Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1996, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1996, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR. 6 MAÍ 1996 23 DV íþróttir Bosníumaðurinn Enes Cogic hjá Fylki er hér í skallaeinvígi við leikmann Grindavíkur í leik liðanna í Grindavík á laugardaginn þar sem heimamenn fögnuðu sigri, 3-2. DV-mynd Ægir Deildabikarkeppnin í knattspyrnu: „Eiga hrós skilið fýrir frammistöðuna” - sagði Guðmundur Torfason eftir sigur Grindavíkur á Fylki, 3-2 DV, Suðurnesjum: „Ég er mjög ánægður með strák- ana og þeir eiga hrós skilið fyrir frammistöðuna. Að mínu mati var þetta sanngjam sigur. Markmiðið er að hafa gaman af hlutunum, það er bros í herbúðum okkar en ég geri mér alveg grein fyrir að þetta verð- ur erfitt sumar,” sagði Guðmundur Torfason, leikmaður og þjálfari Grindvíkinga, eftir að þeir höfðu lagt Fylkismenn að velli, 3-2, í B-riðli úrslitakeppni deildabikar- keppni karla i knattspyrnu en leik- urinn fór fram á grasæfingasvæði þeirra Grindvíkinga. Leikurinn var opinn og skemmti- legur og fullt af marktækifærum á báða bóga.' Ekki er hægt að segja annað en að þessi leikur lofi góðu fyrir sumarið enda virðast leik- menn almennt í góðu leikformi eftir góða tíð í vor. Ólafur Ingólfsson kom Grindvík- ingum yfir á 21. mínútu með marki af stuttu færi eftir gott samspil. Þór- hallur Dan Jóhannsson jafnaði fyrir Fylki á 36. mínútu. Hann skoraði þá laglega fram hjá Albert markverði eftir að hafa leikið á hann. Þórhall- ur var aftur á ferðinni á 44. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir hörkusókn Árbæjarliðsins. Staðan í hálfleik var þvi 1-2, Fylkis- mönnum í hag. Milan Jankovic jafnaði metin fyr- ir heimamenn á 53. mínútu með marki úr vítaspymu sem dæmt var eftir að knötturinn hafði haft við- komu í hendi vamarmanns Fylkis. Fimm mínútum síðar skoraði Grétar Einarsson svo sigmmarkið og kom það eftir þunga sókn Grind- víkinga. Næsti leikur í B-riðli er annað kvöld þegar Breiðablik fær Fylki í heimsókn á Kópavogsvöll og hefst leikurinn klukkan 19.30. Síðasti leikurinn i riðlinum er svo á fóstu- daginn þegar Breiðablik og Grinda- vík eigast við í Kópavogi. -ÆMK/GH Afspyrnuslakt á Skaganum - þegar ÍA og ÍBV skildu jöfn, 1-1 DV, Akranesi: Það var ekki góð knattspyrna í boði á Skaganum á laugardaginn þegar heimamenn mættu Eyja- mönnum í deildabikarkeppninni í knattspymu en leikurinn fór fram á aðalleikvangi Skagamanna. Liðin gerðu jafntefli, 1-1, en báðum þess- um félögum er spáð velgengni i sumar. Þó svo að Vestmannaeyingar hafi ekki verið að sýna sitt besta þá voru þeir þó skárrri aðilinn í leikn- um því Skagamenn léku mjög illa. Eyjamenn vom sterkari fyrstu 20 mínúturnar en síðan komust Skagamenn ' inn í leikinn þegar Mihajlo Bibercic skoraði á 26. mín- útu. Eftir það jafnaðist leikurinn. Um síðari hálfleikinn er það að segja að Eyjamenn voru mun betri aðilinn og hefðu fyllilega átt skil- inn sigur í leiknum en Þórður Þórðarson bjargaði Skagamönnum oft með snjallri markvörslu. Eyjamönnum tókst svo að jafha metin á 78. mínútu þegar Hlynur Stefánsson skoraði með viðstöðu- lausu skoti, óverjandi fyrir Þórð. Bestur í liði heimamánna var Þórður markvörður og einnig áttu þeir bræður Ólafur og Steinar Ad- olfssynir góðan leik. Hjá Eyja- mönnum bar mest á Hlyni, Jóni Braga Arnarsyni og Steingrími Jó- hannessyni. -DÓ Hlynur Stefánsson átti góðan leik og skoraði mark ÍBV. Deildabikarkeppni kvenna: Valur vann stór- sigur gegn íA - undanúrslitin leikin í kvöld Undanúrslit í deildabikarkeppni kvenna í knattspyrnu fara fram í kvöld. Valur mætir KR klukkan 18.30 og Breiðablik leikur gegn ÍA og hefst leikurinn klukkan 20.30. Báðir leikirnir fara fram á Ásvöll- um. Á laugardaginn sigraði Valur lið ÍA, 5-1. Ásgerður Ingibergsdóttir skoraði 2 og þær Sirrý Haraldsdótt- ir, Ragna Lóa Stefánsdóttir og Berg- þóra Laxdal gerðu eitt mark hver. Mark ÍA skoraði Áslaug Ákadóttir. KR vann öruggan sigur á ÍBA, 5-0. Olga Færseth og Guðlaug Jóns- dóttir skoruðu 2 mörk hver og Guð- rún Jóna Kristjánsdóttir skoraði eitt. í gær vann ÍBA sigur á Haukum, 8-1, í leik um 7. sætið i keppninni. Stjaman hafnaði í 5. sæti eftir sigur á Aftureldingu, 4-2, á grasvellinum við Hofsstaðaskóla í Garðabæ. -GH/VS Hveragerði í stað Skotlands Ekkert varð af fyrirhugaðri Skotlandsferð bikarmeistara KR í knatt- spymu en þeir áttu að fara þangaö fýrir helgina. KR-ingar fengu ekki staðfesta leiki við nægilega sterka mótherja í Skotlandi og hættu við ferðina af þeim sökum. í staðinn fór Vesturbæjarliðið til Hveragerðis um helgina og æfði þar á grasvellinum. KR-ingar tóku sem kunnugt er ekki þátt í deildabikarkeppninni, meðal annars vegna Skotlandsferðarinnar. -VS SDB EHF. JAFNASEL 6, 109 REYKJAVÍK, SÍMI: 5874747. FAX: 5874748 ACIER SUMARHJÓLBARÐAR (ECO TYRES) FRÁ BRETLANDI FRAMLEIDDIR TIL AÐ UPPFYLLA FYLLSTU ÖRY GGISKRÖFUR SÝNISHORN ÚR VERÐSKRÁ. STÆRÐ 155R13 STÆRÐ 165R13 STÆRÐ175/70R13 STÆRÐ 175/70R14 KR. 2.695.-STAÐGR. KR. 2.934.-STAÐGR. KR 2.995.-STAÐGR. KR 3.595.-STAÐGR. OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 08.00 TIL 19.00 LAUGARDAGA FRÁ 09.00 TIL 17.00 SIMI5874747 HAUKAR knattspyrnudeild Hópa- og firmakeppni Hauka á Ásvöllum 17.-19. maí Þátttökugjald kr. 8.000 Peningaverðlaun fyrir 1. sæti Þátttaka tilkynnist í síma 565 4087 (Jón) fyrir 14. mai

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.