Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996 5 DV Fréttir Tillögur stjórnar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur: Stofnunin lögð nið- Myndin er tekin þegar tillögurnar voru kynntar starfsfólki Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur mánudaginn 6. maí. DV-mynd BG ur í I tillögum stjórnar Heilsuvemd- arstöðvar Reykjavíkur um framtíð- arhlutverk stofnunarinnar, er lagt til að hún verði lögð niður i núver- andi mynd. Mæðra- og ungbamaeftirlit flytj- ist í auknum mæli til heilsugæslu- stöðva en sameinist að öðru leyti sambærilegum einingum á Land- spítalanum. Þangað komi sérfræð- ingar í þessum greinum til ráðgjaf- ar. Heimahjúkrun flytjist einnig í auknum mæli til heilsugæslu- stöðva. Aðrar einingar veröi endur- skipulagðar eða lagðar niður. Tannvernd barna óháð efnahag foreldra Tfl dæmis er lagt til að starfsemi skólatannlækninga verði endur- skipulögð og tryggt að öll börn á skólaskyldualdri njóti lögboðinnar tannverndar án tiÚits til efnahags og áhuga foreldra. Stjórnin telur að þar sem mikið af úrvalsfólki, sem aflað hefur sér menntunar og reynslu á starfssviði sínu, starfi á Heilsuverndarstöð- inni sé afar mikilvægt að tryggja að starfskraftar þess nýtist í fram- tíðinni með flutningi stöðuheim- ilda nái þessar tillögur fram að ganga. Stjórnin tekur ekki afstöðu til tillagna um nýtingu á húsnæði stöðvarinnar. Þó minnir stjórnin á að ef til vill sé eðlilegt, þar sem saga hússins og stofnunarinnar er samtvinnuð, að húsið hýsi áfram heilbrigðisþjónustu. Vel megi hugsa sér að þær einingar sem áfram störfuðu væru tfl húsa á Heflsuverndarstöðinni, þ.e. sam- einað mæðraeftirlit, sameinað ungbarnaeftirlit og hugsanlega heimahjúkrunin. Tillögurnar kynntar starfs- fólki Þar sem. tillögurnar fela í sér lok starfseminnar er stjórn Heflsuverndarstöðvar Reykjavík- ur reiðubúin aö segja af sér. Stjómina skipa, Ragnheiður Har- aldsdóttir, deildarstjóri í heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu, Óttar Guðmundsson læknir og Guðrún Ágústsdóttir, forseti borgarstjórnar. Tillögumar voru kynntar starfsfólki Heilsuverndarstöðvar- innar mánudaginn 6. maí og gerð grein fyrir hugmyndum stjórnar- innar um hvernig koma megi starfseminni fyrir með öðrum hætti. Tillögunum hefur verið skilað til heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra. Ráðherrra hefur tillög- urnar til athugunar og hefur ákveðið að láta meta hagkvæmni þeirra. -ÞK Kaup verslunarmanna hjá varnarliöinu: Timi var kominn a nýja leiðréttingu - segir Jóhann Geirdal, formaöur Verslunarmannafélags Suöurnesja DV, Suðurnesjum: „Við flölluðum um þetta mál eftir nýjum reglum sem settar voru kaup- skrámefnd. Niðurstaða er komin og hún liggur fyrir,“ sagði Berglind Ás- geirsdóttir, formaður kaupskrárnefndar varnarsvæða, í samtali við DV. Kaupskrámefndin hefur úrskurðað í erindi Verslunarmannafélags Suður- nesja vegna starfsmanna sem vinna hjá varnarliðinu á Keílavíkurflugvelli og komist aö þeirri niðurstöðu að starfs- menn eiga að fá 17% leiðréttingu á laun sín frá áramótum. Hlutverk kaupskrámefndar vamar- svæða er að sjá til þess að íslendingar, sem starfa hjá varnarliðinu eða erlend- um verktökum þess á varnarsvæðum, fái kaup og kjör og njóti þess öryggis og aðbúnaðar á vinnustað sem íslensk lög, kjarasamningar og venjur segja til um á hverjum tíma. Þá skal nefndin sjá til þess að þeir njóti sambærilegra kjara og almennt gerist í sömu eða hliðstæðum störfum utan varnarsvæða. „Að vissu leyti er þetta fagnaðarefni að það skuli vera kominn úrskurður í þessu máli. Síðast þegar launaleiðrétt- ing fékkst var 1988 og var vissulega kominn tími á nýja leiðréttingu. Þetta er búið að vera mikil vinna í þessu máli,“ sagði Jóhann Geirdal, formaður Verslunarmannafélags Suðumesja. -ÆMK Hátíð á Höfn fyrir tveimur árum. DV-mynd Júlía Stórhátíð 1997 á aldar- afmæli byggðar á Hofn DV; Höfn: Á næsta ári verða 100 ár frá því byggð hófst á Höfn og verður þess minnst á margvíslegan hátt. Skipuð hefur verið afmælisnefnd sem sér um framkvæmd og skipulagningu aldarafmælisins á sem glæsflegast- an hátt. „Við erum að hefja undirbúning- inn og verið er að safna hugmynd- um í afmælisbankann. Stefnt er að því að eitthvað verði gert í hverjum mánuði ársins í tilefni afmælisins en að aðalhátíðahöldin verði fyrstu helgina í júlí. Þá verði sameinuð há- tíð á Hornafirði sem er orðin árviss viðburður á þessum tíma. Lögð verður áhersla á ýmiss kon- ar sýningar menningar og lista. Einnig verður gerð heimildarkvik- mynd um 100 ára búsetu á Höfn,“ sagði Gísli Sverrir Árnason, for- maður nefndarinnar, við frétta- mann DV. Vegna þessara timamóta í sögu Hafnar verður vinabæjamót við vinabæi Hafnar á Norðurlöndum. Það mót verður á aðalhátíðinni í júlí. Nefndin leggur áherslu á að öll undirbúningsvinna og skipulag fyr- ir afmælið liggi fyrir i lok þessa árs og að hægt verði að kynna afmælis- dagskrána í byrjun árs 1997. -JI (D ii Skipholri 1 9 ^ Sími: 552 9Ö00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.