Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1996, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1996, Blaðsíða 20
32 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 Sviðsljós • Mmm. 1 ■ w 4 4 fj- ■ ) ***■ J -■ ■;■■■■ ' ^ A /1 f * .. CMA-Á'j Nick Nolte hrifinn af Næt- urverðinum Tökur eru hafnar á banda- rískri útgáfu af dönsku kvik- myndinni Næturveröinum. Það ér enginn annar en Niek Nolte sem leikur lögregluforingjann og mun hann vera mjög hrifinn af hlutverki sínu. Lögregluforing- inn er vinalegur og traustvekj- andi en undir niðri eru geðræn- ar ílækjur sem koma óvænt upp á yfirborðið. Næturvörðinn sjálf- an leikur hinn ungi, írski leikari Ewan McGregor, sem spáð er frægð og frama í Hollywood, en Patricia Arquett leikur unnust- una. Jamie Lee ætt- leiðir á ný Leikkonan Jamie Lee Curtis hefur ákveðið að ættleiða strák en áður höfðu hún og eiginmað- ur hennar, leikstjórinn Chri- stopher Guest, ættleitt stúlku sem nú er níu ára. Jamie Lee getur ekki átt börn og er ástæð- an sú að í líkama hennar er mik- ið magn karlhormóna. Foreldrar hennar, Tony Curtis og Janet Leigh, vissu strax viö fæðingu að hún mundi ekki geta eignast börn og til að hafa vaðið fyrir neðan sig skírðu þau hana bæði karlkyns og kvenkyns nöftium, Jamie og Lee. Káta ekkjan ekki lengur öfundarefni annarra kvenna: Anna Nicole s spiki og hneyksl Hollywood Þokkadísin sem einu sinni var, Anna Nicole Smith, fyrirsætan sem giftist eldgömlum olíumilla frá Texas og varð nýlega ekkja, kom öll- um heldur betur á óvart við óskars- verðlaunaafhendinguna í síðasta mánuði. Það sem vakti furðu fólks var bæði útlit hennar og hegðun. Anna Nicole var einu sinni með glæsilegustu og kynþokka- fyllstu konunum í Hollywood, og þótt víðar væri leitað, en þetta kvöld kom berlega i ljós hvernig frægðin getur leikið fólk. Anna er nú orð- in hálf afmynduð af spiki, vegur hvorki meira né minna en hundrað kíló, og kannski rúmlega það. Þá var hún held- ur ófrýnileg að sjá, með varalitinn út um allt andlit, og gretti sig framan í allt og alla, greini- lega undir áhrifum eitur- lyfja. Frá því Anna Nicole gekk í hjónaband með hinum 89 ára gamla olíu- milla J. Howard Mars- hall fyrir hálfu öðru ári hefur líf hennar tekið algjörum stakka- skiptum. Hvert hneykslismálið hef- ur rekið annað, hún hefur átt í málaferlum, gert tilraunir til að svipta sig lífi, drukkið meira Anna Nicole Smith var greinilega undir áhrifum á óskarsverðlaunahátíðinni. Á minni myndinni er hún í undir- fötum frá H&M. Anna Nicole þegar allt lék enn í lyndi og hún lét taka myndir af sér brjósta- berri. en góðu hófi gegnir og tekið inn of stóra skammta af eiturlyfjum. Eig- inmann sinn missti hún svo á síð- asta ári. Anna Nicole varð fræg á einni nóttu þegar hún var valin leikfang ársins af karlaritinu Playboy árið 1993. Síðan hefur hún verið eftirsótt fyrirsæta, m.a. setið fyrir í undirföt- um frá verslanakeðjunni Hennes & Mauritz, sem íslendingum er að góðu kunn. Svo vinsæl var hún að karlar sátu um veggspjöldin með myndum af henni og stálu þeim, konunum í kringum þá til sárrar gremju. En nú er Anna Nicole Smith ekk- ert öfundarefni, eins og meðfylgj- andi myndir sýna glögglega. Anna Nicole Smith í léttri sveiflu. Aukablað um SIJMAR- Mióvíkudaginn 24. apríl nk. mun aukablaó um sumarbústaói fylgja DV. Mebal efnis: Vibtöl viðfólk sem eybir mUdum tíma í sumarbústabnwn, livab á ab taka meb í bústabinn, tómstundir og vibhald. Þeir sem áliuga hafa á ab kotna efni í blabib hafi samband vib Ingibjörgu Obinsdóttur, ritstjórn DV, í síma 567 6993. ATH.! Bréfasími ritstjórnar er 550 5999. Þeir sem hafa áhuga á ab auglýsa í þessu aukablabi vinsamlega hafi samband vib Selmu Rut í síma 550 5720 eba Gubna Geir í síma 550 5722 hib fyrsta. Vinsamlega athugib ab síbasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 18. apríl. Auglýsingar Sími 550 5000, bréfasími 550-5727. Breski leikarinn og vildarmaður Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna fettir sig og brettir þegar hann líkir eftir afa sínum í veislu í Berlín þar sem hann hélt upp á 75 ára afmaeli sitt og 50 ára afmæli barnahjálparinnar. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.