Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996
Misstu ekki af spennandi
aukablödum l> í maí
Aukablöð DV eru löngu orðin landsþekkt.
Blöðin eru bæði fræðandi og skemmtileg
og fjalla mn margyísleg og gagnleg sérsvið.
15. maí GÆLUDÝR
Eru Islendingar dýravinir?
Fjallað verður á
skenuntilegan hátt um gildi
gæludýra, aðstöðu
borgarbúa til hundalialds,
páfagaukarækt og birtur
verður vinsældalisti
gæludýrabúðanna.
KNATTSPYRNU-
BLAÐID
ítarleg kynning á
I. deildar liðunum í
knattspyrnu fyrir
komandi keppnistúnabil.
, BRÚÐKAUP
22. maí
Skemmtileg mnfjöllun
um brúðkaup og allt sem
viðkemur undirbúningi þess.
HVERAGERÐI
23. maí
50 ára blómstrandi afinæbsbær.
Hveragerði er 50 ára á þessu
ári og af því tilefni ætla
Hvergerðingar að efna til
.*’•<£'hátíðahalda dagana 24. til 27. maí.
I þessu blaði verður ljallað mn Hveragerði
og hátíðardagskrána þessa daga.
DV - fjölbreytt útgáfa á hyerjum degi
Utlönd
Áralangar persónunjósnir að hætti Stasi afhjúpaðar í Noregi:
Almenningur er
skelfingu lostinn
Almenningur í Noregi er skelf-
ingu lostinn eftir að skýrsla sem
afhjúpar áralangar ríkisstyrktar
njósnir um norska þegna að hætti
Stasi, hinnar alræmdu leyniþjón-
ustu Austur-Þjóðverja, var opin-
beruð. Meginniþurstaða skýrsl-
unnar er á þann veg að Verka-
mannaflokkurinn, sem yerið hefur
viö völd í Noregi lengst af eftir lok
seinni heimsstyrjaldarinnar, not-
aði leyniþjónustuna til að safna
upplýsingum um hátt í 50 þúsund
manns, aðallega vinstrimenn, sem
grunaðir voru um „óásættanlega
þólitíska starfsemi".
Norska þingið sk'ipaði nefnd til
að fara í saumana á málinu 1984.
Skilaði hún 1.185 blaðsíðna
skýrslu þar sem tengslum Verka-
mannaflokksins við leyniþjónust-
una eftir 1945 er nákvæmlega lýst.
Norskir stjórnmálaleiðtogar
kröfðust þess strax að Verka-
mannaflokkurinn bæði norsku
þjóðina afsökunar en of snemmt
þykir að spá um hvaða afleiðingar
skýrslan muni hafa fyrir minni-
hlutastjórn Gro Harlem
Brundtland.
Gro Harlem Brundtland segist fagna
njósnaskýrslunni.
Þorbjörn Jagland, formaður
Verkamannaflokksins, firrti nú-
verandi minnihlutastjóm allri
ábyrgð af njósnum og sagði Verka-
mannaflokkinn ekki eiga í neinum
tengslum við leyniþjónustuna i
dag. Þau tengsl hefðu verið úr sög-
unni eftir 1970.
Norska þingið fjallaöi um
skýrsluna á lokuðum fundi í gær-
morgun en ákvað að hún skyldi
gerð opinber enda mælti nefndin
sem stóð aö skýrslunni með því,
jafhvel þó atriði í henni gætu skað-
að tengsl Noregs við önnur ríki.
Gro Harlem Brundtland forsæt-
isráðherra fagnaði útgáfu skýrsl-
unnar en íjallaði ekki frekar um
hana þar sem hún átti eftir að
kynna sér efni hennar betur.
í njósnaskýrslunni kemur fram
að leyniþjónustan herti á eftirliti
sínu með kommúnistum á níunda
áratugnum, þegar ágreiningur
stóð um eyðingu meðaldrægra
kjarnorkuflauga í Vestur-Evvrópu
og deilt var um hernaðarumsvif
Sovétmanna í Afganistan.
Leiðtogar Miðflokksins og
Kristilega þjóðarflokksins sögðust
skelfingu lostnir yfir innihaldi
skýrslunnar, eins og allur almenn-
ingur í Noregi, hún hefði verið
mun verri en þeir áttu von á.
í skýrslunni kemur enn fremur
fram að norska leyniþjónustan átti
í nánu samstarfi við Mossad,
leyniþjónustu ísraela, í mörg ár.
En leyniþjónusta norska hersins,
sem einnig lenti í rannsókn nefnd-
arinnar, átti ekki þátt í ólöglegri
skráningu persónuupplýsinga.
Málarinn Anthony Wllliams stendur hér við portrett-mynd sína af Elísabetu
drottningu sjötugri. Williams hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda fyrir raunsæi sitt
og þá djörfung að mála drottninguna með vörtur, hrukkur og önnur öldrunarein-
kenni. Myndin sýnir raunamædda, föla og þreytta konu sem er mjög hrukkótt og
með lifrarbletti á höndum, fullkomin andstæða þeirrar drottningar sem Bretar sjá
á Ijósmyndum eða frímerkjum. Símamynd Reuter
Þýskir kjarnorkuandstæöingar herskáir:
Tugir slösuðust í
átökum við lögguna
Til snarpra átaka kom mifli þús-
unda lögregluþjóna og púandi mót-
mælenda þegar 40 tonn af kjarn-
orkuúrgangi frá Frakklandi voru
flutt frá lestarstöðinni í Dannenberg
í Þýskalandi til geymslu í Gorleben.
Um fimmtíu mótmælendur slös-
uðust þegar þrjú þúsund manns
reyndu að stöðva risastóran flutn-
ingabíl með kjarnorkuúrganginum.
Kjarnorkuandstæðingum mistókst
hins vegar ætlunarverk sitt.
Lögreglan tók 29 mótmælendur í
sína vörslu. Báðir aðilar saka hinn
um að hafa sýnt mikla grimmd.
„Það væri ekki fjarri lagi að nota
oröiö „stríð“ yfir ástandið," sagði
talsmaður lögreglunnar þegar hvað
mest gekk á.
Flogið var með eina konu á
sjúkrahús í Hannover eftir að hún
fékk vatnsgusu úr öflugri vatns-
byssu í höfuðið. Lögreglan sagði að
sex laganna verðir hefði hlotið smá-
vægileg meiðsl en í fyrstu var talað
um að átján lögregluþjónar hefðu
meiðst.
Gerhard Glagowski, innanríkis-
ráðherra Neðra-Saxlands, þakkaði
lögreglunni fyrir að taka fagmann-
lega á málinu og bar lof á þá fyrir að
þurfa að mæta „mjög ofbeldisfullri
andstöðu".
Farmurinn sem var fluttur á
áfangastað í gær var sá fyrsti af um
110 sendingum af kjarnorkuúrgangi
og kjarnorkueldsneyti í þýsk kjarn-
orkuver á næstu átta árum. Reuter
Stuttar fréttir
Kosið í Úganda
Fastlega er búist við að frá-
farandi forseti Úganda sigri í
forsetakosningunum í dag, hin-
um fyrstu í landinu í sextán ár:
Treystir Assad
Símon
Peres, for-
sætisráð-
herra ísra-
els, sagðist I
gær telja að
hægt væri að
treysta því
að Hafez al-
Assad Sýr-
landsforseti mundi virða þá
samninga sem hann gerði og
vísaði m.a. til bráðabirgðasam-
komulags sem gert var
nokkrum árum eftir að ísraels-
menn náðu Golanhæðunum á
sitt vald eftir stríðið 1967.
íhaldsmenn kætast
Breskir íhaldsmenn geta
kæst þar sem þeir hafa aðeins
saxað á forskot Verkamanna-
flokksins í skoðanakönnunum.
Búa sig undir átök
íbúar Líberíu búa sig undir
frekari átök eftir að tilraunir
Afríkuríkja til að koma á friði
í landinu enduðu með ósköp-
um.
Nýnasisti fyrir rétt
Bandaríski nýnasistinn
Gary Lauck kemur fyrir rétt í
Þýskalandi í dag, ákærður fyr-
ir að æsa til kynþáttahaturs
með áróðri sínum.
Jeitsín frestar kannski
Svo kann
að fara að
Borís Jeltsín
Rússlands-
forseti neyð-
ist til að
fresta heim-
sókn sinni
til Tsjetsje-
níu af örygg-
isástæðum en forsetinn hafði
gert sér vonir um að fara
þangað um miðjan mánuðinn.
Engir hundafundir
Yfirvöld í frönskum bæ hafa
bannað hundum að hittast þar
á almannafæri. Reuter