Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1996, Side 28
Þrefaldur
I. vinningur
Vertu viðbúin(n) vinningi
KIN
FRETTASKOTIÐ
SI'MINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FOSTUDAGUR 17. MAI 1996
Maður sem var ölvaður er hann ók bíl á 80-90 km hraða við Njarðvík:
Fangelsi fyrir að aka
á þrjá vegavinnumenn
- sagðist hafa drukkið gammel dansk og bjór eftir að hafa beinbrotið fórnarlömbin
46 ára karlmaöur, Kristinn
Björnsson, hefur verið dæmdur í
fjögurra mánaða fangelsi fyrir að
hafa með stórfelldu og vítaverðu
gáleysi ekið ölvaður á þrjá vega-
vinnumenn og valdið tveimur
þeirra m.a. beinbrotum rétt utan
Njarðvíkur í september síðastliðn-
um.
Ökumaðurinn kvaðst hafa
drukkið bjór og einhverja snafsa
áður en hann ók bifreið sinni frá
Reykjavík áleiðis til Keflavíkur.
Hann sagðist hafa ekið áfallalaust
á 80-90 kílómetra hraða þangað til
hann kom að gatnamótum Reykja-
nesbrautar og Seylubrautar viö
Ytri-Njarðvík. Þá hafi hann blind-
ast af sól og lent á búkka og ein-
hverju fleiru tengt vegavinnu-
framkvæmdum.
Maðurinn ók bílnum á þrjú um-
ferðarmerki og lokunarbúkka sem
gáfu til kynna að umferð á þessum
kafla væri beint inn á Seylubraut.
BUlinn fór síðan á þrjá menn sem
þarna voru við vegavinnu. Einn
mannanna hlaut brot á fótlegg og
annar brotnaði á fmgri og fékk sár
og mar á höfuð og mar á fótlegg.
Ákærði kvaðst ekki geta sagt til
um hve bíllinn hefði farið langa
leið eftir að hann lenti á búkkan-
um og þar tU hann stöðvaðist en
þaö hefði verið einhverjir tugir
metra.
Ákærði kvaðst síðan hafa setið
inni í bílnum þar til lögregla kom
á vettvang og „líklega drukkið
tvær smáUöskur af gammel dansk
og kannski einn bjór á þeim tíma“.
Samkvæmt niðurstöðu úr blóðsýn-
isrannsókn reyndist alkóhólmagn
í blóði hans vera 2,11 prómiU.
Niðurstaða Héraðsdóms Vestur-
lands var á þá leið að ákæröi hefði
sýnt af sér stórfeUt og vítavert gá-
leysi með akstri sínum. „Var tU-
viljun að aUeiðingar af háttsemi
ákærða yrðu ekki enn alvarlegri,“
segir í dómnum sem Irigi Tryggva-
son kvað upp.
-Ótt
Helgarblað DV:
Hann seldi
sig körlum
I helgarblaði DV á morgun verð-
ur viðtal við ungan mann, forfallinn
fikniefnaneytanda, sem er að fóta
sig eftir beinu brautinni, þar sem
hann greinir frá því á hreinskilinn
hátt hvernig hann seldi sig öðrum
karlmönnum til að eiga fyrir fíkni-
efnum. Þá verður viðtal við veit-
ingamógúlinn Valgeir Sigurðsson
sem enn á ný er að stokka upp spU-
in og er nú á leiðinni til Flórída í
hótelrekstur. Þá verða keppendur í
Fordkeppninni kynntir og Ólafur
Ragnar Grímsson verður í yfir-
heyrslu. Auk þessa er fjöldamargt
^apnað efni i blaðinu við allra hæfi.
Iftf
Landsmenn hafa notið veðurblíðunnar undanfarna daga, ekki síst í sund-
laugunum. Hér er hann Bjartur litli að fá sér sopa hjá Soffíu mömmu sinni
við Laugardalslaugina í sólskininu. Vonandi er að veðurguðirnir leyfi að þau
fái notið útiverunnar áfram. DV-mynd GVA
Utanríkisráðuneytið
spyrst fyrir um íslend-
ingana tvo í Taílandi
Utanríkisráðuneytið mun senda
fyrirspurn til danska sendiráðsins í
Bangkok i dag vegna tveggja íslend-
inga sem sagðir voru hafa verið illa
haldnir fyrir utan sendiráðsbygg-
inguna fyrir skömmu. Karl Hjalte-
sted, sem gekk ásamt öðrum fram á
mennina tvo, sagði í viðtali við DV
á miðvikudag að þeir hefðu verið
nær dauða en lífi.
Bjarni Sigtryggsson hjá utanrik-
isráðuneytinu sagði í morgun að
óskað yrði eftir að danska sendiráð-
ið gerði grein fyrir hvort það hefði
haft einhver afskipti af mönnunum.
„Við munum gera fyrirspurn en þar
sem ekki hefur borist hjálparbeiðni
lítum við svo á að málið hafi verið
leyst a.m.k. í bili með einhverjum
hætti,“ sagði Bjarni.
Jörgen Haage, sem starfað hefur
á vegum dönsku utanríkisþjónust-
unnar um árabil í Bangkok, þ.á m.
við að aðstoða íslendinga, sagði í
samtali við DV að hann kannaðist
ekki við tvo umrædda íslendinga.
„Hins vegar kom til mín íslending-
ur nýlega sem var illa haldinn af
heróínneyslu. Ég kom honum á
sjúkrahús en þaðan var honum hent
út. Skömmu síðar fann ég hann
liggjandi á veröndinni heima hjá
mér,“ sagði Jörgen. Jörgen sagði
jafnframt að hann hefði síðan feng-
ið manninn sendan heim til íslands.
Hann taldi ekki að viðkomandi
kæmi heim og saman við lýsingar
af hinum Islendingunum.
Jörgen, sem er nýkominn heim til
Danmerkur frá störfum í Bangkok,
ætlar einnig að gera fyrirspurn til
danska sendiráðsins í TaUandi.
-Ótt
Síldveiðiflotinn norður
undir Jan Mayen
SUdarvinnslan á Neskaupstað
hefur tekið á móti rúmlega sex þús-
und tonnum af síld til bræðslu á
vertíðinni og í morgun voru nokkur
skip, m.a. Samherjaskipið Þorsteinn
Baldvinsson, á leið tU Neskaupstað-
ar með fullfermi, að sögn Haraldar
Jörgensen, útgerðarstjóra Síldar-
vinnslunnar, og var þeirra vænst til
hafnar seint í kvöld eða fyrramálið.
Síldveiðiflotinn er nú að veiðum
utan íslensku landhelginnar í
grennd við Jan Mayen. Veður á
miðunum var ágætt. Að sögn Har-
aldar hefur síldin verið horuð eða
með um 10% fitumagni en hins veg-
ar lítil áta í henni.
-SÁ
L O K I
Veðrið á morgun:
Hlýjast
suðvest-
anlands
Á morgun er gert ráð fyrir
norðaustangolu eða kalda og
smáskúrum á Austfjörðum og
suðaustan tU á landinu en ann-
ars léttskýjuðu víðast hvar. Hiti
verður á bUinu 3 til 12 stig og
hlýjast um landið suðvestanvert.
Veðrið í dag er á bls. 44
Útgerðarmenn
Tökum á móti
trollvír
m HRINGRASHF.
ENDURVINNSLA
btother tölvu- límmiða- prentari •- I U . T tiSn' X ‘ ■ x. . X.: *
Nýbýlavegi 28 - Sími 554-4443