Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1996, Page 2
2
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1996
Fréttir___________________________________________________________________________dv
Kona á flótta undan kærastanum leitaði skjóls i bíl vegfaranda í gærmorgun:
Kærastinn ók ítrekað á
bílinn og stórskemmdi
- heppni að hann drap okkur ekki - segir bjargvætturinn sem var á leið til vinnu
„Ég stöðvaði bíl minn þegar ég sá
grátbólgna stúlkuna koma hlaup-
andi. Hún var greinilega í mikilli
geðshræringu og sagði kærastann
hafa lamið sig og vera á eftir sér.
Hún sér hann síðan koma á bU og
stekkur þá inn í bUinn að aftan. Það
skiptir engum togum að hann
straujar alveg hliðina farþegameg-
in. fer hring og gerir slíkt hiö sama
bUstjóramegin. Hann fer aftur fyrir
og keyrir síðan á fullri ferð aftan á
bUinn, fer fram fyrir og keyrir á
hann að framan líka. Þá bakkar
hann 30-40 metra og kemur síðan á
mikiUi ferð í boga inn í hliðina far-
þegamegin. Þetta var hrein og bein
árás og við megum þakka fyrir að
maðurinn drap okkur ekki bæði,“
segir Guðmundur Þorkelsson, íbúi í
Kópavogi, sem setti sjálfan sig í
stórhættu með því að gerast hinn
miskunnsami Samverji um klukkan
hálfátta í gærmorgun.
Hugsar sig um næst
Guömundur segist líklega myndu
hugsa sig um tvisvar áður en hann
stoppi aftur þótt hann sjái einhvem
í vandræðum. Hann segist hafa ver-
ið á leið vestiu- á Seltjamames til
þess að dytta að bát sem hann er
með þar þegar ósköpin dundu yfir.
Hann þakkar fyrir að sonur hans
vildi ekki fara með honum því ann-
ars hefði hann setið í framsætinu
þeim megin sem árásarbíllinn gekk
lengst inn. Bíll Guðmundar er af
gerðinni Mersedes Benz, árgerð
1991, bíll sem kostar á þriðju milljón
króna og kvaðst Guðmundur ekki
vita hvort þaö myndi borga sig að
gera við hann. Hinn bíllinn, hvítur
Lancer. er einnig mikið skemmdur.
Þorði ekki að stinga af
„Maður trúir því varla að svona
nokkuð geti gerst hér og ég sá
hvorki vín á stúlkunni né mannin-
um. Ein ákeyrsla af slysni hefði
kannski verið skiljanleg en þetta
sem þarna gerðist er með þvilíkum
ólíkindum að maður trúir þessu
vart enn. Ég þakka fyrir að hafa
ekki stigið út úr bílnum til þess að
tala við stúlkuna. Hann hefði örugg-
lega ekki hikað við aö keyra okkur
niður,“ segir Guðmundur.
Aðspurður hvað hafa flogið í
gegnum hugann þegar árásarmað-
urinn var í sem mestum ham segist
Guðmundur hafa verið logandi
hræddur og óttast um líf sitt.
„Ég var alvarlega að hugsa um að
reyna að keyra af stað og stinga af
en ég þorði þaö hreinlega ekki af
ótta við hvað kynni að gerast ef
hann færi að elta okkur.“
Báðir bílarnir voru í geymslu hjá Króki í Kópavoginum í gær. Hér stendur Guðmundur Þorkelsson við bíl sinn, Mer-
cedes Benz 1991, sem er eins og sjá má mikið skemmdur. Kvaðst Guðmundur ekki vita hvort borgaði sig að gera
við hann. Við hliðina er bíll árásarmannsins sem er einnig mikið skemmdur. DV-mynd JAK
Tognaður og í kraga
Guðmundur segir áhlaupið hafa
tekiö álíka fljótt af og það hafi byrj-
að því eftir að pilturinn hafi ekið
inn í hliðina hjá sér í síðasta sinn
hafi hann gengið á brott. Stúlkan
fór einnig á braut og kom sér sjálf
til lögreglunnar.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Kópavogi mun árásarmað-
urinn hafa gefið sig fram í gær og
játað á sig verknaðinn. Hann mun
ekki hafa verið undir áhrifum
áfengis. Málið telst upplýst og fer
sína boðleið í dómskerfinu.
Guðmundur Þorkelsson fór í
rannsókn á slysadeild eftir hasarinn
og var í kraga þegar DV hitti hann
að máli í gær. Hann segist óbrotinn
en tognaður í hálsi og baki.
-sv
Frambjóöendur
opna skrifstofur
LÍÚ vill aflamark á sérhvern krókaleyfisbát:
Verður að rétta
hlut vertíðarbáta
Guðrún Agnarsdóttir opnaði á laug-
ardag kosningaskrifstofu sína
vegna forsetakosninganna. Skrif-
stofan er að Ingólfsstræti 5 og kom
fjöldi fólks þangað þann dag. Hér er
Guðrún með manni sínum, Helga
Valdimarssyni lækni.
DV-myndir Hari
Pétur Kr. Hafstein opnaði líka upp-
lýsingaskrifstofu í miðbænum á
laugardaginn. Hann bauð í kaffi á
Kaffi París ásamt eiginkonu sinni,
Ingu Ástu. Pétur mun síðar opna
kosningaskrifstofu í Borgartúninu.
- segir Hjálmar Árnason alþingismaöur
„Á skömmum tíma hefur hlutur
frystitogara í heildarafla aukist
verulega eða úr 12 í 23% og hlut-
deild smábáta er orðin nærri 14% í
þorskafla. Það er því orðið mjög
brýnt aö rétta hlut flotans þarna í
milli sem eru hefðbundnir vertiðar-
bátar og litlir isfisktogarar," segir
Hjálmar Ámason alþingismaður en
hann á sæti í sjávarútvegsnefnd
þingsins.
Hjálmar telur það vera forgangs-
verkefni þegar kvóti verður aukinn
að jafna stöðu þessara skipa áður en
heildarúthlutun fer fram.
Formaður LÍÚ, Kristján Ragnars-
son, gekk fyrir helgina á fund for-
sætis- og utanríkisráðherra og sjáv-
arútvegsnefndar alþingis ásamt full-
trúum 11 útvegsmannafélaga. Þessi
sendinefnd mæltist eindregið til
þess að frumvarpinu um breytingar
á lögum um stjórn fiskveiða sem
varða krókaleyfisbáta yrði breytt
þannig að komið verði í veg fyrir að
krókabátar njóti aukningar í leyfð-
um heildarafla þorsks fyrr en leyfð-
ur hefur verið þorskafli yfir 285 þús-
und tonn.
Sendinefnd LÍÚ vill að komið
verði í veg fyrir að krókabátar fari
yflr sett mörk leyfilegs heildarafla
en það verði ekki gert nema með
því að setja aflahámark á hvern bát.
Þá vilja þeir að engar breytingar
verði gerðar á núgildandi lögum ef
breytingartillögur þeirra á frum-
varpinu ná ekki fram að ganga.
f -SÁ
A sambandsstjórnarfundi Verka-
mannasambandsins, sem haldinn
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringia í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já jJ
Nel 2j
Á ríkið að fjármagna baráttu
Sophiu Hansen?
Forystukreppan í Alþýðusambandi íslands:
Nýtt forsetaefni finnst ekki
í ályktun sambandsstjómarfund-
ar VMSÍ eru vinnubrögð stjórn-
valda við framlagningu og framsetn-
ingu frumvarpa um breytingar á
lögum um starfskjör og réttindi
launafólks fordæmd og áréttað að
verkalýðshreyfingin hafi verið kom-
in í viðræður við atvinnurekendur
um lausn málsins. Stjómvöld hafi
eyðilagt þá vinnu með því að leggja
fram frumvarp til laga án samráðs
við verkalýðshreyfinguna.
Þess er krafist fyrir hönd tugþús-
unda félagsmanna VMSÍ að frum-
varpið um starfskjör og réttindi
launafólks verði tekið af dagskrá Al-
þingis og samtökum launafólks gef-
inn kostur á að leiða málið til lykta
með samningum. -SÁ
,x ð d d
FOLKSINS
904-1600
éjIi
var í Vík í Mýrdal um helgina, var
að sögn Björns Grétars Sveinssonar,
formanns VMSÍ, mikið rætt um
hverjir myndu skipa forystusveit
ASÍ næsta kjörtímabil. Var þetta
umræöuefni fyrirferðarmikið þótt
það væri vissulega ekki á dagskrá.
Innan Verkamannasambandsins
er nafn Hervars Gunnarssonar nú
æ oftar nefnt í sambandi við stjóm-
arkjör á komandi ASÍ-þingi. Þá hef-
ur nafn Björns Grétars einnig verið
nefnt og aðspurður segist Björn
Grétar mjög eindregið vilja halda
áfram að starfa á vettvangí VMSÍ í
þágu ófaglærðs verkafólks en vill
hvorki játa né neita alfariö hvort
framboö til forseta ASÍ komi til
greina af hans hálfu.
Stuttar fréttir
Hvalveiöar hefjist strax
Guðjón Guðmundsson alþing-
ismaöur (S) vill að hvalveiðar
hefjist þegar í stað. Hann segir
að meirihlutavilji sé á Alþingi
fyrir því.
Sjónvarpið skýrði frá þessu.
Kosningaskrifstofur
Fjórir forsetaframbjóðendur, af
þeim fimm sem enn hafa komiö
fram, hafa nú opnað kosning-
askrifstofur.
Þurrkuð loðna
Loðnuhrygna sem þurrkuð er
norður í Reykjahverfi hjá Stöpla-
fiski hefur verið flutt til Japans
og undirtektir verið góðar. Jap-
anir hafa hingað til gert þetta
sjálfir en ef vel tekst til mun
verðmæti loðnunnar aukast
verulega. Sjónvarpið greindi frá
þessu.
Meinvættir í jólatrjám
Skógræktarmenn óttast að
sýkingar og meindýr geti borist í
íslenskan trjágróður frá trják-
urli sem unnið er úr notuðum
jólatrjám og notað m.a. i gang-
stíga á skógræktarsvæðum og í
görðum. Sjónvarpið segir frá.
Verkamannasambandiö
Björn Grétar Sveinsson, for-
maður VMSÍ, segir að tími sé
kominn til að kenna stjórnvöld-
um lexíu og koma þeim í skiln-
ing um að þau verði að taka upp
aðra umgengnishætti gagnvart
verkalýðshreyfingunni.
Listahátíö
Klassísk tónlist í fyrirrúmi á
Listahátíð. Mestur áhugi er á
tónleikum Davids Bowies en
einnig á tónleikum Berlínarsin-
fóníunnar sem leikur undir
stjórn Askenásís. Tvær ílugvélar
þarf undir hljómsveitina. Sjón-
varpið sagði frá. -SÁ