Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Qupperneq 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
Afmæli
Sigurmar Kristján Albertsson
Sigurmar Kristján Albertsson
lögfræðingur, Fjólugötu 7, Reykja-
vík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Sigurmar fæddist á Siglufirði.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1966, embættisprófí í lögfræði frá
HÍ 1972, stundaði framhaldsnám 1
alþjóðlegum einkamálarétti við
Stokkhólmsháskóla 1972-73, öðlað-
ist hdl.-réttindi 1977 og hrl.-rétt-
indi 1987.
Sigurmar var fulltrúi hjá toll-
stjóranum í Reykjavík og jafn-
framt yfirborgarfógetanum f
Reykjavík 1973-79 og hefur starf-
rækt eigin málflutningsskrifstofu
í Reykjavík frá 1979.
Sigurmar sat í fyrstu stjórn
Verðandi, félags vinstrisinnaðra
stúdenta, var varaformaður í
stjórn Stúdentaráðs HÍ 1970-72,
sat í stjórn SÍNE 1973-74 og er
varaformaður Lögmannafélagsins
frá 1995.
Fjölskylda
Sigurmar kvæntist 28.2. 1970
Margréti Elíasdóttur, f. 13.12. 1946,
listhönnuði. Þau skildu.
Sambýliskona Sigurmars er Álf-
heiður Ingadóttir, f. 1.5.1951, líf-
fræðingur og blaðamaður. Hún er
dóttir Inga Ragnars Helgasonar, f.
1924, hrl. og forstjóra Brunabóta-
félags íslands, og f. k. h., Ásu
Guðmundsdóttur, f. 1927, d. 1962,
hannyrðakonu.
Sonur Sigurmars og Álfheiðar
er Ingi Kristján, f. 12.2. 1991.
Systkini Sigurmars eru Andrea
Guðrún Albertsdóttir, f. 12.11.
1947, d. 18.8. 1951; Guðmundur Jón
Albertsson, f. 13.10.1951, deildar-
stjóri hjá VÍS, búsettur í Reykja-
vik; Óskar Helgi Albertsson, f. 8.7.
1954, deildarstjóri hjá Skattstof-
unni á Akureyri.
Foreldrar Sigurmars eru Óskar
Albert Sigurðsson, f. 20.5. 1918,
sjómaður, vélstjóri og síðar verka-
maður á Siglufirði, og Guðborg
Franklinsdóttir, f. 5.5. 1924, hús-
móðir á Siglufirði.
Ætt
Albert er sonur Sigurðar Jóns,
formanns á Litlahóli og á Mói á
Upsaströnd, bróður Gunnlaugs,
langafa Arnar og Bjarka Gunn-
laugssona knattspyrnumanna. Sig-
urður Jón var sonur Guðjóns, b. í
Sauðanesi og í Mói, Jóhannsson-
ar, b. á Þverá í Skíðadal, Jónsson-
ar. Móðir Guðjóns var Sólveig,
húsfreyja í Ytra-Garðshorni, Jóns-
dóttir, b. í Syðra-Garðshorni,
Jónssonar. Móðir Sigurðar Jóns
var Sigurlína Sæunn Sigurðar-
dóttir, b. í Miðkoti, Jónssonar.
Móðir Sigurlínu var Helga Símon-
ardóttir.
Móðir Alberts var Anna Sigurð-
ardóttir, b. á Klaufabrekkum, Þor-
kelssonar, og Margrétar Pálsdótt-
ur.
Guðborg br dóttir Franklíns, b.
í Litla-Fjarðarhorni í Fellshreppi
á Ströndum, Þórðarsonar, hrepp-
stjóra i Stóra-Fjarðarhorni, Sig-
urðssonar, b. í Felli, Sigurðsson-
ar. Móðir Þórðar var Guðbjörg
Magnúsdóttir. Móðir Franklíns
var Sigríður, ljósmóðir í Stóra-
Fjarðarhorni, Jónsdóttir, b. i
Stóra-Fjarðarhorni, Tómassonar,
b. í Tungugröf í Kirkjubólshreppi,
Tómassonar. Móðir Jóns var Hall-
bera Jónsdóttir frá Stóra-Fjarðar-
horni. Móðir Sigríðar ljósmóður
var Guðný Gísladóttir, b. á
Broddadalsá og í Miðhúsum, Arn-
finnssonar, og Guðnýjar Árnadótt-
ur frá Hömrum í Haukadal í Döl-
um.
Móðir Guðborgar var Andrea
Jónsdóttir, b. á Hamri og í Mið-
húsum, Andréssonar, b. í Hvítu-
hlíð, Jónssonar, b. í Skálholtsvík,
Sigurmar Kristján Albertsson.
Hjálmarssonar, prests í Trölla-
tungu og ættfóður Tröllatunguætt-
arinnar, Þorsteinssonar. Móðir
Jóns var Sólveig Guðmundsdóttir,
b. í Asparvík, Jónssonar. Móðir
Andreu var Guðrún Jónsdóttir,
vinnumanns í Guðlaugsvík, Guð-
brandssonar og Guðrúnar Guð-
mundsdóttur.
Sigurmar er staddur í Moskvu
á afmælisdaginn.
Eiríkur Guönason
Eiríkur Guðnason, fyrrv. vél-
stjóri, útgerðarmaður og verka-
maður, sem dvelur á ellideild
Sjúkrahússins við Mýrargötu í
Neskaupstað, verður níræður á
morgun.
Starfsferill
Eiríkur fæddist í Strandarhúsi í
Neskaupstað. Hann var ungur að
árum er hann missti fóður sinn
og ólst upp í Nesþaupstað hjá fóð-
urforeldrum sínum.
Eiríkur gerðist ungur sjómað-
ur. Hann var á ýmsum bátum frá
Norðfirði, fór á mótornámskeið og
fór ungur maður á vetrarvertíðir
til Hornafjarðar.
Eiríkur eignaðist bátinn Björg-
vin NK 26 á móti Stefáni Hösk-
uldssyni en bátinn gerðu þeir fé-
lagar út frá Neskaupstað á sumr-
in.
Eiríkur stundaði síðar ýmis
störf í landi. Hann og kona hans
bjuggu lengst af í eigin húsi í
Neskaupstað, Framtíðinni, er stóð
niðri við ströndina.
Fjölskylda
Eiríkur kvæntist 4.8. 1928 Sig-
ríði Einarsdóttur, f. 14.10. 1901, d.
26.5. 1989, húsmóður. Sigríður var
dóttir Einars Högnasonar og Þur-
íðar Sigurðardóttur sem bjuggu í
Bæ í Lóni í Austur-Skaftafells-
sýslu.
Börn Eiríks og Sigríðar eru
Margrét, f. 25.3. 1929, húsmóðir,
gift Magnúsi Hermannssyni, raf-
veitustjóra í Neskaupstað, og eiga
þau þrjú börn; Svanbjörg, f. 7.7.
1931, húsmóðir, ekkja eftir Svein
Þorgrímsson, leigubílstjóra í
Sandgerði, sem lést 1986 og eign-
uðust þau þrjú börn; Ásmundur
Guðni, f. 18.10. 1941, d. 1944;
drengur, f. 15.5. 1946, d. sama dag.
Fóstursonur Eiríks er Þórður
Flosason, f. 23.6. 1946, kvæntur
Borghildi Stefánsdóttur og eiga
þau þrjár dætur.
Systkini Eiríks: Ásmundur, f.
18.4. 1905, nú látinn, sjómaður;
Guðný, f. 27.12. 1908, búsett í Nes-
kaupstað; Halldóra Sigurbjörg, f.
15.12. 1909, nú látin, búsett í Nes-
kaupstað, og í Reykjavík; Guðný,
f. 28.2. 1911, búsett í Neskaupstað.
Foreldrar Eiríks voru Guðni Ei-
ríksson, f. 19.12. 1880, d. 29.3. 1911,
sjómaður í Neskaupstað, og Þuríð-
ur Ásmundsdóttir, f. 7.10.1881, d.
7.1. 1956, húsmóðir.
Eiríkur er að heiman um þess-
ar mundir.
Eiríkur Guðnason.
Til hamingju
með afmælið
7. maí
90 ára
Ólafur
Daðason,
húsgagnabólstr-
ari,
Rauðalæk 4,
Reykjavík.
Ólafur tekur á
móti vinum sín-
um og vanda-
mönnum í sal
Stangveiðifélags Hafnarfjarðar,
Flatahrauni 29, Hafnarfirði, í
kvöld, þriðjudaginn 7.5., eftir kl.
18.00.
85 ára
Ingunn Sveinsdóttir,
Háeyrarvegi 1, Eyrarbakka.
80 ára
Óskar Ósvaldsson,
Nýlendugötu 24A, Reykjavik.
60 ára
Margrét Sturlaugsdóttir,
Stjömusteinum 10, Stokkseyri.
Halla Þorsteinsdóttir,
Esjubraut 16, Akranesi.
Matthildur Kristjánsdóttir,
Sandholti 40, Snæfellsbæ.
50 ára
Þorlákur Þorláksson,
Öldugötu 10, Reykjavík.
Jakob Jónasson,
Reynilundi 9, Akureyri.
Eyþór Magnús Kjartansson,
Miðtúni 2, Reykjavík.
Arnrún Karlsdóttir,
Meiðastaðavegi 7, Garði.
Ólöf Jóna Guðmundsdóttir,
Kötlufelli 9, Reykjavík.
Ragnheiður Jóhannsdóttir,
Bakka, ölfushreppi.
40 ára
75 ára
Hrefna Magnúsdóttir,
Hjarðarholti 16, Akranesi.
Ingibjörg Bjarnadóttir,
Miðvangi 6, Hafnarfirði.
70ára
Hreinn Óskarsson,
Ásvegi 26, Akureyri.
Sigurður Jakobsson,
Reykjadal 2, Mosfellsbæ.
Kristinn Ásgrímur Pétursson,
Laugarvegi 37, Siglufirði.
Bima Guðmundsdóttir,
Kögurseli 27, Reykjavík.
Anna Sigrún Karlsdóttir,
Skagabraut 22, Garði.
Þómnn Björg Einarsdóttir,
Stekkjarholti 9, Snæfellsbæ.
Þuríður Magnúsdóttir,
Einibergi 1, Hafnarfirði.
Maren Jónsdóttir
Maren Jónsdóttir frá Eskifirði,
nú til heimilis að Elliheimilinu
Grund, Reykjavík, verður níutíu
og fimm ára í dag.
Starfsferill
Maren fæddist að Ytri- Vogum í
Vopnafirði og ólst þar upp í for-
eldrahúsum. Hún var í vist hjá
hjá föðursystur sinni í Hafnarfirði
í þrjú ár og flutti síðan með for-
eldrum sínum til Seyðisfjarðar
1915. Þar vann hún í kaupavinnu,
við fiskverkun og ýmis önnur al-
menn störf þar til hún réðst í
kaupavinnu að Arnórsstöðum á
Jökuldal 1919.
Á Jökuldal kynntist Maren
manni sínum og hófu þau búskap
að Skriðustekk í Breiðdal 1922.
Þremur árum síðar settust þau að
á Eskifirði þar sem Maren bjó í
rúma hálfa öld. Hún missti mann
sinn á miðjum aldri frá níu ung-
um börnum en hélt saman heimil-
inu í harðri lífsbaráttu fyrir til-
Maren Jónsdóttir.
verunni. Á Eskifirði vann hún
einkum við fiskverkun auk hús-
móðurstarfa.
Maren gekk í Verkakvennafé-
lagið Framtíðina á Eskifirði árið
1941 og gegndi þar ýmsum trúnað-
arstörfum fyrir félagið um þriggja
áratuga skeið, var m.a. varafor-
maður félagsins 1947-54. Eftir að
hún flutti frá Eskifirði dvaldi hún
hjá dóttur sinni og tengdasyni í
Reykjavík þar til hún settist að á
Grund fyrir rúmum fimm árum.
Fjölskylda
Maren giftist 1922 Jóni Guðna-
syni, f. 6.6. 1890, söðlasmið.
Börn Marenar og Jóns eru
Hilmar Eyjólfur, f. 1920; Jón, f.
1922; Gunnar, f. 1924, d. 1978;
Sjöfn, f. 1925; Inga Þórunn, f. 1928;
Geir Marinó, f. 1930, d. 1990; Vögg-
ur, f. 1932; Gestur, f. 1933, d. 1977;
Óli Kristinn, f. 1935. Samtals á
Maren áttatíu afkomendur.
Maren átti fimm systkini sem
öll eru látin en þau voru Óli
Kristinn; Margrét Jónína; Stein-
unn; Jón HOmar; Jenný Andrea.
Foreldrar Marenar voru hjónin
Jón Jónsson, sjómaður frá Unnar-
holti í Flóa, og Helga Óladóttir frá
Breiðuvík á Reyðarfirði.
Smáauglýsingar DV
skila árangri
auglýsingar
DV