Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
5
DV
Fréttir
Tillögur stjórnar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur:
Stofnunin lögð nið-
Myndin er tekin þegar tillögurnar voru kynntar starfsfólki Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur mánudaginn 6. maí.
DV-mynd BG
ur í
I tillögum stjórnar Heilsuvemd-
arstöðvar Reykjavíkur um framtíð-
arhlutverk stofnunarinnar, er lagt
til að hún verði lögð niður i núver-
andi mynd.
Mæðra- og ungbamaeftirlit flytj-
ist í auknum mæli til heilsugæslu-
stöðva en sameinist að öðru leyti
sambærilegum einingum á Land-
spítalanum. Þangað komi sérfræð-
ingar í þessum greinum til ráðgjaf-
ar.
Heimahjúkrun flytjist einnig í
auknum mæli til heilsugæslu-
stöðva.
Aðrar einingar veröi endur-
skipulagðar eða lagðar niður.
Tannvernd barna óháð
efnahag foreldra
Tfl dæmis er lagt til að starfsemi
skólatannlækninga verði endur-
skipulögð og tryggt að öll börn á
skólaskyldualdri njóti lögboðinnar
tannverndar án tiÚits til efnahags
og áhuga foreldra.
Stjórnin telur að þar sem mikið
af úrvalsfólki, sem aflað hefur sér
menntunar og reynslu á starfssviði
sínu, starfi á Heilsuverndarstöð-
inni sé afar mikilvægt að tryggja
að starfskraftar þess nýtist í fram-
tíðinni með flutningi stöðuheim-
ilda nái þessar tillögur fram að
ganga.
Stjórnin tekur ekki afstöðu til
tillagna um nýtingu á húsnæði
stöðvarinnar. Þó minnir stjórnin á
að ef til vill sé eðlilegt, þar sem
saga hússins og stofnunarinnar er
samtvinnuð, að húsið hýsi áfram
heilbrigðisþjónustu. Vel megi
hugsa sér að þær einingar sem
áfram störfuðu væru tfl húsa á
Heflsuverndarstöðinni, þ.e. sam-
einað mæðraeftirlit, sameinað
ungbarnaeftirlit og hugsanlega
heimahjúkrunin.
Tillögurnar kynntar starfs-
fólki
Þar sem. tillögurnar fela í sér
lok starfseminnar er stjórn
Heflsuverndarstöðvar Reykjavík-
ur reiðubúin aö segja af sér.
Stjómina skipa, Ragnheiður Har-
aldsdóttir, deildarstjóri í heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu, Óttar Guðmundsson
læknir og Guðrún Ágústsdóttir,
forseti borgarstjórnar.
Tillögumar voru kynntar
starfsfólki Heilsuverndarstöðvar-
innar mánudaginn 6. maí og gerð
grein fyrir hugmyndum stjórnar-
innar um hvernig koma megi
starfseminni fyrir með öðrum
hætti.
Tillögunum hefur verið skilað
til heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra. Ráðherrra hefur tillög-
urnar til athugunar og hefur
ákveðið að láta meta hagkvæmni
þeirra.
-ÞK
Kaup verslunarmanna hjá varnarliöinu:
Timi var kominn a nýja leiðréttingu
- segir Jóhann Geirdal, formaöur Verslunarmannafélags Suöurnesja
DV, Suðurnesjum:
„Við flölluðum um þetta mál eftir
nýjum reglum sem settar voru kaup-
skrámefnd. Niðurstaða er komin og
hún liggur fyrir,“ sagði Berglind Ás-
geirsdóttir, formaður kaupskrárnefndar
varnarsvæða, í samtali við DV.
Kaupskrámefndin hefur úrskurðað í
erindi Verslunarmannafélags Suður-
nesja vegna starfsmanna sem vinna hjá
varnarliðinu á Keílavíkurflugvelli og
komist aö þeirri niðurstöðu að starfs-
menn eiga að fá 17% leiðréttingu á laun
sín frá áramótum.
Hlutverk kaupskrámefndar vamar-
svæða er að sjá til þess að íslendingar,
sem starfa hjá varnarliðinu eða erlend-
um verktökum þess á varnarsvæðum,
fái kaup og kjör og njóti þess öryggis og
aðbúnaðar á vinnustað sem íslensk lög,
kjarasamningar og venjur segja til um á
hverjum tíma. Þá skal nefndin sjá til
þess að þeir njóti sambærilegra kjara og
almennt gerist í sömu eða hliðstæðum
störfum utan varnarsvæða.
„Að vissu leyti er þetta fagnaðarefni
að það skuli vera kominn úrskurður í
þessu máli. Síðast þegar launaleiðrétt-
ing fékkst var 1988 og var vissulega
kominn tími á nýja leiðréttingu. Þetta
er búið að vera mikil vinna í þessu
máli,“ sagði Jóhann Geirdal, formaður
Verslunarmannafélags Suðumesja.
-ÆMK
Hátíð á Höfn fyrir tveimur árum. DV-mynd Júlía
Stórhátíð 1997 á aldar-
afmæli byggðar á Hofn
DV; Höfn:
Á næsta ári verða 100 ár frá því
byggð hófst á Höfn og verður þess
minnst á margvíslegan hátt. Skipuð
hefur verið afmælisnefnd sem sér
um framkvæmd og skipulagningu
aldarafmælisins á sem glæsflegast-
an hátt.
„Við erum að hefja undirbúning-
inn og verið er að safna hugmynd-
um í afmælisbankann. Stefnt er að
því að eitthvað verði gert í hverjum
mánuði ársins í tilefni afmælisins
en að aðalhátíðahöldin verði fyrstu
helgina í júlí. Þá verði sameinuð há-
tíð á Hornafirði sem er orðin árviss
viðburður á þessum tíma.
Lögð verður áhersla á ýmiss kon-
ar sýningar menningar og lista.
Einnig verður gerð heimildarkvik-
mynd um 100 ára búsetu á Höfn,“
sagði Gísli Sverrir Árnason, for-
maður nefndarinnar, við frétta-
mann DV.
Vegna þessara timamóta í sögu
Hafnar verður vinabæjamót við
vinabæi Hafnar á Norðurlöndum.
Það mót verður á aðalhátíðinni í
júlí. Nefndin leggur áherslu á að öll
undirbúningsvinna og skipulag fyr-
ir afmælið liggi fyrir i lok þessa árs
og að hægt verði að kynna afmælis-
dagskrána í byrjun árs 1997. -JI
(D
ii Skipholri 1 9
^ Sími: 552 9Ö00