Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996 Fréttir Fangi kom fyrir dómara og saksóknara i gær og breytti óvænt framburði sínum: Segist hafa fengið félaga sinn dæmdan saklausan - sem fékk 2V2 árs fangelsi - hinn á nú yfir höfði sér aukarefsingu Sá fáheyrði atburður átti sér stað í gær að Gunnar Valdimars- son, 34 ára fangi á Litla-Hrauni, kom sjálfviljugur fyrir dómara og saksóknara í Reykjavík og greindi frá því að hann hefði í réttarhaldi í vetur borið rangar sakargiftir á Engilbert Runólfsson, 31 árs félaga sinn, í fikniefnamáli þar sem Gunnar var dæmdur í 2ja ára en Engilbert í 2/2 árs fangelsi. Engil- bert hafði alltaf borið af sér allar sakargiftir í málinu en var sak- felldur að mestu leyti vegna fram- burðar Gunnars um að þeir hefðu staðið saman að því að fjármagna kaup á 313 grömmum af am- fetamíni í Hollandi og flytja síðan til íslands. Gunnar var tekinn með efnin á sér þegar hann kom til landsins en Engilbert kom daginn eftir. Lög- reglan var þá búin að fá leyfi Gunnars til að koma myndbands- og hljóðupptökutækjum fyrir í íbúð hans og átti þannig að sanna sekt Engilberts er hann vitjaði efn- anna hjá Gunnari. Af einhverjum ástæðum brugðust upptökurnar en Engilbert fékkst engu að síður sak- felldur vegna framburðar Gunnars sem hann hefur nú dregið til baka - tæpum 3 mánuðum eftir að hér- aðsdómur gekk. Gunnar og Engilbert hafa báðir verið í afplánun á Litla-Hrauni frá því snemma í mars - Gunnar vegna amfetamínmálsins en Engil- bert vegna eldri dóms. Gunnar seg- ist ekki hafa verið beittur þrýst- ingi en segir ástæðuna fyrir breytt- um framburði sínum nú vera þá að á sínum tíma hafi það verið hug- mynd lögreglunnar að Engilbert væri einnig sekur í málinu. Saksóknari gerði Gunnari, sem mætti ekki með lögmann með sér í gær, grein fyrir því að þessar röngu sakargiftir gætu leitt til þess að hann yrði ákærður sérstaklega fyrir athæfi sitt vegna brots sem varðaði allt að 10 ára fangelsi. Lík- ur eru á að ríkissaksóknari feli RLR að rannsaka hinar röngu sak- argiftir í sérstöku sakamáli. Fíkniefnadómurinn gekk þann 19. febrúar og áfrýjaði Engilbert máli sínu til Hæstaréttar en Gunn- ar undi sínum dómi. Þegar mál Engilberts verður tekið fyrir þar, sennilega í haust, munu því ný gögn liggja fyrir Hæstarétti sem verður þá að meta hvort ástæða sé komin til að sýkna sakborninginn. Hvað sem gerist mun flkniefna- dómurinn yflr Gunnari standa, 2ja ára fangelsi, en möguleiki er hins vegar á þvi að hann fái annan dóm fyrir rangar sakargiftir. -Ótt Þeir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra komu í gær heim frá Ósló með síldarsamning í farteskinu. Samninginn kynntu þeir í Leifsstöð í gær. DV-mynd GS Síldarsamningurinn var bræddur saman i tveggja vikna baktjaldamakki: Gro hringdi fyrst og vildi nýjar viðræður - bara þeir sem skrifuðu undir samninginn eru sáttir við hann Stuttar fréttir Útiendar kýr betri Rekstur kúabúa með erlendu kúakyni er hagkvæmari en með íslenskum kúm. Þetta kom fram á spástefnu kúa- bænda í gær. Mannanafnalög samþykkt Ný lög um mannanöfn voru samþykkt á Alþingi í gær. Samkvæmt þeim verða leyfð aðlöguð útlensk eiginnöfn og þeir sem ílytjast hingað geta haldið nafni sínu óbreyttu. Þetta kom fram á RÚV. Pétri mótmælt Nokkrir þingmenn hafa mót- mælt kosningaáróðri Péturs Kr. Hafstein utan á byggingu í Austurstræti sem Alþingi leig- ir að hluta undir skrifstofur þingmannanna. Þetta kom fram á Stöð 2. JVJ bauð iægst Verktakafyrirtækið JVJ í Hafnarfírði átti lægsta tilboð í gerð brúar um mislæg gatna- mót Fífuhvammsvegar og Reykjanesbrautar í Kópavogi. Samkvæmt Stöö 2 bauð JVJ 58% af kostnaðaráætlun. Milljón seiðum sleppt Miklar seiðasleppingar eiga sér nú staö í Rangárþingi. Sam- kvæmt Stöð 2 verður hátt í milljón seiöum sjeppt í ár og næsta ár í vatnasvæöi Þverár og Eystri-Rangár. Verslun í Smára- hvammi Tvær verslanamiðstöðvar, önnur á stærð við Kringluna, munu rísa í Smára- hvammslandi í Kópavogi, sam- kvæmt fréttum Ríkissjónvarps- ins. Forseti á ráðstefnu Forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, er í forsæti á al- þjóðlegri ráðstefnu sem haldin er i Stokkhólmi um konur og völd. -bjb Fyrir hálfum mánuði hafði Gro Harlem Brundtland, forsætisráð- herra Noregs, samband við Davíð Oddsson forsætisráðherra og lét hann vita að Norðmenn vildu að enn yrði reynt að semja um síldina. Þetta var í síðustu viku vetrar og áður en vetur var úti höfðu sjávar- útvegsráðherrarnir Þorsteinn Páls- son og Jan Henry T. Olsen og utan- ríkisráðherrarnir Halldór Ásgríms- son og Björn Tore Godal allir íjórir hist á fundi í Lundúnum. Lundúnafundurinn 1 var haldinn með leynd en Halldór Ásgrímsson sagði á blaðamannafundi í Leifsstöð í gær að víst hefði fundurinn verið haldinn. Símtöl æðstu ráðamanna og fund- ir báru þann ávöxt í gær að í Ósló var undirritaður samningur um veiðar í ár úr norsk-íslenska sUdar- stofninum. Þeir sem eiga að veiða sUdina eru sammála um að hér sé á ferðinni hinn versti samningur. Oddmund Bye, formaður Norges Fiskarlag, sagði við DV í gærkvöldi að hér hefðu norskir ráðamenn gef- ið burt réttmæta eign þjóðarinnar, norsku vorgotssUdina. „Það er engin sUd í íslenskri lög- sögu og það er ekkert annað en gjöf að láta íslendinga hafa 190 þúsund tonn,“ sagði Oddmund. íslenskir starfsbræður Oddmundar hafa talað um óhæfilega undanlátssemi við Norðmenn og Rússa. Samkvæmt hinum umdeilda samningi fá Færeyingar og íslend- ingar að veiða 265 þúsund lestir, þar af íslendingar 190 þúsund lestir. Norðmenn fá 695 þúsund lestir en höfðu áður tekið sér 30 þúsund lesta meiri kvóta. Rússar fá 166 þúsund lestir.en ætla þó ekki að veiða 10 þúsund lestir af því. Þetta er nokkru meiri kvóti en Rússar höfðu ætlað sér. Halldór Ásgrímsson lýsti samn- ingnum í gær sem sigri sUdarinnar og taldi gildi hans mest fyrir fram- tíðina. í ár myndi þó samningurinn einnig leiða til betri nýtingar á sUd- inni því nú gæfist færi á að veiða hana í lögsögunni við Jan Mayen og lengdi það veiðitímann. Jakob Jakobsson, forstjóri Ha- frannsóknastofnunar, taldi og samn- inginn góðan. Hann var ekki í Ósló við samningsgerðina en tók þátt í kynningu á samningnum í Leifsstöð síðdegis í gær. Hann sagði að hagsmunir íslands fælust í að draga sem mest úr veiði nú. Þó viðurkenndi hann að fyrir- ætlanir Evrópusambandins yllu óvissu þótt treysta yrði því að Evr- ópusambandið legðist ekki í sjórán. -GK Faxamjöl: Fimmföldun framleiðslu í Örfirisey Utandagskrárumræða fór fram á Alþingi í gær um fyrirhugaða stækkun á mjölverksmiðju Faxa- mjöls hf. í Örfirisey. Það var Svav- ar Gestsson sem hóf umræðuna og upplýsti að ætlunin væri að stækka verksmiðjuna úr 120 tonna í 520 tonna afkastagetu á dag. Svavar sagði að hér væri í raun um nýja verksmiðju að ræða og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur hefði því álitið að taka þyrfti sérstaklega á málinu. Því hefði nefhdin farið fram á við ráðherra að umhverfís- mat yrði gert vegna stækkunarinn- ar og byggt þá kröfu m.a. á áliti Hollustvemdar ríkisins, stofnunar sem heyrði undir umhverfisráð- herra. Umhverfisráðherra hefði hins vegar hafnað þvi vegna þess að ekki verði séð að breyting á verk- smiðjunni hefði umtalsverð áhrif á umhverfi, náttúruauðlindir og sam- félag. Svavar átaldi ráðherra 'fyrir. við- brögð hans i málinu þrátt fyrir ein- dregin tilmæli yfirvalda í Reykjavík sem byggð væru á áliti Hollustu- verndar. Svavar kvaðst telja aö i túlkun umhverfisráðuneytisins fæl- ust þau viðhorf að mannlíf í þétt- býli flokkist, ekki undir ákvæði laga um náttúruauðlindir og samfélag. Guðmundur Bjamason umhverf- isráöherra sagði að ekki væri laga- leg skylda til að láta fara fram um- hverfismat vegna fiskiverksmiðja yfirleitt og niðurstaða ráðuneytis- ins hefði orðið sú að styðjast við ákvæði mengunarvarnareglugerðar þegar starfsleyfi verður veitt verk- smiðjunni eftir breytingar. Holl- ustuvernd hafi þau mál á hendi og opin leið verði til að gera athuga- semdir á þeim vettvangi. Þá hefði það einnig vegið þungt i ákvörðun ráðuneytisins að ekki væri um breytta starfsemi verksmiðjunnar að ræða. Kristin Halldórsdóttir (K.) tók undir það sjónarmið að um svo mikla breytingu á rekstri verk- smiðjunnar væri að ræða að það réttiætti fyllilega að fram færi um- hverfismat og það jaðraði við dóna- skap gagnvart yfirvöldum Reykja- víkur að neita um það. Hún skoraði á ráðherra að endúrskoða afstöðu sína. Allnokkrar umræður urðu um málið og þeir Geir Haarde (S.), Guð- mundur Hallvarðsson (S.), og Ámi Mathiesen (S.) töldu enga ástæðu til umhverfismats vegna fimmfaldrar stækkunar verksmiðjunnar. Þeir sem hins vegar töldu að slíkt mat ætti að fara fram og skoruðu á um- hverfisráðherra að endurskoða mál- ið, auk þeirra sem fyrr eru nefndir, voru össur Skarphéðinsson (A.), Hjörleifur Guttormsson (Ab.) og Svanfríður Jónasdóttir (Þ.). -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.