Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Qupperneq 36
TvofaMur I. vinningur m ^ til mikíls að vinnú y*- Vinningstölur 7.5/96 KIH > C3 O FRÉTTASKOTIÐ CC > LU ' SÍMINN SEM ALDREI SEFUR ^ o S LTD <C Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. oo 1=1 h— LTD 1— 550 5555 Frjalst ohað dagblað ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ1996 Frá brunastað í nótt. DV-mynd S Bruni við Bárugötu: Grunur um íkveikju Grunur leikur á að kveikt hafi veirð í þegar rishæð hússins við Bárugötu 19 eyðilagðist í eldi í nótt. Enginn var inni þegar slökkviliðiö kom á staðinn á þriðja tímanum. Upplýsingar höfðu borist um að fólk væri inni og voru reykkafarar sendir upp. Brutu þeir sér leið inn og gengu úr skugga um að enginn væri inni. Greiðlega gekk að slökkva þótt eldur stæði út um báða gaflglugga þegar slökkvilið kom að. Þakið lafír enn uppi en innviðir eru mikið brunnir og einnig uróu skemmdir af vatni á hæðinni fyrir neðan. I húsinu er sambýli á vegum Geðhjálpar og átta heimilismenn. Engan þeirra sakaði. Rannsóknar- lögreglan kannar nú eldsupptök. -GK Hágangsmálið: Dómar staðfestir Hæstiréttur Noregs staðfesti í morgun í aðalatriðum dóma undir- réttiar í málum togaranna Óttars Birtings, Björgúlfs og Hágangs. Skipstjóramir eru dæmdir til að greiða á aðra milljón hvor í sektir fyrir að veiða á verndarsvæðinu við Svaldarða eftir því sem Ríkisútvarp- Þá voru Hágangsmenn fundnir sek- ir um að hafa hindrað norsku strandgæsluna í störfum þegar sko- tið var úr haglabyssu að strand- gæslumönnum. Dómar þessir munu engu breyta um hugmyndir Norð- manna um stjórn fiskveiða við Sval- barða. -GK Fer ekki í framboð „Eftir vandlega íhugun höfum við hjónin komist að þeirri niðurstöðu að ég mun ekki fara í framboö. Okk- ur þykir vænt um það traust sem okkur hefur verið sýnt og þökkum stuðninginn heilshugar," sagði Hjálmar W. Hannesson sendiherra í samtali við DV frá Kina í morgun en fjöldi manns hafði skorað á hann að bjóða sig fram til embættis for- seta íslands. -bjb L O K I EiturlyQamarkaöurinn í Reykjavík hefur breyst á fáum mánuðum: Aroður gegn E-pillum hefur borið árangur - segir Björn Halldórsson hjá fikniefnadeild lögreglunnar „Svo virðist sem áróðurinn gegn E-pillunum hafi borið árang- ur. Við heyrum nú miklu minna af þessu efni en áður,“ segir Björn Halldórsson, yfirmaður flkniefn- deildar lögrelgunnar. Undanfarnar vikur hefur lítið heyrst af E-pillum í umferð meðal unglinga í Reykjavík og ber þeim sem vinna að vímuefnavörnum saman um að stöðugur og fjöl- breyttur áróður í allan vetur gegn E-pillum hafi borið tilætlaðan ár- angur. „Það er ekki sama eftirspurnin og áður. Margir þeirra sem voru að fikta og fannst þetta forvitnilegt urðu hræddir og hættu. Einhverj- ir hafa þó snúið sér að sterkari efnum,“ segir einn úr hópi bar- áttumannanna í samtali við DV. Sömu fréttir berast úr nálægum löndum. Þar eins og hér héldu unglingar að E-pillur væru hættu- lausar og ekki annað en saklaus kvöldskemmtun. Fjölmörg dæmi voru þó rakin um hið gagnstæða og hörmulegur dauði ungmenna, bæði hérlendis og erlendis, eftir neyslu á E- pillum varð til að breyta áliti unglinganna. „Skuggahliðin á þessu er auðvit- að sú að einhverjir hafa ánetjast eiturlyfjunum eftir fiktið með E- pillurnar á síðasta ári. Þeir eru komnir út í harðari e&ii,“ segir forvarnamaður við DV. E-pillurnar nutu mestra vin- sælda í kjölfar verslunarmanna- helgarinnar í fyrrasumar. Þá voru þær seldar á útihátíðum og eftir það leituðu mörg ungmenni eftir meira eitri þegar skólaskemmtan- ir hófust í haust. Ástandinu var þá lýst svo að vímuefnavarnimar væru veikari en sókn sölumannanna. Nú er full- yrt að staðan hafi snúist við og að varnirnar séu sterkari en sóknin. -GK Kristján Jóhannsson stórtenór er mættur til landsins til að syngja titilhlutverkið í Óþeiló eftir Verdi með Sinfóníu- hljómsveit íslands nk. fimmtudag og laugardag. Þetta er frumraun Kristjáns í hlutverki Óþellós en á næstu mánuð- um mun hann koma fram í því hlutverki á írlandi, í Bologna og Flórens. Kristján hefur ákveðið að láta þóknun sína af tónleikunum renna til Samtaka um byggingu tónlistarhúss og til styrktar uppbyggingu á Flateyri eftir snjóflóðið í fyrra. Einsöngvarar í verkinu tóku létta æfingu á Hótel Sögu í gær og var myndin tekin við það tækifæri. Hér knúsar Kristján sópransöngkonuna Luciu Mazzaria en Lucia syngur hlutverk Desdemónu, konu Óþellós. DV-mynd GVA Veðrið á morgun: Strekking- ur og rigning Á morgun verður suðaustan strekkingur og rigning um land- ið sunnan- og vestanvert en skýj- að og að mestu þurrt norðaustan- lands. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast norð- austanlands. Veðrið í dag er á bls. 36 Nýr forseti ASÍ: Hervar heitur Hervar Gunnarsson formaður Verkalýðsfélags Akraness virðist njóta mikils stuðnings í embætti forseta ASÍ, en aðrir sem nefndir hafa verið auk Benedikts Davíðs- sonar núverandi forseta eru Björn Grétar Sveinsson formaður VMSÍ og Guðmundur Þ. Jónsson formað- ur Iðju. Tæpar tvær vikur eru nú þar til ASÍ þingið hefst. Hervar Gunnarsson sagði við DV í morgun að hann hefði átt viðræð- ur við ýmsa innan hreyfingarinnar undanfarna daga og væri ákvörðun- ar hans að vænta á næstunni um hvort hann gæfi kost á sér. -SÁ Júlíus settur inn Júlíus Nordal, sem dæmdur hefur verið fyrir að vera valdur að dauða stjúpfoður síns, Sigurgeirs Sigurðs- sonar, var fangelsaður í gær. Hann hafði fengið frestun á afplánun til þess að ganga frá sínum málum, gegn því að gera ekkert af sér, en eftir að hafa raskað leiði Sigurgeirs um helgina var honum umsvifa- laust stungið inn. -sv Áttu fjarsjóð í skúrnum! Kaupum alla góðmálma HRINGRAS HF. ENDURVINNSLA brother. Litla merkivélin loksins Nybýlavegi 28, sími 554 4443 með Þ og Ð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.