Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
Fréttir
Fangi kom fyrir dómara og saksóknara i gær og breytti óvænt framburði sínum:
Segist hafa fengið félaga
sinn dæmdan saklausan
- sem fékk 2V2 árs fangelsi - hinn á nú yfir höfði sér aukarefsingu
Sá fáheyrði atburður átti sér
stað í gær að Gunnar Valdimars-
son, 34 ára fangi á Litla-Hrauni,
kom sjálfviljugur fyrir dómara og
saksóknara í Reykjavík og greindi
frá því að hann hefði í réttarhaldi
í vetur borið rangar sakargiftir á
Engilbert Runólfsson, 31 árs félaga
sinn, í fikniefnamáli þar sem
Gunnar var dæmdur í 2ja ára en
Engilbert í 2/2 árs fangelsi. Engil-
bert hafði alltaf borið af sér allar
sakargiftir í málinu en var sak-
felldur að mestu leyti vegna fram-
burðar Gunnars um að þeir hefðu
staðið saman að því að fjármagna
kaup á 313 grömmum af am-
fetamíni í Hollandi og flytja síðan
til íslands.
Gunnar var tekinn með efnin á
sér þegar hann kom til landsins en
Engilbert kom daginn eftir. Lög-
reglan var þá búin að fá leyfi
Gunnars til að koma myndbands-
og hljóðupptökutækjum fyrir í
íbúð hans og átti þannig að sanna
sekt Engilberts er hann vitjaði efn-
anna hjá Gunnari. Af einhverjum
ástæðum brugðust upptökurnar en
Engilbert fékkst engu að síður sak-
felldur vegna framburðar Gunnars
sem hann hefur nú dregið til baka
- tæpum 3 mánuðum eftir að hér-
aðsdómur gekk.
Gunnar og Engilbert hafa báðir
verið í afplánun á Litla-Hrauni frá
því snemma í mars - Gunnar
vegna amfetamínmálsins en Engil-
bert vegna eldri dóms. Gunnar seg-
ist ekki hafa verið beittur þrýst-
ingi en segir ástæðuna fyrir breytt-
um framburði sínum nú vera þá að
á sínum tíma hafi það verið hug-
mynd lögreglunnar að Engilbert
væri einnig sekur í málinu.
Saksóknari gerði Gunnari, sem
mætti ekki með lögmann með sér í
gær, grein fyrir því að þessar
röngu sakargiftir gætu leitt til þess
að hann yrði ákærður sérstaklega
fyrir athæfi sitt vegna brots sem
varðaði allt að 10 ára fangelsi. Lík-
ur eru á að ríkissaksóknari feli
RLR að rannsaka hinar röngu sak-
argiftir í sérstöku sakamáli.
Fíkniefnadómurinn gekk þann
19. febrúar og áfrýjaði Engilbert
máli sínu til Hæstaréttar en Gunn-
ar undi sínum dómi. Þegar mál
Engilberts verður tekið fyrir þar,
sennilega í haust, munu því ný
gögn liggja fyrir Hæstarétti sem
verður þá að meta hvort ástæða sé
komin til að sýkna sakborninginn.
Hvað sem gerist mun flkniefna-
dómurinn yflr Gunnari standa, 2ja
ára fangelsi, en möguleiki er hins
vegar á þvi að hann fái annan dóm
fyrir rangar sakargiftir.
-Ótt
Þeir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra komu í gær heim frá Ósló
með síldarsamning í farteskinu. Samninginn kynntu þeir í Leifsstöð í gær. DV-mynd GS
Síldarsamningurinn var bræddur saman i tveggja vikna baktjaldamakki:
Gro hringdi fyrst og
vildi nýjar viðræður
- bara þeir sem skrifuðu undir samninginn eru sáttir við hann
Stuttar fréttir
Útiendar kýr betri
Rekstur kúabúa með erlendu
kúakyni er hagkvæmari en
með íslenskum kúm. Þetta
kom fram á spástefnu kúa-
bænda í gær.
Mannanafnalög
samþykkt
Ný lög um mannanöfn voru
samþykkt á Alþingi í gær.
Samkvæmt þeim verða leyfð
aðlöguð útlensk eiginnöfn og
þeir sem ílytjast hingað geta
haldið nafni sínu óbreyttu.
Þetta kom fram á RÚV.
Pétri mótmælt
Nokkrir þingmenn hafa mót-
mælt kosningaáróðri Péturs
Kr. Hafstein utan á byggingu í
Austurstræti sem Alþingi leig-
ir að hluta undir skrifstofur
þingmannanna. Þetta kom
fram á Stöð 2.
JVJ bauð iægst
Verktakafyrirtækið JVJ í
Hafnarfírði átti lægsta tilboð í
gerð brúar um mislæg gatna-
mót Fífuhvammsvegar og
Reykjanesbrautar í Kópavogi.
Samkvæmt Stöö 2 bauð JVJ
58% af kostnaðaráætlun.
Milljón seiðum
sleppt
Miklar seiðasleppingar eiga
sér nú staö í Rangárþingi. Sam-
kvæmt Stöð 2 verður hátt í
milljón seiöum sjeppt í ár og
næsta ár í vatnasvæöi Þverár
og Eystri-Rangár.
Verslun í Smára-
hvammi
Tvær verslanamiðstöðvar,
önnur á stærð við Kringluna,
munu rísa í Smára-
hvammslandi í Kópavogi, sam-
kvæmt fréttum Ríkissjónvarps-
ins.
Forseti á ráðstefnu
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, er í forsæti á al-
þjóðlegri ráðstefnu sem haldin
er i Stokkhólmi um konur og
völd. -bjb
Fyrir hálfum mánuði hafði Gro
Harlem Brundtland, forsætisráð-
herra Noregs, samband við Davíð
Oddsson forsætisráðherra og lét
hann vita að Norðmenn vildu að
enn yrði reynt að semja um síldina.
Þetta var í síðustu viku vetrar og
áður en vetur var úti höfðu sjávar-
útvegsráðherrarnir Þorsteinn Páls-
son og Jan Henry T. Olsen og utan-
ríkisráðherrarnir Halldór Ásgríms-
son og Björn Tore Godal allir íjórir
hist á fundi í Lundúnum.
Lundúnafundurinn 1 var haldinn
með leynd en Halldór Ásgrímsson
sagði á blaðamannafundi í Leifsstöð
í gær að víst hefði fundurinn verið
haldinn.
Símtöl æðstu ráðamanna og fund-
ir báru þann ávöxt í gær að í Ósló
var undirritaður samningur um
veiðar í ár úr norsk-íslenska sUdar-
stofninum. Þeir sem eiga að veiða
sUdina eru sammála um að hér sé á
ferðinni hinn versti samningur.
Oddmund Bye, formaður Norges
Fiskarlag, sagði við DV í gærkvöldi
að hér hefðu norskir ráðamenn gef-
ið burt réttmæta eign þjóðarinnar,
norsku vorgotssUdina.
„Það er engin sUd í íslenskri lög-
sögu og það er ekkert annað en gjöf
að láta íslendinga hafa 190 þúsund
tonn,“ sagði Oddmund. íslenskir
starfsbræður Oddmundar hafa talað
um óhæfilega undanlátssemi við
Norðmenn og Rússa.
Samkvæmt hinum umdeilda
samningi fá Færeyingar og íslend-
ingar að veiða 265 þúsund lestir, þar
af íslendingar 190 þúsund lestir.
Norðmenn fá 695 þúsund lestir en
höfðu áður tekið sér 30 þúsund lesta
meiri kvóta. Rússar fá 166 þúsund
lestir.en ætla þó ekki að veiða 10
þúsund lestir af því. Þetta er
nokkru meiri kvóti en Rússar höfðu
ætlað sér.
Halldór Ásgrímsson lýsti samn-
ingnum í gær sem sigri sUdarinnar
og taldi gildi hans mest fyrir fram-
tíðina. í ár myndi þó samningurinn
einnig leiða til betri nýtingar á sUd-
inni því nú gæfist færi á að veiða
hana í lögsögunni við Jan Mayen og
lengdi það veiðitímann.
Jakob Jakobsson, forstjóri Ha-
frannsóknastofnunar, taldi og samn-
inginn góðan. Hann var ekki í Ósló
við samningsgerðina en tók þátt í
kynningu á samningnum í Leifsstöð
síðdegis í gær.
Hann sagði að hagsmunir íslands
fælust í að draga sem mest úr veiði
nú. Þó viðurkenndi hann að fyrir-
ætlanir Evrópusambandins yllu
óvissu þótt treysta yrði því að Evr-
ópusambandið legðist ekki í sjórán.
-GK
Faxamjöl:
Fimmföldun
framleiðslu í
Örfirisey
Utandagskrárumræða fór fram á
Alþingi í gær um fyrirhugaða
stækkun á mjölverksmiðju Faxa-
mjöls hf. í Örfirisey. Það var Svav-
ar Gestsson sem hóf umræðuna og
upplýsti að ætlunin væri að stækka
verksmiðjuna úr 120 tonna í 520
tonna afkastagetu á dag.
Svavar sagði að hér væri í raun
um nýja verksmiðju að ræða og
heilbrigðisnefnd Reykjavíkur hefði
því álitið að taka þyrfti sérstaklega
á málinu. Því hefði nefhdin farið
fram á við ráðherra að umhverfís-
mat yrði gert vegna stækkunarinn-
ar og byggt þá kröfu m.a. á áliti
Hollustvemdar ríkisins, stofnunar
sem heyrði undir umhverfisráð-
herra. Umhverfisráðherra hefði
hins vegar hafnað þvi vegna þess að
ekki verði séð að breyting á verk-
smiðjunni hefði umtalsverð áhrif á
umhverfi, náttúruauðlindir og sam-
félag.
Svavar átaldi ráðherra 'fyrir. við-
brögð hans i málinu þrátt fyrir ein-
dregin tilmæli yfirvalda í Reykjavík
sem byggð væru á áliti Hollustu-
verndar. Svavar kvaðst telja aö i
túlkun umhverfisráðuneytisins fæl-
ust þau viðhorf að mannlíf í þétt-
býli flokkist, ekki undir ákvæði laga
um náttúruauðlindir og samfélag.
Guðmundur Bjamason umhverf-
isráöherra sagði að ekki væri laga-
leg skylda til að láta fara fram um-
hverfismat vegna fiskiverksmiðja
yfirleitt og niðurstaða ráðuneytis-
ins hefði orðið sú að styðjast við
ákvæði mengunarvarnareglugerðar
þegar starfsleyfi verður veitt verk-
smiðjunni eftir breytingar. Holl-
ustuvernd hafi þau mál á hendi og
opin leið verði til að gera athuga-
semdir á þeim vettvangi. Þá hefði
það einnig vegið þungt i ákvörðun
ráðuneytisins að ekki væri um
breytta starfsemi verksmiðjunnar
að ræða.
Kristin Halldórsdóttir (K.) tók
undir það sjónarmið að um svo
mikla breytingu á rekstri verk-
smiðjunnar væri að ræða að það
réttiætti fyllilega að fram færi um-
hverfismat og það jaðraði við dóna-
skap gagnvart yfirvöldum Reykja-
víkur að neita um það. Hún skoraði
á ráðherra að endúrskoða afstöðu
sína.
Allnokkrar umræður urðu um
málið og þeir Geir Haarde (S.), Guð-
mundur Hallvarðsson (S.), og Ámi
Mathiesen (S.) töldu enga ástæðu til
umhverfismats vegna fimmfaldrar
stækkunar verksmiðjunnar. Þeir
sem hins vegar töldu að slíkt mat
ætti að fara fram og skoruðu á um-
hverfisráðherra að endurskoða mál-
ið, auk þeirra sem fyrr eru nefndir,
voru össur Skarphéðinsson (A.),
Hjörleifur Guttormsson (Ab.) og
Svanfríður Jónasdóttir (Þ.). -SÁ