Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Blaðsíða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
23
Iþróttir r>v dv
Knattspyrna:
Cantona
kyrr hjá
Man. Utd
Franski knattspyrnumaður-
inn Eric Cantona lýsti því yfir í
gær að hann myndi leika áfram
með Manchester United, daginn
eftir að hann fagnaði enska
meistaratitlinum með félögum
sínum.
„Ég hef skrifað undir og það
geri ég til að reyna að endur-
gjalda Alex Ferguson það sem
hann og félagar mínir gerðu fyr-
ir mig. Þeir studdu við bakið á
mér þegar ég var settur i leik-
bann. Það mun ekkert lið stöðva
okkur, viö ætlum okkur að
vinna tvöfalt og gera enn betur í
Evrópukeppninni að ári,“ sagði
Cantona í gær.
Le Tissier áfram
hjá Southampton
Allt bendir til þess að Matt-
hew Le Tissier leiki áfram með
Southampton fyrst liðið hélt sæti
sínu í úrvalsdeildinni. „Þetta
hefur verið eitt erfiðasta tímabil-
ið mitt en ég verð örugglega
áfram hjá Southampton og mæti
ferskur til leiks á næstu leiktíð,"
sagði Le Tissier í gær.
Redknapp ætlar
í toppbaráttuna
Harry Redknapp, fram-
kvæmdastjóri West Ham, ætlar
sér stóra hluti á næsta tímabili.
„Ég ætla að kaupa 3-4 leikmenn
fyrir næsta tímabil og taka þátt í
baráttunni um meistaratitilinn,"
sagði Redknapp í gær.
Kinkladze og
Rösler frá City?
Aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir að Manchester
City féll úr úrvalsdeildinni
hafði umboðsmaður Þjóðverjans
Uwe Röslers og Georgíumanns-
ins Georgi Kinkladze sambandi
við Francis Lee, stjórnarfor-
mann City. Hann gaf í skyn að
tvímenningarnir færu frá félag-
inu. Kinkladze hefur verið orö-
aður við AC Milan og Rösler við
Bayern Múnchen og lið í
Englandi.
NBA-deildin:
Gary Payton
bestur í vörn
Gary Payton, leikmaður
Seattle Supersonics, var í gær út-
nefhdur besti varnarmaður
NBA-deildarinnar á yfirstand-
andi keppnistímabili.
Payton, sem stal 2,85 boltum
að meðaltali í leik í vetur, hafði'
nokkra yfirburði, hlaut 56 af 113
atkvæðum. Scottie Pippen,
Chicago Bulls, varð annar í kjör-
inu og hlaut 15 atkvæði. Dikem-
be Mutombo, leikmaður Denver
Nuggets, sem var kosinn besti
varnarmaðurinn í NBA í fyrra,
varð þriðji og hlaut 13 atkvæði.
Alls fengu 10 leikmenn eitt at-
kvæði eða meira. Þeirra á meðal
voru David Robinson, SA Spurs,
með 9 atkvæði, Hakeem Ola-
juwon, Houston Rockets, með 8
atkvæði, Michael Jordan, Chi-
cago Bulls, meö 7 atkvæði og fé-
lagi hans, Dennis Rodman, sem
hlaut 4 atkvæði.
-SK
Draumalið
DV
- sjá bls. 24
Úrslitakeppni NBA í nótt:
Seattle með
góða stöðu
- eftir annan sigurinn gegn Houston
Eins og staðan er orðin fyrir
meistara Houston Rockets bendir
fátt til þess að liðinu takist að verja
titilinn að þessu sinni. í nótt biðu
meistararnir annan ósigurinn í röð
fyrir Seattle, 105-101.
Fyrstu tvær viðureignirnar fóru
fram í Seattle og nú verður haldið
til Hosuton þar sem næstu tvær
viðureignirnar verða. Það lið sem
verður fyrra til að vinna þrjá leiki
heldur áfram.
Þrátt fyrir ósigurinn í nótt var
allt annað að sjá til Hosuton-liðsins
en í fyrri leiknum þar sem liðið
fékk háðulega útreið. Houston virð-
ist engan veginn ná sér á strik í
Seattle en þetta var 11. tapið þar í
röð síðan 1994.
Seattle-liðið er óhemju sterkt og
til alls líklegt í úrslitakeppninni.
Liðið lék á köflum skínandi vel en
það var öðru fremur frábær hittni
sem færði liðinu sigurinn. 20 skot af
þriggja stiga svæðinu rötuðu rétta
leið og er það met í úrslitakeppni
NBA.
Rúmum tveimur mínútum fyrir
leikslok var Seattle yfir, 100-99, en
þriggja stiga karfa frá Sam Perkins
gaf tóninn á lokasprettinum.
Stigahæstir hjá Seattle voru
Detlef Schrempf með 21 stig og Gary
Payton skoraði 18 stig. Hann átti
stórleik í vörninni og hélt Hakeem
Olajuwon niðri. Það kom því fáum á
óvart að Payton var útnefndur varn-
armaður ársins í NBA í gær.
Clyde Drexler var atkvæðamestur
hjá Houston meö 19 stig og Hakeem
Olajuwon skoraði 17 stig. Alls skor-
aði Houston 13 stig og samanlagt
voru 33 þriggja stiga körfur skorað-
ar. Fyrra metið samtals var í leik
Houston og Utah í fyrra, alls 28.
Vorum heppnir að vinna
„Við vorum heppnir að vinna
þennan leik. Þeir slógu okkur út af
laginu í sóknarleiknum en sem bet-
ur fór spiluðum við okkar eðlilegu
vöm og náðum að þagga niður í
þeim að lokum,“ sagði Michael Jor-
dan eftir nauman sigur Chicago á
New York, 91-84, í fyrsta leik lið-
anna í 2. umferð I fyrrakvöld.
„Við börðumst vel og áttum sig-
urmöguleika í síðasta leikhluta. En
við verðum að spila enn betur ef við
ætlum að sigra Chicago," sagði Jeff
Van Gundy, þjálfari New York.
Stig Chicago: Jordan 44, Pippen
11, Longley 8, Kerr 8, Kukoc 7,
Harper 4, Rodman 3, Brown 2,
Wennington 2, Buechler 2.
Stig New York: Ewing 21,
Harper 19, Oakley 14, Mason 12,
Davis 8, Starks 4, Ward 4, Reid 2.
-JKS/VS
Julian Duranona gæti orðið íslenskur
ríkisborgari um miðjan þennan mán-
uð og þá er Ijóst að Þorbjörn Jensson
bíður ekki lengi með að velja hann í
landsliðið. DV-mynd ÞÖK
Beðið eftir ákvörðun Alþingis varðandi ríkisfang Duranona:
Þorbjörn bíöur
og vonast eftir
að fá Duranona
Samkvæmt heimildum DV eru
töluverðar líkur á því að Julian
Duranona, sem lék með handknatt-
leiksliði KA á síðustu leiktíð, öðlist
islenskan ríkisborgararétt um miðj-
an þennan mánuð er Alþingi tekur
afstöðu í máli hans.
Margir aðilar hafa lagt töluverða
vinnu í að undirbúa mál Kúbu-
mannsins fyrrverandi og telja þeir
sem unnið hafa að málinu að allt sé
I raun búið að gera sem hægt er og
einungis sé beðið niðurstöðu Al-
þingis og allsheijamefndar þings-
ins.
„Bíðum og vonum“
Varla þarf að fara um það mörg-
um orðum hve mikill styrkur það
yrði fyrir íslenska landsliðið í
handknattleik og íslenskan hand-
knattleik yfirleitt, ef Duranona
fengi ríkisborgararéttinn. Það er
talið auka mjög líkumar á að Al-
þingi takí jákvætt í umsókn hans
aö Duranona er landlaus sem stend-
ur. Sumir viðmælenda DV sögðu í
gær að það jaðraði hreinlega við
mannréttindabrot fengi Duranona
ekki ríkisborgararéttinn að þessu
sinni.
„Við bíðum og vonum. Maðurinn
er landlaus og þetta er því mann-
réttindamál,“ sagði Alfreð Gíslason,
þjálfari KA, í samtali við DV í gær.
„Auðvitað er Duranona í
landsiiðsklassa“
„Ég held að allir sem málið snert-
ir hafi verið að vinna að þessu og
það verður gaman að sjá hver út-
koman verður. Eins og staðan er i
dag er Julian Duranona auðvitað
frábær leikmaður sem ég myndi að
sjálfsögðu hafa áhuga á að nota i
landsliðinu í dag. Annars vil ég
ekki vera með of miklar yfírlýsing-
ar því ég vil ekki binda hendur
mínar of mikið hvað varðar val á
landsliðinu í framtíðinni," sagði
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari í
samtali við DV í gær.
„Auðvitað hefur Duranona verið
í landsliðsklassa allt síðasta leik-
tímabil og hann myndi örugglega
styrkja landsliðið gífurlega í kom-
andi stórverkefnum í haust. Það
yrði mjög gott ef hægt væri að af-
greiða þetta mál í þessum mánuði
og fá það frá. Ég myndi þá boða
Duranona á landsliðsæfingar og
velja hann í hópinn sem kemur
saman til æfinga þann 10. júní.
Hann gæti þá tekið þátt í undirbún-
ingi liðsins og þá myndi ég sjá
hvemig hann smellur inn í lands-
liðshópinn," sagði Þorbjörn enn
fremur.
Beðið eftir ákvörðun
Aiþingis
Ákveðnar reglur eru í gildi varð-
andi erlenda ríkisborgara sem óska
eftir því að fá íslenskt ríkisfang.
Viðkomandi þarf þá að hafa búið
hér á landi í nokkur ár en öðru
máli gegnir um Duranona þar sem
hann er landlaus og hefur í dag ekk-
ert ríkisfang. Alþingi hefur það því
í hendi sér að gera þennan stórkost-
lega íþróttamann að íslendingi áður
en undirbúningur landsliðsins hefst
fyrir mjög mikilvæg verkefni í
haust. -SK
Tony Yeboah hjá Leeds:
„Ykkur var nær“
Tony Yeboah, Ghanamaðurinn hjá Leeds United, sér
nú á eftir sínum gömlu félögum í þýska liðinu
Eintracht Frankfurt á leið í 1. deildina þýsku. Fallið
blasir við Frankfurt, en liðið hefur aldrei fallið síðan
keppni hófst í úrvalsdeildinni árið 1963.
Og Yeboah, sem seldur var til Leeds í fyrra, er kok-
hraustur og með skýringu á slöku gengi Frankfurt í
vetur á reiðum höndum:
„Mig tekur það mjög sárt að sjá á eftir Frankfurt í 1.
deildina. Ég held að þeir hljóti að sjá hve stór mistök
það voru að selja tvo bestu leikmenn liðsins. Félaginu
var nær að selja okkur ekki til Englands og liðið er nú
að gjalda fyrir þessi mistök,“ sagði Yeboah, fyrrver-
andi fyrirliði Frankurt, en hann var látinn fara til
Leeds eftir ósætti við þjálfara Frankfurt, Jupp
Heynckes. Auk hans var Maurizio Gaudino lánaður frá
Frankfurt til Man City.
Yeboah telur það hafa verið gott fyrir sig að fara til
Englands: „Ég held að ég hafi staðið mig ágætlega frá
því ég kom til Leeds. Það eru margir snjallir erlendir
leikmenn að koma inn í ensku knattspyrnuna og bolt-
inn hér er stöðugt að breytast til hins betra,“ sagði
Tony Yeboah sem missti af síðasta Jeik Leeds vegna
meiðsla en hann horfði á Man. Utd innbyrða titilinn á
írskri krá í Frankfurt.
-SK
Birkir fékk bestu einkunnirnar þrátt fyrir 10-0 tap:
Aldrei spilað á
móti betra liði
Þó ótrúlegt megi virðast fær Birk-
ir Kristinsson markvörður bestu
einkunn leikmanna Brann í norsku
dagblöðunum eftir 10-0 útreiðina
sem liðið fékk gegn Rosenborg í úr-
valsdeildinni á sunnudaginn.
Dagbladet gengur lengst og gefur
Birki 5 í einkunn á meðan aðrir
leikmenn liðsins fá 1 og 2. Verdens
Gang gefur Birki 4 en öðrum í lið-
inu 1 til 3 og ljóst er að öðrum en ís-
lenska landsliösmarkverðinum er
kennt um ófarirnar.
Birkir segir í viðtali við Verdens
Gang að hann hafi aldrei fengið
aðra eins útreið á sínum ferli og
Rosenborg sé besta lið sem hann
hafi nokkru sinni leikið á móti.
„Og þó hef ég spilað á móti Barce-
lona, Aberdeen og Panathinaikos.
Með Fram lék ég á móti Barcelona
og við töpuðum 0-5. Það var mikið
verra að eiga við Rosenborg sem er
ótrúlega sterkt lið,“ segir Birkir.
Bætti met Bjarna Sigurðs-
sonar
Blaðamaður Verdens Gang
minnti Birki á að landi hans, Bjarni
Sigurðsson, hefði upplifað svipaða
reynslu þegar hann stóð í marki
Brann á sama velli fyrir tveimur
árum og Rosenborg vann, 9-0. Því
svaraði Birkir með bros á vör: „Ég
verð að hringja í Bjarna og segja
honum að ég hafi bætt metið hans!“
Ætluðum að spila sóknarleik
Norsku blöðin leita skýringa á
ófórunum. Claus Eftevaag, fyrirliði
Brann, segir við Bergens Avis að
önnur lið eigi ekki eftir að fá slíkan
skell gegn Rosenborg. „Aðrir læra
af mistökum okkar og fara til
Þrándheims til að spila varnarleik.
Við ætluðum að spila sóknarleik og
vorum fullákafir. Þar með óðu leik-
menn Rosenborg yfir okkur úr öll-
um áttum. Þeir voru bæði góðir og
heppnir og það gekk allt upp hjá
þeim,“ segir Eftevaag.
Ágúst Gylfason kom inn á sem
varamaður hjá Brann en honum var
skipt inná fyrir Eftevaag í leikhléi.
Ágúst fékk einna skástu einkunnir
af útispdurum Brann í blöðunum.
Haraldur konungur
Þess má geta að Harald Bratt-
bakk, sem skoraði 5 mörk fyrir Ros-
enborg í leiknum, er kadaður „Har-
aldur konungur" í Dagbladet. Ver-
dens Gang gefur honum 10 í ein-
kunn en slíka sparieinkunn hefur
blaðið aðeins einu sinni gefið áður
síðustu 20 árin og 9 sinnum alls á 35
árum.
-VS
Breiðablik og
Valur í úrslit
Það verða Breiðablik og Valur sem leika
til úrslita í fyrstu deildabikarkeppni
kvenna í knattspyrnu á fimmtudagskvöld-
ið eftir sigra í undanúrslitaleikjunum á Ás-
völlum í Hafnarfirði í gærkvöldi.
Valur sigraði KR, 5-3, eftir framlengingu
og vítaspyrnukeppni en staðan var 2-2 að
leik loknum. Kristbjörg Ingadóttir gerði
bæði mörk Vals en Olga Færseth og Ólöf
Helgadóttir svöruðu fyrir KR.
Breiðablik vann ÍA, 6-1. Stojanka Niko-
lic 2, Katrín Jónsdóttir 2, Erla Hendriks-
dóttir og Sigríður Hjálmarsdóttir skoruðu
fyrir Breiðablik en Áslaug Ákadóttir fyrir
ÍA.
-VS
Hendry heimsmeistari
Stephen Hendry varð heimsmeistari í
snóker í sjötta skipti í gærkvöldi þegar
hann sigraði Peter Ebdon, 18-12, í úrslita-
leik í Sheffield á Englandi.
Stórsigur Hammarby
Pétur Marteinsson og félagar í Hammar-
by unnu stórsigur á Einari Brekkan og fé-
lögum í Sirius, 0-4, í sænsku 1. deddinni í
knattspyrnu í gærkvöldi. Pétur lagði upp
eitt marka Hammarby. Liðið er efst í norð-
urriðli 1. deildar með 9 stig eftir 3 leiki.
Sirius er með 3 stig eftir tvo leiki. -VS
IHF hefur staðfest undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM í Japan 1997:
„ Ekkert nema sæti á
HM kemur til greina“
- segir Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari og hann er bjartsýnn
Það kemur í ljós í byrjun
desember í haust hvort fs-
land fær keppnisrétt í
næstu heimsmeistara-
keppni í handknattleik sem
fram fer í Kumamoto í Jap-
an eftir slétta 12 mánuði.
f haust hefst keppni 20
Evrópuþjóða um fimm laus
Evrópusæti á HM í Japan
þar sem keppt verður í
fimm fjögurra liða riðlum
þar sem leikið verður
heima og heiman. Liðin
sem sigra I riðlunum öðlast
keppnisrétt á HM í Japan.
Lokakeppni Evrópu-
keppninnar er fram undan
á Spáni og það er ekki fyrr
en henni lýkur að ljóst verð-
ur hvaða lið skipa riðlana í
haust og hverjir mótherjar
íslendinga verða.
Undirbúningur hefst
þann 10. júní
íslenska landsliðið hefur
undirbúninginn fyrir átök-
in í haust með æfingum
þann 10. júní. Æft verður út
júní en um mánaðamótin
júní/júlí verður farið til
Sviss og þar leika þjóðirnar
tvo æfingaleiki.
Eftir þessa tvo leiki verð-
ur fri hjá landsliðsmönnun-
um og raunar lítið um verk-
efni fyrr en fjórum til fimm
dögum fyrir undankeppni
Evrópuþjóðanna fyrir
heimsmeistarakeppnina í
Japan.
Fyrstu leikirnir í haust
fara fram um mánaðamótin
september/október, þá um
mánaðamótin október/nóv-
ember og loks um mánaða-
mótin nóvember/desember.
Leikið verður á miðviku-
dögum og síðan fara síðari
leikirnir fram strax helgina
á eftir.
„Við eigum mjög góða
möguleika"
„Það er ljóst að við fáum
eitt af fimm Evrópuliðum
sem ekki komast áfram í úr-
slitum Evrópukeppninnar á
Spáni sem er fram undan.
Að ödu eðldegu ætti það að
vera sterkasta liðið í riðlin-
um en við síðan næststerk-
astir.
Við eigum því góða
möguleika á að ná efsta sæt-
inu og að því verður stefnt.
í raun kemur ekkert annað
td greina og það eru adir á
því að ná þessu takmarki og
tryggja okkur keppnisrétt í
heimsmeistarakeppninni i
Japan að ári.
Staðfesting frá IHF
- Oft hefur reglum verið
breytt hjá IHF varðandi
keppnisrétt og fyrirkomu-
lag. Ert þú sannfærður um
að þetta verði svona?
„Við höfum nýlega fengið
bréf frá IHF, þar sem þetta
er staðfest. Þetta er því al-
veg öruggt og svona verður
framvindan næstu mánuði.
Möguleikar okkar á að vera
á meðal þátttakenda á
næsta heimsmeistaramóti
eru góðir og ég er bjartsýnn
á að okkur takist að vinna
okkur rétt td að leika á HM
í Japan,“ sagði Þorbjörn
Jensson. Og hann bætti við:
„Og það er alveg öruggt mál
að ef Julian Duranona fær
íslenskan ríkisborgararétt
munu möguleikar okkar
aukast enda er þar frábær
leikmaður á ferð.“
-SK
w , , t ■ $ í 11
k 1 -w. ._■ 1
% 1
If .
S' , 9' Rf
?!
1 f i
n |
* JWé f!
s ii
\ * li
Ólafur Guðmundsson sigraði í Fairfax, setti persónulegt met og bætti sig í tveimur
greinum í tugþrautinni.
Olafur sigraði og setti
persónulegt met
Ólafur Guðmundsson sigraði af
öryggi á tugþrautarmóti í Fairfax í
Bandaríkjunum um helgina og náði
jafnframt sínum besta árangri í
greininni. Ólafur fékk 7.201 stig og
bætti sig um 28 stig en þetta er
fimmti besti árangur íslendings í
tugþraut.
Ólafur bætti sig jafnframt í tveim-
ur greinum en hann hljóp 100 metra
á 10,83 sekúndum og stökk 4,20
metra í stangarstökki.
Jón Arnar Magnússon tók þátt í
tveimur greinum á móti í Athens
um helgina. Þar náði hann sínum
langbesta árangri í 1.500 metra
hlaupi sem hingað td hefur verið
hans Akkdesarhæll í tugþrautinni.
Jón Arnar hljóp vegalengdina á
4:40,46 mínútum og bætti sig um
rúmar 11 sekúndur. Þá náði Jón
Arnar góðum árangri í spjótkasti og
þeytti spjótinu 61,98 metra.
Þeir Ólafur og Jón Arnar dvelja
ásamt Theodóri Karlssyni við æf-
ingar í Athens. Þeir koma heim síð-
ar í mánuðinum og taka þátt í ís-
landsmótinu í tugþraut en þar
ræðst- hverjir keppa fyrir íslands
hönd í 1. dedd Evrópukeppninnar í
tugþraut sem háð verður í TaUinn í
Eistlandi um miðjan júní.
-VS
íþróttir
Deildabikarinn:
Tveir leikir
í kvöld
Úrslitakeppnin í deildabikar
karla í knattspyrnu heldur
áfram í kvöld. ÍBV og Fram leika
á Helgafellsvedi í Vestmannaeyj-
um klukkan 19 og Breiðablik
mætir Fylki á Smára-
hvammsvelli í Kópavogi klukk-
an 19.30. Varla þarf að taka fram
að um grasvelli er að ræða á báð-
um stöðum.
Fram og ÍA á
Valbjarnarvelli
Nú hefur verið ákveðið að
leikur Fram og ÍA í deildabik-
arnum á föstudagskvöldið fari
fram á Valbjarnarvelli í Laugar-
dal. Það verður fyrsti grasleikur-
inn í Reykjavík í ár og hann
hefst klukkan 19.
Petrún best
á Austurlandi
DV, Seyðisfiröi:
Petrún Björg Jónsdóttir, fyrir-
liði íslandsmeistara Þróttar úr
Neskaupstað í blaki, var á laug-
ardaginn útnefnd íþróttamaður
UÍA 1995. Það var gert á aðal-
fundi UÍA á Seyðisfirði. Á fund-
inum var Einar Már Sigurðsson
endurkjörinn formaður UÍA
ásamt allri aðalstjórn sambands-
ins.
-JJ
Bestu lið Noröur-
landa mætast í
Stokkhólmi
Öflugt handknattleiksmót með
þátttöku 1. deildar liða karla og
kvenna af öllun Norðurlöndun-
um verður haldið í Stokkhólmi
dagana 23.-25. ágúst í sumar.
Peningaverðlaun verða veitt fyr-
ir þrjú efstu sætin og fær sigur-
liðið í karlaflokki um 450 þúsund
krónur í sinn hlut en sigurliðið í
kvennaflokki um 300 þúsund
krónur. Öllum íslenskum 1.
deildar liðum, karla og kvenna,
býðst að taka þátt í mótinu. Úr-
val-Útsýn er umboðsaðili móts-
ins hér á landi og veitir um það
nánari upplýsingar.
Einar keppir á
Varmárvelli
Fyrsta frjálsíþróttamót utan-
hússtímabilsins verður háð á
Varmárvelli í Mosfellsbæ í
kvöld. Það er raðmót Breiðabliks
og keppt verður sex greinum
karla og kvenna, og þá verður
spjótkast karla aukagrein en þar
verður Einar Vilhjálmsson á
meðal keppenda. Mótið hefst
klukkan 18.30.
Þórður lék vel
og Bochum
vann stórsigur
Þórður Guðjónsson kom inn á
sem varamaður í síðari hálíleik
er Bochum vann stóran sigur á
Wattenscheid i 1. deild þýsku
knattspyrnunnar í gærkvöldi.
Þórður lék mjög vel með liði
sínu sem sigraði 3-1 á útivelli og
er öruggt í efsta sæti með 61 stig
en næsta lið er með 47 stig.
-SK
Víðir meistari
Víðismenn urðu í gærkvöldi
Suðurnesjameistarar í knatt-
spyrnu þegar þeir geröu 0-0 jafn-
tefli við 1. deildar lið Grindvík-
inga. Víðismenn hafa lokið sín-
um leikjum og er.u með 10 stig en
Grindavík er með 5 stig og á
einn leik eftir.