Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Qupperneq 21
I ÞRIÐJUDAGUR 7. MAI 1996 25 DV íþróttir unglinga Sænsk kynning á hjólastólatennis í Tennishöllinni: Johan Haglund sýndi ótrúlega kunnáttu - hraði Svíans og kraftur kom verulega á óvart Kynning á hjólastólatennis fór fram í Tennishöllinni í Kópavogi sl. sunnudag. Til landsins voru komnir góðir gestir frá Svíþjóð á vegum íþróttasambands fatlaðra, þeir Jo- han Haglund, sem er sænskur meistari í hjólastólatennis, og Stig Ericson, en hann skipuleggur íþrótt- ina í Svíþjóð. Hjólastólatennis er mjög vinsæl íþrótt víða erlendis en hefur ekki verið stunduð hér á landi. Byrjað var að leika þessa íþrótt í Banda- ríkjunum 1977 og í dag eru um 40 Umsjón Halldór Halldórsson lönd sem tilheyra Alþjóða hjóla- stólasambandinu (IWTF), In- ternational Wheeal Tennis Feder- ation, sem er deild innan Alþjóða tennissambandsins. Koma Johans Haglunds mikil hvatning „Hjólastólatennis er mjög skemmtileg íþrótt og er spiluð að öllu leyti eftir alþjóðlegum reglum í tennis nema einni, sem er að bolt- inn má hoppa tvisvar á velli mót- takanda. Það sem einnig er athyglis- vert er að sá sem er í stól getur æft og keppt gegn standandi spilara. Það má með sanni segja að Johan Haglund hafi komið, séð og sigrað, því menn áttu bágt með að trúa sín- Frá vinstri: Hjálmar Kr. Aðalsteinsson, Anna Katrín Vilhjálmsdóttir, Stig Ericsson, Ólafur Magnússon þjálfari og fyr- ir framan er Johan Haglund. um eigin augum er þeir sáu hann leika listir sínar. Tæknin hjá hon- um og yfirsýn var hreint út sagt ótrúleg - og er ég viss um að koma hans hingað á eftir að verða mikil hvatning til okkar að byrja að æfa og spila þessa stórskemmtilegu íþrótt,“ sagði Hjálmar Kr. Aðal- steinsson, stjórnarmaður í Tennis- sambandi íslands.Ljóst er að þessi tennissýning á eftir að hafa mikil áhrif á þróun íþrótta fyrir fatlaða hér á landi. Dv-myndir S Ice-Cup mót FH í handbolta: Stjarnan frábær á lce-Cup móti FH - vann í 3. flokki og var leikgleðin í fyrirrúmi Stjörnustrákarnir í 3. flokki sigruðu í Ice-Cup, alþjóðlegu handboltamóti FH sem fór fram um páskana. Liðið setti skemmti- legan svip á mótið með mikilli leikgleði og skemmtilegum fagn- aðarlátum í leikjum hvernig sem gekk. Einnig voru upphitanir strákanna til mikillar fyrirmynd- ar enda gekk þeim mjög vel. Liðið byrjaði 1 3. deildinni á þessu leik- ári en endaði meö góðum árangri, náði í úrslitakeppnina og í undan- úrslit í bikarkeppninni. í Ice-Cup mótinu vann það með- al annars þýska liðið Wainstadt frá Þýskalandi, 18-1. „Þennan góða árangur liðsins í vetur má að mestu leyti þakka Dimitri Filippov og Guðbrandi Benediktssyni, aðalþjálfara liðs- ins. Þess má og geta að aðeins tveir leikmenn ganga upp í 2. flokk og ætti liðið því að mæta sterkt til leiks á næsta keppnis- tímabili," sögðu drengirnir. Svona til gamans má og geta þess að Bjöm Másson var valinn besti sóknarmaður 3. flokks liða á Ice-Cup mótinu. Stjörnuliðið snjalla í 3. flokki karla. Liðið er þannig skipað: Kristinn Más- son (1), Boði Gauksson (2), Magnús Pétursson (3), Páll Kristjánsson (4), Ottó Sigurðsson (5), Ingvar Arnarson (9), Páll Erlendsson (10), Jóhannes Jóhannesson (11), Björn Másson (13), Magnús Heimis (14) og Helgi Jóns- son (17) fyrirliði. Þjálfarar: Guðbrandur Benediktsson og Sigurður Bjarna- Johan Haglund á fullri ferð og undruðust menn hinn mikla skotkraft hans. Frá úrslitaieik í körfubolta milli Keflavíkur og KR í 9. flokki karla 16. apríl í Laugardalshöll. Keflavík sigraði nokkuð örugglega, 69-47. KR-strákarnir unnu Keflavík aftur á móti í úrslitaleiknum í bikarkeppninni. Nánar síðar. DV-mynd Hson „ Sund: Island í 5. sæti - Örn með 3 gull ísland varð í 5. sæti í stiga- keppni þjóðanna á mjög sterku unglingamóti í Lúxemborg með keppendur frá 16 þjóðum. Alls um 400 þátttakendur mættu til leiks en mótið fór fram 12.-14. apríl. Piltar f. ’81: Örn Arnarson SH 400 m skriðsund...1. sgeti: 4:17,10 100 m baksund.....1. sæti: 1:02,04 200 m baksund....1. sæti: 2:11,95 Tómas Sturlaugsson Ægi 400 m skriðsund...4. sæti: 4:20,29 200 m skriðsund...5. sæti: 2:04,04 200 m baksund....6. sæti: 2:24,49 Piltar f.’80: Ómar Friðriksson SH 400 m skriðsund...7. sæti: 4:20,90 200 m skriðsund...9. sæti: 2:04,51 Stúlkur f. ’81: Lára Bjargard Ægi 400 m skriðsund...4. sæti: 4:40,78 200 m skriðsund...5. sæti: 2:12,26 200 m fjórsund....4. sæti: 2:31,74 100 m flugsund....7. sæti: 1:10,16 Halldóra Þorgeirsdóttir Ægi 100 m bringusund ... 3. sæti: 1:18,64 200 m fjórsund....7. sæti: 2:38,67 200 m bringusund ... 3. sæti: 2:50,16 Stúlkur f. ’83: Kolbr. Krist- jánsdóttir ÍA 100 m baksund.....1. sæti: 1:10,66 200 m baksund.....2. sæti: 2:30,42 100 m skriðsund...4. sæti: 1:03,83 Hanna B. Konráðsdóttir Keflavík 100 m baksund.....7. sæti: 1:14,66 100 m flugsund....7. sæti: 1:14,46 100 m skriðsund...7. sæti: 1:05,94 Stúlkur f.’82: Gígja Árnad. UMFA 100 m bringus....11. sæti: 1:22,64 200 m bringusund ... 6. sæti: 2:55,86 100 m flugsund....7. sæti: 1:12,57 Handbolti, 6. fl: Haukar og KA- menn tóku gullið Úrslitakeppnin í 6. flokki karla fór fram 12., 13. og 14. apr- íl. Haukar sigruðu I keppni A- liða. KA- menn sigruðu síðan bæði í B- og C- liði. Röð þátt- tökuliða var annars eftirfarandi. 6. flokkur - A-lið: 1. sæti 2. sæti . . . Fjölnir 3. sæti .. . Selfoss 5. sæti FH 6. sæti .... Fram 7. sæti KR 8. sæti . . . Grótta íslandsmeistari: Haukar. 6. flokkur - B-lið: 1. sæti KA 2. sæti FH 3. sæti . . Haukar 4. sæti . . . fjjölnir . Víkingur .... Fram 7. sæti IR 8. sæti HK íslandsmeistari: KA. 6. flokkur - C-lið: 1. sæti KA 2. sæti Víkingur 3. sæti FH 4. sæti KA 5. sæti Haukar 6. sæti ÍR 8. sæti Fíölnir Islandsmeistari: KA Handbolti: íslandsmeistarar yngri f lokka 1996 Úrslitaleikir í yngri flokkum í handbolta fóru fram í gær í íþróttahúsum FB í.Breiðholti og á Seltjarnarnesi. Meistarar urðu eftirtalin félög. Karlaflokkar: 4. flokkur (B): FH. 4. flokkur (A): ÍR. 3. flokkur: KA. 2. flokkur: FH. Kvennaflokkar: 4. flokkur (B): KR. 4. flokkur (A): ÍR. 3. flokkur: ÍR. 2. flokkur: Val- ur. - nánar síðar í DV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.