Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1996, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1996
Fréttir
Sandkorn dv
Foreldrar mótmæla ráðningu leikskólastjóra á Fellaborg:
Söfnuðu tugum undir-
skrifta í mótmælaskyni
- vilja konu sem verið hefur leikskólastjóri - starfsfólk ætlar að ganga út
„Hér voru tveir leikskólastjórar
en annar vildi hætta. Þá var starfið
auglýst og sú sem eftir er, yndisleg
manneskja, sótti um en fékk ekki
starfíð,“ segir Erla Ingvadóttur, for-
maður foreldrafélags leikskólans
Fellaborg við Völvufell í Reykjavík
vegna ráðningar nýs leikskólastjóra
á Fellaborg.
Foreldrarnír hafa skilað inn und-
irskriftalistum þar sem því er mót-
mælt að með ráðningunni sé gengið
fram hjá konu sem stjórnað hefur
leikskólanum síðastliðin þrjú ár í
hálfri stöðu á móti öðrum leikskóla-
stjóra. Ráðningin á að taka gildi 1.
júní.
í staðinn var ráðin kona sem hef-
ur ekki starfað í 12 ár en hefur
þremur árum lengri starfsreynslu.
„Sú sem hefur verið hér síðastlið-
in þrjú ár er búin að rífa upp stað-
inn. Allt samstarf við foreldrafélag-
ið hefur gengið mjög vel. Við viljum
engar breytingar og lærða starfs-
fólkið sem hér er ætlar að ganga út
með henni. Við viljum ekki að hing-
að komi flokkur af nýju fólki. Við
höfum ekkert á móti manneskjunni
sjálfri sem búið er að ráða, við
þekkjum hana ekkert," sagði Erla.
Foreldrarnir eru búnir að safna
56 undirskriftum, börnin eru 64 en
sumir eiga fleiri en eitt barn á leik-
skólanum. Erla sagðist vilja taka
það fram að allir að undanskildum
einum sem náðst hefði í hefðu skrif-
að undir.
Búið að ganga frá ráðningu
„Við erum búin að tala við Dag-
vist barna og afhenda undirskrift-
irnar, við náðum í Árna Þór Sig-
urðsson, formann stjórnar Dagvist-
ar barna. Hann sagði að búið væri
að ráða og við ættum að gefa þeirri
sem ráðin var tækifæri. Annars
gengur ekki vel að ná sambandi við
starfsfólk þar,“ sagði Erla.
Bergur Felixsson, framkvæmda-
stjóri Dagvistar bama, sagðist hafa
heyrt um óánægju starfsfólksins en
fyrst um óánægju foreldranna á
föstudag þegar undirskriftalistarnir
voru afhentir.
„Þetta er leiðinlegt en við getum
ekkert breytt þessu. Það er búið að
fjalla um þetta mál á þremur fund-
um hjá Dagvist barna en ég var að
fá í hendurnar þessa undirskrifta-
lista,“ sagði Bergur í samtali við DV
á föstudag.
„Þegar ráðnir eru tveir leikskóla-
stjórar eru þeir ráðnir með þeim
fyrirvara að staðan öll sé auglýst ef
annar hættir," sagði Bergur.
Hann sagði að fjallað væri faglega
um umsóknir, metin menntun,
stjórnun og reynsla, það gerði stjórn
Dagvistar bama.
„Þó að einn sé valinn er ekki ver-
ið að meta annan óhæfan eða lýsa
vantrausti á hann. Við teljum að við
höfum ráðið mjög hæfa manneskju.
Við vissum ekki um óánægju for-
eldranna, þeir hafa ekkert talað við
mig. Hefðu komið skilaboð til mín
um að ræða við formann foreldrafé-
lagsins í Fellaborg hefði ég gert það
umsvifalaust," sagði hann.
„Það eru engin annarleg sjónar-
mið sem ráða þarna, þetta er bara
afskaplega leiðinlegt. Við hefðum
þurft að vita afstöðu fólksins fyrir-
fram og þá hefði verið hægt að falla
frá því að auglýsa stöðuna. Þetta er
opinbert fyrirtæki með fjölda starfs-
manna víðs vegar. Við erum búin
að ráða manneskju og ganga form-
lega frá því,“ sagði Bergur.
-ÞK
Ráöist í framkvæmdir viö fiskimjölsverksmiöjuna á Akranesi:
Hatt i milljarðs endurbætur
Sitjandi frá vinstri: Gunnar Helgi Hálfdánarson, Landsbréfum, Haraldur Stur-
laugsson, framkvæmdastjóri HB, Birgir Jónsson, útibússtjóri Landsbankans.
Standandi frá vinstri: Sturlaugur Sturlaugsson, HB, Bjarni Brynjólfsson, Lands-
bréfum, Bergþór Guðmundsson, HB, Ólafur Jónsson, Landsbankanum, og Frið-
geir Baldursson, Landsbankanum.
700-900 milljónir króna verða
lagðar í það að stækka og end-
urbæta fiskimjölsverksmiðju HB á
Akranesi en eftir breytingarnar
verður framleitt hágæðamjöl í
verksmiðjunni. Breytingarnar,
sem tengjast sameiningu Kross-
víkur og Haraldar Böðvarssonar
hf., verða fjármagnaðar þannig að
gefin verða út skuldabréf að upp-
hæð 450 milljónir króna. Ennfrem-
ur verða boðin til sölu hlutabréf
að nafnverði 150 milljónir króna á
genginu 3,08 til forkaupsréttar-
hafa.
Eftir breytingarnar verður af-
kastageta verksmiðjunnar um
1000 tonn á sólarhring í stað 600
tonna nú. Endurnýjaðir verða nú-
verandi eldþurrkarar verksmiðj-
unnar sem eru frá árunum 1947 og
1960.
Þá verða settir upp 4000 tonna
mjöltankar og 3000 tonna hráefn-
istankar. Þurrkararnir verða
keyptir frá Stord International í
Noregi og aðalverktaki við upp-
setningu búnaðarins er Héðinn-
Smiðja hf. Verðmæti fjárfestingar-
innar verður um 700 milljónir
króna og áætla aðstandendur
verksmiðjunnar að arðsemi henn-
ar verði vel viðunandi hvað varð-
ar aukna framlegð veiða og
vinnslu. Gott útlit er með loðnu-
veiðar á næstu árum en HB ræður
yfir um 8% af heildarloðnukvóta
landsmanna. -SÁ
777 20. maí nœstkomandi gefst þér kostur
á að Jjárfesta í vönduðu og öflugu Sharp
laserfaxtœki fyrir venjulegan pappír á
sérstöku tilboðsverði
• Prentar á venjulegan pappír
• 400 dpi laserprentun
•512 KB minni
• 150 hls. pappírsskúffa
• 20 bls. frumritamatari
• Hópsendingar
• 70 númera minni
SKRIFBÆR EHF.
Suðurlandsbraut 12
Símanúmer 533 2100
Faxnúmer 533 2105
SKRIFSTOFUTÆKI
FO - 3350
• veró án vsk.
• 96.900 með vsk
• Rétt verð 125.900
Funklistinn:
Móðgaði
sjálfstæð-
ismenn
í hugsun-
arleysi
„Höfundurinn hefur viðurkennt
að þetta hafi verið gert í hugsunar-
leysi," segir Ólafur Helgi Kjartans-
son, sýslumaður á ísafirði, um full-
yrðingu þess efnis að sjálfstæðis-
menn á staðnum hafi veitt ungling-
um vín í viðurvist sýslumanns.
„Móðgunin" kemur fram í Elgn-
um, pólitísku riti Funklistans. Það
er málgagn stjórnmálahreyfingar
sem býður fram vegna kosningar í
sveitarstjórn á norðanverðum Vest-
flörðum þann 11. maí.
í Elgnum segir Smári Karlsson,
framkvæmdastjóri Funklistans:
„Ég er hræddur um að þetta sé hug-
ur flestra flokka í garð ungmenna,
að vísu er Sjálfstæðisflokkurinn
undanskilinn því hann gefur bjór
og brennivín til ungmenna á öllum
aldri í nærveru sýslumanns."
Ólafur Helgi sýslumaður hefur
nú gefið út yfírlýsingu þar sem seg-
ir: „Sýslumanni er ekki kunnugt
um að „ungmennum á öllum aldri"
hafi verið gefið áfengi í nærveru
sinni.“ -GK
Vitnað fyrir
frambjóðanda
Stuðnings-
menn Péturs
Kr. Hafstein
forsetafram-
bjóðanda eru í
skýjunum eftir
vel heppnaðan
framboðsfund
á ísafirði þann
1. maí. Fjöl-
menni var á
fundinum og
segja lögreglu-
menn, undir-
menn Péturs
meðan hann var sýslumaður á
ísafirði, að ekki færri en 300
manns hafi komið á fundinn.
Ýmsum fundargestum þótti
merkilegt að heyra þegar fólk,
sem áður hafði lýst yfir stuðningi
við aðra frambjóðendur, sté í
pontu og lýsti yfír stuðningi við
Pétur. Vitnaði fólkið um ágæti
hans og var stemningin aö sögn
heimildarmanna Sandkorna orðin
lík því sem gerist á vakningar-
samkomum trúfélaga.
Rauðir dagar
Það vakti at-
hygli margra
sem fóru í
kröfugöngu 1.
maí að ung-
menni lands-
ins virðast
hafa fundið
gamlar hetjur
á fornsölum
ogíminja- '
gripabúðum
og blásið af
þeim rykið.
Hér ræðir um
rauðliða sem virtir voru og metn-
ir fyrr á árum og þóttu þá fremst-
ir meðal mannkynsfrelsara. Nú
kom ungt fólk í gönguna í Reykja-
vík undir fána byltingarmannsins
Leníns gamla úr Kreml og með
húfur i stíl Che Guevara. Þessir
menn og fleiri skoðanabræðxu'
þeirra hafa ekki verið ofarlega á
vinsældalistunum síðustu árin en
nú þegar Ögmundur Jónasson er
kominn i fylkingarbrjóst verka-
lýðshreyfmgarinnar er greinilegt
að rauðir dagar eru að renna upp
hjá ungu baráttufólki.
Músíkalskur sam-
félagsbræðingur
Ungir menn á
Isafirði og í ná-
grannabyggð-
um kenna
framboð sitt
fyrir sveitar-
stjórnarkosn-
ingarnar á
laugardaginn
við tónlistar-
stefnuna
„funk“ eða
bræðing. Nafn-
gift þessi vefst
þó fyrir ýms-
um, bæði eldri og yngri. Það er
því vonum seinna að oddviti list-
ans, Hilmar Magnússon, skilgrein-
ir fyrirbærið í málgagninu Elgn-
um. Hann segir: „Orðið funk lýsir
vel þeirri samfélagsgerð sem við
viljum sjá, þ.e.a.s. að hver ein-
staklingur getur myndaö sín eigin
einstöku stef en þó látið þau fafla
taktfast að heildarhljómfallinu i
samfélaginu hringum hann.“ Svo
mörg voru þau orð en hvort ein-
hver er einhverju nær um stefnu
listans skal þó ósagt látiö.
Ánægður með
funkið
Einn er þó sá
Isfirðingur af
eldri kynslóð
sem setur
hvorki nafn né
stefnuskrá
Funklistans
fyrir sig. Það
er Halldór
Hermannsson,
skipstjóri og
bróðir Sverris
Landsbanka-
stjóra. Halldór
lýsir yfir
stuðningi við framboðið í grein í
Bæjarins besta og segir að nú sé
að „byrja vorvertíð" í sveitar-
stjórnarmálum á norðanverðum
Vestfjörðum. Telur hann tíma til
aö menn vestra rífi sig upp úr vol-
æðinu og hugsar gott til þess að
funklistamenn fái einn mann kjör-
inn í nýja bæjarstjórn í nýju bæj-
arfélagi.
Umsjón: Gísli Kristjánsson
rf
m
I I