í sumar á að verða 70 fer-
metrar.
„Stækkunarmöguleikarnir eru
endalausir. Þetta er gamall ís og lít-
il sem engin hreyfing á honum,“
segir Kristleifur.
Hann hefur lagt veg upp að
jöklinum, um 20 kílómetra leið frá
Húsafelli. Kristleifur reiknar með
að hægt verði að hefjast handa við
hellisgerðina snemma í vor því að
snjóalög eru nú óvenjulítil.
Fyrir er á þessum stað við jökul-
inn skáli fyrir ferðamenn. I hellin-
um hyggst Kristleifúr bjóða ferða-
mönnum upp á is og vatn úr jöklin-
um. Fyrst ætlar hann þó að fá úr
því skorið hve gamall ísinn er.
„Sennilega er þetta mörg þúsund
ára gamall ís. Helst þarf ég að vita
hve gamall hann er þannig að t.d.
verði hægt að bjóða upp á ís frá fæð-
inarári Krists eða landnáminu,"
segir Kristleifur. -GK
SPRAY
HÁRSPRAY
Hárspray sem stífnar
ekki strax. Unnið úr
náttúrulegum efnum.
Rakarastofan TÚapparstíg
A _________Sími 551 3010 ^ -L -L stofnuð 1918
Panasonic
hljómtækjasamstæða SC CH72
Samstæða með 3diska spilara,
kassettutæki, 140W.surround
magnara, tónjafnara, útvarpi,
hátölurum og fjarstýringu.
JAPISS
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
NEFÚÐALYF
-taktu pað í nefið
Virka efnið xýlómetazólín vinnur gegn stíflu
og slímmyndun í nefi. Notið Nexól ekki lengur
en 10 daga í senn án samráðs við lækni.
Sjúklingar með gláku, hjartasjúkdóma eða
skjaldkirtilssjúkdóma ættu ekki að nota lyfið.
Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.
LADA SAMARA
694.000 kr.
Lúxus án íburdar.
Samara er rúmgóður, sparneytinn og ódýr
bíll sem hefur notið mikilla vinsælda
hér á landi í gegnum tíðina.
Negld vetrardekk og sumardekk fylgja.
LAPA
afar raunhæfur kostur
ÁRMÚLA 13, SlMI: 568 1200
BEINNSÍMI: 553 1236
Það er 1 dag, föstudaginn 29. mars, sem tækifærið gefst
til að leggja lið meðferðarstarfinu á Staðarfelli.
Við stöndum fyrir söfnun meðal allra landsmanna á
Rás 2 og hvetjum þá sem eru aflögufærir til að hringja
og leggja í púkkið.
Nú er meirihluti sjúklinga á Staðarfelli ungt fólk sem er
að reyna að losna úr heljargreipum vimuefnanna. Það er
skylda okkar að leggja því lið.
Leggjum í púkkið
Síminn er 5-687-123
um áfengis- og
vímucfnavandann
ARGUS & ÖRKIN /SfA BL092