Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Síða 13
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ1996 13 Fýrsti vaxtadagur fasteignaveðbréfs - kauptilboösdagur eöa útgáfudagur? 1Er heiðarlegt að einstaklingar, sem standa í húsnæðisviðskiptum, viti ekki Gísli S. Einarsson hvaða rétt þeir eiga...? spyr greinarhöfundur. Þetta er mál sem varðar þá sem eiga í fasteignaviðskiptum með Fasteignaveðbréf og Húsbréf. Er heiðarlegt að einstaklingar, sem standa í húsnæðisviðskiptum, viti ekki hvaða rétt þeir eiga varðandi ákvörðun upphafsdags vaxta í tengslum við Húsbréfakerfið? Mál- ið varðar vinnureglur sem Hús- næðisstofnun óskar eftir að fast- eignasalar vinni eftir þegar fast- eignaviðskipti eiga sér stað. Viðurkenndi ekki greiðslumat Undanfari þess að ég vek athygli á þessu máli er að einstaklingar hafa kvartað sárt undan því að þurfa að greiða vexti af fjármunum sem þeir hafa ekki haft undir hönd- um eða að viðskipti með íbúð eða húseign hafi átt sér stað. Einnig að kaupendur hafa orðið að greiða vexti frá kauptilboðsdegi þar sem kauptilboðið miðast við greiðslu- mat sem viðurkennd lánastofnun vinnur vegna viðkomandi einstak- lings í hvert skipti sem viðskipti tengd húsbréfum eiga sér stað. Óundirbúin fyrirspurn mín, sem ég bar upp mánudaginn 15 apríl sl., snerist um það að hjá Húsnæði- stofnun höfðu viðskipti einstak- lings tafist um 2-3 mánuði vegna þess að stofnunin viðurkenndi ekki greiðslumat Landsbanka íslands á einstaklingi sem gert hafði tilboð í þingmaður Aiþýðutlokksins á Vesturlandi húseign í byrjun maí og það tók umræddan tíma að fá stofnunina tO að samþykkja mat bankans. Afleið- ing þess var að kaupandi í um- ræddu tilviki greiddi vexti af há- marksláni frá maíbyrjun þar til unnt var að gera kaupin, sem nem- ur tugum þúsunda, án þess að hafa á nokkurn hátt afnot af fjármunum sem greitt var fyrir. Reglugerð í felum Það sem þessi fyrirspurn síðan leiðir í ljós er að vegna tilmæla Húsnæðisstofnunar 1989 gera fast- eignasalar það að vinnureglu að upphafsvaxtadagur i fasteignavið- skiptum er miðaður við tilboðsdag kaupanda í viðkomandi eign. Upp- hafið var að þá væri seljanda ljóst hvert það verð væri sem hann væri að fá fyrir sína húseign mið- að við vístölu og verðlagsskrið. Reglugerð kveður á um að kaup- andi og seljandi geti ákvarðað í raun vaxtadag en það hefur ekki verið kynnt þeim sem eiga í við- skiptum og flestir fasteignasalar hafa ekki gert sér það ljóst að vaxtadagsákvörðun er val þeirra sem eiga í viðskiptum með milli- göngu fasteignasala. Vinnubrögðin lögleg - en ? í vel flestum tilvikum síðustu ár hefur ekki tekið nema fáar vikur að staðfesta og ganga frá því að greiðslumat lánastofnunar sé rétt unnið og kauptilboð staðfestist af húsnæðisstofnun. En í upphafi kerfisins þá leið oft lengri tími frá tilboðsdegi þar til kaup voru stað- fest. Þetta gerir það að verkum að kaupendur voru þá að greiða vexti af fjármunum, sem þeir höfðu ekki afnot af, í tugþúsundavís. Nú sleppa margir með lægri upphæð möglandi en greiða þó siðan. Þó eru einstök tilvik, eins og hér að framan er getið, sem greiða háa upphæð. Það má vera aö hér sé um að ræða lögleg vinnubrögð en að mínu mati eru þau algjörlega óeðlileg. Fasteignasölum hefur ekki verið ljós réttur viðskiptaað- ila í þessum tilvikum og hvergi hefur verið kynntur möguleiki einstaklinga í þessum málum. Það virðist vera svo að Félag fasteigna- sala og Húsnæðisstofnun séu sam- mála um að svona skuli unnið. Ég hlýt því að krefjast þess af Húsnæðisstofnun og fasteignasöl- um að aðilum, sem standa í fast- eignaviðskiptum, sé gerður algjör- lega ljós sá réttur sem þeir eiga sem kaupandi og seljandi í þessum málum. Gísli S. Einarsson „Undanfari þess aö ég vek athygli á þessu máli er að einstaklingar hafa kvartað sárt undan því að þurfa að greiða vexti af Qár- munum sem þeir hafa ekki haft undir höndum eða að viðskipti með íbúð eða húseign hafi átt sér stað.“ Grænbók um nýsköpun Komin er út á vegum Evrópu- sambandsins Grænbók um nýsköp- un. Tilgangurinn með henni er að undirbúa stefnumótun í þessum málaflokki. Græn nefnist bókin vegna þess að um er að ræða frum- tillögur, til umræðu og athuga- semda, sem tekið verður viðeig- andi tillit til. Að svo búnu verður gefin út Hvítbók um nýsköpun og er hún þá „endanlegt" plagg um málið. Mikill fengur er í þessari skýrslu. GreinDegt er að höfundar byggja á traustri þekkingu á ný- sköpun. Þekkingarskortur á þessu sviði hefur háð mönnum hér á landi sem og annars staðar um langan tíma. Þetta á bæði við um háa sem lága. Hann hefur verið ein af orsökunum fyrir því að árangur í nýsköpun hefur verið tilviljana- kenndari en góðu hófi gegnir. Stefnumótun hefur einnig liðið fyr- ir þekkingarskort. Og það sama má segja um almenn viðhorf. Nýsköpun hér á landi hefur því verið furðuleg blanda af afburðaár- angri og grundvallarmistökum og nánast allt þar á milli. Verst er þó Kjallarinn Jón Erlendssn yfirverkfræðingur Upplýsingaþjón- ustu Háskólans útbreitt sinnuleysi og áhugaleysi á þessu sviði. Orsök þess er augljós. Ekki hefur tekist að vinna nýsköp- un neinn viðunandi sess í hugum almennings og valdhafa, enda hef- ur verkefninu ekki verið sinnt að gagni. Félagslegt fyrirbæri Eitt af því sem mér þótti hvað mestur fengur í í grænbókinni var sú staðhæfing að „nýsköpun sé ekki efnahagslegt lögmál eða tæknilegt ferli heldur sé hún um- fram allt félagslegt fyrirbæri" Þessu sjónarmiði hefi ég haldið fram á síðum DV síðastliðin þrjú ár. Sumum hafa þótt þetta skrýtnar staðhæfingar og reynt að gera lítið úr þeim. Nú er kominn tími fyrir þá hina sömu til að kyngja .rang- hugmyndum sínum og skola þeim niður með afgerandi boðskap Grænbókarinnar. Fáar meinsemdir eru verri en ranghugmyndir sem ná tökum á fjölda fólks. Líkja má áhrifum þeirra við alvarlega komp- ásskekkju. Sé hún á háu stigi leið- ir það gjarnan til strands og því stórfellds skaða. Ranghugmyndir í veigamiklum málum eru þó sínu alvarlegri en bilaðir kompásar enda oft miklu meira í húfi. Hvers vegna? En hvers vegna er nýsköpun fyrst og fremst félagslegt fyrirbæri? Svarið við þessari spurningu er mjög einfalt. Nýsköpun felur í sér sköpun nýjunga og öflun árangurs- ríkrar fótfestu fyrir þær í þjóðfélag- inu. Sköpun nýjunga krefst mikill- ar þolinmæði og nærgætni. Hún er eins og ræktun á viðkvæmum gróðri. Best gengur þegar umhverfi hennar er jákvætt. Það sama gildir um endanlegar viðtökur. Neikvæð- ar viðtökur eru á hinn bóginn mjög árangursrík leið til að kæfa nýsköp- un og reyndar aOa nýja hugsun. Þegar tekist hefur að skapa já- kvætt umhverfi þá fylgir nánast allt sem máli skiptir í kjölfarið. Þetta á við um hvers kyns stuðn- ing, til dæmis fjárhagslegan. Efling nýsköpunar byggist því öðru frem- ur á því að þróajákvætt félagsum- hverfi. Þetta meginatriði málsins hefur á hinn bóginn lítið sem ekk- ert borið á góma í allri umræðunni um nýsköpun hér á landi á undan- fórnum áratugum og enn minna í raunverulegum aðgerðum. Og þeg- ar aðalatriöi eru vanrækt þá verð- ur árangurinn miklu minni en efni gætu staðið til eins og við má bú- ast. Skortur á stuðningi Vikið er að þessum málum í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins nýverið. Þar er réttilega kvartað undan langvarandi skorti á stuðn- ingi við rannsókna- og þróunar- starf. Hér má á hinn bóginn spyrja: Hefur áróðurs- og kynningarstarf verið nægilega öflugt á þessu sviði? Umbúðalaust má fullyrða að enginn áberandi kraftur hefur ver- ið í því á vettvangi fjölmiðla þar sem það ætti einna helst að koma fram. Þótt ýmsir hafi sannarlega reynt að gera sitt, hver á sinn hátt, og náð nokkrum árangri þá vantar mikið upp á að tekið hafi verið á þessum málum að gagni. Vonandi mun nú boðskapur Evrópusambandsins í hinni ágætu grænbók þess verða til þess að tek- ið verði á málum nýsköpunar hér á landi með mjög breyttum áhersl- um og betri árangri á komandi árum. Jón Erlendsson „Eitt af því sem mér þótti hvaö mestur fengur í í grænbókinni var sú staðhæfing aö „nýsköpun sé ekki efnahagslegt lögmál eða tæknilegt ferli heldur sé hún umfram allt félagslegt fyrirbæri“. Þessu sjónar- miöi hef ég haldið fram á síðum DV síð- astliðin þrjú ár.“ Með og á móti Tvöföld umferð í forseta- kosningum Krafa nútímans „Þess er krafist i lögum að forsetinn sæki umboð sitt til allra kosningabærra manna i land- inu og forset- inn er eini þjóðkjörni embættismað- ur ríkisins. Ég tel óeðlilegt að forsetinn geti náð kjöri með stuðn- ingi lítils hluta þjóðarinnar. Það er hægt eins og lög gera ráð fyrir varðandi forsetakosningar í dag. Það gæti til dæmis gerst að ef frambjóðendur væru 6 talsins og atkvæðaskiptingin yrði jöfn milli þeirra gæti forseti verið kjörinn með 17% fylgi. Á seinni árum hefur gagnrýni á stjórnsýslumál hins opinbera orð- ið mun opinskárri, til dæmis í fjöl- miðlum. Þess vegna gæti verið erfitt fyrir forseta með lítinn hluta þjóðarinnar á bak við sig að takast á við slíkt. Það myndi styrkja bæði forsetann og embætti forsetans að hafa meirihluta. Sú þróun er að verða alls staðar í lýðræðisríkjum í heiminum að æðsti embættis- maður þjóða hafi meirihluta þjóð- arinnar á bak viö sig. Ef við ætlum að fylgja þróun í lýðræðisríkjum eigum við nátt- úrulega að koma þessari reglu á. Það þarf að fara tvisvar sinnum í gegnum þingið og því verður að huga að þessu í tíma. Það er einnig umhugsunarefni í því sam- bandi hvort við eigum að breyta þeirri meðferð að öll breyting á stjórnarskránni skuli þurfa tvö- falda umferð. Þar bendi ég á stjórnlagaþing sem gæti fjallað um breytihgar á stjórnarskránni." Asta Ragnheiöur Jóhannesdóttir, þingmaður Pjóð- vaka. Isólfur Gylfi Pálma- son, þingmaður Framsóknarflokks- ins. Persónulegri átök „Það er hætta á harðari persónulegum átökum sé kos- ið um hreinan meirihluta í forsetakosning- um og líklegt að verði verri eining um for- setann. Kerfið sem nú er hef- ur reynst vel, verið farsælt og það er auk þess kostnaðarsamara að vera með tvöfalda umferð í for- setakosningum. Okkur veitir ekk- ert af samheldni og sameiningar- tákni sem forsetinn er. Gott dæmi er hve þjóðin hefur sameinast um Vigdisi Finnbogadóttur sem for- seta sem fékk um 33% atkvæða. Ég var til dæmis einn af þeim sem ekki kaus hana en ég sætti mig ákaflega vel viö hana og átti síðan kost á að kjósa hana síðar. Ef við breytum þesu kerfi er hætt við harðari átökum og persónu- legri. Þeir sem verða undir í þessari baráttu, eins og til dæmis í síð- ustu forsetakosningum, töpuðu allir í senn. Ef kosið hefði verið aftur þá hefði þetta orðið miklu harðari slagur. Síðan er til annað kerfi sem ég gæti hugsanlega stutt, ef menn vilja endilega breyta. Þaö gengur út á að fram- bjóðendum sé raðað upp í for- gangsröð eftir vilja kjósendanna. Ef frambjóðendurnir eru til dæm- is 5 talsins setja kjósendurnir númer fyrir framan hvern þeirra og síðan er hlutfallið reiknað út. Ég er íhaldssamur og vO við- halda því kerfi sem er við lýði. En þessi hlutfallskostur er skárri en að láta hreinan meirihluta ráða.“ -ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.