Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1996, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1996, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1996 5 Fréttir Skýringa leitað á að grínframboð vinnur stórsigur á norðanverðum Vestfjörðum: Eru að mótmæla því að öll forysta hefur tapast I atvinnumálum - segir Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands VestQarða „Það eru auðvitað merkileg tíðindi þegar grínframboð fær umtalsvert fylgi og það er ekki nóg að tala bara um pótitíska þreytu og almenna óá- nægju með aðra flokka. Það sem hér hefur gerst er að um 250 fullorðnir kjósendur láta ráðandi öfl í bæjarstjóm vita að þeir eru ósátt- ir við að ísafjörður hefur tapað allri forystu í atvinnumálum. Þetta er ekki þreytt fólk heldur fólk sem vill að- gerðir,“ sagði Pétur Sigurðsson, for- seti Alþýðusambands Vestfjarða, þeg- ar hann bar beðinn um skýringar á miklu fylgi Funklistans i bæjarstjórn- arkosningunum i væntanlegum Isa- fjarðarbæ. „í upphafl skuttogaraaldar hafði ísafjörður forystu. Hér voru sterkustu útgerðarfélögin og útgerðarmenn í öðrum landshlutum litu upp til ísa- fjarðar. Nú er helst hægt að segja að við höfum forystu í rækjuveiðum en það er ekki meira en svo. Mörgum ís- firðingum líkar ekki þessi öfugþróun og láta vita af því,“ segir Pétur. Pétur sagði að mörgum ísfirðing- um þætti sem bæjarstjórnin brygð- ist hlutverki sínu þegar hún gerði ekkert í atvinnumálum. Á sama tíma og fyrirtækin væru í vanda einbeitti bæjarstjórnin sér að fram- færslu- og skólamálum. Hann sagði að allar spennandi fréttir af sjávar- útvegi kæmu nú úr öðrum lands- hlutum. „Það er skoðun min að bæjar- stjórnin eigi að grípa inn i þegar illa gengm og það eru fleiri hér sömu skoðunar. Hitt er svo annað mál hvort það dugar að kjósa óreynda unglinga til forystu. Þetta eru eld- skarpir krakkar og það er í sjálfu sér ástæða til bjartsýni að við erum ekki á flæðiskeri staddir með ungt og efnilegt fólk. Kosningabaráttan hefði líka verið þrautleiðinleg án þessa framboðs," sagði Pétur. -GK Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðu- sambands Vestfjarða. Guðmundur Rafn Geirdal væntanlegur forsetaframbjóðandi „Ég hef lesið bókina Virkjum Bessastaði eftir Ástþór Magnússon og get séð fyrir mér að nýta megi forseta- embættið til að miða málum áfram hvað varðar frið á jörðinni." Þórarinn Ævarsson með verðlaunagripina frá Las Vegas. DV-mynd GVA íslenskur verslunarstjóri maður ársins hjá Domino’s Pizza: Seldi 150 þúsund pitsur fyrir 114 milljónir „Þetta er mjög mikill heiður. Ekki bara fyrir mig heldur alla starfsemina hérna heima,“ segir Þórarinn Ævarsson, rekstrarstjóri hjá Domino’s Pizza á íslandi, sem er að vonum ánægður því hann var á dögunum kjörinn maður ársins hjá fyrirtækinu sem er með verslanir úti um allan heim. „Domino’s Pizza á Grensásvegi var næstsöluhæsta verslunin í heiminum í dollurum í fyrra og er þá ekki miðað við höfðatölu eða neitt svoleiðis. Japanir voru hæstir. Verslunin hérna á Grensásveginum var einnig 1 öðru sæti miðað við magn seldra pitsa. Japanir komust ekki á blað í fjölda seldra pitsa. Það var hins vegar Domino’s verslun í Kanada sem seldi flestar pitsur," greinir Þórarinn frá. Alls seldust um 150 þúsund pitsur hjá Domino’s Pizza á Grensásveginum í fyrra fyr- ir um 1,7 milljónir dollara eða um 114 milljónir íslenskra króna. Mesta söluaukning hjá verslunum Dom- ino’s um allan heim var hjá verslun- inni á Höfðabakka. Þórarinn var kjörinn maðm árs- ins í hófi í Las Vegas þar sem um 2 þúsund manns voru saman komin. „Það er valinn verslunarstjóri árs- Hrafnkell A. Jónsgon: Vinnur fyrir Olaf „Ég er að vinna fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, ég hef aðstoðað ásamt góðum hópi manna við að koma í gang starfí, fá menn til að hafa með- mælendalista. Ég mun leggja það af mörkum sem ég hef tíma til og getu til að hann nái góðri kosningu," sagði Hrafnkell Á. Jónsson verka- lýðsformaður á Eskiflrði. -ÞK ins á hverju ári og keppa heimsálf- urnar sín á milli. Ég fór til Hollands í febrúar og keppti við nokkur hundruð verslunarstjóra frá Evrópu og sigraði. í Las Vegas kepptu svo sigurvegararnir frá hverri heims- álfu og svo Bandaríkjunum. Við fór- um þrír frá íslandi og sópuðum að okkur öllum verðlaunum sem hægt er að vinna.” Þórarinn segir velgengni í sölu á Domino’s pitsum á íslandi ekki hafa komið á óvart ytra. „Þegar við opn- uðum 1993 seldum við fleiri pitsur og fyrir meiri pening en áður hafði þekkst í sögu fyrirtækisins. Við tók- um hins vegar ekki þátt í keppni fyrr en nú.“ Verðið á pitsunum á íslandi er ekki langt yflr því sem gerist er- lendis, að sögn Þórarins. „Meðal- verð á pitsu hér er 11 til 12 dollarar og er þá fjölda pitsa deilt í heildar- sölu. í Hollandi er meðalverðið 10 dollarar en í Japan 22 til 23. Þar eru pitsurnar sælkeramatur með alls kyns sjávarfangi." Eigendur Domino’s Pizza á ís- landi eru Hagkaup, Sigurjón Sig- hvatsson, Skúli Þorvaldsson og Gunnar Guðjónsson. -IBS -WUI Félagsmálaráðherra: Ekki fleiri breytingar á frumvarpinu „Ég tel að frumvarpið sé full- þroskað og að frekari breytingar verði ekki gerðar á því. Það hefur verið tekið tillit til athugasemda verkalýðshreyfingarinnar og breyt- ingar gerðar á frumvarpinu í með- förum félagsmálanefndar Alþingis," sagði Páll Pétursson félagsmálaráð- herra í samtali við DV í gær. Frum- varpið um stéttarfélög og vinnudeil- ur er nú komið úr félagsmálanefnd og til 2. umræðu á Alþingi. Hann segir að eflaust séu ein- hverjir innan verkalýðshreyfingar- innar tilbúnir í einhvern slag við ríkisvaldið vegna þessa frumvarps. Við því sé ekkert að gera. Búist er við að umræður um frumvarpið hefjist í þessari viku en þingfundir munu standa bæði föstu- dag og laugardag næstkomandi. Þing Alþýðusambands íslands hefst næstkomandi mánudag. Stjórnarandstaðan á Alþingi mun ætla að láta umræðurnar um frum- varpið standa yfir fyrstu daga þings ASÍ. Til þess þarf margar og langar ræður á þingi. -S.dói Orrustuflugmaður í jafnþrýstiklefa Bandarískur flugmaður var í gær fluttur í jafnþrýstiklefa til Reykja- víkur eftir að þrýstingur hafði fallið í orrustuþotu hans af gerðinni F-15 nærri Islandi. Var flugsveit á leið yfir haflð og lentu tvær þotur hér og var mannin- um komið á sjúkrahús hér síðdegis til öryggis. Kvartaði hann undan vanlíðan og var það rakið til þrýst- ingstapsins. Hann mun ekki alvar- lega veikur. -GK miÐASALAn OPÍn KA. 15-19 nEmA món. sími 511-1475 ísLEnskö ÓPEken AEG JltUis Coptc ID m * KR.: meo/auka WBm rafhlöau ...» VERÐ KR.: i'SBfi mmsmzm VERÐ KR.: VERÐ KR.: VERÐ KR Hitablásari 1500v/ B R Æ U R N I AEG Jltlas Copcc Lágmúla 8 • Sími 553 8820 i. júní vppsELt oc 4. juní uppselL Umbobsmenn um allt land Reykjavík: Ellingssen. Byggingavöruversl Nethyl Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Blómsturvellir, Hellissandi.Guðni E. Hallgrímsson, Grundarfiröi. Vestfirðir: Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. KEA Siglufirði. KEA Ólafsfirði. KEA, Lónsbakka Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Kf. Vopnfirðinga,Vopnafirði Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Verslunin Vík, Neskaupsstað. KASK, Höfn Suðurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík. Myncllistarpappír < Cnwol BYGGGARÐAR 7, 170 SELTJARNARNES S.56I 2141 • FAX 561 2140

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.