Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1996, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1996
Spurningin
Ertu búin(n)
að fá þér útsæði?
ég geymi það þar til um næstu
helgi.
Björk Hafliðadóttir heimavinn-
andi: Nei, ég ætla ekki að fá mér
útsæði.
Ríkharður Rósmundsson, vinnur
á Vífilsstöðum: Nei, ég er nú ekki
búinn að því.
Helena Lind Ragnarsdóttir
verkakona: Nei, ég ætla ekki að
gera það.
Hildur Sigurðardóttir húsmóðir:
Nei, ég ætla ekki að setja niður
kartöflur, ég borða þær bara.
Lesendur
Hvalfjarðarævintýrið
- brú fremur en göng
Flestir veldu brúna yfir Hvalfjörð en ekki göngin væri hvort tveggja til stað-
ar, segir m.a. í bréfinu.
Ólafur Guðmundsson vélstj.
skrifar:
Ég er þess fullviss að meirihluti
þjóðarinnar er á móti neðansjávar-
göngum og hefði heldur kosið brú
yfir Hvalíjörð. Af þeirri umræðu að
dæma sem farið hefur fram virðist
meirihluti þess fólks og þeirrar um-
ferðar sem er á leið vestur og norð-
ur í land ætla að sneiða hjá göngun-
um. Það hræðist þau. - Ég er nærri
viss um að væri þarna til staðar
hvort tveggja, göng og brú, veldu
allir brúna en enginn göngin. Það
hefur verið rætt um hagnað af göng-
unum komist þau í gagnið. Að mínu
mati verður um verulegt tap að
ræða og engan veginn svara kostn-
aði að halda þeim opnum.
Öryggið er einn þátturinn og
hann mun verða dýrkeyptur. -
Mannskap þarf allan sólarhringinn,
þrjá menn hvoru megin, öflugan
dráttarbíl með slökkviútbúnaði ef
slys ber að höndum, tvöfalt loft-
ræstikerfi, myndband á nokkrum
stöðum í göngunum, ásamt sím-
stöðvum fyrir farþega ef eitthvað
ber út af og vararafstöð verður að
vera á staðnum ef rafmagn fer af
kerfinu (i sambandi við loftræsti-
kerfiðj en það þarf að vera stöðugt á
vegna mengunarinnar.
Þarna þarf og aö vera bátur til
staðar til að flytja yfir það fólk sem
ekki vill fara göngin. Þannig er ekki
hægt að reikna með að allir úr t.d.
40-60 manna rútubíl vilji ferðast
neðansjávar og því verður að bjóða
því fólki bátsferð yfír fjörðinn. - Að
sjálfsögðu verður að taka tillit til
farþeganna.
Væri brú yfir Hvalfjöröinn þá
væri þetta ekkert vandamál, fólk
nyti bara útsýnisins og brúin myndi
skila hagnaði. íslendingar ferðast
mikið um helgar og leiðin hefur oft-
ast legið austur fyrir fjall. Brú yfir
Hvalfjörð myndi skapa nýja leið fyr-
ir ferðafólk helganna í Borgarfjörö
og lengra. Það færi kannski eins
konar Hvalfjarðarhring.
Ég hef enn fremur hugleitt hvað
verður um allt það jarðefni - grjót
og annað - sem kemur úr göngun-
um. Skyldi hugmyndasmiðunum að
göngunum ekki hafa dottið í hug að
efnið mætti nota til að fylla upp
garða beggja vegna Hvalfjarðar fyr-
ir brú sem koma hlýtur síðar meir?
Ef göngin komast nú ekki í gagnið
eða bresta væri búið að undirbúa
mikið fyrir brúargerð og spara
miklar fjárhæðir fyrir þjóðarbúið.
Þetta er umhugsunarefni fyrir þá
sem stjórna og taka ákvarðanir
gegn vilja fólksins í landinu. En það
er fólkið sem borgar brúsann.
í komandi forsetakosningum
hefði verið upplagt að viðhafa sam-
hliða atkvæðagreiðslu um það hvort
fólk vill göng eða brú yfir Hvalfjörð.
Þá hefði þjóðin borið ábyrgðina á
Hvalfjarðarævintýrinu.
Funklistinn ofan á
Páll Árnason skrifar:
Þeir eru daufir í dálkinn stjórn-
málamennirnir fyrir vestan. Það er
komið í ljós að fólk hefur ekki meiri
trú á stjórnmálaflokkunum en svo
að nýr listi ungs fólks, svonefndur
Funklisti, fær mikinn framgang.
Ætla þeir funklistamenn að halda
áfram að grinast eða ætla þeir að
taka á málunum af alvöru? Svona
eru þeir að spyrja, sumir sem eru í
öngun sínum vegna sigurs funk-
listamanna. - Ég spyr á móti: Hafa
stjórnmálin hér á landi yfirleitt ver-
ið mikið annað en grín? Hefur eitt-
hvað verið að marka þá menn sem
sitja í stöðum og embættum ríkis-
og sveitarstjórna? Sigur Funklist-
ans er svar kjósenda við óstjórn,
undirferli og hagsmunapoti einstak-
linga innan íslenskra stjórnmála.
Sægreifar skæla hátt:
Nokkrar spurningar til formanns LÍÚ
„Eru „ofurtrillur" höfuðóvinir þorsksins og annarra fisktegunda?" spyr bréf-
ritari m.a.
Sigfús Skúlason trillusjómaður
skrifar:
í tilefni umræðna um síðustu at-
burði í sjávarútvegsmálum - ekki
síst þá er varða trillusjómenn beint
- langar mig til að beina eftirfar-
andi spurningum til formanns LÍÚ:
1. Voru það ekki togarar og títt-
nefnd „ryksuguskip" sem eyðilögðu
Nýfundnalandsmiðin?
2. Var Hannes Hafstein að hætta
mannslífum að óþörfu við togara-
töku um síðustu aldamót?
3. Voru ekki botnvörpur þess
tíma eins og barnaleikföng miðað
við „ryksugurnar" nú á dögum?
4. Er gott fyrir umhverfi og
hrygningarstaði þorsksins og ann-
arra fisktegunda að „hefla“ hraun-
botn með stórvirkum veiðarfærum
nútímans?
5. Eru togveiðar og dragnótaveið-
ar betri, verri eða jafn vistvænar og
handfæraveiðar?
6. Veit formaöur LÍÚ að 80-90% af
þorski, sem veiðist á handfæri og er
sleppt, lifa?
7. Þurfa stórútgerðir frystitogara
að leigja gjafakvóta á 80-90 kr./kg
til að bjarga úthafsveiöum sínum?
Og má ekki kalla þau „þrælaskip"
sem leigja þann kvóta á svo háu
verði?
8. Hefur Landhelgisgæslan verið
á villigötum við að taka dragnóta-
og togskip á árum áður þar sem nú
eru „lögleg togsvæði“?
9. Eru „ofurtrUlur" og aðrir smá-
bátar höfuðóvinir þorsksins og ann-
arra físktegunda?
Hér er nóg komið af spurningum
en gætu verið mun fleiri. Þar á með-
al varðandi það sem sægreifar
halda fram; aö smábátar hafi farið
fram úr áætluðum afla. Sem að vísu
er rétt en um leið gleyma þeir hve
gífurlegu magni fisks er kastað af
kvótaskipunum. - Telji formaður
LÍÚ einhverjar spurninganna of vís-
indalegar ætti ekki að vera í kot vís-
að hjá spekingum LÍÚ og Fiskistofu.
Með fyrirfram þakklæti.
DV
IKEA sannar
gildi sitt
Jón Þóroarson skrifar:
Skyldi íslenskur húsgagna-
iðnaður ekki bara hafa farið
svona Ula af of hárri verðlagn-
ingu einni saman? IKEA er gott
dæmi um hinar ágætustu vörur
og raunar flest sem mann van-
hagar um innanstokks á mjög
sanngjörnu verði. Ágætar bóka-
hiUur keypti ég t.d. á 11 þús. kr.
eininguna sem er boðin á rúmar
20 þús., og það á rýmingarsölu,
annars staðar. Einnig fuUkomið
skrifborð af algengri stærð á um
20 þús. kr. en kostar tæpar 40
þús. kr. á sömu „rýmingarsölu"
sem ég heimsótti. - Það virðist
því sem IKEA sanni gUdi sitt á
íslenskum markaði.
Fótafúnir veð-
urfræðingar?
Eyþór hringdi:
Mér finnst alveg dæmalaust
að veðurfréttir hér í sjónvarpi
skuli enn vera eins og þær voru
á fyrstu dögum íslenska sjón-
varpsins. AUs staðar eru hvers
kyns kort, skýjafar og lægðir,
vindur og hiti sýnt með effektum
sem eru sem raunverulega
hreyfingar. Hér situr veðurfræð-
ingur með sitt prik eins og fóta-
fúið gamalmenni og bendir og
bendir. - Kemur aUtaf upp í
huga mér „Sitting Bull“-ímynd-
in. En gamanlaust: Má ekki
tæknivæöa veðurfréttir og lána
þá veðurfræðingum staf eða prik
að staulast við?
D-listann
skorti hugul-
semina
Árný hringdi:
Ég las skondna frétt í DV sl.
mánudag. Þar sagði - í máli og
mynd - af tveimur frambjóðend-
um á ísafirði; Þorsteini
nokkrum, efsta manni D-lista
sem átti afmæli á kjördag, og svo
HUmari, efsta manni hins nýja
Funklista þar vestra. Hilmar
þessi færði efsta manni D-listans
óvænta afmælisgjöf í tUefni tíma-
mótanna. Þetta er hugulsemi
sem lýsir kannski hvað þeir
frambjóðendur á Funklistanum
eru árvökulir. Ekki virtist sömu
hugulsemi hafa gætt i garð efsta
manns Funklistans frá neinum
hinna stjórnmálaflokkanna. Er
von á öðru en fylgistapi?
Fagna fram-
boði Jóns
Ragnar Sigurðsson skrifar:
Ég er einn þeirra sem fagna
því innUega ef Jón Baldvin
Hannibalsson lætur tU skarar
skríða og býður sig fram tU for-
seta íslands. Það má búast við al-
vöru kosningabaráttu ef svo
verður, enda ekkert sjálfsagðara
en tekist sé verulega á um emb-
ætti forseta landsins líkt og ann-
ars staðar. Forseti íslands á ekki
að sitja í neinu silkiembætti eða
vera smjattpatti á innlendum
eða erlendum vettvangi. Okkur
vantar ekki markaðsmann á
Bessastaði heldur gáfaðan og
skýran „folketaler" likt og karl
faðir Jóns var talinn hér á sín-
um tíma. Embættinu væri borg-
ið með Jóni Baldvin og hinni frá-
bæru konu hans, Bryndísi.
Vopnaða
löggæslu
Elsa skrifar:
Ég get ekki séð annað en hér
veröi að koma upp vopnaðri lög-
gæslu. Þjóðfélagið er gegnsýrt af
spillingu og speUvirkjar vaða
uppi með aðsúg aö fólki og eign-
um þess. Er eitthvað að því að
hafa vopnaða löggæslu líkt og
alls staöar annarp staðar? Óbóta-
menn láta sér fátt fyrir brjósti
brenna annað en löggæslu sem
hefur í fuUu tré við þá.