Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Qupperneq 28
t
%
Vinningstölur miðvikudúginn 8.5/96
24Y25Y26)
12X18X40
Vinningar Fjöldi vinninga Vinningsupphseð
t.i'ft 4 26.502.500
2Tw? f. 2 201.420
Í.Safi 9 35.160
4. i afi 395 1.270
S.Safi'1 * 1.085 190
Heildaninmngiupphjeð Á fslantfí
107.437.080 1.427.080
£3» 7Xio)(ii)(i8;
KIN
FR ETTAS KOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 9. MAI 1996
Barningur við
að sækja
Spánverja
Snemma í morgun var komið
með fótbrotinn sjómann af spænsk-
um togara á Sjúkrahús Reykjavíkur
eftir að barningur hafði staðið í alla
nótt við að koma honum til lands
með þyrlum Landhelgisgæslunnar,
TF-Líf og TF-Sif.
Þyrlan var upphaflega kölluð út
um klukkan ellefu í gærkvöldi en
togarinn var þá staddur um 150
sjómílur suðvestur frá Reykjavík.
Var drep komið í fót mannsins og lá
á að koma honum undir læknis-
hendur. Veður var hins vegar of
slæmt til að hægt væri að athafna
sig og hvarf þyrlan frá.
Síðar í nótt var TF-Sif send á vett-
vang og var þá veður orðið skap-
4 legra og tókst að ná manninum upp
í þyrluna. Var hann svo kominn á
sjúkrahúsið laust fyrir klukkan sex
í morgun.
-GK
Brenndist og
skarst í andliti
Samgönguráðuneytið úrskurðar togarann Heinaste ólöglegan:
Verður snúið til lands
með illu eða góðu
- segir formaöur Sjómannasambandsins - dómsmálaráöuneytið hefur ekki fengið úrskurðinn
„Það eru tekin af öll tvímæli í
svari samgönguráðuneytisins um
að þetta sé lögbrot og dómsmála-
ráðuneytið á að sjá um að lögum
sé framfylgt. Við munum fylgja
málinu mjög fast eftir, bæði form-
lega og óformlega, það er engin
hætta á öðru,“ sagði Sævar Gunn-
arsson, formaður Sjómannasam-
bandsins, við DV nú i morgun.
Sævar sagði að þess yrði krafist
að Heinaste yrði snúið til lands en
það ætti ekki að vera mikið mál
fyrir Landhelgisgæsluna því varð-
skip væri á Reykjaneshryggnum
og þegar skip, sem ekki uppfyllti
íslensk lög, væri á sjó gæti Gæslan
sagt því að fara heim. „Hún hefur
vald til þess og annað eins hefur
nú gerst,“ segir Sæ.var við DV.
Það er Sjólastöðin í Hafnariirði
sem gerir út togarann Heinaste.
Togarinn er nú að veiðum á
Reykjaneshrygg en skráningarmál
hans verða væntanlega í athugun í
dag hjá dómsmálaráðuneytinu, að
sögn Þorsteins Geirssonar ráðu-
neytisstjóra nú í morgun. Það var
hins vegar ekki komið inn á borð-
ið tO ráðuneytisstjóra klukkan 8 í
morgun. Að sögn Helga Hallvarðs-
sonar höfðu Gæslunni engin fyrir-
mæli í málinu borist frá ráðuneyt-
inu.
„Við vitum ekki annað en að við
séum að fara algjörlega að íslensk-
um lögum og með vitund og í um-
sjá yfirvalda, segir Jón Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Sjóla og útgerðarmaður togarans.
Hann segir að útgerðin muni
skoða málið í dag en mikill mis-
skilningur hafi komiö fram í yfir-
lýsingum varðandi skoðun á skip-
inu og fleira. Skipið hafi fullgilt ís-
lenskt haffærisskírteini enda sé
það íslenskt skip.
Jón sagði að það sem frá sam-
gönguráðuneytinu hefði komið í
málinu væri alls enginn úrskurð-
ur, aðeins svar við bréfi Sjó-
mannasambandsins, og málið
hlyti að skýrast á næstu dögum.
Guðmundur Sophusson, sýslu-
maður í Hafnarfirði, sagðist í
morgun ekkert vilja um málið
segja, það yrði rannsakað ofan í
kjölinn.
-SÁ
Ungur Eskfirðingur brenndist og
skarst í andliti þegar lítill sendibíll,
„*»$em hann ók, valt á Fagradal í gær.
Hann lenti undir bílnum og fékk
jrfir sig heitt vatn úr vatnskassan-
um.
Bíllinn er ónýtur og þykir undr-
um sæta hve vel maðurinn slapp en
hann fékk að fara heim í gær eftir
aðhlynningu.
-GK
Frelsi í orkusölu:
Ríkið getur
stjórnað
- segir Finnur Ingólfsson
' „Það er ljóst að þrátt fyrir þessa
væntanlegu tilskipun frá ESB um
orkumál þá getur ríkið haft
ákveðna stjórn á þessu, þ.e. valið
milli leyfisveitinga. Verði byggt
nýtt orkuver hér á landi þá verða ís-
lensku fyrirtækin jafn vel sett og
hin evrópsku," sagði Finnur Ingólfs-
son iðnaðarráðherra við DV í morg-
un.
-sv
NÝTT FAXNÚMER
RIT.STJÓRNAR
FAXNÚMER ANNARRA
DEILDA HALDAST ÓBREYTT
■
„Mér dauðbrá en maður tekur þessu með jafnaðargeði - reynir það að minnsta kosti. Það kom í Ijós að ein hjarta-
lokan í mér er gölluð og hefur verið það frá fæðingu. Gárungarnir hér á spítalanum spurðu mig hvort nafnbreyting-
in hefði lagst svona þungt á mig,“ sagði Keflvíkingurinn Rúnar Júlíusson í samtali við DV þar sem hann lá á hjarta-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Hér er Hermann Gunnarsson í heimsókn hjá Rúnari. DV-mynd Ægir Már
^ Síldarkvótinn:
Oskaplega
lítiö
- segir Jóhann A. Jónsson
„Þetta er óskaplega lítið og við
fáum helmingi minna á Júpíter en
við veiddum í fyrra. Það er rétt svo
að það taki því að byrja,“ segir Jó-
hann A. Jónsson hjá Hraðfrystistöð
Þórshafnar.
Júpíter ÞH er þegar farinn á síld-
armiðin fyrir austan land eins og
tuttugu önnur skip. Kvóti skipsins
er 4.300 tonn en aflinn í fyrra var
nær 9.000 tonn.
í reglugerð sjávarútvegsráðuneyt-
isins frá í gær er togurum m.a. ætl-
uð 8.000 tonn og sagði Jóhann að
kvótanum væri skipt svo mikið upp
að vart borgaði sig að senda skipin
og augljóst að ekki færu allir til
veiðanna. -GK
Öxnadalsheiði:
Skriða lokaði
veginum
Vegurinn um Öxnadalsheiði lok-
aðist um klukkan sex í morgun
vegna aurskriðu sem féll í svoköll-
uðum Giljareitum.
Var vegurinn lokaður í um þrjá
tíma og fóru fyrstu bílarnir yfir
heiðina á ný á níunda tímanum.
-GK
V$RÐA ÞEIR EKKI AD
FA AÐSTOÐ þlORÐ-
MANNA OG RUSSA TIL
AÐ SÆKJA DALLINN?
Veðrið á morgun:
Súld eða
skúrir
Á morgun verður fremur hæg
suðvestlæg átt á landinu. Skýjað
að mestu og dálítil súld eða skúr-
ir vestan- og norðvestanlands en
um landið norðaustan- og aust-
anvert verður léttskýjað.
Hiti verður yfirleitt á bflinu 9
til 15 stig, en nokkru svalara
allra vestast.
Veðrið í dag er á bls. 36
Móttaka á
rafgeymum
móttökugjald 12 kr/ kg
HRINGRÁS HF.
ENDURVINNSLA
bfother.
Ljtla
merkivélin
loksins
meö Þ og Ð
I zlA al =M zk tf
Nýbýlavegi 28, sími 554 4443-