Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996
7
Fréttir
Aka 140 km
á kóræfingu
vikulega
DV, Egilsstöðum:
Söngfólk úr fimm hreppum á Hér-
aði, norðan og vestan Lagarfljóts,
flestir þó úr Jökuldal, Hlíð og
Tungu, auk nokkurra brottfluttra,
firði og síðan á Vopnafirði. Þá söng
kórinn á 1. maí hátíð á Egilsstöðum
og gerði stormandi lukku. Einnig
tpk hann þátt í kóramóti á Egils-
stöðum 4. maí. -SB
Norður-Héraðskórinn syngur á 1. maí hátíð á Egilsstöðum.
DV-mynd Sigrún
syngja í Norður-Héraðskórnum.
Þetta er nær 40 manna kór og hef-
ur æft þrjá vetur undir stjórn Þórð-
ar á Hákonarstöðum á Jökuldal en
sl. haust tóku hjónin Julian og Ros-
emary Hewlet, tónmenntakennarar
á Egilsstöðum, við stjórn kórsins.
En það eru langar bæjarleiðir á
Jökuldal og fólkið leggur á sig að
aka tugi kílómetra á hverja æfingu.
Þeir sem lengst eiga að fara hafa
lagt að baki 140 km þegar heim er
komið að lokinni æfingu eins og t.d.
Anna Birna í Möðrudal og Friðrik á
Valþjófsstað.
Nú í vor hefur kórinn haldið
nokkra tónleika. Þá fyrstu á Borgar-
Hálmtýr Jónsson, ættingi Guð-
mundar, Kristján Ingi og Árni Ólafs-
son leikari við leiðið í kirkjugarðin-
um í Keflavík. DV-mynd ÆMK
Leiði þjóð-
sagnaper-
sónu í
Keflavík
lagfært
DV, Suöurnesjum:
„Þegar sýningar hófust kom ýmis-
legt í ljós. Eitt var að leiði Guð-
mundar heitins Snæland var illa far-
ið og ekkert verið hugsað um það.
Þá var stungið upp á því að safna á
sýningum fyrir legsteini og við ætl-
um okkur að gera leiðið hans mjög
fallegt og snyrtilegt," sagði Kristján
Ingi Helgasoh, höfundur skemmti-
söngsins vinsæla, Keflavíkurnætur.
Guðmundur, betúr þekktur undir
nafninu Gvendur þribbi, var alltaf
með munnhörpuna á sér og í Kefla-
víkurnóttum er atriði sem fjallar um
hann og Árni Ólafsson flytur. Guð-
mundur tróð oft upp með þekktum
hljómsveitum eins og Hljómum.
Hann var snillingur á munnhörpu-
na og þjóðsagnapersóna í Keflavík
þar sem hann var mjög áberandi á
árum áður, alltaf mjög snyrtilegur
og skrautlegur. Kristján segir að
ráðgert sé að safna vel í sjóðinn svo
hægt verði að afhjúpa legsteininn
um miðjan júní. Guðmundur H.
Snæland fæddist 25. september 1911
og lést 12. mar 1981.
„Ég las bók um Guðmund þar sem
fram kemur að eftir að hann lenti i
slysi og áskotnuðust bætur fékk
hann sér fjárhaldsmann, Karl Stein-
ar Guðnason. Árin 1963-1964 urðu
þrjár konur ekkjur í Keflavík á
skömmum tíma. Þá fór Guðmundur
til Karls Steinars, bað hann um 15
þúsund krónur og afhenti ekkjunum
5 þúsund krónur hverri svo þær
gætu haft erfidrykkju," sagði Kristj-
án. -ÆMK.
umkmA
StftSTðHJ A/ÚUVmM
Nú er tækifærið fil oð eignosf vondoðon ífolskan kæliskóp ó fróbæru verði.
Komdu og sjóðu hvorf við höfum ekki einmiff einn sem hentor þér!