Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Síða 8
8
Utlönd
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
Rússar búa sig undir að reka breska njósnara úr landi:
Hvað mundir þú gera
ef þú ynnir 100 milljónir
á miðvikudaginn?
N G A
LtTTf
Til mikils að vinna!
VGetspá/
Alla miðvikudaga fyrirkl. 16.00.
Bretar hota að
gjalda líku líkt
Rússnesk stjórnvöld búa sig nú
undir að vísa nokkrum breskum
diplómötum úr landi fyrir meint
tengsl þeirra við njósnahring en
vilja engu að siður reyna að koma í
veg fyrir milliríkjadeilu í anda
kalda stríðsins. Þetta er alvarleg-
asta njósnahneykslið sem komið
hefur upp í samskiptum ríkja aust-
urs og vesturs frá því Borís Jeltsín
komst til valda í Rússlandi árið
1991.
Malcolm Rifkind, utanríkisráð-
herra Bretlands, sagði í gær að
ásakanirnar væru með öllu tilhæfu-
lausar og varaði við því að Bretar
mundu svara í sömu mynt ef Rúss-
ar gerðu alvöru úr hótunum sínum.
„Sendiherra okkar eða breskum
stjórnvöldum hafa ekki verið sýnd-
ar neinar sannanir sem styðja þess-
ar staðhæfingar og í okkar huga
hafa þær ekki verið rökstuddar. Ef
gripið verður til aðgerða gegn
bresku starfsliði verður gripið til
gagnaðgerða og eðli þeirra fer eftir
Bill Clinton Bandarikjaforseti hef-
ur gert reykingar barna og unglinga
að kosningamáli og munu reykingar
verða aðalmál kosningaferðar hans
til ríkisins New Jersey í dag. Clinton
er mikið í mun að ná atkvæðum í
New Jersey, níunda fjölmennasta
ríki Bandaríkjanna, en hann sigraði
einungis með 80 þúsund atkvæða
mun þar í forsetakosningunum fyrir
flórum árum.
Talsmenn forsetans segja að þrátt
fyrir 20 prósentustiga forskot á Bob
Dole, verðandi frambjóðanda repú-
blikana, á landsvísu viljf þeir ekki
hætta á neitt varðandi New Jersey.
Ferð hans þangað er skipulögð í
tengslum við svonefndan „Kick Butts
Day“ í Bandaríkjunum sem „Taka á í
því hvað Rússar gera,“ sagði Rif-
kind.
Deilan komst upp á yfirborðið eft-
ir að rússneska leyniþjónustan FSB,
arftaki KGB sálugu, skýrði frá því
að rússneskur embættismaður hefði
verið handtekinn í Moskvu þegar
hann hitti fulltrúa bresku leyniþjón-
ustunnar MI6.
Rússneska utanríkisráðuneytið
sagði að nokkrir breskir sendimenn
yrðu reknir úr landi en Grígorí Kar-
asín, talsmaður ráðuneytisins, sagði
að allt yrði að gera til að afstýra því
að samskipti Rússlands og Bret-
lands hlytu skaða af.
Hann sagði Interfax fréttastof-
unni að breski sendiherrann,
Andrew Wood, hefði verið kvaddur
í ráðuneytið. „Þar var rætt um
hegðun nokkurra breskra stjórnar-
erindreka sem samrýmist ekki
stöðu þeirra," sagði Karasín.
Karasín sagði ekki hversu margir
breskir diplómatar hefðu verið lýst-
ir „persona non grata“ og yrðu að
lurginn á“ þeim sem eru.ábyrgir fyr-
ir að halda tóbaki að börnum og ung-
lingum og fræða síðarnefndu hópana
svo þeir láti tóbak vera. Clinton seg-
ir reykingar alvarlegasta heilbrigðis-
vandamál sem börn og unglingar
horfast í augu við í dag.
Athyglin hefur beinst að meintum
reykingum Clintons sjálfs. Hann
reykti einu sinni vindla en lætur sér
nægja að tyggja endann á þeim í dag.
Síðast þegar sást til hans með log-
andi vindil var þegar bandaríska or-
ustuflugmanninum Scott O’Grady
var bjargað undan skothríð Serba í
Bosníu. Þá púaði hann ásamt örygg-
isráðgjafa sínum og hlaut miklar
skammir dóttur sinnar, Chelsea, fyr-
ir vikið. Reuter
taka saman föggur sínar. Interfax
sagði í morgun að níu Bretar yrðu
sendir heim. Vænta má tilkynning-
ar um það í dag.
Njósnadeila þessi, þar sem gripið
er til orðfæris kalda stríðsins, kem-
ur upp aðeins sex vikum fyrir for-
setakosningarnar í Rússlandi þar
sem Jeltsín mun fá harða sam-
keppni frá frambjóðanda kommún-
ista, Gennadí Zjúganov. Ýmsir telja
að hávaðinn í kringum málið kunni
að tengjast kosningunum og að
Jeltsín sé að reyna að tryggja sér at-
kvæði þeirra sem til þessa hafa litið
svo á að gömlu andstæðingar Sovét-
ríkjanna hefðu hann í vasa sér.
Rússneski embættismaðurinn
gekk að sögn til liðs við MI6 á miðj-
um áttunda áratugnum og lét af
hendi pólitísk og hernaðarleg leynd-
armál. Hann mun aðeins hafa gert
það fyrir peninga en ekki af hug-
sjónaástæðum. Maðurinn á yfir
höfði sér dauðadóm.
Reuter
Stuttar fréttir
Lokaáfanginn
Lokaáfangi þingkosninganna á
Indlandi hófst í morgun og eru
miklar öryggisráðstafanir um
allt landið.
Rætt við Sýrland
Símon Per-
es, forsætis-
ráðherra ísra-
els, sagði að
hann mundi
taka aftur upp
viðræður við
Sýrlendinga til
að reyna að ná
heildarfriðar-
samningum í Mið-Austurlönd-
um, fari hann með sigur af hólmi
í kosningunum í lok mánaðar-
ins.
Á móti byssum
Yfirgnæfandi meirihluti Ástr-
ala styður bann á sjálfvirkum og
hálfsjálfvirkum byssum í kjölfar
fjöldamorðsins í Port Arthur þar
sem 35 týndu lífi.
Kurteisi á uppleið
Þýskir sérfræöingar í góðum
mannasiðum segja að gæta megi
vaxandi kurteisi 1 samfélaginu.
Gegn hvalveiðum
Náttúruverndarhópar hafa
hvatt stjórn Clintons tU að
þrýsta á Norðmenn um að draga
úr hvalveiðum sínum í ár.
Fyrsti fundur
Ríkisstjórn
Jose Maria Az-
nars, forsætis-
ráðherra Spán-
ar, kernur sam-
an til fyrsta
fundar síns í
dag. Verður
mikUl halli á
ríkisfjármál-
um aöalmál fundarins.
Feildi niður ákærur
Dómari í Whitewater-málinu
felldi niður nokkur ákæruatriði
gegn Susan McDougal, fyrrum
félaga Clintons forseta í viðskipt-
um, en ákærur gegn aðalsak-
borningunum standa óhaggaðar.
Skæðir skógareldar
Skæöir skógareldar eyðilögðu
25 heimili og neyddu þúsundir
manna á á flótta í Nýju-Mexíkó.
Reuter
Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, flutti í gær ávarp á ráðstefnu
kvenna í Stokkhólmi þar sem fjallað er um konur í forustuhlutverki. Um 70
konur frá stjórnsýslu og félagasamtökum ýmissa landa sækja ráðstefnuna
en Vígdís er í forsæti hennar. Símamynd Reuter
Clinton í kosninga-
ferö gegn reykingum