Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1996, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 FIMMTUDAGUR 18. APRIL 1996 27 Iþróttir Sameiningarmál Þórs og Týs í Eyjum: Þungavigtarmenn bjóða fram stjórn - verður sameining að veruleika 29. apríl? DV, Eyjum: Málefni íþróttahreyf- ingarinnar í Vestmanna- eyjum hafa verið í brennidepli af og til und- anfarin misseri. Skulda- baggi hreyfingarinnar er mikill og sérstaklega þrengir að knattspyrnu- félaginu Tý. Þrátt fyrir ýmsar til- lögur um uppstokkun í íþróttahreyfmgunni hafa þær ekki náð í gegn. Bæjarsjóður gerði síðast tilraun í haust til að koma að þessu máli en án árangurs. Undanfarnar vikur hafa ýmsir áhrifamiklir aðilar í bænum, þar á meðal aðilar frá stærstu styrktaraðilum í bænum eins og Vinnslustöðinni og Ishúsfélaginu, verið að móta og smíða tillög- ur um endurskipulagn- ingu á málefnum íþrótta- hreyfingarinnar í Vest- mannaeyjum Hafa tillög- urnar verið sendar stjórnum Týs og Þórs og öllum ráðum og aðildar- félögum og aðalstjórn ÍBV til kynningar. Óskað hefur verið eftir að þessir aðilar gefi svar íyrir 29. apríl nk. og svari því hvort þeir sam- þykki tillögur hópsins eða ekki. „Eina raunhæfa leiðin" „Það er álit undirrit- aðra að hér sé um einu raunhæfu leiðina að ræða til þess að íþrótta- hreyfingin og íþróttirnar hér í Eyjum geti dafnað í framtíðinni. Er erindi þetta lagt fram til af- greiðslu hjá íþróttahreyf- ingunni Það er mat und- irritaðra að það geti ver- ið erfiðara í framtíðinni að fá íjármagn frá fyrir- tækjum ef ofangreind skipulagsbreyting nær ekki fram að ganga,“ seg- ir meðal annars í bréfi þessa hóps til íþrótta- hreyfingarinnar í Eyj- um. í bréfinu er það meðal annars lagt til að knatt- spymufélögin Þór og Týr verði lögð niður og stofn- uð verði sérstök félög um knattspyrnu, handknatt- leik og sund. Önnur félög verði óbreytt. Þá er sagt í bréfinu að búningsklefar vegna Há- steinsvallar verði í kjall- ara Týsheimilisins, sem eftir breytinguna ásamt Þórsheimili verði stjórn- stöðvar íþróttahreyfing- arinnar og beri nafnið ÍBV-heimilið. Loks segir í bréfinu: „Skuldir knattspyrnufé- lagsins Týs og Þórs fylgi mannvirkjunum eftir til ÍBV og verður það verk stjórnar ÍBV að koma fjármálunum í lag.“ Þungavigtarmenn Eftirtaldir aðilar í Eyj- um eru tilbúnir að taka að sér og skipa stjórn ÍBV til að takast á við þau verkefni sem fram undan eru: Guðmundur Þ.B. Ólafsson, formaður, Sig- hvatur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Vinnslu- stöðvarinnar, varafor- maður, Magnús Jónas- son, framkvæmdastjóri Herjólfs hf., ritari, Sig- urður Einarsson, for- stjóri ísfélagsins, gjald- keri, Arnar Sigurmunds- son, formaður Spari- sjóðsins og formaður Samtaka fiskvinnslu- stöðva, og Ómar Garð- arsson ritstjóri og fyrr- verandi formður ÍBV, meðstjórnendur. Mikill áhugi er fyrir sameiningu Þórs og Týs í Eyjum og íjölmargir hafa skrifað undir stuðningsyfirlýsingu vegna þessa máls og þar má nefna leikmenn meistaraflokkanna. -ÞoGu Ajax ver titilinn gegn Juventus Það verða Juventus og Ajax sem leika til úrslita í meistarakeppni Evrópu í knattspyrnu. Ajax lék gegn Panathinaikos frá Grikklandi í gær- kvöldi og sigraði 0-3 og samanlagt 1-3. Juventus fór til Frakklands og lék þar síðari leikinn gegn Nantes. Juventus tapaði 3-2 en vann samanlagt 4-3. -SK Enski boltinn: Slagurinn heldur áfram Newcastle og Manchester United unnu bæði leiki sína í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í gærkvöldi og staðan í toppslag liðanna tveggja er því óbreytt. United heldur enn efsta sæt- inu eftir 1-0 sigur gegn Leeds. Markverði Leeds var vikið af- veili eftir aðeins 17 mínútur og enginn varamarkvörður á bekknum. S-Afríkumaðurinn Lucas Radebe, sem hóf ferilinn sem markvörður, kom inn á sem varamaður og fór í markið. Hann réð ekki við gott skot Roy Keane á 72. mínútu sem tryggði United dýrmæt stig. Robert Lee skoraöi sigurmark Newcastle gegn Southampton eftir 10 mínútur. Lee er tábrot- inn, hefur leikið þannig í þrem- ur síðustu leikjum, og Les Ferdinand lék einnig meiddur. Úrslit í öðrum leikjum: Aston Villa-West Ham.1-1 Robert Lee skorar sigurmark Newcastle í gærkvöldi. Símamynd Reuter Mikill knattspyrnuáhugi í Los Angeles: Tæp 80 þúsund mættu á völlinn Blackbum-Wimbledon.........3-2 Nott. Forest-Coventry.......0-0 Sheff. Wed.-Chelsea.........0-0 Alan Shearer skoraöi 2 mörk fyrir Blackburn og fer nú í upp- skurð. Hann missir af síðustu leikjum timabilsins. Staða efstu og neðstu liða: Man. Utd 36 23 7 6 65-35 76 Newcastle 35 23 4 8 63-35 73 S.hampton 36 8 10 18 33-52 34 Coventry 36 7 13 16 40-60 34 Man. City 36 8 10 18 30-56 34 QPR 36 8 6 22 35-54 30 Bolton 36 8 5 23 38-68 29 -SK Það mættu hvorki fleiri né færri en 79 þúsund áhorfendur á leik Los Angeles Galaxy og New York Metro- stars í nýju bandarisku atvinnu- deildinni í knattspyrnu í vikunni. Leikurinn fór fram á Rose Bowl leikvanginum í Los Angeles og heimamenn náðu að sigra, 2-1. Áhuginn fyrir þessum fyrsta leik í Los Angeles kom verulega á óvart en vonast hafði verið eftir því að fá um 30 þúsund manns á leikinn. Mikill knattspyrnuáhugi er í borg- inni og má rekja það til þess að fjöl- margir íbúanna eru af mexíkósku bergi brotnir. Bandaríski landsliðsmaðurinn og fyrrum leikmaður Coventry, Cobi Jones, skoraði fyrra mark Los Ang- eles í leiknum. Leikari í liði Los Angeles Annar leikmaður með heimalið- inu vakti þó meiri athygli. Hann heitir Andrew Shue og er þekktur fyrir leik sinn í sápuóperunni „Mel- rose Place“. Hann er kominn í leik- mannahóp Los Angeles og fékk að spreyta sig síðustu 20 mínúturnar. Shue, sem var öflugur knattspyrnu- maður á skólaárum sínum og lék einnig í innanhússdeild í Bandaríkj- unum og í 1. deildinni í Zimbabwe, stóð sig nægilega vel til að halda sæti sínu í 16 manna hópnum fyrir næsta leik. -VS United að leita Manchester United er að leita að varnarmanni sem gæti leyst Steve Bruce af hólmi. Mörgum þykir hann orðinn slappur og þungur og tími kominn að finna mann í hans stað. Hinn ungi Michael Duberry er efstur á óskalista United-manna en hann hefur átt frábært tíma- bil hjá Chelsea. Ginola í bann Frakkinn David Ginola hjá Newastle á yfir höfði sér að verða dæmdur í eins leiks bann en hann er kominn með 21 refsi- stig. Ginola tekur út bannið í leiknum á móti Leeds í næstu viku. Þetta er skarð fyrir skildi að einn besti maður liðsins verði þá ekki með vegna slagsins við United um meistaratitilinn. Rösler á förum? Þjóðverjinn Uwe Rösler hjá Manchester City gæti hugsan- lega verið á forum tO Sheffield Wednesday. David Pleat, stjóri Wednesday, bauð í fyrra 325 milljónir í kapp- ann en því var hafnað. Dagar Röslers virðast taldir en hann hefur átt erfitt samstarf við Alan Ball, stjóra City. Unglingaslagur Keppni unglingaliðanna í Englandi er nú á lokaspretti. West Ham vann fyrri leikinn gegn Wimbledon í undanúrslit- unum, 2-1, en síðari leikur lið- anna verður í kvöld. Liverpool er komið í úrslit en liðið vann Crystal Palace í báð- um leikjunum. Southall áfram? Forráðamenn Everton munu á næstunni ákveða hvort þeir framlengi samning við Newill Southall, markvörð félagsins. Southall er kominn til ára sinna og eru menn ekki á einu máli hvort bjóða eigi honum nýjan samning. Þetta ætti að koma í ijós þegar deildinni lýkur í byrjun næsta mánaðar. Winter til Inter Aron Winter skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Inter i MOanó. Lazio bauð honum að nýjan samning en Winter var orðinn leiður í Róm og vOdi breyta um umhverfi og reyna fyrir sér með nýju liði. Á góöum launum Arrico Sacchi, landsliðsþjálf- ari ítala í knattspymu, hefur framlengt samning sinn við ítalska knattspyrnusambandið tO 1998. Hann verður með liðið fram yflr HM þar í landi. Sacchi fær 70 milljónir í árslaun. Walter úr leik Botnbaráttulið Southampton varð fyrir miklu áfalli í gær þeg- ar í ljós kom aö Mark Walters var dæmdur í þriggja leikja bann. Þetta kemur á versta tíma fyrir liðið sem berst af öOu afli fyrir tilverurétti sínum í úrvals- deildinni. Cole fer ekki Glenn Hoddle, framkvæmda- stjóri Chelsea, leitar að nýjum leikmönnum fyrir næsta tímabil. Hann reyndi við Andy Cole í vik- unni en fékk þau svör að hann yrði um kyrrt á Old Trafford. Alex Ferguson vill ekki missa hann í bráð að minnsta kosti. + Róbert Sighvatsson er á leið til Þýskalands til að kanna hvað í boði er hjá 2. deildarliðinu Fredenbeck. Schutterwald hefur einnig sýnt áhuga. Schutterwald vill fá Róbert - Bergsveinn líklega áfram hiá Aftureldingu „Það er rétt að þýska 2. deildarliðið Schutterwald hefur haft samband við mig og boðið mér að líta á aðstæður. Fyrst mun ég hins vegar fara til Freden- beck og kanna málin þar,“ sagði Róbert Sighvatsson, línumaðurinn snjalli í handknattleiksliði Aftur- eldingar í samtali við DV í gærkvöldi. Róbrt fer ásamt Héðni GOssyni tO Fredenbeck um helgina en þýska félagið hafði samband við Róbert og bauð honum að koma til Þýskalands. Ekki er víst að Róbert leiki með öðru þýsku liðanna en ef gott tO- boð lítur dagsins ljós ætlar hann að slá tO. Bergsveinn líklega áfram í Mosfellsbæ „Eins og staðan er í dag eru miklar líkur á því að ég leiki áfram með Aftur- eldingu. Annars skýrast þessi mál endanlega í næstu viku,“ sagði Berg- sveinn Bergsveinsson, markvörður Aftureldingar, í samtali við DV í gær- kvöldi. Sigurður Sveinsson, hornamaður í FH, hefur verið sterklega orðaður við Aftureldingu. Forráða- menn Aftureldingar hafa rætt við hann en nokkrar vikur munu líða þar tO Sig- urður ákveður sig. Mörg undanfarin ár hefur Aftuir- elding sett sig í samband við Sigurð en hann jafnan gefið afsvar. Knútur í FH? Miklar líkur eru á því að Knútur Sigurðsson, vinstri- handarskytta í Víkingi, gangi á ný tO liðs við FH- inga. Hann lék æfingaleik með FH-ingum í fyrra- kvöld. Knútur yfirgaf FH á sínum tíma eftir erfiðleika í samskiptum við Guð- mund Karlsson, fyrrver- andi þjálfara FH. Þá er Val- ur Arnarsson, sem leikið hefur í Danmörku, orðaður við FH. Víkingar, sem féOu í 2. deild í vetur, virðast ætla að missa mikinn mann- skap því þeir Reynir Reyn- isson markvörður og Guð- mundur Pálsson (Björg- vinssonar) hafa þegar geng- ið tO liðs við Fram eins og fram kom í DV í gær. -SK Hrannar afram með Njarðvík - og Friðrik líklega áfram með Grindavík DV, Suöurnesjum: „Hrannar Hólm verður áfram þjálfari hjá okkur og við erum mjög ánægðir með það. Við verðum með sama mannskap næsta vet- ur fyrir utan að Sverrir Þór Sverrisson hættir," sagði Ólafur Eyjólfsson, formaður körfuknattleiks- deildar Njarðvíkur, í sam- tali við DV í gærkvöldi. „Ég er mjög bjartsýnn á að Friðrik Ingi Rúnarsson verði áfram þjálfari hjá okkur og við leggjum ofur- kapp á að halda honum. Við leggjum einnig áherslu á að halda Rodney Dobard og vonum að það gangi eft- ir,“ sagði Margeir Guð- mundsson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, í samtali við DV í gærkvöldi. Einhverjar breytingar kunna að verða á leik- mannahópi Grindvíkinga fyrir næsta keppnistímabil. Þeir Helgi Jónas Guðfinns- son, sem kjörinn var besti leikmaður Grindavíkur í vetur, og PáO Axel VO- bergsson hyggja á nám í Bandaríkjunum. Hvað gerist á árs- þinginu? Ársþing KKÍ er fram undan og þar kunna að verða samþykktar breyt- ingar á núverandi keppnis- fyrirkomulagi í úrvals- deildinni. Samkvæmt Hrannar Hólm. heimildum DV kemur fram tiOaga á þinginu sem mið- ar að keppni í einni deild í stað tveggja riðla áður. Stefnt verður að því að fækka leikjum og þykir mörgum ekki vanþörf á því. Þá mun koma fram til- laga á þinginu þar sem lagt verður til að vinna þurfi tvo leiki í úrslitakeppninni og þrjá í úrslitunum sjálf- um. Mikdl stuðningur mun vera við þessar tillögur. -SK/-ÆMK Feögarnir í sama liði? - Arnór og Eiöur Smári í landsliöshópnum gegn Eistlandi Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, tilkynnti í gærkvöldi landsliðshópinn sem mætir Eistlend- ingum í vináttuleik ytra á miðviku- daginn. Hópurinn er skipaður eftir töldum leikmönnum: Markverðir eru Birkir Kristinsson, Brann, og Kristján Finnbogason, KR. Aðrir leikmenn: Guðni Bergsson.............Luton Rúnar Kristinsson .......Örgryte Sigursteinn Gíslason..........ÍA Ólafur Adolfsson..............ÍA Lárus Orri Sigurðsson.....Stoke Ólafur Þórðarson .............ÍA Sigurður Jónsson .........Örebro Arnar Grétarsson .... Breiðabliki Eyjólfur Sverrisson . ... H. Berlín Hiynur Stefánsson ...........ÍBV Arnór Guðjohnsen..........Örebro Eiður Smári Guöjohnsen .... PSV Bjarki Gunnlaugsson . . Mannheim Þórður Guðjónsson ......Bochum Feðgarnir Arnór Guðjohnsen og sonur hans, Eiður Smári, eru báðir í hópnum og svo kann að fara að þeir verði báðir í byrjunarliði íslands. Verði það niðurstaða Loga Ólafsson- ar verður það í fyrsta skipti sem feðg- ar leika saman í landsliði Islands og líklega verður um einstakan viðburð í heiminum að ræða. Fróðir menn telja að feðgar hafi aldrei leikið sam- an í landsliði. Á þriðjudaginn leika landslið Is- lands og Eistlands, skipuð leikmönn- um 21 árs og yngri. Atli Eðvaldsson þjálfar 21 árs liðið. -SK Alþjóöa sundmótiö í Lúxemborg: Besti árangur frá upphafi Árangur íslenska unglinga- landsliðsins á hinu árlega sundmóti um síðustu helgi í Lúxemborg er besta frammi- staða íslenskrá unglinga á þessu móti frá upphafi. 16 þjóðir kepptu og voru þátttakendur um 400 talsins. I stigakeppni þjóðanna lenti í ísland í fimmta sæti. íslensk ungmenni hafa síð- ustu tíu ár tekið þáttj mót- inu í Lúxemborg en árangur núna slær öU met. Fjögur gull unnust á mót- inu og vann Örn Arnarsson úr SH þrjú þeirra og Kol- brún Ýr Kristjánsdóttir eitt. Þá vann Halldóra Þorgeirs- dóttir til bronsverðlauna og silfurverðlauna. Örn Arn- arsson fékk guUverðlaun í 100 og 200 metra baksundi og í 400 metra skriðsundi. Hérna er á ferð mikið efni sem vert er að gefa gaum í framtíðinni. Kolbrún Ýr Kristjánsdótt- ir innbyrti fjórðu guUverð- laun íslands á mótinu með því að sigra í 100 metra baksundi og vinna s.íðan silfur í 200 metra baksundi. Kolbrún er mjög efnileg sundkona sem á örugglega eftir að láta að sér kveða. Halldóra Þorgeirsdóttir úr sundfélaginu Ægi vann síðan til bronsverðaluna í 200 metra bringusundi. Auk þessara verðlauna var árangur í ýmsum sund- greinum mjög góður og sýn- ir að gott uppbyggingarstarf hin síðustu ár er farið að skila sér í bættum árangri. -JKS NBA-deildin í körfuknattleik í nótt: Richmond tryggði Sacramento dýr- mætan sigur Sacramento færðist í nótt skrefi nær því að komast 1 úrslitakeppni NBA í fyrsta skipti í tíu ár með því að vinna Phoenix í hörkuleik, 103-102. Mitch Richmond, besti maður heimaliðsins, tryggði því sigurinn með tveimur vítaskotum þegar aðeins 2 sekúndur voru til leiksloka þannig að iæpara gat það varla staðið. Sacramento og Golden State heyja einvígi um áttunda sætið í Vesturdeildinni og Golden State á enn möguleika eftir sigur i Minn- eapolis í nótt. Stórleikur hjá Latrell Sprewell gerði útslagið hjá Golden State. Úrslit í NBA-deildinni í nótt: New Jersey-Toronto.....107-95 Brown 30, Bradley 11 - Earl 28. Philadelphia-Miami.........90-86 Maxwell 31, Weatherspoon 25 - Gatling 19, Hardaway 16, Mourning 16. Washington-Boston......106-121 Howard 40 - Day 28. Detroit-Indiana........102-93 Houston 31, Thorpe 19, Mills 19 - Smits 18, Jackson 17, Pierece 17. Minnesota-Golden State...103-109 - Sprewell 31, Armstrong 23. Sacramento-Phoenix.......103-102 Richmond 32, Edney 18 - Manning 22. Seattle-Portland.........96-90 Hawkins 20, Payton 17, Johnson 12, Schrempf 12, McMillan 11 - I Austurdeildinni var Charlotte sigurvegari næturinnar þó liðið ætti fri. Keppinautarnir um úr- slitasætið, Miami og Washington, töpuðu bæði nokkuð óvænt. Mi- ami stendur þó enn best að vígi en möguleikar Washington eru nán- ast úr sögunni eftir skell gegn Boston. Juwan Howard skoraði 40 stig fyrir Washington og setti per- sónulegt met í deildinni en það dugði ekki til. Risinn Shawn Bradley hjá New Jersey gerði sér lítið fyrir og varði 12 skot í leiknum gegn Toronto. -VS Knattspyrna: Willum og Micovic til liðs við Þróttara Willum Þór Þórsson er genginn til liðs við 2. deildarlið Þróttar úr Reykjavík. Willum hefur spilað með Breiðabliki undanfarin ár en þar á undan með KR og er með mikla reynslu að baki því hann hefur leik- ið 159 leiki í 1. deildinni. Þróttur fékk enn fremur til liðs við sig á dögunum júgóslavneska leikmanninn Zoran Micovic. Hann lék með Þrótti úr Neskaupstað í fyrra en þar á undan með Fylki. Þróttarar hafa fengið meiri liðs- styrk að undanförnu. I þeirra raðir hafa gengið Yngvi Borgþórsson úr ÍBV, Amaldur Schram, unglinga- landsliðsmaður úr Gróttu, Einar Örn Birgisson úr Víkingi, Hermann Karlsson úr KA og Þorvaldur Ingi- mundarson úr Létti. -VS Reykjavíkurmótið 1996 A DEILD • GERVIGRASIÐ LALGARDAL Fimmtudagur 18. apríl kl. 20:30 Fram - Valur íþróttir Tvívegis hola í höggi DV, Suðurnesjum: Tveir kylfingar hafa farið holu í höggi á þessu ári á Hómsvelli í Leiru. Sigríður Guðbrandsdóttir náði draumahöggi allra kylfinga á 3. braut og á dögunum fór Örn Ævar Hjartarson holu í höggi á 12. braut sem er par 4. Er mjög sjaldgæft að kylfingar fari holu í höggi á svo langri braut. -ÆMK Stjörnur hvíldar Phil Jackson, þjálfari banda- ríska körfuknattleiksliðsins Chi- cago Bulls, hyggst hvUa stjöm- urnar Michael Jordan og Scottie Pippen í þremur síðustu leikjum deildakeppninnar. Chicago hefur þegar tryggt sér sigur í Austur- deildinni og sett nýtt met í sigur- leikjum á tímabili. Oakley meiddur Charles Oakley, hinn öflugi framherji New York Knicks, verður heldur ekki með í þrem- ur síðustu leikjum deildakeppn- innar. Hann fékk mikið olnboga- skot frá félaga sínum, Patrick Ewing, í leik tyrr í vikunni og er með brákað kinnbein. Hakeem aftur frá Hakeem Olajuwon, sem var nýbyrjaður að leika á ný með Houston eftir meiðsli, varð að sleppa leik liðsins gegn Phoenix i fyrrinótt. Meiðsli í hnjám tóku sig upp á ný hjá honum. Miami sektað Lið Miami Heat hefur verið sektað um 1,6 milljónir króna fyr- ir að hleypa ekki fréttamönnum inn í búningsklefa sinn eftir leik. Þetta er í annað sinn sem Miami er refsað fyrir slíkt í vetur. ÍR vann Þrótt ÍR fékk í gærkvöldi sín fyrstu stig í A-deild Reykjavíkurmóts- ins í knattspyrnu með því að sigra Þrótt, 2-1. Benedikt Bjarna- son og Guðjón Þorvarðarson skoruðu fyrir ÍR en Einar Örn Birgisson fyrir Þrótt. ÍB-deild- inni vann Víkingur Fjölni, 4-0, og Leiknir og Léttir gerðu jafn- tefli, 2-2. -SK/VS Ólafur sló best DV, Suðurnesjum: Ólafur H. Jónsson, GR, varð sigurvegari á golfmóti Brosins sem haldið var á Hólmsvelli á dögunum. 55 kylfmgar mættu til leiks og Ólafur sigraði og hlaut 36 punkta. Jón H. Bergsson, GKG, varð annar með 35 og Sveinbjörn Jóhannesson, GO, varð þriðji með 33 punkta. -ÆMK Hammarby úr leik DV, Sviþjóð: Pétur Marteinsson og félagar í Hammarby voru í gærkvöldi slegnir út úr sænsku bikar- keppninni í knattspymu. Hammarby lék í undanúrslit- unum gegn AIK og tapaði, 1-0. Pétur Marteinsson lék allan leik- inn. I hinum undanúrslitaleikn- um vann Malmö FF lið Bromma- pojkarna, 0-2. AIK og Malmö FF leika því til úrslita. -EH/-SK Bruce ekki með? Steve Bruce, fyrirliði Man. Utd, meiddist gegn Leeds í gær- kvöldi og missir jafnvel af bikar- úrslitaleiknum gegn Liverpool að sögn Alex Ferguson. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.