Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ1996 Spurningin Heldur þú að mannkynið sé í útrýmingarhættu? Margrét Ólafsdóttir afgreiðslu- maður: Ég er hrædd um það ef menn hætta ekki þessum stríðs- rekstri og fara í staðinn að stuðla meira að friði. Kristrún Lísa Garðarsdóttir nemi: Nei, það held ég ekki. Indriði Jónsson, fyrrverandi skrifstofumaður: Já, það verða ekki mörg hundruð ár þangað tU búið verður að eyðileggja jörðina. Jón Karlsson, starfar að verka- lýðsmálum: Nei, ég hef ekki nokkra trú á því. Berglind Hanna Jónsdóttir nemi: Já, tvímælalaust. Lesendur Evrópa hervæðist í viðskiptastríði Örn Sigurðsson skrifar: Áberandi hefur verið hve Evr- ópuríkin hafa farið halloka á við- skiptasviðinu gagnvart Bandaríkj- unum og Austur-Asíuríkjunum, einkum Japan, Tælandi, Tævan og fleirum, Það er eins og tæknin hafi flúið Evrópu áður en hún varð til þess að bæta samkeppnisstöðu álf- unnar gagnvart þessum löndum. Nýlokið er ráðstefnu hér á landi á vegum Framkvæmdastjórnar ESB þar sem rædd var svokölluð „græn- bók“ þess á sviði nýsköpunar til að halda í við risana á viðskiptasvið- inu. Á þessari ráðstefnu átti að reyna að svara spurningum og leita eftir hugmyndum sem gætu komið Evr- ópu á kort heimsviðskiptanna. Það er viss heiður fyrir ísland að vera valið eða fá að annast skipulag svona ráðstefnu. En það er Rann- sóknarráð íslands og Útflutningsráð Islands sem hafði veg og vanda af henni í samráði við iðnaðarráðu- neytið. Ekki er vafi að margir í Evr- ópuríkjunum líta með nokkurri for- vitni til okkar íslendinga og undr- ast hvers við erum þó megnugir. Þá á ég ekki við ráðstefnuhaldið ein- göngu heldur framkvæmdir og framleiðslu á ýmsum sviðum sem miðast við markaðinn vítt og breitt um heiminn. En þaö er ekki hægt að þakka Evrópuríkjum þau skref sem við höfum náð að stíga til þessa. Heldur beint og óbeint samstarfi okkar við Bandaríkin. Við höfum smitast af velgengni þar vestra gegnum árin og þangað höfum við sótt menntun sumra okkar færustu sérfræðinga á mörgum sviðum og hefur hún skil- Frá fundi í Reykavík um „grænbók" ESB á sviði nýsköpunar. að sér margfalt hingað heim. Sá lífs- stuðull, sem viö sækjumst eftir og höfum búið við í áratugi, kemur líka frá Bandaríkjunum. Ekki frá Evrópu. Það er því ekki svo fráleitt fyrir Evrópuríkin að sækja hingað ráð- stefnur sem fjalla um framtið Evr- ópu og nýsköpun sem vopn í sam- keppninni á viðskiptasviðinu. Hér eru mörg og glögg dæmi um hvern- ig þjóð hefur tekið mið af nágranna sínum í vestri fremur en þeim í austri, þótt þangað sé mun styttra. En það verður erfítt fyrir Evrópu- ríkin að tileinka sér þau tækifæri sem bjóðast í nálægð viðskiptar- isanna nema láta fyrst af hrokanum sem lengi ætlar að fylgja þeim sem eitt sinn voru heimsveldi eða réðu yfir lendum og lausagóssi. fjarri heimaslóðum. Evrópa hefur aug- sýnilega ákveðið að hervæðast í við- skiptastríðinu fremur en að læra af keppinautunum. Gera eins og þeir, hugsa eins og þeir. Hvert fóru Bessastaðamilliónirnar? Jóhannes Sigurðsson skrifar: Það er kannski að bera í bakka- fullan lækinn að minnast á Bessa- staðahneykslið tengt endurbótum á forsetasetrinu fyrir fjárhæð sem nú er áætluð tæpur einn milljarður króna. Einn milljarður?? Getur þetta verið rétt? Þær tölur sem ég hef séð um þessar framkvæmdir til þessa ná ekki þessari upphæð. En það er ým- islegt týnt til, svo sem fornleifaupp- gröftur og hann áætlaður fram í tím- ann með jafn ómarkvissum hætti og annað þessu tengt. Þó er hann ekki nema um 10% til þessa og dugar því skammt upp í milljarðinn, Þá hafa þær tölur aðrar sem nefndar hafa verið ekki náð miUjarö- inum heldur og minnist ég þess ekki að hafa getað lagt saman hærri upp- hæð en eitthvað í kringum 300 millj- ónir fyrir þær framkvæmdir sem lokið er, að meðtöldum endurbótum á íbúðarhúsi og öðrum byggingum og greiðslu til húsameistaraembætt- isins. Aðrar tölur eru allar „fram- reiknaðar" tölur allt til ársins 1998. Enginn veit því hvað er hvað og hvaða tölur eru i spilinu né hvert þær upphæðir fóru og munu fara. Enn vantar þvf að skilgreina nán- ar hinar 970 mUljónir króna, sem kostnaður er nú „áætlaður" í skynd- ingu. Ég spyr því einfaldlega: Hvert fóru Bessastaðamilljónirnar? Eru kannski vantaldar greiðslur til þriggja manna Bessastaðanefndar sem sáu um alla útfærslu endurbö- tanna á Bessastöðum? Ég hef ekki enn heyrt neinn fréttamann spyrja um þær greiðslur. Er nú einfaldlega ekki réttast að greina frá í smáatriðum í hvað miUj- arðurinn tU Bessastaða fer? Þjóðin á kröfu á að fá skýringar á þessari ógnareyðslu sem var þó aldrei á áætlun og hefur ekki enn verið sam- þykkt löglega. Síldarsamningarnir í höfn Einar Árnason skrifar: Ósanngjörn er framkoma nokk- urra þingmanna og einstaklinga í röðum útgerðarmanna og sjómanna vegna samninganna um norsfc, ís- lenska sUdarstofninn sem nú eru í höfn. Ég fullyrði að hér hefur verið staðið vel að verki. Mesti sigurinn er í því fólginn að fá Norðmenn yfir- leitt til þess að semja um málið. Þeir voru stærsti þröskuldurinn aU- an tímann. Deila má endalaust um samningaaðferðina og skiptinguna sjálfa en við erum nú komnir inn fyrir samningsvegginn, ef svo má segja, og ekki verður bakkað héðan af í neitt minna en um var samið. Hagsmunir ríkis eins og íslands felast í samningum og stjórn á fisk- veiðunum. Það var því ekki um annað að ræða í þessu tilfelli en að semja um leið og glufa opnaðist. Fá- ránlegt hefði verið að láta dankast og þrefa um eitthvað lítils háttar viðbótarmagn. Héðan af er spurn- ingin um nýtingu og betri og betri nýtingu á síldinni sem veiðist. Hún er ennþá ein dýrmætasta afurðin úr sjó þrátt fyrir allt sé hún unnin fag- lega til neyslu að ósk kaupenda. Sérþekking í „niðurlagn- ingu“ fyrir- tækja Þórður Einarsson skrifar: Nú er fyrirtækjum slátrað í gríð og erg samkvæmt skipun- um að ofan. Samgönguráðherra byrjaði ballið er hann lagði nið- ur Skipaútgerð ríkisins á svo að segja einum degi. Þar var við stjórn Guðmundur Einarsson, sem nú er forstjóri Heilsuvernd- arstöðvar Reykjavíkur. Nú er það undir stjórn heilbrigðisráð- herra sem lagt er til að leggja niður Heilsuverndarstöðina og þar er einmitt við stjórn sami maður og hjá Ríkisskipum forð- um. Það er því komin á nokkur sérhæfing í „niðurlagningu" hjá þessum forstjóra. 1. maí úreltur baráttudagur Hjálmar skrifar: Ég vil lýsa furðu minni á því að enn skuli fólk láta plata sig til að taka þátt í kröfugöngu og útisamkomum hinn 1. maí. Hér er um að ræða blekkingu af mannavöldum til að geta áfram haldiö launafólki í greipum launþegaforystunnar. Ekkert hefur áunnist nema fyrir til- stuðlan einstakra stjómmála- manna, einkum hinna ötulu al- þýðuflokksmanna sem komu á tryggingkerfinu fyrir áratugmn. Síðan hefur lítið verið gert sem flokka má undir kjarabætur og aukna velferð. Þetta er meira og minna í sama hjólfarinu og verður enn þar til launþegar verða frjálsir að því að stofna til viðræðna og samninga á sínum vinnustaö. RÚV á barmi tilveruréttar Ásta hringdi: Ég er ekki viss um að fólk skilji hvað við er átt þegar menn líkja Ríkisútvarpinu við annan fjölmiðil - t.d. dagblað - sem væri ríkisrekið. Myndi ein- hver kaupa dagblað gefið út af ríkinu? Ég reikna ekki með því. Lögbirtingarblaðið hefur jú sér- stöðu og þaö kaupa einhverjir en ekki almenningur. Sama er mér hvor aðferðih er notuð vegna RÚV, nefskattur eða sjálftökugjald, það er sami glæp- urinn. En Ríkisútvarpið er nú á barmi tilveruréttar og þeir sem vilja framlengja reksturinn ættu að greiða hann sjálfir. Fólkið vill hjálpa Sophiu VKP skrifar: Nú er það berlega komið í ljós að fólkið vill hjálpa Sophiu Hansen með því að fjármagna baráttu hennar til að ná dætr- unum frá Tyrklandi. Þetta hefur t.d. niðurstaða úr „Rödd fólks- ins“ sem birtist í DV sl. þriðju- dag staðfest. Hverju eru ráða- menn þá að biða eftir? Ég tel að þjóðarsamþykki sé fyrir því að þeir láti til skarar skríða og geri allt dæmi Sophiu upp og styðji hana svo í lokaáfanga réttar- haldanna í Tyrklandi. Heimskuleg DAS-auglýsing Gerður skrifar: Ég get ekki orða bundist yfir þeirri heimsku sem einkennir auglýsingu frá hinu landskunna og góða fyrirtæki, Happdrætti DAS. Heldur auglýsingahönnuð- ur eða sá sem stendur að baki þessari auglýsingu með „bján- um“ með slaufu um vísifingur að við séum líka bjánar? „Greiðslukortið gleymir ekki að endumýja!" Þið segið ekki!! Þetta er móðgun við þjóöina, þessi andskoti. Ekkert minna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.