Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Page 32
36
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ1996
nn
Halldór Blöndal fær kveðjur frá
Steingrími.
Göng sem rúst-að
gætu fjárhag
þjóðarinnar
„Honum Blöndal ráöherra
færi betur að þegja og leggja
blessun sína yfir áningarstað i
umferð götunnar en stórhættu-
leg jarðgöng, sem geta rústað
fjárhag þjóðarinnar."
Steingrímur St.Th. Sigurðsson, í
Morgunblaðinu.
Ummæli
Fegurð og saltfiskur
„Er ekki miklu betra að láta
fegurðardrottningarnar selja
saltfiskinn? Þær eru miklu betri
landkynning en einhver eldri
kona.“
Viðar Freyr Sveinbjörnsson, um
forsetaembættið, í DV.
Tilvistarkreppa fjölmiðils
„Það er erfið tilvistarkreppa
að vera með ríkisfjölmiðil sem
einnig er á frjálsum markaði
með auglýsingasölu."
Hallgrímur Hólmsteinsson mark-
aðsstjóri, í Tímanum.
Reykjavík o§
útvarpsauglysingar
„Ég er sjálfur strjálbýlisbarn
og mín hugmynd um Reykjavík
þegar ég var barn austur á fjörð-
um tengdist í ríkum mæli aug-
lýsingum í Ríkisútvarpinu."
Heimir Steinsson útvarpsstjóri, i
Morgunblaðinu.
Bros í herbúðum okkar
„Markmiðið er að hafa gaman
af hlutunum. Það er bros í her-
búðum okkar.“
Guðmundur Torfason, þjáifari
Grindvikinga, í DV.
Landamæri Mexíkó og Banda-
ríkjanna eru fjölförnustu landa-
mæri í heimi.
Lengstu og stystu
landamærin
Lengstu samfelldu landamæri
í heimi eru milli Kanada og
Bandaríkjanna. Þau eru 6416 km
að lengd og eru þá meðtalin
mörkin um vötnin miklu. Ef tek-
in væru með landamæri Alaska
og Kanada þá bættust við 2547
kílómetrar. Stystu landamærin
eru „landamæri" Vatikansins og
Rómar, 4,06 km, og landamæri
Spánar og Gíbraltar, sem eru að-
eins 1,53 kílómetrar, en þau
landamæri hafa verið lokuð frá
1969.
Blessuð veröldin
Fjölförnustu landamærin
Fjölförnustu landamæri í
heimi eru á milli Bandaríkjanna
og Mexíkó. Þau eru 3110 km að
lengd og yfir þau er farið liðlega
120 milljón sinnum á ári. Flest
landamæri liggja að Kína eða
þrettán talsins og eru þá eyjar
meðtaldar. Löndin sem liggja að
Kína eru Mongólía, Rússland,
Norður-Kórea, Hong Kong,
Macau, Víetnam. Laos, Burma,
Indland, Bútan, Nepal, Pakistan
og Afganistan. Samtals eru þetta
24.000 kílómetrar.
Þykknar upp í kvöld
í dag verður norðaustangola og
síðan hægviðri og léttir víðast tO á
landinu en þykknar upp vestan-
lands með hægt vaxandi suðaustan-
átt í kvöld, sunnan- og suðaustan-
kaldi eða stinningskaldi og rigning í
Veðrið í dag
nótt. Víða verður vægt frost í fyrstu
en hiti 0 til 5 stig í dag og hlýnandi
veður í nótt.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðaustangola í fyrstu en síðan
hægviðri. Léttskýjað fram eftir degi.
Þykknar upp með sunnangolu eða
kalda í kvöld, suðaustan stinning-
skaldi og rigning í nótt. Vægt frost í
fyrstu en annars verður hiti 0 til 5
stig.
Sólarlag í Reykjavík: 22.13
Sólarupprás á morgun: 4.35
Síðdegisflóð i Reykjavík: 21.26
Árdegisflóð á morgun: 9.56
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri úrkoma í grennd -1
Akurnes skýjaö -1
Bergsstaóir úrkoma í grennd -1
Bolungarvík skýjaó -2
Egilsstaöir skýjað -3
Keflavíkurflugv. léttskýjaó 0
Kirkjubkl. alskýjaö 1
Raufarhöfn alskýjaö -3
Reykjavík léttskýjað -1
Stórhöföi úrkoma i grennd 0
Helsinki skýjaö 3
Kaupmannah. léttskýjaó 5
Ósló léttskýjað 4
Stokkhólmur skýjaö 5
Þórshöfn rigning 5
Amsterdam þokumóöa 7
Barcelona skýjaó 15
Chicago skýjaö 11
Frankfurt rign. á síó.kls. 8
Glasgow skýjaó 6
Hamborg léttskýjaó 5
London skýjaö 6
Los Angeles heióskírt 17
Lúxemborg skúr á síö.kls. 7
Paris léttskýjaö 10
Róm þokumóöa 14
Mallorca léttskýjaö 16
New York heiöskírt 7
Nice skýjað 15
Nuuk hálfskýjaö 1
Orlando heiöskírt 21
Vín heiöskirt 15
Washington alskýjaö 12
Winnipeg léttskýjaö 7
Þórunn Björnsdóttir, tónmenntakennari og kórstjórnandi:
Tónlistin stór hluti af heimilislífinu
„Þetta var stórkostlegur dagur,
það var troðfullt út úr dyrum frá
kl. 9 að morgni til 9 að kvöldi og
við teljum að um eitt þúsund
manns hafi komiö að hlusta á kór-
ana og er ég afskaplega þakklát
Foreldrafélagi Kársnesskóla sem
sá um kaffiveitingar og stóð sig
frábærlega vel,“ segir Þórunn
Björnsdóttir, tónmenntakennari
og kórstjórnandi, en siðastliðinn
laugardag stóðu þrír skólakórar
undir hennar stjórn fyrir mara-
þonsöngskemmtun.
Þórunn sagði að þetta hefði alls
ekki verið svo erfltt fyrir hana:
„Hópurinn allur skiptist niður í
þrjá kóra og það skapaði tilbreyt-
Maður dagsins
ingu. Nú svo erum við tónmennta-
kennarar vanir að standa lengi og
stjórna, til að mynda á landsmót-
um fyrir barnakóra. Ég hef farið
með krakkana i æfmgabúðir þar
sem æft er daglangt, þannig að
þetta var ekkert nýtt fyrir mig að
stjórna allan daginn.“
Þórunn segir að ástæðurnar fyr-
ir tónleikum þessum hafi verið
tvær: „Við erum með samtals 250
Þórunn Björnsdóttir.
börn í kórunum og við höfum ekk-
ert hús nógu stórt í Kópavoginum
til að allir geti sungið og hægt sé
að taka á móti öllum sem vilja
koma og fylgjast með og því höfum
við hingað til haft tvenna eða
þrenna tónleika. Nú var sem sagt
hugmyndin að allir tækju þátt i
sömu tónleikunum og áhorfendum
yrði dreift á allan daginn. Svo var
þetta einnig hugsað sem styrktar-
tónleikar fyrir elstu börnin sem
eru í Þinghólsskóla en þau eru að
fara til Ungverjalands á kóramót,
og það er mjög dýr ferð. Þá eru um
áttatíu börn í yngri hópnum að
fara um helgina til Borgarfjarðar
til að syngja."
Þórunn er búin að starfa sem
tónmenntakennari í Kársnesskóla
og Þinghólsskóla og vera með kór-
starfíð i tuttugu ár. „Það hefur
verið heilmikil vinna að kenna í
fullu starfi og vera með þessa kóra
en nú verður breyting á þegar
Kópavogur yfirtekur grunnskól-
ann. Þá veröur kórstjórastarfið að-
alstarf mitt og verð ég þar með
fyrsti grunnskólakennarinn sem
fær það aðalstarf að sinna list-
rænu kórstarfi og get ég ekki ver-
ið annað en afskaplega ánægð með
þaö hvemig Kópavogsbær hefúr
staöið að þessu máli.“
Eiginmaöur Þórunnar er Mart-
einn H. Friðriksson, organisti við
Dómkirkjuna, og eiga þau fjögur
böm frá fimm ára aldri og upp í 22
ára: „Marteinn spilaði undir hjá
mér allan laugardaginn þannig að
við vorum orðin ansi lúin hjónin
þegar heim var kornið."
Þórunn sagði aðspurð um
áhugamál að það færi svo mikill
tími í tónlistina að það væri lítið
pláss fyrir annað: „Ég syng í Dóm-
kórnum undir stjórn eiginmanns
míns og það má segja að tónlistin
sé stór hluti af heimilislífinu. En
þegar ég hef tíma hef mjög gaman
af að elda góðan mat.“ -HK
Fylgir máli eftir Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði
DV
Unglingalands-
leikur írlands
og íslands
Deildaroikarkeppnin í knatt-
spyrnu heldur áfram í kvöld og
eru tveir leikir á dagskrá. í Vest-
mannaeyjum leika heimamenn
við Fram og í Kópavogi leikur
Breiðablik gegn Fylki. Liðin eru
áþekk að getu og má því búast
íþróttir
við tvísýnum leikjum. Báðir
leikirnir hefjast kl. 20.30.
í dag fer fram unglingalands-
leikur í knattspyrnu, átján ára
og yngri, og eru það frændur
okkar írar sem eru mótherjar
okkar. Við eigum á að skipa góð-
um unglingum í knattspyrnu og
er skemmst að minnast frammi-
stöðu okkar drengja á erlendri
grund. Víst er að reynt verður
að halda sigurgöngunni áfram.
Leikurinn hefst kl. 18.30.
Léttsveit
Kvennakórsins
í kvöld kl. 20.30 verða síðari
tónleikar Léttsveitar Kvenna-
kórs Reykjavíkur að Ægisgötu 7.
Á efnisskránni eru meðal annars
söngleikjalög, íslensk lög af
ýmsu tagi og lög frá Norðurlönd-
unum. Fram koma einsöngvari
Tónleikar
og flautuleikari úr hópi kór-
kvenna. Stjórnandi er Jóhanna
V. Þórhallsdóttir og undirleikari
Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Léttsveitin er nú að ljúka sínu
fyrsta starfsári. í kórnum eru 90
konur sem flestar tóku þátt í vel-
heppnuðum gospeltónleikum í
Loftkastalanum í mars.
Bridge
Það eru töluvert margir spilarar
í heiminum sem spila rúbertu-
bridge upp á peninga. Sögur af þess
konar spilamennsku fara oftast nær
ekki hátt en þessi héma flýgur nú
um heimsbyggðina. Talað er um
dýrasta slys sögunnar í peninga-
bridge í þvi sambandi. Ekki er upp-
lýst hversu háar upphæðir voru í
húfi en það kom fyrir í bridgeklúbbi
vestanhafs þar sem vanalega er spil-
að upp á mjög háar upphæðir. Eins
og sést geta NS fengið 16 slagi í 7
gröndum en alslemma var reyndar
ekki spiluð við borðið. Sagnir gengu
þannig, AV á hættu og norður gjaf-
ari:
* --
«4 98743
•F K10854
4 862
4 KD72
* ÁG1062
* K72
* Á
4 G109653
* --
♦ DG96
* 954
* KDG1073
N
V A
S
♦ Á84
♦ KD5 .
♦ Á
Norður Austur Suður Vestur
1» pass 2* pass
24 pass 44 pass
64 Dobl Redobl p/h
Þegar spilaður er rúbertubridge
upp á peninga verða sagnir oft ein-
faldar til þess að reyna að forðast
kostnaðarsaman misskilning. Það
skýrir að einhverju leyti sagnir NS.
Eftir stökk norðurs í 6 lauf fór suð-
ur að velta fyrir sér alslemmu þeg-
ar austur doblaði óvænt (Lightner
dobl til að fá trompun). Suður
ímyndaði sér að austur mætti fá
eina trompun en fleiri yrðu slagir
hans ekki. Því var þessi samningur
redoblaöur. En suður hafði ekki tek-
ið með í reikninginn að vestur gæti
einnig átt eyðu í lit. Vestur spilaði
út hjartaníu (beiðni um spaða til
baka) og AV tóku sex(!) fyrstu slag-
ina á víxltrompun í hálitunum. AV
fengu 2100 fyrir spilið þegar NS gátu
fengið 1520 fyrir að spila og standa 7
grönd.
ísak Örn Sigurðsson