Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1996, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1996, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 29. MARS 1996 15 Pólitískur forseti Nú, þegar forsetakosningar eru í nánd, er rétt að staldra við og velta fyrir sér stöðu forsetaemb- ættisins. Spyrja spurninga eins og hvers er forsetinn í rauninni megnugur vilji hann hafa áhrif á stjórn landsins? Síðustu forsetar Þótt forseti sé samkvæmt stjórn- arskrá höfuð framkvæmdavalds, og sem slíkum falin umtalsverð völd, hefur það þó farið svo að for- setinn hefur lítið beitt sér opin- berlega. í tíð tveggja fyrstu forset- anna var embættið til muna virkara og reyndu forsetarnir að hafa áhrif á athafnir þingsins þótt það færi oft ekki hátt. Það hefur meðal annars komið í ljós að án atbeina Ásgeirs Ásgeirsson hefði Viðreisnarstjórnin ekki orðið að veruleika. Ásgeir lét hins vegar lítið á þessum afskiptum sínum bera og reyndi ávallt að koma fram út á við sem leiðtogi allrar þjóðarinn- ar. Þetta gat Ásgeir vegna þess að meirihluti þings tók tillit til hans og skoðana hans. Þegar hins vegar Kristján Eld- járn tók við forsetaembættinu við- hélt hann hinni ytri umgjörð emb- ættisins án þess að takast á við hið pólitíska eðli þess. Stafaði þetta að mestu leyti af þeirri staðreynd að Kristján hafði ekki til að bera póli- tíska reynslu Ásgeirs til þess að geta beitt sér gagnvart þinginu. Þetta varð einnig raunin þegar Vigdís Finnbogadóttir tók við for- setaembættinu. Henni hefur þó tekist að skapa sér og embættinu nýja stöðu með því að koma fram sem gestgjafí íslendinga. Er hún í augum almennings hin fagra fjall- kona sem landinu er til sóma. Þessi móðurímynd hennar hefur farið vel við hið vinsæla sjónar- mið að forsetinn eigi að vera haf- inn yfir flokkapólitík. Pólitískur forseti í kosningum nú í sumar er ljóst að okkur býðst að velja aðra fjall- konu. Ekkert er því hins vegar til fyrirstöðu að fram komi frambjóð- andi með skýra pólitíska stefnu og með þann ásetning að deila fram- kvæmdavaldi með ríkisstjórn. Fengi sá frambjóðandi helming kjörfylgis eða meira hefði hann mjög sterka stöðu gagnvart þingi og sitjandi ríkisstjórn. Það má jafnvel hugsa sér svip- Kjallarinn Guðmundur S. Johnsen stjórnmálafræðingur aða atburðarás og varð við stofn- un fimmta lýðveldisins í Frakk- landi þegar forsetinn þvingaði þingið til þess að taka tillit til sín með því að neita að staðfesta laga- setningu. Það er erfitt að hugsa sér að ríkisstjórn myndi beita sér fyrir lagasetningu sem hún vissi að forseti myndi ekki styðja. Gerði hún slíkt væri hún að biðja um þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem ríkisstjórn getur ekki gengið að því sem vísu að forseti skrifi upp á lagasetningu sem er andstæð sannfæringu hans. Á jennan hátt getur forseti haft um- talsverð áhrif, líkt og var ætlun þeirra sem mæltu fyrir stjórnar- skrárbreytingum 1944 þegar for- setaembættið var stofnsett. Alþingi gengur sjálfala Svo lengi sem forseti hefur þær heimildir sem stjórnarskrá veitir honum verður Álþingi að sætta sig við að það er undir hverjum og einum forseta komið hvernig hann framkvæmir vald sitt. Þó svo að síðustu tveir forsetar hafi látið Alþingi ganga sjálfala þýðir það ekki að sá sem kosinn verður í sumar verði að vera því eins eftirlátur. Vilji Alþingi halda óbreyttri stöðu sinni sýnist mér að það verið að taka stjórnarskrána til endurskoðunar. Guðmundur S. Johnsen. „Vilji Alþingi halda óbreyttri stöðu sinni sýnist mér að það verði að taka stjórnarskrána til endurskoðunar," seg- ir Guðmundur m.a. í greininni. „Þó svo að síðustu tveir forsetar hafi lát- ið Alþingi ganga sjálfala þýðir það ekki að sá sem kosinn verður í sumar verði að vera því eins eftirlátur.“ Þjóðfélagslegt áreiti Samkvæmt orðabók Háskólans kom orðið áreiti fyrst á prenti árið 1956 í bókinni Við uppspretturnar eftir próf. Einar Ól. Sveinsson. Það er dregið af so. að reita eða áreita. Sama gildir um fleiri nýyrði eins og elti af so. að elta, sbr. einelti. Þetta sýnir frjósemi tungunnar og er gott svo framarlega sem menn vita hvaö orðin merkja. Kvenrétt- indakonur hafa að mestu einokað orðið áreiti og þá í merkingunni kynferðislegt áreiti. „Landhelgi" annarra Áhugi kvenna á þessari tegund áreitis hefur vakið athygli á vandamáli sem áður var falið og eiga þær þakkir skildar. Eins og oft er um brautryðjendur hafa þær átt undir högg að sækja og skiptir miklu að ekki sé farið offari í nornaveiðum eins og gerðist í „biskupsmálinu“. Slíkt athæfi kann að valda trúnaðarbresti og getur rýrt álit og þar með gildi hinnar ágætu stofnunar. Orðið kynferðislegt áreiti virð- ist notað um allt sviðið frá leiðin- legri framkomu til nauðgunar. Þetta hlýtur að draga úr ákæru- Kjallarinn Jón Kjartansson frá Pálmholti, form. Leigjendasam- takanna gildinu. Ég kalla ekki nauðgun áreiti, heldur afbrot eða glæp. Sama á við um nauðgunartilraun. Hins vegar veit ég ekki til að það sé refsivert að vera leiðinlegur. Áreiti er að mínum skilningi það sem kemur róti á tilfinningar fólks, sbr. aö reita til reiði. Víst getur stöðugt áreiti verið refsivert og vitaskuld ef það flæmir fólk úr vinnu eða skóla eða truflar það við störf, áhugamál eða raskar heimil- isfriði. Enginn hefur leyfi til að vaða yfir „landhelgi" annarra og síst að tflefnislausu og hver maður hefur rétt tfl að vera hann sjálfur eins og hann er. Siðlaus húsnæðisstefna AOir verða fyrir áreiti í lífinu og af ýmsu tagi. Þeess vegna er hægt að tala um t.d. efnahagslegt, félagslegt eða þjóðfélagslegt áreiti. T.d. hafa ákvarðanir stjórnvalda áhrif á fólk, m.a. með skerðingu kjara og réttinda og rangri stefnu í nauðsynjamálum. Trúlega hefur ekkert áreitt alþýðuheimilin í landinu meira sl. áratug en sið- laus húsnæðisstefna samfara mik- Oli kjararýrnun. Ég tel að konur eigi mikið erindi í stjórnmál og hef stundum greitt þeim atkvæði. En ég er ekki einn um að hafa orð- ið fyrir vonbrigðum með þær eins og kosningaúrslit og kannanir sýna. Ég skora á stjórnmálakon- urnar að skera upp herör gegn því grimmilega áreiti sem alþýðu- heimilin búa við vegna skulda- þrælkunar, nauðungarsölu og annarra vandræða af völdum sið- lausrar húsnæðisstefnu. Jón Kjartansson „Ég tel aö konur eigi mikið erindi í stjórnmál og hef stundum greitt þeim at- kvæði. En ég er ekki einn um að hafa orðið fyrir vonbrigðum með þær eins og kosningaúrslit og kannanir sýna.“ Með og á móti Tekst Valsmönnum að verja titil sinn í handbolt- anum? Betri menn í öllum stöðum „Ég held að það sé ekki spurning að Valsmönnum tekst að verja titOinn í ár. Ef við skoðum liðin og ber- um saman þá hefur Valur á aö skipa Öfl- Stuðningsmaður ugri leik- Vals' mönnum í öO- um stöðum og þar að auki miklu meiri breidd. Þá eru Valsmenn þekktir fyrir það að toppa á réttum tíma. í leið sinni í úrslitaleikinn lentu KA- menn í miklu basli með Selfyss- inga og þurfti raunar dygga að- stoð dómara í öðrum leiknum til að klára hann. Segja má að lukk- an hafi bjargað þeim frá tapi í síðari leiknum gegn FH. Aftur á móti hafa Valsmenn komist mun léttar í gegnum leiki sína á leið sinni í úrslitaleikinn ef undan er skOinn fyrsti leikurinn gegn Aft- ureldingu. Það sem ég vona hins vegar í þessum úrslitaleik er að dómararnir taki harkalega á bolabrögðum og kýlingum sem allt of mikið var um í leikjum KA og Selfoss. Ég á von á spenn- andi leikjum á mifli Vals og KA, léttleikinn og skemmtilegur handbolti verði í fyrirrúmi. Tek- ið verði á grófum brotum syo handboltinn fái að njóta sín. Ég spái því að Valsmenn taki þetta dæmi, 3-0. Þá spá byggi ég á að Valsmenn hafa öflugra liði á að skipa. Þegar liðin eru borin sam- an hafa Valsmenn ótvírætt vinn- inginn. Undanfarin ár hafa Vals- menn komið upp á réttum tíma. Toppleikmenn hjá okkur eru að leika sitt síðasta tímabil í bili með liðinu og ég veit að þeir ætla að klára það með sóma.“ Liðsheild KA er sterkari „Það þarf flóra leiki tO að klára þessa úrslitakeppni. Þarna eru á ferð tvö góð lið en það er sann- færing mín að mínir menn í KA vinni þetta, 3-1. Það er engin spurning um að frarn undan eru bráð- skemmtilegir leikir og mikOl fjöldi áhorfenda mun fylgjast með af spenningi. Auðvitað munu liðin takast á, bæði leika fast, en ég á ekki von á grófum handbolta. Ég byggi spá mína á tveimur atriðum. í fyrsta lagi er liðshedd KA sterkari og í öðru lagi er stuöningsmannahópur KA engum líkur og hann mun vega þungt þegar upp verður staðið. Enn fremur er mikið hungur í leikmannahópi KA eft- ir að titillinn komi hingað norð- ur. Bæði liðin eiga á að skipa góðum einstaklingum en dags- formið á eftir að spOa nokkuð inn í þetta dæmi. Liðin hafa ver- ið í svolítdli lægð en eru aö koma upp aftur. Það eru skemmtilegir dagar fram undan og það verðum við sem stöndum uppi sem sigurvegarar.“ -JKS Þorstelnn Már Baldvinsson, stuöningsmaður KA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.