Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1996, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1996, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 7 Fréttir Frumvarp fjármálaráðherra til „bráðabirgðalaga“ um þungaskatt af dlsilbllum: Dísilknúnir einkabílar gleymdust alveg - forkastanleg vinnubrögð, segir FÍB í nýju frumvarpi um breytingu á lögum um fjáröflun til vegagerðar, svonefndum þungaskattslögum sem kveða á um gjaldtöku af dísilbílum, hefur gleymst að gera dísilknúna einkabíla jafngildan kost fyrir al- menning og bensínknúna bíla. Her- mann Jónasson, lögfræðingur í fjár- málaráðuneyti, staðfestir þetta í samtali við DV en segir að úr þessu verði bætt í meðferð alþingis á mál- inu. Hann kveðst hins vegar ekki geta skýrt hvers vegna þessi gleymska hefur átt sér stað. Frum- varpið hefur verið tekið til fyrstu umræðu á alþingi og er nú hjá efna- hags- og viðskiptanefnd. Þegar gildistöku laga um olíu- gjald í stað þungaskatts á dísilbíla var frestað um tvö ár um síðustu áramót var því lofað að lagafrum- varp með endurbótum á núverandi þungaskattslögum yrði lagt fram og í því myndu m.a. felast umbætur hvað varðar gjaldtöku af dísilfólks- bílum þannig að þeir yrðu ekki síðri kostur fyrir almenning en bensínknúnir bílar eru. „Ráðuneyt- ið og fjármálaráðherra lofuðu því að gera fólksbílum, hvort sem þeir eru dísil- eða bensínknúnir, jafnhátt undir höfði,“ segir Runólfur Ólafs- son, framkvæmdastjóri Félags ísl. bifreiðaeigenda. „Það er því forkastanlegt að í frumvarpinu skuli á engan hátt tek- ið tillit til disilknúinna fólksbOa. Það er vitað mál að allt mælir með því að þungaskattur á dísilfólksbOa verði leiðréttur. Það er hins vegar viðurkennt núna eftir að frumvarp- ið er loks komið fram af öUum aðil- um sem að þessum málum koma, þar á meðal Vegagerðinni og fjár- málaráðuneytinu sjálfu, að dísU- fólksbifreiðar hafa orðið útundan og það vantar hreinlega kafla í lögin um þá. I frumvarpinu er tekið tOlit tO aUra þeirra atriða sem minnst er á í áliti nefndar hagsmunaaðila o.fl. Lögreglan fiskaði t fyrradag bíl upp úr sjónum í Nauthólsvík. Hafði bílnum verið stolið og vildi þjófurinn losa sig við hann á þennan hátt. Kafarar vor sendir til að grennslast fyrir um hvort einhver hefði lokast inni í bílnum en svo reyndist ekki vera. DV-mynd S Fingurslys í húsgagnaverksmiðju: Verkstjórinn dæmdur - verkstjórasambandið áfrýjar frá 1995, nema eins - þ.e. fastagjalds af einkabUum. dísUeinkabíUinn er hreinlega skilinn útundan," segir Runólfur. „Ég geri fastlega ráð fyrir því að þetta atriði komi inn á þinginu," segir Hermann Jónasson i fjármála- ráðuneytinu. En hvers vegna er það ekki í frumvarpinu? Hvers vegna er það ekki lagt fuUburða fram á al- þingi? „Ég get ekki skýrt það,“ seg- ir Hermann. -SÁ iðismunur á b@nsii~ disilbíla Peugeot 106 bensínbíll Verö 900.000 kr. Eyösla á 100 km 7,3 I - bíltegund Peugeot 106 og árskeyrsla 17.000 km. - Peugeot 106 dísilbíll meö mæli Verö 1.070.000 kr. Eyösla á 100 km 5,9 I 28% i% 54% Æ Peugeot 106 dísilbíll án mælis Verö 1.070.000 kr. Eyösla á 100 km 5,9 I kostnaöur á ekinn km 8,91 kr. kostnaöur á ekinn km 12,01 kr. kostnaöur á ekinn km 13,03 kr. | eldsneytiskostn. ■ þungaskattur | skattar-skoöun viöhald-viögeröir DV Sérkennileg skattlagning dísilfólksbíla: Hver kílómetri mun dýrari Venjulegir fólksbílar með dísil- vélar eru skattlagðir harkalegar en bensínknúnir bUar þannig að hver ekinn kUómetri kostar eiganda dí- sUknúins smábUs talsvert meira en eiganda bensínknúins sams konar bUs, eins og sjá má af meðfylgjandi grafiskum skýringarmyndum. Þessi mikla sköttun á dísilbUum er athyglisverð í ljósi þess að dí- sUknúnir fólksbUar menga minna, nota minna magn eldsneytis en bensínbUar og slíta vegakerfinu ekkert meira en tilsvarandi bens- ínknúnir fólksbUar, eldsneyti fyrir þá er ódýrara í innkaupum tU landsins og auðveldara og hættu- minna í meðförum. Einn tUgangur laga, sem sam- þykkt voru á Alþingi sl. vor, um innheimtu olíugjalds af dísUolíu fyr- ir bUa, var sá aö jafna út mismuni á skattlagningu á notkun dísilbíla og bensínbíla og gera þá fyrrnefndu jafngóðan kost fyrir almenning. Annar höfuðtilgangurinn var sá að bæta innheimtu vegaskatta af dísil- bílum frá því sem verið hefur í nú- verandi þungaskattskerfi en þar er opinbert leyndarmál að undanskot séu gríðarleg og talið að milljarðar tapist árlega. í olíugjaldslögunum var gert ráð fyrir undanþágum frá olíugjaldi vegna notkunar hennar á vinnuvél- ar, í landbúnaði, sjávarútvegi og á tUtekna bUa með tiltekinni notkun. Hugmyndin var aö aUir keyptu ol- íuna með olíugjaldinu en undan- þáguaðUar fengju það endurgreitt í gegnum virðisaukaskattskerfið. Fljótlega eftir að lögin höfðu ver- ið samþykkt á Alþingi sl. vor kom í ljós að undanþágu- og endur- greiðslukerfið hefði reynst illfram- kvæmanlegt og undanskotsleiðir síst minni en í þungaskattskerfinu. Þá heyrðist af því að Danir, sem búið hafa við slíkt kerfi, hefðu gefið það upp á bátinn og tekið upp litun á aUri olíu sem notuð er á annað en bíla. Danir hafa löggUt búnað sem litar oliuna um leið og henni er dælt á olíubUa í birgðastöð. Þannig er sú olía lituð sem á að fara á bensín- stöðvar tU sölu á bUa, en olia tU húsahitunar, á vinnuvélar og skip o.s.frv. ekki. Búnaður af þessu tagi hefur reyndar verið notaður hér- lendis þegar olíufélögin stóðu í sam- keppni um að bæta bætiefnum í Rússabensínið fyrir rúmum áratug tU að gera það kraftmeira. í ljósi þessara tíðinda frá Dan- mörku var gildistöku olíugjaldslag- anna frestað í tvígang og í síðara sinnið um allt að tvö ár og taka því líklega gUdi með endurbótum árið 1998. -SÁ „Þessum dómi verður mjög senni- lega áfrýjað tU Hæstaréttar enda er það svo að verði dómurinn fordæm- isgefandi eru félagsmenn Verk- stjórasambandsins komnir í mjög þrönga stöðu, verði þeir gerðir ábyrgir í sérhverju slysatUviki," segir Óskar Mar, hjá Verkstjóra- sambandi íslands. Sá dómur sem um ræðir er þegar Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi verkstjóra í húsgagnaverksmiðjú Ingvars og Gylfa í 37 þúsund króna sekt og 10 daga varðhald til vara, vegna fingurslyss sem starfsmaður hans varð fyrir. Slysið varð í pressu sem stýrt er af fótrofa og komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að hlífðarbúnaður yfir rofanum væri ófuUnægjandi. Vinnueftirlitið haföi hins vegar áður skoðað umrætt tæki ásamt öUum öðrum tækjum verksmiðjunnar og ekki gert at- hugasemdir við búnaðinn. Vinnu- eftirlitið kom ekki nærri rannsókn á slysinu sjálfu, eins og venjan er, heldur var gerð lögregluskýrsla og var hún lögð fram í héraðsdómi Reykjavíkur. Verkstjórasambandið hefur hald- ið félagsfund og átt viðræður við vinnuveitendur vegna málsins. Rúmar tvær vikur eru eftir af áfrýj- unarfresti. -SÁ Akranes: Kappakstur í bænum Tveir ungir ökumenn misstu öku- réttindin eftir kappakstur á Faxa- braut á Akranesi í fyrradag. Þegar lögreglan stöðvaði þá voru bílarnir á 107 kílómetra hraða. Öku- þórarnir eru báöir 18 ára gamlir og misstu þeir ökuréttindi sín á staðn- um. -GK SKO- OG FATAMARKAÐUR BILDSHOFÐA 16 ✓ Skór í miklu úrvali ✓ Herrafatnaður ✓ Barna-, dömu- og herraúlpur ✓ Sokkar, vettlingar, glervara og ýmislegt fleira. HÚS- GAGNA- HÖLLIN Rafbúð 4 INN- ■ KEYRSLA ilfi erum vW Bíldshöfði 16 Opið frá 12-18 virka daga og 12-15 laugardaga

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.