Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Side 9
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 9 Utlönd Ef þú kaupir þvottavél án þess að skoða AEG þvotlavélar AEG Lavamat 6955 Gennady Zjúganov reyndi að róa Vesturlönd í sjónvarpsviðtali: Ekkert að óttast sigri hann Jeltsín Kommúnistinn Gennady Zjúga- nov, sem hefur afgerandi forskot á Borís Jeltsín forseta í skoðanakönn- unum fyrir rússnesku forsetakosn- ingarnar, segir að Vesturlönd hafi ekkert að óttast sigri hann í kosn- ingunum. „Rússland hefur alltaf skapað stöðugleika og jafnvægi í heiminum og brúað bilið milli aust- urs og vesturs," sagði hann í viðtali um gervihnött við bandarísku sjón- varpsstöðina CNN I gær. Zjúganov bætti við að hann væri reiðubúinn að koma á víðtæku og nánu samstarfi við Vesturlönd með lýðræðislegri friðarstefnu og góðum nágrannatengslum. Hann sagðist þess fullwiss aö slík stefna stuðlaði að stöðugleika í heimsmálum. „Hafið ekki áhyggjur af stríðs- rekstri og átökum," sagði Zjúganov og lofaði stöðugri og áreiðanlegri ut- anrikispólitik. Zjúganov, 51 árs og fyrrum menntaskólakennari, hefur haft verulegt forskot á Borís Jeltsín í flestum skoðanakönnunum sem framkvæmdar hafa verið vegna for- setakosninganna 16. júní. í einstaka könnun hefur bilið milli þeirra reyndar verið minna. Óháð stofnun birti í gær niður- stöður könnunar þar sem Zjúganov hefur örugga forustu í forsetaslagn- um. Samkvæmt könnuninni, þar sem 6 þúsund Rússar voru spurðir 27. apríl til 2. maí, fengi Zjúganov 43-45 prósent atkvæða meðan fylgi Jeltsíns mældist einungis 25 prósent. í viðtalinu við CNN reyndi Zjúg- anov að slá á ótta varðandi efna- hagsstefnu sína. Hann sagöist ekki stefna á endurþjóðnýtingu eða aft- urhvarf tO tima Sovétríkjanna en svör hans um éfnahagsmál þóttu ekki ítarleg. Hann sagðist leggja áherslu á að gera Rússland aðlað- andi fyrir erlenda fjárfesta, berjast gegn glæpum og spillingu og enda stríðið í Tstjetsjeníu. Zjúganov sagð- ist einnig mundu tryggja ferðafrelsi, málfrelsi og að mannréttindi yrðu tryggð. Einn andstæðinga Zjúganovs, hinn frjálslyndi hagfræðingur Grigory Javlinsky, virtist ekki snortinn af orðum Zjúganovs. Sagði hann að eiginlega væru til tvær ólíkar útgáfur af honum. Önnur reyndi að gera rússneskum kjósend- Um til geðs en hin erlendum áheyr- endum. Aðspurður um yfirlýsingar vest- rænna leiðtoga sem sögðust styðja Jeltsín sagði Zjúganovv að hann hefði verið fullvissaður um að við- komandi ríki mundu virða niður- stöður lýðræðislegra kosninga. Reuter Simpson miöar ekkert í morðingjaleitinni Ruðningshetjan O.J. Simpson er engu nær því að finna morð- ingja fyrrum eiginkonu sinnar og vinar hennar, þeirra Nicole Brown og Ronalds Gildmans, en hann var daginn sem hann var sjálfur sýknaður af ákæru um að hafa myrt þau. Að minnsta kosti veit sonur hans ekkert um slíkt. Þetta kom fram við skýrslutöku yfir Jason Simpson, 26 ára göml- um syni íþróttahetjunnar fyrrver- andi, vegna einkamáls sem fjöl- skyldur fómarlambanna hafa höfðað á hendur O.J. Þá höfðu lögfræðingar fórnarlambanna það eftir Jason að hann hefði aldrei séð fóður sinn æfa golfskot að kvöldlagi, nokkuð sem Simpson segist hafa verið að gera kvöldið sem morðin voru framin í júní 1994. Reuter BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR 1 Kirkjusandur 1-5 i (áður Laugarnesvegur 89) Kynningin fer fram í sal Borgarskipulags og bygg- ingarfulltrúa að Borgartúni 3, 1. hæð, kl. 9.00 - 16.00 virka daga og stendur til 20. júní 1996. Ábendingum og athugasemdum skal skila skrif- lega til Borgarskipulags Reykjavíkur, Borgartúni 3, 105 Reykjavík eigi síðar en fimmtudaginn 4. júlí Staðgreinireitur 1.340.5 í samræmi við 17. og 18. grein skipulagslaga er auglýst kynning á breyttri landnotkun á lóðinni Kirkjusandur 1-5. Athafnasvæði verður breytt í íbúðasvæði. Rússar og Bret- ar að semja Rússar og Bretar virðast vera að semja um málamiðlun í njósnadeilunni sem hefur sett svip sinn á samskipti ríkjanna síðustu daga. Rússar hafa hótað að senda níu breska diplómata heim. Reuter Svokölluð heimsverðlaun í tónlist, World Music Awards, voru afhent við há- tíðlega athöfn í Mónakó í gærkvöldi. Diana Ross, sem hér sést halda í hönd Michaels Jacksons, hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir ævilangt framiag sitt til tónlistar. Jackson hlaut fimm verðlaun, þar á meðal verðlaun fyrir mest seldu plötu allra tíma, plötuna Thriller. Símamynd Reuter Bresk stjórnvöld endurskoöa hug sinn: Herða andstöðuna gegn hvalveiðum Bresk stjórnvöld hertu andstöðu sína gegn því að hvalveiðar í ábata- skyni yrðu teknar upp að nýju þeg- ar ráðherra í stjórn landsins lýsti því yfir að ekki væri brýn þörf á að stunda slíkar veiðar. Embættismenn í breska landbún- aðarráðuneytinu sögðu í gær að rík- isstjórnin hefði endurskoðaö stefnu sína í hvalveiðimálum vegna vænt- anlegs fundar Alþjóða hvalveiði- ráðsins í Aberdeen í Skotlandi í næsta mánuði þar sem fjallað verð- ur um hvort endurnýja eigi alþjóð- legt hvalveiðibann sem sett var árið 1986. Bretar hafa alltaf sagt að þeir væru ekki reiðubúnir að endur- skoða bannið nema þeir væru sann- færðir um að hvalastofnárnir þyldu veiði og að mannúðlegum aðferðum væri beitt við dráp dýranna. Nú hallast þeir hins vegar að því aö verndun stofnanna sé ekki eina ástæðan fyrir því að viðhalda veiði- banninu. „Hvalveiðar í ábataskyni eru ekki nauðsynlegar til að fullnægja brýnum næringar-, efnahags- eða fé- lagslegum þörfum," sagði Tony Baldry aðstoðarlandbúnaðarráð- herra í skriflegu svari við fyrir- spurn í breska þinginu. Hann sagði að vegna vaxandi ásóknar í að sjá hvali í náttúrulegu umhverfi sínu gætu sveitarfélög hagnast á hvölunum án þess að þurfa að drepa þá. Baldry sagði að flestir Bretar væru andvígir hvalveiðum og stjómvöld sæju því enga ástæðu til að aflétta banninu. Reuter AEG Lavamat 508 AEG þvottavélar eru á um það bil 27.0Ú0 íslenskum heimilum. • AEG þvottavélar eru á tvöfalt fleiri heimitum. er næst algengasta þvottavélategundin. • Yfir 85% þeirra sem eiga AEG þvottavél, mundu vilja kaupa AEG aftur. Hvað segir þetta þér um gæði AEG þvottavéla? Eða AEG yfirleitt? Þriggja ára ÁBYRGÐ Á ÖLLUM AEG ÞVOTTAVÉLUM ...er það eins og ferð til Egyptalands án þess að skoða pýramídana Gerð sn.pr. mín. Staðgr. LAVAMAT 508 800 sn. 69.950,- LAVAMAT 9205 700 - 1000 sn. 82.900,- LAVAMAT9451 LAVAMAT 6955 700-1200 sn. 700- 1500 sn. U 95.900,- 111.500,- Umboðsmenn Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrfmsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Búöardal. VestfIröir: Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvfk.Straumur.ísafiröi.Noröurland: Kf.Steingrfmsfjaröar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúð.Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvfk. KEA, Siglufiröi Kf. Þingeylnga, Húsavík.Urö. Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstððum. Kf. Vopnfirðinga, VcpnaHrú . Stál, Seyöisfiröi. Verslunin V(k, Neskaupsst&’' Kf. Fáskruðsfiröinga, Fáskrúösfiröl. KASK, Höfn. Suöurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshðfn. Jón Þorbergs, Kirkjubœjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavfk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.