Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1996, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1996
7
DV Sandkorn
Fljótamaður
Rítsljórar hér-
aösfréttablaða
vita þaö
manna best
hvað það er er-
fitt aö vera fá-
liðaðir. Á
Feykiá Sauð-
árkxóki gegnir
hörkutól mikið
úr Fljótunum
öllum stðrfum
sem nöfnum
tjáir að nefiia;
og er svo um
fleiri landsbyggðarblöð. Svo vel
vill til að Fljótamaðurinn félagi
okkar er maðiu- heilsuhraustiu- og
því hafa aldrei orðið vanhöld á út-
gáfu blaðsins i þau átta ár sem
hann hefur starfað þar. Nú brá
hins vegar svo við að þann 1. maí
kom ekkert blað út eins og þó
hafði verið boðað. Skýringin kom
í litilli klausu í fyrsta tölublaði
maímánaðar. Ritstjóri blaðsins,
blaðamaður, ljósmyndari, auglýs-
ingastjóri, skrifstofumaður, rukk-
ari og sendill „veiktust allir i
einu“.
Ekki þú líka,
Jón Baldvin
Jón Baldvin
Hannibalsson
fór til Ísaíjarð-
ar sköminu
fyrir sögulegar
kosningar þar
til bæjarstjórn-
ar og var ætl-
unin að þjappa
saman flokks-
mönnum enda
útlit fyrir að
Alþýðuflokkur-
inn þurrkaðist
út í sjálfum
kratabænúm. Hvort sem það er
Jóni Baldvin að þakka eða ekki þá
náði einn alþýðuflokksmaður sæti
í bæjarstjórn. Á baráttufundi
krata bar það hins vegar helst til
tíðinda að ekki færri en fimm
stigu í pontu og báðu Jón „í öllum
bænum að fara nú ekki í forseta-
framboð".
Ölið sopið úr
pappaglösum
Frá Akureyri
eru sögð þau
tiðindi að veit-
ingamenn eigi
í vandræðum
með að fá
heimild bæjar-
ins til að selja
öl utandyra.
Vilja kráaeig-
endur skenkja
gestum og
gangandi öliö
úti þegar sólin
skín og nú
munu þeir hugsa gott til glóðar-
innar ef i hönd fer sólríkt sumar.
En á Akureyri má bara drekka
bjór innan fiögurra veggja og með
þaki yfir. Þó sannast í þessum
máli eins og svo mörgum öðrum
að krókar eru fram hjá öllum lög-
um. Norðanmenn setja nefnilega
ölið í pappaglös og með þau glös
má fara út ef þjónamir „sjá það
ekki“ og þegar út er komið sér
lögreglan ekki hvað er í glösun-
um. Veitingarnar sjást hins vegar
á gestunum með tíð og tima.
í skjóli veður-
stofustjóra
Á Vopnafirði
eru menn líka
að hugsa um
öl og sól. Þar
hefur nú verið
opnaður Veð-
urbarinn og
mun nafngift-
in eiga að
minna fólk á
að veður eru
hvergi blíöari
en á Vopna-
firði. Veður-
barinn er
skreyttur veöurkortum og veður-
skeytum frá Vopnafirði. Þar er t.d.
greint frá að hiti fór yfir 30 stig í
júní árið 1988 og Ðeiri heitar frétt-
ir eru úr veöurlifi fjarðarins. Til
að kóróna allt hefur Magnús Jóns-
son veðurstofustjóri verið útnefnd-
ur verndari staöarins. Hann var
þó ekki viðstaddur formlega opn-
un á dögunum, enda veðurtepptur
í Reykjavik...
Umsjón: Gfslf Kristjánsson
forfallast
Fréttir
Togarar mokveiða
karfann á Reykja-
neshrygg
DV, Sauöárkróki:
Skagafjarðartogararnir, Málmey og
Skagfirðingur, hafa veitt mjög vel á
karfamiðunum á Reykjaneshryggnum
að undanfórnu. Málmey er nýkominn
með á Qórða hundruð tonn af unnum
fiski að verð'mæti 35 millj. króna. Unn-
in voru um borð 30 tonn á sólarhring.
Skagfirðingur hefur eingöngu veitt
karfa og landar í vikunni um 300 tonn-
um eftir 10 daga veiðiferð.
„Við vinnum karfann líka á Krókn-
um þegar um svona mikið magn er að
ræða. Gott fyrir okkur að þetta gengur
svona vel á úthafsveiðunum þar sem sá
afli er utan kvóta. Þá eru hin skipin í
grálúðu og þar er um ódýran kvóta að
ræða. Ágætis reytingur hjá Hegranes-
inu, Skafta og Klakk í Víkurálnum,"
sagði Gísli Svan Einarsson útgerðar-
stjóri Skagfirðings. -ÞÁ
HERRABUXUR
3.900,
áður 5.900
ULLARJAKKAR 6.900, áður 12.900
ULLARFRAKKAR 7.900, áður 15.900
GEFJUN
HERRAFATAVERSLUN
SNORRABRAUT56
SÍMI 552 2208
Frumsýnd
á rnorgun
* m
symngar
Apaspils-plakat