Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1996, Blaðsíða 4
24
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1996
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1996
25
íþróttir
Bandaríska meistaramótið í golfi:
- og vann ótrúlegan sigur á Norman
Nick Faldo frá Bretlandi vann
glæsilegan sigur á bandaríska meist-
aramótinu í golfi en mótinu iauk í
þann mund er DV fór í prentun í
nótt.
Greg Norman frá Ástraliu haföi
sex högga forskot á Faldo fyrir síð-
asta keppnisdaginn i gær en þá fór
allt úrskeiðis hjá Norman og Faldo
svaraði með stórkostlegu golfi.
Faldo lék lokahringinn á 67 höggum
en Greg Norman á 78 höggum. Faldo
vann því með fimm högga mun og
sveiflan var ótrúleg frá þriðja degi.
Lokahringinn í einvígi Faldos og
Normans vann Faldo þvi með 11
högga mun sem eru hreint ótrúlegar
tölur.
Eftir fyrri níu holurnar í gær
hafði Faldo unnuð upp fjögur högg á
Norman sem haföi þá aðeins tveggja
högga forystu. Þegar seinni holurnar
níu voru hálfnaðar hafði Faldo nða
tveggja högga forskoti og eftir það
var ekki aftur snúið.
Faldo sigraði á bandariska meist-
aramótinu 1989 og 1991 en Greg
Norman hefur aldrei sigrað á mótinu
og aldrei á stórmóti í Bandaríkjun-
um. Oft hefur hann verið ótrúlega
nálægt því að sigra og oft hefur hann
tapað í bráðabana en líklega hefur
hann aldrei glutrað niður jafn gullnu
tækifæri á sigri og í gær.
Norman hafði nokkra yfirburði á
mótinu til að byrja með og eini
kylfingurinn sem veitti Norman ein-
hverja keppni að ráði var Bretinn
Nick Faldo.
Norman gaf tóninn strax á fyrsta
degi er hann jafhaði vallarmetið á
Augusta vellinum og lék á 63 högg-
um. Hreint stórkostleg frammistaða
og ljóst að „Hvíti hákarlinn" var
staðráðinn í að láta aö sér kveða á
mótinu. Eftir tvo daga var enn frek-
ar ljóst hvert stefndi. Norman lék
annan hringinn á 69 höggum og enn
var Faldo ekki langt undan, lék á 67
höggum og nú munaði fjórum högg-
um á Norman og Faldo.
Gott forskot fyrir síðasta
daginn
Greg Norman átti í töluverðum
vandræðum á þriðja keppnisdegi og
lék þá ekki nægilega vel. Það sem
bjargaði honum var að Nick Faldo
var að leika mjög illa og þegar upp
var staðið munaði sex höggum á
Norman og Faldo, Norman í vfi.
Strax í upphafi lokahringsins í
gær átti Norman í mestu erfiðleik-
um. Hann byrjaði á fyrstu holu á að
senda teighögg sitt út i skóg og það
voru sérstaklega löngu höggin sem
fóru úrskeiðis hjá Ástralíumannin-
um í gær. Á fyrri níu holunum á
lokahringnum missti Norman af sex
Nick Faldo var á hælunum á Greg Norman, sem hér sést, svo að segja allt bandaríska meistaramótið. A lokakaflanum
gaf Norman eftir og varð að játa sig sigraðan. Símamynd Reuter
r'l'Víf'
"
Nick Faldo lék stórkostlegt golf í gær og náði að vinna ótrúlegan sigur á Greg Norman og vinna upp sex högga
forskot hans og raunar gott betur. Simamynd Reuter
flötum og átti í miklu basli. Á meðan
lék Nick Faldo mjög gott golf og á
fyrri níu holunum náði Faldo að
klípa fjögur högg af forskoti
Normans.
Faldo á 12 höggum undir
pari og 5 á undan Norman
Nick Faldo lék á 276 höggum, 12
höggum undir parinu á holunum 72.
Greg Norman varð annar á 281
höggi, 7 höggum undir pari. Hinn
bráðefnilegi Bandaríkjamaður, Phil
Mickelson varð þriðji á 282 höggum,
6 undir pari og í fjórða sæti hafnaði
Duffy Waldorf frá Bandaríkjunum
sem lék á 284 höggum.
Árangur Phils Mickelsons á mót-
inu er athyglisverður en hann er af
mörgum talinn efnilegasti kylfingur-
inn i dag og búast margir við að þar
sé Nicklaus framtíðarinnar á ferð-
inni.
-SK
Það gekk ekkert upp hjá Greg Norman í gær og hann var allt annað en
ánægður með gang mála. Símamynd Reuter
Margir góðir
féllu úr
keppninni
Margir heimsþekktir kylfingar
í fremstu röð máttu taka saman
sett sín og hætta keppni eftir 36
holur á US Masters þegar kepp-
endum var fækkað um helming.
146 högg gáfu rétt til að halda
áfram. Þeir sem „slefuðu“ inn
voru meðal annarra Spánverjinn
Severiano Ballesteros, Nick Price
frá Zimbabwe og Bretinn Colin
Montgomerie.
Á meðal þeirra þekktustu sem
duttu út eftir 36 holur voru Tom
Watson, Bandarikjunum, sem lék
á 147 höggum og landi hans,
Fuzzy Zöller, sem einnig var á 147
höggum. Hal Sutton og Gurtis
Strange komust ekki áfram á 148
höggum og heldur ekki þeir
Sandy Lyle á 149, Gary Player 149,
Payne Stewart 150, Arnold Palmer
150, Sam Torrance 151, Ben Crens-
haw, sigurvegarinn frá í fyrra, á
151, Tom Kite 152, Costantino
Rocca 153, Ian Baker-Finch 157 og
Mark McCumber á 160 höggum.
Tveir öldungar á sextugsaldri,
Jack Nicklaus og Raymond Floyd,
léku mjög gott golf fyrri hluta
keppninnar en gáfu eftir í lokin.
Þrátt fyrir það geta þeir vel við
sína frammistöðu unað.
44 kylfingar af 88 komust
áfram. Nicklaus lék samtals á 297
höggum, 9 höggum yfir pari vall-
arins og Raymond Floyd var á
292 höggum, 4 yfir parinu.
-SK
íþróttir
Frábær sigur á
Japansmótinu
- íslendingar unnu alla leikina og Norðmenn í úrslitum, 29-24
íslenska landsliðið í handknatt-
leik bar sigur úr býtum á Japans-
mótinu sem lauk í borginni
Kumamoto í gær. íslendingar
mættu Norðmönnum í úrslitaleik
mótsins og sigruðu nokkuð örugg-
lega, 29-24, og unnu þar með alla
leiki sína i mótinu.*
Mjög góð stígandi var í leikjum
liðsins og lék það sérstaklega vel í
þeim síðustu tveimur. Þetta er í
annað skiptið sem Þorbjörn Jensson
landsliðsþjálfari stýrir liðinu til sig-
urs á alþjóðlegu móti en það fyrra
var i Austurríki í fyrra.
Frábær síðari hálfleikur
gegn Norðmönnum
Úrslitaleikurinn gegn Norðmönn-
um í gær var lengstum jafn í fyrri
hálfleik en upp úr miðjum síðari
hálfleik skildi leiðir og íslenska lið-
ið tók leikinn í sínar hendur. Stað-
an breyttist úr 20-18 í 25-18 og þá
gáfust Norðmenn upp og aðeins var
spurning hversu stór sigur íslend-
inga yrði.
Patrekur Jóhannesson átti skín-
andi leik gegn Norðmönnum og áttu
þeir í miklum erfiðleikum með
hann. Islenska liðið lék mjög agað-
an leik og kom það mörgúm á óvart
hve Norðmenn voru auðveld bráð.
Leikir þjóðanna hafa verið mjög
jafnir hin síðari ár en í þetta skipt-
ið sýndu íslendingar klærnar og
unnu sannfærandi sigur. Það var
öðru fremur mjög beittur sóknar-
leikur sem lagði grunninn að sigri-
unum.
Góður sigur á Kóreumönn-
um
íslendingar unnu Suður-Kóreu á
laugardag, 27-24, en í hálfleik hafði
íslenska liðið fjögurra marka for-
ystu, 15-11. S-Kóreumenn náðu um
tíma fimm marka forystu í fyrri
hálfleik en tókst með mikilli baráttu
að vinna þann mun upp.
„Lékum betur þegar á mótið
leið“
„Við sögðum það fyrir mótið að
við færum þangað til að vinna leik-
ina. Það gekk eftir og ég er mjög
ánægður með þessa niðurstöðu. Við
lékum betur þegar á mótið leið en í
fyrstu leikjunum sýndi liðið þreytu-
merki eftir erfitt ferðalag hingað.
Ég notaði meirihluta leikmanna í
mótinu, þá léttari gegn Kóreu og
hvíldi ég til að mynda Patrek í þeim
leik.
Patrekur kom síðan mjög beittur
inn í leikinn gegn Noreg. Sóknin
var mjög beitt í leiknum gegn Norð-
mönnum en sóknarnýtingin var
68% sem gerist varla betra,“ sagði
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari í
samtali við DV eftir verðlaunaaf-
hendingu í gær.
Með mjög góðan hóp í
höndunum
„Ég er með mjög góðan hóp í
höndunum að mínu mati og það rík-
ir þægilegur andi í honum. Liðið er
að leika kannski bétur en ég átti
von á enda var undirbúningur ekki
mikill. Farið var beint út eftir að úr-
slitakeppninni lauk og því gafst lít-
ill tími til undirbúnings. Sóknin
stóð upp úr og vörnin var alveg
þokkalega á köflum. Við beittum
mest 6-0 vörn en fórum út í 5-1 á
móti Norðmönnum.
Það sýndi sig glöggt að liðið get-
ur leikið sterkan varnarleik ef svo
ber undir. Þessi sigur gefur okkur
örugglega byr í seglin og ég er bjart-
sýnn á framhaldið. Ýmsir hlutir
verða fínpússaðir með meiri æfing-
um. það er skemmtilegt verkefni
sem við eigum fyrir höndum,“ sagði
Þorbjörn Jensson að lokum í sam-
talinu við DV.
Mörk íslands í leiknum gegn S-
Kóreu: Valdimar Grímsson 7, Ólaf-
ur Stefánsson 5, Róbert Sighvatsson
4, Davíð Ólafsson 3, Dagur Sigurðs-
son 3, Júlíus Jónasson 3, Sigurður
Bjarnason 2.
Mörkin gegn Noreg: Patrekur Jó-
hannesson 8, Ólafur Stefánsson 5,
Dagur Sigurðsson 3, Björgvin Björg-
vinsson 3, Sigurður Bjarnason 3,
Júlíus Jónasson 2, Valdimar Gríms-
son 1.
Simen Muffentangen var marka-
hæstur Norðmanna með 9 mörk.
Suður-Kóreumenn lentu í
þriðja sætinu
Suður-Kóreumenn lentu í þriðja
sæti eftir sigur á Bandaríkjamönn-
um, 28-24. Hvíta-Rússland vann Jap-
an um fimmta sætið, 24-23. Kínverj-
ar höfnuðu í sjöunda sæti eftir sig-
ur á Áströlum, 28-19.
-JKS
620 þúsund í verðlaun
Fyrstu verðlaun í Japansmótinu í Kumamoto námu alls 620 þúsundum
íslenskra króna eða einni milljón jena. Þessir peningar koma sér örugg-
lega vel fyrir HSÍ sem ekki stendur of vel fjárhagslega um þessar mund-
ir.
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari sagði í samtali við DV að þessi pen-
ingaverðlaun kæmu sér vel og gerðu liðinu kleift að fara til Sviss í sum-
ar til aö leika tvo leiki við heimamenn. Þorbjörn lítur á leikina við Sviss
sem mikilvægan undirbúning fyrir verkefnið í haust. -JKS
Sigurður kosinn bestur
Sigurður Bjarnason, landsliðsmaður í handknattleik, var í lok Japans-
mótsins kosinn besti leikmaður keppninnar. Ólafur Stefánsson var kos-
inn besti maður íslenska liðsins og Þorbjörn Jensson besti þjálfari.
Þorbjörn sagði að Sigurður og Ólafur hefðu verið vel að þessum til-
nefningum komnir. Sigurður hefði leikið í nokkrum stöðum i mótinu og
nefndinni því fundist*Sigurður íslenska liðinu mjög mikilvægur sem
hann og var. -JKS
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik, er ánægður með árangur íslenska landsliðsins í Japan. Þorbjörn
fékk nákvæmlega engan tíma til undirbúnings með liðið fyrir mótið og það gerir árangur íslenska liðsins enn
glæsilegri. DV-mynd GS
Knattspyrna:
Pétur með
mark fyrir
Hammarby
í bikarnum
Pétur Marteinsson hefur verið
að gera mjög góða hluti með
sænska liðinu Hammarby í
sænsku knattspyrnunni að und-
anfórnu.
Lið Hammarby er komið í
undanúrslit sænsku bikarkeppn-
innar og mætir
þar AIK í 4-
liða úrslitun-
um. Pétur og
férlgar léku
fyrir helgina
gegn Sylvia í
8-liöa úrslit-
unum og
unnu 0-3.
Pétur skoraði
þá eitt marka
Hammarby.
Pétur virðist búinn að tryggja
sér fast sæti í liðið Hammarby
og vera í mikilli framför sem
knattspyrnumaður. Á næstu vik-
um kemur í ljós hvort Hammar-
by tekst að komast í úrslit
sænsku bikarkeppninnar. -SK
Pétur
Marteinsson