Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Side 15
14 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 27 íþróttir DV I>V | Leikur nr. Chapman til Noregs Lee Chapman, fyrrum leik- maður Leeds og West Ham, hef- ur skrifað undir samning við norska liðið Strömsgodset. Von- ast er til að Chapman geti ieikið sinn fyrsta leik um næstu helgi. Með þessu norska liði leikur Gestur Gylfason og Marko Tanasic, fyrrum Keflvíkingur. Chapman er ætlað að leysa af hólmi Jostein Flo sem verður frá keppni í tvo mánuði vegna meiösla. Handtökur í Newcastle 29 voru handteknir í New- castle um síðustu helgi þegar ljóst varð að titillinn eftirsótti myndi ekki koma til borgarinn- ar. Æstur múgurinn lét reiði sina bitna á saklausum búðar- eigendum þar sem gluggar voru brotnir, bílar skemmdir og öðru lauslegu hent á víðavang. Boli til West Ham? Harry Redknapp, fram- kvæmdastjóri West Ham, gæti hugsanlega verið á leiðinni aö skrifa undir samning við fyrsta leikmanninn af mörgum í sum- ar. Nú hefur hann augastað á Roger Boli hjá franska liðinu Lens en hann er bróðir hins kunna Basil Boli. West Ham hefur fengið hann að láni til að leika með West Ham í vináttuieik gegn Sporting í Lissabon. Leeds í markmannsleit Leeds United er þegar farið að leita að markverði í stað Johns Lukic sem fær frjálsa sölu frá fé- laginu í sumar. Félagið hefur áhuga á Mark Grossley hjá Nottingham Forest sem neitar að skrifa undir nýjan samning og Pavel Srnicek hjá Newcastle. Thomas til Bayern? Samningur Michaels Thomas við Liverpool rennur út i sumar og hefur hann neitað að skrifa undir nýjan samning. Bayern Munchen hefur áhuga á kappan- um. Samkvæmt Bosman-úrskurð- inum fær Liverpool ekkert fyrir hann ef hann neitar að skrifa undir nýjan samning. NBA-lelkur í Japan Nú er ljóst að NBA-lið New Jersey Nets og Orlando Magic koma til með að leika í NBA- deildinni í Japan í upphafi næsta keppnistímabils, þann 7. og 9. nóvember. I upphafi leiktíða hefur jafnan verið leikið utan Bandarfkjanna og búist er við 35 þúsund áhorf- endum á leikinn í Japan. Áhuginn vex stööugt David Stern, aðalmaðurinn í NBA, er ánægður með að áfram skuli leikið í upphafi keppnis- tímabila í Japan. Áhugi og stuöningur við NBA- deildina hefur aukist gífurlega á síðustu árum í Japan og sömu sögu er að segja um körfuknatt- leikinn í heiid. Olejuwon sektaöur Hakeem Olajuwon hjá Houston var í gær sektaður um 350 þúsund krónur fyrir að gefa Detlef Schrempf lijá Seattle olnbogaskot í hnakkann. Man. Utd/Liverpool: Samstarf hjá aödáendaklúbbum Aðdáendaklúbbar Man. Utd og Liverpool ætla aö hita upp fyrir úrslitaleik ensku bikarkeppn- innar á laugardag og hafa með sér samstarf vegna leiksins. Dagskráin á laugardag hefst kl. 9.00 um morguninn með knattspyrnuleik klúbbanna og síðan er samfelld dagskrá hjá klúbbunum þar til eftir leik. -SK Ingólfur Hannesson, íþróttastjóri RÚV: Siglum inn í nýtt sam- keppnisumhverfi Það hefur örugglega farið fram hjá fæstum að á laugardaginn kem- ur verður úrslitaleikur ensku bikar- keppninnar í knattspyrnu en þá eig- ast við Liverpool og Manchester United. Hvað beina sjónvarpsút- sendingu áhrærir hefur orðið mikil breyting í þeim efnum. Stöð 3 hefur núna einkaleyfi á beinni útsendingu frá leiknum í stað Rikssjónvarpsins áður. Þetta hefur það í för með sér að aðeins íbúar á höfuðborgarsvæð- inu geta séð leikinn. Að vonum eru knattspyrnuáhuga- menn á landsbyggðinni ekki ánægð- ir með þessa þróun. íþróttadeild DV hefur áþreifanlega orðið vör við það þvi þangað hefur hringt fjöldi manna af landsbyggðinni og lýst yfir óánægju sinni. Sumir landsbyggðarmenn deyja ekki ráðalausir og hafa þeir athug- að þann möguleika að sjá leikinn í gegnum norska ríkissjónvarpið með nokkrum tilfæringum. Margir hafa spurt sig þeirra spurninga hvað í raun hafi gerst í þessum sjónvarpsmálum. Af hverju hefur ríkissjónvarpið til að mynda misst þennan rétt sem það hefur haft til margra ára? Aðilar taka einfaldlega hæsta tilboði Til að fá svar við þessari spurn- ingu og öðrum þáttum þessa máls var Ingólfur Hanneson, íþróttastjóri RÚV, fenginn til að skýra málið.' „Þessir leikir voru lengi vel í samningum enska knattspyrnusam- bandsins og EBU. Við sem aðilar að EBU vorum þar inni í þeim stóra samningi. Fyrir um 2-3 árum náðist ekki samkomulag á milli deildar- innar, eða þess fyrirtækis sem annast hennar mál, og EBU um áframhaldandi samning. Síðan þá höfum við gert samning við þetta fyrirtæki um beina útsendingu frá bikarúrslitaleiknum. Þegar viðræð- ur hófust um þetta mál á sl. hausti eftir að við vorum búnir að ná samningi um laugardagsútsending- arnar eru fleiri aðilar komnir inn á þennan markað, eins og Stöð 3, sem eru að bera víurnar í þessa stórvið- burði. Þá gerist það að við bjóðum 60% hækkun á því sem við höfðum í fyrra en erum þá að bjóða í úrslita- leikinn sjálfan, einn í 5. eða 6. um- ferð og svo undanúrslitaleikinn. Þetta er ákaflega takmarkaður útsendingarréttur sem við bjóðum i auk þess sem við erum þó alltaf á laugardögum. Við hækkuðum okk- ar verulega. Það sem hins vegar ger- ist er að þessi aðili selur bikar- keppnina í heild, það eru allar um- ferðir fram að úrslitaleik sem gera fljótt á litið í kringum 16-17 leiki. Þar með var þessi pakki orðinn svo stór að við gátum ekki boðið í hann, leikirnir voru orðnir allt of margir. Þetta kostaði umtalsverða fjármuni og langan útsendingartíma fyrir alla þessa leiki og við höfðum hvorugt. Það gerist ekkert annað í þessu dæmi en það að tilboð Stöðv- ar 3 er mun hærra og raunar sam- kvæmt mínum heimildum margfalt hærra en það sem við buðum. Mál- ið er bara einfalt, aðilar taka því til- boði sem meiri fjármunir eru í,“ sagði Ingólfur Hannesson. íþróttir eru geysilega vin- sælt sjónvarpssefni Ingólfur bætti við að þeir hjá Stöð 3 hefðu verið tilbúnir að hasla sér völl með vinsælt sjónvarpsefni. Þeir voru þá skiljanlega tilbúnir til að borga verulega háa upphæð. „Vissulega er súrt í broti að missa þennan pakka. Það er alveg á sama hátt súrt í broti að áskrifend- ur úti á landi fá ekki áhugavert efni sem á boðstólum er nema að vera hér á Reykjavíkursvæðinu. Þetta er blákaldur raunveruleiki sem hefur verið þróast með mun meiri hraða erlendis en hér. Áhuga- vert sjónvarpsefni, þar á meðal íþróttaefni er smám saman að fara í meiri mæli inn í lokaða dagskrá. Þetta er þróun sem á sér stað alls staðar í Evrópu. Englendingar horfa ekki á beinar útsendingar Fótboltinn á Englandi er að stór- um hluta kominn í lokaða dagskrá. Englendingar sjálfir geta ekki horft á beinar útsendingar á laugardög- um. Þeir hafa verið að ná þeim á pöbbum úti um allar Bretlandseyjar í útsendingum Stöðvar 2 í Noregi. Þetta er það sama og á sér stað hér en býður upp á þá leiðinlegu van- kanta að stór hópur sem áður fékk þessa leiki beint inn í stofu til sín fær þá ekki lengur. Þarna eru fjár- munir og samkeppni í spilinu sem birtist með þessum hætti. Við erum að sigla inn í nýtt og spennandi samkeppnisumhverfi," sagði Ingólf- ur að lokum. -JKS Steffi Graf nálgast met Navratilovu Þýska tennisdrottningin Stefíi Graf komst í hann krappan I gær- kvöldi er hún keppti á opna ítalska meistaramótinu í tennis á leirvelli í fyrsta skipti í 9 ár. Graf lék gegn Alexia Dechaume- Ballaret frá Frakklandi. Eftir tæpa eina og hálfa klukkustund fagnaði Graf sigri, 6-3 og 7-6. Franska stúlk- an er í 129. sæti á listanum yfir bestu tenniskonur heims í dag. Graf sagðist í gær hafa verið óþolinmóð í leiknum en leikurinn væri óneitan- lega hægari á leirvelli. Steffi Graf hefur verið nær ósigr- andi í tennis kvenna um langt bil. Hún hefur vermt toppsæti heims- listans í 332 vikur og næsta mánu- dag bætir hún met Martinu Navra- tilovu hvað lengd í toppsætinu varð- ar. Faðir Graf, Peter Graf, situr enn í steininum vegna ákæru um skatt- svik. -SK OJ ARSHATIÐ HANDKNATTLEIKSDEILDAR ÍR verður haldin laugardaginn 11. maí í ÍR-heimilinu við Skógarsel Forsala miða fimmtudag frá kl. 20-22 í ÍFS-heimilinu Upplýsingar í síma 557 5013 Þjálfarinn kjálkabraut lærlinginn Oftast eru samskipti þjálfara og þeirra sem við boðskap þeirra eiga að taka með miklum ágæt- um en svo var þó ekki hjá enska 1. deildar liðinu Grimsby Town 1 vetur. Það gerðist eftir leik Grimsby og Luton Town í vetur að þjálf- ara Grimsby, Brian Laws, og hin- um ítalska sóknarmanni liðsins, Ivano Bonetti, lenti heiftarlega saman í búningsklefa Grimsby að leik loknum. Ekki voru átök þeirra munnleg heldur verkleg í meira lagi því þjálfarinn gerði sér lítið fyrir og kjálkabraut ítalann og lærlingur- inn hefur nú höfðað mál gegn þjálfara sínum. Forráðamenn Grimsby ætla að .verjast með kjafti og klóm en þeir hafa þegar sektað þjálfarann. -SK Japanskur „dóphaus" í frjálsum Besti spretthlaupari Japana, Yoshitaka Ito, hefur verið dæmd- ur í fjögurra ára keppnisbann fyrir steraát. Ito hefur undanfarna mánuöi æft í Bandaríkjunum og þar var hann gómaður i mars sl. og sett- ur í lyfjapróf. Besti tími Itos er 10,22 sekúndur. Að hætti „dóphausa" segist Ito aldrei hafa étið umrædda stera og ekki vita hvemig lyfið hafi komist í blóð sitt. Hann stefndi á góðan árang- ur á ólympíuleikunum í Atlanta í sumar en þarf ekki að hafa áhyggjur af mótum, stórum né smáum, næstu fjögur árin. -SK „Grobbi" brátt búinn að vera Svo virðist sem framtíð Bruce Grobhelaars sem markvarðar sé ráðin. „Grobbi“ hefur misst sæti sitt hjá Southampton og nú hefur nýráðinn landsliðsþjálfari Zim- babwe, Svisslendingurinn Marc Duvillard, tilkynnt að Grobbel- aar leiki ekki fleiri landsleiki fyr- ir Zimbabwe, alla vega ekki und- ir hans stjóm. „Grobbi" á að mæta fyrir rétt í janúar á næsta ári vegna mútumáls sem þá verð- ur til lykta leitt. -SK Sigur Grikkja Grikkir unnu nauman sigur gegn Georgíumönnum í vináttu- landsleik þjóðanna í knattspyrnu í gær, 2-1. Grikkir skoraðu sigurmarkið skömmu fyrir leikslok. -SK Bernard Lama, markvörður og fyrirliði Paris SG, lyftir Evrópubikarnum, borinn uppi af þjálfara sínum, Luis Fernandez. Símamynd Reuter Evrópukeppni bikarhafa: Mikil barátta um fyrsta sigurinn Paris Saint Germain frá Frakk- landi varð í gær Evrópumeistari bikarhafa i knattspyrnu með 1-0 sigri gegn Rapid Vín frá Austurríki. Hvoragt liðið hafði áður fagnað sigri í Evrópukeppni og leikurinn bár þess nokkur merki. Hann var harður allan tímann og baráttan meiri en gæði knattspyrnunnar. Deildabikarinn annað kvöld: Ræður hlutkesti úrslitum? Svo kann að fara að varpa þurfi hlutkesti um hvort ÍA eða ÍBV kemst í úrslitaleik deildabikar- keppninnar í knattspyrnu. Liðin skUdu jöfn á Akranesi, 1-1, og ÍBV vann síðan Fram, 2-0. Annak kvöld leika Fram og fAá Valbjarnarvelli og fari svo að Skagamenn sigri, 2-0, eru þeir hnífjafnir ÍBV, að stigum, á marka- tölu og innbyrðis leik. Þá þarf mótanefnd KSÍ að kasta Giggs endar hja United - „enska deildin einfaldlega sú besta í heiminum“ Fyrir ári síöan lýsti Ryan Giggs, leikmaður Man. Utd í ensku knatt- spymunni, því yfir að hans æðsti draumur væri að leika á Ítalíu. Nú hefur Giggs skipt um skoðun eins og svo fjöldamargir aðrir. Giggs segist ætla að enda feril- inn hjá Man. Utd. „Ég hef haldið með Manchester United frá því ég var smástrákur og okkur hefúr gengið frá- bærlega á siðustu áram. Ég sé ekki neina ástæðu til að skipta um um- hverfi eða lið. Enska deUdin er einfaldlega sú sterkasta í heiminum í dag,“ segir Ryan Giggs. Ferguson leitar að nýjum mönnum Alex Ferguson, fram- kvæmdasljóri Man. Utd, verður á áhorfendabekkj- unum þegar úrslita- keppni Evrópukeppninn- ar fer fram í næsta mán- uði. Þar mun hann fýlgj- ast grannt með leik- mönnum enda segist hann vanta breiðari hóp leikmanna fyrir næsta keppnistímabU. „Ég hef ekki nógu stór- an hóp af leikmönnum og ég mun horfa á hvem einasta leikmann sem tekur þátt í Evrópfr keppninni," segir Fergu- son. Talið er fullvíst aö Man. Utd muni kaupa þrjá leikmenn það minnsta fyrir næsta keppnistímabU. Þar verða fyrir valinu tveir varnarmenn, annar mið- vörður og aðaláhersluna mxm Ferguson leggja á að krækja í snjaUan hægri kantmann. -SK Úrslitakeppni NBA í nótt: Shaq og Penny fóru á kostum - skoruðu samtals 73 stig gegn Atlanta ShaquiUe O’Neal og Penny Hardaway léku við hvem sinn fingur í nótt þegar Orlando sigraði Atlanta, 117-105, í fyrsta leik liðanna í 2. umferð úrslitakeppni bandaríska körfúboltans í Orlando. Það er óhætt að segja að þeir félagar hafi farið á kostum þvi þeir skoraðu samtals 73 stig í leiknum, Shaq gerði 41 stig og Penny 32. Þaö var greinilegt á leik Orlando að liðið var vel hvUt en átta dagar eru síð- an liðið tryggði sér áframhald í úrslita- keppninni eftir sigurinn á Detroit. „Við voram orðnir hungraðir í að spila körfubolta. Átta daga hvUd hafði þó góð áhrif á liðið en þaö lék á flestum sviðum í þessum leik vel,“ sagði ShaquiUe O’Neal eftir leikinn í nótt. Hann tók einnig 13 fráköst og var með 6 stoðsendingar. Shaq gerði 25 stig í fyrri hálfleik og vissu þá leikmenn Atlanta varla sitt rjúkandi ráð tU að stöðva kappann. „Við eram ekki hættir. Við munum halda vinmmni áfram og mæta grimm- ir tU næsta leiks," sagði Lenny WU- kens, þjálfari Atlanta. Stacey Augmon var stigahæstur hjá Atlanta með 23 stig og næstir komu Steve Smith og Mokkie Blaylock með 18 stig. Annar leikur liðanna verður einnig í Orlando á fostudagskvöldið. -JKS Bolvíkingar óánægðir með 4. deildina í knattspyrnu: „Varariðill en ekki Vestfjarðariðill" Það var varnarmaðurinn Bruno N’Gotty sem skoraði sigurmark leiksins á 29. mínútu með góðu langskoti. Parísarliðið hafði nokkra yfirburði í leiknum og sigur liðsins sanngjam. Rapid lék síðast í úrslit- um keppninnar 1985 og tapaði þá einnig, gegn Everton. -SK Bolvíkingar hafa undanfamar vikur barist fyrir meiri réttindum 4. deildar liða á Vestfjörðum. Þeir eru óánægðir með að ekkert lið úr Vestfjaröariðli deUdarinnar komist beint í 8 liða úrslit eins og lið úr öðrum riðlum gera. í gær fengu þeir síðan endanlegt svar frá KSÍ um að engu yrði breytt og bæði Vest- fjarðaliðin sem komast áfram verði að spila við lið númer tvö í öðrum riðlum um sæti í 8 liða úrslitum. „Við teljum mjög óréttlátt að efsta lið- ið héðan komist ekki beint áfram og finnst að heitið á riðlinum, V-riðUl, þýöi VarariðiU en ekki Vestfjarðariðill. Þetta er keppni fyrir alla íslendinga en við erum ekki teknir með sem fuUgUdir þátt- takendur í deildinni. Við gerum ekkert meira í málinu og spUum í deildinni eins og áður var áætlað og vonum að þessu verði breytt á næsta ársþingi," sagði Elí- as Jónatansson hjá knattspyrnudeild Bolvíkinga við DV í gærkvöldi. „Við vorum í ákveðnum vanda þegar í ljós kom svona mikU þátttaka á Vest- fjörðum því í reglugerð um 4. deildina er ekki gert ráð fyrir sérstökum riðli þar. Réttur Vestfirðinga hefur því verið auk- inn mjög frá því sem áður var. Við vUd- um ekki henda fyrirkomulagi úrslita- keppninnar fyrir róða en það er ljóst að reglugerðin verður endurskoðuð fyrir næsta ársþing," sagði Snorri Finnlaugs- son, framkvæmdastjóri KSÍ. Sigurliðið í V-riðlinum þarf að leika við lið númer tvö í C-riðli og lið númer tvö í V-riðli mætir liði númer tvö í B- riðli. Sigurliðin í þessum viðureignum komast í 8 liða úrslit deUdarinnar. Ekki hefur verið sérstakur riðiU á Vestfjörð- um í átta ár en þar verða sex lið í sumar. -VS upp um hvort liðið leikur til úrslita í keppninni. ÍA þarf að vinna með minnst tveimur mörkum til að komast i úr- slit, annars kemur það í hlut Eyja- manna. í hinum riðlinum leika Breiða- blik og Grindavík í Kópavogi. Þar þarf Breiðablik að sigra með tveggja marka mun tU að komast í úrslita- leikinn, annars fara Grindvíkingar þangað. -VS Stefán og Tryggvi skora mest Stefán Þórðarson, sóknarmaöurinn Tryggvi Guðmundsson, ÍBV...........8 ungi í liði Skagamanna, og Eyjamaður- Amar Grétarsson, Breiðabliki ......7 inn Tryggvi Guðmundsson eru marka- Mihajlo Bibercic, ÍA...........7 hæstu leikmenn deildabikarkeppninnar ívar Sigurjónsson, Breiðabliki ....6 í knattspymu til þessa með 8 mörk Leifur Geir Hafsteinsson, ÍBV ..6 hvor. Þá er markheppni Amars Grét- Þórhallur Dan Jóhannsson, Fylki....6 arssonar athyglisverð en hann er kom- Goran Micic, Stjömunni.............5 inn í fremstu víglínu hjá Breiðabliki og Guðmundur Steinsson, Stjörnunni.5 hefur gert 7 mörk. Davíð Ólafsson, FH.................5 Þessir hafa skorað flest mörk: Ólafur Ingólfsson, Grindavík ......5 Stefán Þórðarson, lA ............8 -VS Úrslitaleikurinn í Reykjavíkurmótinu: Leikið á Laugardalsvelli Ákveðið hefur verið að úrslitaleikur- inn á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu fari fram á aðalleikvangi Laugardalsvall- ar á sunnudaginn kemur. Völlurinn hef- ur aldrei áður komið betur undan vetri að sögn þeirra sem best þekkja til. Jú, það er alveg rétt að við höfum ákveðið að fyrsti leikurinn á vellinum í sumar verði á sunnudaginn kemur. Úr- slitaleikur á Reykjavíkurmótinu hefur aldrei áður farið fram á grasi. Leikirnir hafa ávallt farið fram á gervigrasvellin- um eftir að gamli Melavöllurinn var lagður niður. Aðalleikvangurinn er kom- inn í gott stand og á þessum árstíma hef- ur hann líklega aldrei verið betri. Það er því fyrir að þakka að aldrei voru svella- lög á vellinum í vetur. Hann kemur vel undan vetri eins og raunar flestallir vell- ir á landinu. Álagið á vellinum í sumar verður í minna mæli svo hann ætti að líta vel út,“ sagði Jóhannes Óli Garðars- son, vallarstjóri á Laugardalsvelli, í sam- tali við DV í gær. Þess má og geta að síðari leikur ís- lands og írlands í Evrópukeppni 18 ára landsliða verður á Laugardalsvellinum á þriðjudaginn kemur. -JKS Sochaux rak þjálfarann Franska 2. deildar liðið Sochaux, sem Arnar Gunnlaugsson leikur með, ákvað i fyrradag að reka þjálfara liðsins. Liðið hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til þess í vetur. Markmiðið var að komast upp í 1. deild á nýjan leik. Slakur árangur og meiðsli leikmanna komu í veg fyrir það. Ekki hefur verið ákveðið hver tekur við liðinu en ljóst er að miklar hreinsan- ir eru fyrirsjáanlegar fyrir næsta tíma- bil, leikmenn látnir fara og aðrir keyptir í þeirra stað. Stefnan hefur verið tekin á 1. defld. -JKS Draumalið DV Fyrsti hluti þátttakenda í draumaliðsleik DV var birtur í blaðinu í gær og hér kemur næsti skammtur. Þátttakendur geyma tilvísun- arnúmerin og nota þau síðan til að fá upplýsingar um gengi sitt í leiknum á Simatorgi DV eftir að íslandsmótið hefst. 00203 Pósthólf 236 00204 Liverpool 2 00205 Sauðnautið 00206 Elding 00207 Police Force 00208 OPEC 00209 Æskan 00220 Begga Frammari 00222 Falur 00223 Jakob Ö.S. 00224 Kleó 00225 Netcastle 00226 Villa GT FC Klúbbur 00227 Þruman 00228 Vitleysa 00229 Dýrlingar 00230 Ragnar B. 00232 Hannes B. 00233 Ulvik IL 00234 Martraöarliðiö 00235 TTTungl FC 00236 E.G.Ó. II 00237 JG Milan 00238 Strumparnir kátu 00239 Baron 00240 Höfrungur 00242 Deja Vú 00243 Þjarkarnir 00244 Ágætt 00245 UFHÖ 00246 Þorgrímur K. 00247 Vonir og væntingar 00248 Eymi 00249 FC Rauða stjarnan 00250 Hellas R.Þ. 00252 Heymartól 00253 Úlfur FC 00254 Manchester United 00255 Jersey Utd 00256 Skopparar 00257 Blandan 00258 Pinnarnir 00259 Lærlingar 00260 Rafvirkjarnir 00262 Kumpáni 00263 Q.P.R. 00264 Black. Rovers Fan 00265 Andvari 00266 Mr. Muscle 00267 Elvis 00268 M.U. FC 00269 Sérsveitin 00270 Strumparnir 00272 Saxar 00273 S.T.R.H. 00274 Liðþófar hf. 00275 KF Staðfastir 00276 ACE 00277 Landsliðiö 00278 Hrímnir 00279 Frostmenn 00280 Bland í poka A.H.J. 00282 Atlanta 00283 FC Juvelivpool 00284 Skot og mark 00285 Trína með augun 00286 DE 911 00287 DJ-Jónir 00288 Liffarpollur KF 00289 Lunch United 00290 FC Barsa 00292 Gússi skíðakappi 00293 Árgljúfur 00294 Eldborg 00295 Gugga Þeir sem gleyma að gefa liði sínu nafn fá eigið skirnarnafn og upphafsstafi seinna nafns eða nafna á eftir (t.d. Þorgrímur K.) Þar sem tvö eða fleiri lið koma með sama nafn eru upphafsstafir viðkomandi settir á eftir. Nýtt faxnúmer Vakin er athygli á nýju fax- númeri íþróttadeildar og rit- stjórnar DV sem er 550-5020. Óskýrar faxsendingar Þeir sem senda á faxi þurfa að vanda vel til því nokkur slík lið sem send voru í gær reyndust ólæsileg. Það voru liðin West Ham, Faxi, Hristingur, Elliglöp, Friður-2000, Wholesale, Charlie Eagle og Fótboltabullur. Þá kom eitt ólöglegt lið í gær, Botnleðja. Aftur á þriðjudag Síður þar sem draumaliðsleik- urinn er kynntur ítarlega hafa birst tvívegis, föstudaginn 3. maí og þriðjudaginn 7. maí. Þriðja og síðasta kynningin með öllum upplýsingum birtist þriðjudag- inn 15. maí. Þátttökuseðlar þurfa að hafa borist DV í síðasta lagi að kvöldi mánudagsins 20. maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.