Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAI 1996
Qiveran „
Margrét Stefánsdóttir var nokkuð ánægð með dressið sem dóttir hennar, Þórdís Geirsdóttir, var að máta í Evu á laug-
ardaginn. Þórdís sagðist líka ánægð en kvaðst þó vera svolítið rugluð í ríminu. DV-myndir JAK
Þórdís Geirsdóttir og Margrét Stefánsdóttir á Laugaveginum:
Mæðgurnar mátuðu
útskriftardress
— hún vill hafa mig með, segir móðirin
Fjallhress í Kolaportinu allar helgar:
Er á framfæri eiginkonu
„Þetta byggist allt á minni list,
myndum eftir mig, kistlum sem ég
hef smíðað og málað og svo þessum
miklu ritverkum eftir mig. Ég get
t.d. sýnt þér bók sem ekki hefur
komið út áður og heitir Ævisaga
ræstitæknis (hol trébók sem
geymsla fyrir áfengispela og nokkur
glös - innsk. blm.),“ segir Hjálmar
Jóhannsson og segist vera klósett-
virki eða pípulagningamaður eins
og það heiti nú.
Hjálmar segist hafa selt í Kola-
portinu svo gott sem allar helgar frá
því að portið byrjaði. Hann segist
taka sér jóla- og páskafrí og svoleið-
is en annars sé hann þarna í básn-
um um helgar.
„Þetta gefur manni ekkert nema
ánægjuna og ég er hérna til þess að
halda sæmilegri geðheilsu. Ég er á
framfæri eiginkonu og þarf því ekki
að hafa áhyggjur af því þótt ég selji
ekki alltaf upp í kostnað."
Hjálmar segir Kolaportið án efa
vera vinsælasta göngusvæði bæjar-
ins, fólk komi þarna til þess að
spóka sig en ekki til þess að versla.
-sv
Hjálmar Jóhannsson er ánægður með lífið í Kolaportinu.
Æg er rétt að byrja að skoða og er
að'Kita að útskriftardressi. Þótt ég
sé ánægð með það sem ég er í núna
þá er ég svolítið rugluð í ríminu og
veit ekki alveg hvað ég á að gera,“
segir Þórdís Geirsdóttir, sem út-
skrifast frá Fjólbrautaskóla Suður-
lands á Selfossi nú síðar í mánuðin-
um. Hún var með móður sinni, Mar-
gréti Stefánsdóttir, á Laugaveginum
á laugardaginn, og Tilveran rakst á
þær þar sem þær reyndu að gera
upp hug sinn varðandi græna jakk-
ann og dökka pilsið sem útskrift-
ardress. Tilveran ákvað að nota
góða veðrið og Langan laugardag til
Þeir voru hálfpartinn reknir út í góða veðrið, feðgarnir Auðunn Atlason og III-
ugi, fjögurra ára. Móðir þess síðarnefnda var heima að lesa undir próf og því
var nærveru þeirra ekki óskað um sinn. ísnum og kaffinu var Ijúflega rennt
niður og eftir erlendu blöðin og barnabókarekkann í Eymundsson var pabbi
látinn bera knapann knáa.
Flytja á ný í bæinn frá Súðavík:
Laugavegurinn laðar
þess að kynnast andrúmloftinu sem
skapast á þessum ágæta stað í sum-
arveðri.
Mótaðar skoðanir
Þórdís segir það ráða fatavalinu
hvort henni líði vel í fótunum og
hvort henni finnist hún líta vel út.
„Ég var með nokkuð mótaðar
skoðanir áður en ég fór að heiman
og var nokkuð viss um hvað ég vildi
ekki, bæði í sambandi við lit og
snið, en síðan er svo margt sem vel
kemur til greina. Það er líka erfið-
ara að velja útskriftarfatnað en
margt annað því manni þarf að
finnast hann einhvern veginn svo
viðeigandi," segir Þórdís.
„Hún vill að minnsta kosti hafa
mig með og jú, jú, ég fæ að ráða ein-
hverju," segir móðirin aðspurð
hvort hún hafi eitthvað um valið aö
segja.
„Maður er ekki alveg búinn að
sleppa af þeim hendinni en nú upp
úr þessu fer sjálfsagt að koma að
því. Ég er ánægð með það sem hún
er komin í og við erum komnar á
sporið. Mér finnst þetta ofsalega
gaman og allt sem stendur til með
börnunum er gaman, hvort sem það
er ferming, útskrift eöa eitthvað
annað,“ segir Margrét. -sv
„Við erum
þessa dagana
að flytja I bæ-
inn eftir tólf
ára veru í
Súðavík og
erum bara að
njóta veð-
urblíðunnar
og rifja upp
gamlar minn-
ingar,“ segja
Hilmar Guð-
mundsson og
Sigríður
Kristjánsdóttir. Þau segja alltaf
gaman að rölta Laugaveginn og
segjast ekki hafa komið til þess að
versla þótt þau hafi laumast til þess
að kaupa örlitið á barnabarnið.
„Þegar veðrið er gott hefur það
mikið að segja að geta verið úti í
stað þess aö hýrast inni í einhverri
verslunarmiðstöð. Ég hef stundum
velt því fyrir mér af hverju ekki sé
búið að byggja yfir Laugaveginn en
því er fljótsvarað á svona góðum
degi. Það þyrfti bara að loka fyrir
umferöina og setja út meira af stól-
inn og borðum svo fólk geti sest nið-
ur og spjallað og fengið sér kaffi í
rólegheitum," segir Hilmar.
-sv
Beðið eftir kosningakaffi
Þau sögðust ekki hafa neinar
svalir heima hjá sér og því yrðu þau
að njóta sólarinnar á kaffihúsi.
Veðrið skipti annars ekki máli þeg-
ar kaffihúsið væri annars vegar.
Þegar það er gott er ljúft að sitja úti
og láta sólina baka sig en þegar kalt
er úti er jafnljúft að sitja inni í hlýj-
unni, sötra kaffi, spjalla við vini og
kunningja og skoða mannlífið. Von-
andi bara að kaffið verði boðið frítt
fyrst verið er að opna kosninga-
skrifstofur á svæðinu. Viðar Hákon
Gíslason, Ragnheiður Gísladóttir,
ekki systir Viðars, og Emilfa Krist-
ín Eiríksdóttir í góðum gír á Aust-
urvelli um helgina.
-sv