Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1996, Side 32
44
MÁNUDAGUR 6. MAÍ1996
nn
Páll Pétursson getur ekki gert
það sem hann ekki getur.
Kann ekki að
skammast sín
Páll Pétursson kann ekki að
skammast sin, og ekki er hægt
að ætlast til þess að menn geri
það sem þeir ekki geta.“
Jón Baldvin Hannibalsson, í Alþýöu-
blaðinu.
Til að dúsa á Bessastöðum
„Ég er til i að gera allt, þó að
ég þurfi að dúsa á Bessastöðum
sem einhver forseti í fjögur ár.“
Ástþór Magnússon, stofnandi Friðar
2000, í Tímanum.
Ummæli
Ráðamenn í pólitískum
pokabuxum
„Ég var ekki alltaf ánægður
með gerðir þeirra ríkisstjórna er
stóðu að útfærslunum í 50 og 200
sjómílur en ég held að íslensk
þjóð megi þakka sínum sæla að
þá voru ráðamenn sem nú sitja
að völdum enn í pólitískum
pollabuxum."
Höskuldur Skarphéðinsson, í Morgun-
blaðinu.
Kvikmyndagerðarmaður
setji hornsteininn
„Mér finnst að kvikmynda-
gerðarmaður ætti að setja horn-
steininn í nýtt tónlistarhús, því
enginn annar er betur að því
kominn."
Guðný Halldórsdóttir, í DV.
Stríð á hendur almenningi
„Það verður alltaf ólga, þegar
stjórnvöld segja almenningi stríð
á hendur."
Björn Grétar Sveinsson, íTímanum.
Skýjakljúfar í New York hafa ver-
ið notaðir til að setja met.
Stigaklifur
Met í að hlaupa upp stiga í 100
hæða húsi á Dennis W. Martz, en
hann hljóp upp stigana í Detroit
Plaza-hótelinu á 11 mín. og 23,8
sek. 26. júní 1978. Annar hlaup-
ari, Dale Neil, setti met í lóðréttu
míluhlaupi upp stiga þegar hann
hljóp upp stigana í Peachtree
Plaza-hótelinu í Atlanta á 2 klst.,
1 mín. og 25 sek. 9. mars 1984.
Empire State-byggingin í New
York hefur freistað margs
hlauparans. Sá sem á metið í að
Blessuð veröldin
hlaupa upp 1575 þrep í bygging-
unni er Peter Squires sem hljóp
upp stigana á 10 mín. og 59 sek.
12. febrúar 1981. Bill nokkur
Stevenson á að baki enn eitt af-
rekið í að fara upp stiga. Hann
starfaði í breska þinghúsinu
1968-1983. Þegar hann hætti
hafði hann farið upp hin 364
þrep í turninum 4000 sinnum en
það jafngildir að hann hafi klifið
tind Everest 25 sinnum. Hæsta
hótel í heimi er Westin Stamford
i Singapúr. Metið í að hlaupa
upp 1336 þrep í byggingunni á
Balvindfer Singh. Hann var að-
eins 6 mín. og 55 sek. upp stig-
ana 4. júní 1989.
Dálítil él norðan- og
austanlands
Áfram verður austan- og síðan
suðaustangola eða kaldi á landinu.
Skúrir eða slydduél við suður- og
suðausturströndina en dálítil él
Veðrið í dag
norðan- og austanlands. Annars
staðar verður úrkomulítið en skýj-
að. Á Norður- og Austurlandi má
búast við 1 til 3 stiga frosti en 4 til 6
stiga hita syðst á landinu.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
suðaustankaldi og súld eða rigning
af og til í kvöld. Breytileg átt og úr-
komulítið í nótt en norðan- og norð-
vestangola og hætt við smáskúrum
eða slydduéljum á morgun. Hiti 2 til
7 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 22.09
Sólarupprás á morgun: 4:38
Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.34
Árdegisflóð á morgun: 9.00
Veðrið kl. 12 á hádegi í gær:
Akureyri skýjað 0
Akurnes snjókoma 1
Bergsstaöir úrk. í gr. 1
Bolungarvík alskýjaó 0
Egilsstaöir léttskýjaö ■1
Keflavflugv. rign. og súld 6
Kirkjubkl. slydda 2
Raufarhöfn léttskýjaö -2
Reykjavik súld 6
Stórhöföi alskýjaö 4
Helsinki skúrir 11
Kaupmannah. skúrir 9
Óstó rigning 8
Stokkhólmur súld 5
Þórshöfn slydda 3
Amsterdam hálskýjaö 9
Barcelona léttskýjaö 16
Chicago alskýjað 6
Frankfurt skýjað 11
Glasgow skúrir 10
Hamborg skýjaö 94
London skýjaö 11
Los Angeles þokumóöa 16
Lúxemborg skýjað 11
París léttskýjaó 14
Róm skýjað 20
Mallorca léttskýjaö 20
New York heióskírt 12
Nice hálfskýjaó 18
Nuuk slydda 0
Orlando léttskýjað 23
Vín léttskýjaó 15
Washington skýjaö 18
Winnipeg alskýjaö 2
Kjartan Kristjánsson sjóntækjafræðingur:
orðið
DV, Suðurnesjum:
„Það hefur verið sérstaklega
hagstæð tíð síðla vetrar og á vor-
mánuðum fyrir hlaupara út um
allt land og ég á von á að hlaupver-
tíðin, sem fram undan er, verði
ansi lífleg," segir Kjartan Krist-
jánsson, sjóntækjafræðingur og
eigandi Gleraugnaverslana Kefla-
víkur og í Mjódd. Kjartan er
þekktur langhlaupari en lenti í
meiðslum og þurfti að hvíla sig.
Maður dagsins
„Ég lenti í bakmeiðslum eins og
gengur og gerist hjá hlaupurum
sem hlaupa mikið. Þetta gerðist
eftir miklar æfingar síðastliðið
sumar í kringum Reykjavíkur-
maraþonið og maraþon í Lúxem-
borg sem ég tók þátt í. Þurfti ég að
hvíla mig í þrjá mánuði. Ég var
eins og illa gerður hlutur heima
hjá mér þegar ég gat ekki farið út
að hlaupa. Nú er ég kominn á full-
an skrið aftur og er að hlaupa
þetta 50 til 60 kílómetra á viku. Ég
Hlaup er
lífsstíll hjá mér
Kjartan Kristjánsson.
passa mig þó á að yfirþjálfa mig
ekki. Hjá mér er hlaup orðið lífs-
stíll og ég er ómögulegur maður ef
ég get ekki stundað mín hlaup.
Þetta er eins og klukka sem segir
mér að nú eigi ég að fara út að
hlaupa. Þetta kannast allir lang-
hlauparar við.“
Kjartan býr til gleraugu og seg-
ir það ákaflega mikilvægt að þeir
sem nota gleraugu séu með sem
léttust gleraugu þegar þeir hlaupa:
„Hlauparar hafa leitað til mín og
spurt um gleraugu sem henti þeg-
ar verið er að hlaupa. Þetta varð
tO þess að ég fór að flytja inn Air
Titanium sem er léttasta gler-
augnaumgjörö í heimi, aðeins 2,8
grömm. Þetta er nýjung í gler-
augnaumgjörðum og hentar eink-
ar vel hlaupurum og öðrum sem
eru í íþróttum og þurfa að nota
gleraugu. Umgjörðin er skrúfulaus
þannig að ekki er um að ræða að
skrúfa tapist þegar hlaupið er.“
Kjartan býr i Garðabæ og ekur
til Keflavíkur á hverjum degi.
Hann segist hafa mörg áhugamál.
„Það eru hlaupin fyrst og fremst,
þá hef ég gaman af snóker og spila
nokkrum sinnum í viku, Ijós-
myndun er einnig ofarlega hjá
mér en ég hef mitt myrkraher-
bergi og framköllunargræjur
heima. Þá hef ég einnig lúmskt
gaman af fallegum sportbílum og
áhuga á golfi.
Eiginkona Kjartans er Hulda
Hafsteinsdóttir og eiga þau þrjú
börn, Huldu Guðnýju, 20 ára,
Kristján Ágúst, 18 ára, og Kjartan
Val, sem er 4 ára. -ÆMK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1505:
Léttvopnaður riddari
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi
Sigríður Gröndal syngur ein-
söng með kórnum.
Vortónleikar
Kórs
Hjallakirkju
Kór Hjallakirkju heldur vor-
tónleika sína annað kvöld kl.
20.30 í Hjaflakirkju. Flutt verða
lög eftir þekkt tónskáld eins og
Tónleikar
Haydn, Hándel, Elgar og S.
Saens, en einnig verða fluttir
negrasálmar. Einsöngvari á tón-
leikunum verður Sigríður
Gröndal. Þá kemur einnig kvar-
tett fram með kórnum sem skip-
aður er Aðalheiði Magnúsdóttur,
sópran, Oddnýju J. Þorsteins-
dóttur, alt, Jóni Steinari Jóns-
syni, tenór, og Gunnari Jóns-
syni, bassa. Stjórnandi kórsins
er Oddný J. Þorsteinsdóttir.
Bridge
Bridge er sveiflukennd íþrótt.
Eina stundina spilar maður niður
upplögðum samningi og aðra stund-
ina vinnur maður spil sem virðist
vonlaust. Lítum til dæmis á hendur
NS í þessu spili:
4 K2
V 85
♦ ÁK10853
4 K84
4 --
44 --
♦ --
4 —
4 ÁDG874
«4 Á10972
4 G
4 5
Suður opnar á einum spaða, vest-
ur segir tvö lauf og stuttu síðar er
suður sagnhafi í 6 spöðum. Vestur
spilar út laufás og laufdrottningu og
spilið virðist næsta vonlaust. Er
nokkur leið að losna við hjarta-
tapslag? Ekkert vit er í að svína
tígli, því ef tígullinn fellur 3-3 eru
aðeins þrjú hjartaniðurköst. Eini
möguleikinn er sá að annar hvor
andstæðinganna eigi D9 blanka í
tígli. Sagnhafi tekur trompin og
spilar síðan tígli ofan frá. Spilið
vinnst þannig því legan er þessi:
4 1053
44 G643
♦ D9
4 10763
Spilið kom fyrir í sveitakeppni í
Danmörku og á hinu borðinu var
samningurinn sá sami með spaðan-
íu út frá vestri. Suður fékk þá betri
möguleika til að vinna spilið. Nú er
hægt að kasta lauftaparanum í tíg-
ulkónginn og ef vestur á ekki fleiri
spaða og hjörtun liggja 3-3, er hægt
að fría hjartalitinn. Það eru mun
betri vinningslíkur en þessi
ákveðna tígullega. En það kemur
síðar í ljós við borðið að spaðanía í
upphafi var „grísk gjöf‘, því það út- /
spil leiðir sagnhafa í glötun.
ísak Örn Sigurðsson
4 96
44 KD
♦ 7642
4 ÁDG92
4 K2
* 85
* ÁK10Í
4 K84