Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1996, Page 13
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1996
13
H
Fréttir
Einstaklingur gefur út barnabók um eldvarnir:
Bókin kennir
rétt viðbrögð
„Ég á sjálf fjóra stráka sem hafa
fiktað með eld eins og strákar gera
oft. Yngsti sonur minn var dálítið
slæmur. Þegar ég fór á stúfana að
leita mér að fræðandi efni um þessi
mál fann ég ekkert. Ég setti mig þá
í samband við slökkviliðið þar sem
ég fékk mikla hjálp með strákinn,"
segir Ingileif Ögmundsdóttir, vara-
formaður Kvennadeildar Slysa-
varnafélags íslands.
Ingileif hefur skrifað barnasögu
og gefið út sjálf um eldvarnir. Hjá
slökkviliðinu var henni bent á að
hún gæti skrifað bæklinga fyrir
krakka en úr varð barnasaga sem
leiðir börnin í gegnum allan sann-
leikann um eldvarnir. Sagan fjallar
um strák sem flktar með eld og
kveikir að lokum í. Hann er látinn
heimsækja slökkvistöðina þar sem
hann og vinur hans eru fræddir um
þessa hluti. Sagan fæst í bókabúð-
um Máls og menningar og búið er
að lesa hana á skóladagheimilum og
í skólum. Kristbjörg Helgadóttir
teiknaði myndir í söguna.
„Börnunum er kennt að æfa sig
að velta sér út úr rúminu og skríða
ef reykurinn er mikill inni. Einnig
er þeim kennt að slökkva í sjálfum
sér ef það kviknar í fötunum. Börn-
unum er einnig kennt að bregöast
rétt við ef þau eru lokuð inni og
komast ekki út,“ segir Ingileif.
Ingileif lenti í þremur árekstrum
á einu ári og er að ná sér eftir það.
Hún fékk slæma hnykki á bakið og
varð að hætta prentnáminu sem
hún var í. Ingileif gat ekki setið auð-
um höndum í veikindafríinu og
ákvað að skrifa bókina. Hana lang-
ar til þess að skrifa fleiri bækur í
svipuðum dúr og er þar helst að
nefna forvarnir í sambandi við
vötn. Ingileif starfar nú sem liðs-
maður hjá Félagsmálastofnun.
-em
Ingileif Ögmundsdóttir með barnabókina sem fjallar um eldvarnir.
DV-mynd BG
AKAI
FISHER
GRUnpiG
HITACHI
KDL5TEF
Schneider
TENSai
LSMiTES
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI568 9090 • OPIÐ LAUGARDAGA
Viiuiiiigiiriim þiim
er á næsta póstíiiísi