Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1996, Blaðsíða 17
16
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996
25
íþróttir
íþróttir
Strakarnir eru
orðnir stórir
- nýliðar Fylkis gjörsigruðu Blika í Kópavoginum, 1-6
Þeir hafa löngum þótt efnilegir,
strákarnir úr Árbænum. í mörg ár
hafa þeir lofað góðu en biðin eftir
því að þeir springi almennilega út
hefur verið löng. En í seinni hálf-
leiknum á Kópavogsvellinum í gær-
kvöld héldu þeim engin bönd. Nýlið-
arnir úr Fylki voru 1-0 undir í hálf-
leik en tóku síðan völdin svo um
munaði og hreinlega léku sér að
Kópavogsliðinu. Eftir þrjú mörk á
hálfri fjórðu mínútu var mótspyrna
Blika brotin á bak aftur og lokatöl-
urnar voru ótrúlegar, 1-6 fyrir
Fylki, og Árbæingar fá því fljúgandi
start í 1. deildinni þar sem þeir gera
sína þriðju tilraun til að halda þar
velli. Strákarnir úr Árbænum eru
loksins orðnir stórir.
Sævar Pétursson kom Blikum
yfir í fyrri hálfleik en Kristinn Tóm-
asson gerði 2 mörk fyrir Fylki,
Andri Marteinsson, Enes Cogic,
Þórhallur Dan Jóhannsson og Er-
lendur Þór Gunnarsson eitt mark
hver.
Þó Blikar væru yfir í hálfleik var
mun meira varið í leik Fylkis-
manna frá upphafi. Þeir spila léttan
og skemmtilegan fótbolta og öll
mörk þeirra komu eftir að þeir
tættu Blikavörnina gjörsamlega í
sundur í snöggum sóknum. Miðjan
hjá Breiðabliki var gjörsamlega úti
á þekju og varnarmenn liðsins voru
hv.að eftir annað fámennari en frísk-
ir sóknarmenn Fylkis.
„Við slógum þá út af laginu með
fyrsta markinu og náðum að ganga
yfir þá eftir það. Blikar eru með
ágætt lið en við unnum fyrir þessu,
enda þótt segja megi að allt hafi
gengið upp. Það er frábært að byrja
svona, við erum tilbúnir í deildina
en þetta er bara fyrsti leikur,“ sagði
Aðalsteinn Víglundsson, fyrirliði
Fylkis, við DV.
„Við vorum aldrei inni í leiknum
eftir þessi þrjú mörk þeirra, það var
algjört rothögg. Það vantaði alla
baráttu hjá okkur, menn voru að
reyna eitthvað hver í sínu horni og
við vorum slakir þó við værum yfir
í hálfleik. Ég veit ekki hvort þetta
var eitthvert vanmat hjá okkur eft-
ir að hafa verið spáð velgengni í
sumar en nú þurfum við heldur bet-
ur að taka til hendinni," sagði Arn-
ar Grétarsson, fyrirliði Breiðabliks.
-VS
Bjarni sló í gegn
- sonur þjálfarans skoraöi tvö mörk í sigri meistaranna
DV, Akranesi:
„Við fórum varlega af stað en
þess fullvissir að Stjarnan myndi
ekki gefa sinn hlut eftir. Stjarnan
lék vörnina sterkt og er einnig með
skæða menn í framlínunni. Þannig
að llðið hefur unnið sína vinnu vel
og er til alls líklegt í sumar. Að
þessu sinni mættu það ofjörlum
sínum og sigur okkur var
sanngjarn," sagði Guðjón
Þórðarson, þjálfari Skagamanna,
eftir leikinn gegn Stjörnunni á
Akranesi í gærkvöld.
Stjörnumenn mættu grimmir til
Breiðablik (1) 1
Fylkir (0) 6
1-0 Sævar Pétursson (16.) með
skoti af 25 m færi í varnarmann og
inn.
1-1 Andri Marteinsson (54.) af 2ja
metra færi eftir snögga sókn og send-
ingu Þórhalls Dan .
1-2 Enes Cogic (57.) með skalla af
markteig eftir fyrirgjöf Aðalsteins
Víglundssonar frá hægri.
1-3 Kristinn Tómasson (58.) þrum-
aði boltanum upp í þaknetið af mark-
teig eftir glæsilega rispu og sendingu
Ólafs Stígssonar.
1-4 Þórhallur Dan Jóhannsson
(64.) úr markteignum eftir sendingu
Finns Kolbeinssonar.
1-5 Kristinn Tómasson (81.) af 2ja
metra færi eftir að Cardaklija varði
frá honum vítaspyrnu. Theodór Her-
varsson felldi þá Þórhall Dan.
1-6 Erlendur Þór Gunnarsson
(83.) af markteig eftir sendingu Finns.
Lið Breiðabliks: Hajrudin Carda-
klija - Pálmi Haraldsson, Guðmundur
Örn Guðmundsson (Grétar Sveinsson
61.), Theodór Hervarsson, Hákon
Sverrisson - Guðmundur Þ. Guð-
mundsson, Sævar Pétursson, Gunn-
laugur Einarsson (ívar Sigurjónsson
61.), Hreiðar Bjarnason - Arnar Grét-
arsson, Kjartan Einarsson ®.
Lið Fylkis: Kjartan Sturluson -
Enes Cogic @, Aðalsteinn Víglunds-
son @, Omar Valdimarsson (Halldór
Steinsson 85.), Gunnar Þ. Péturs-
son @ - Andri Marteinsson (Þor-
steinn Þorsteinsson 66.), Finnur Kol-
beinsson @@, Ásgeir Már Ásgeirsson
(Erlendur Þór Gunnarsson 82.), Ólafur
Stígsson @@ - Þórhallur D. Jóhanns-
son @@, Kristinn Tómasson @.
Gul spjöld: Cogic (F), ívar (B).
Rautt spjald: Theodór (B).
Markskot: Breiðabl. 10, Fylkir 14.
Horn: Breiðablik 4, Fylkir 5.
Skilyrði: Sól og blíða, völlurinn
ágætur.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson, góður.
Áhorfendur: 922.
Maður leiksins: Finnur Kolbeins-
son (Fylki), allt í öllu á miðjunni hjá
Árbæjarliðinu.
leiks en þó sóttu Skagamenn meira
í fyrri hálfleik ári þess þó að skapa
sér dauðafæri. Áður en Skagamenn
gerðu fyrsta markið áttu gestirnir
besta færi hálfleiksins þegar skot
Baldurs Bjarnasonar fór í stöngina.
Stjörnumenn kom eins grimmir
til síðari hálfleiks og þess fyrri.
Náðu að jafna eftir að Zoran hafði
verið vikið af leikvelli. Þá um leið
færðist aukinn þungi í aðgerðir
Skagamanna og hefðu hæglega
getað bætt við fleiri mörkum.
Bjarni Sigurðsson, markvörður,
þurfti nokkrum sinnum að taka á
honum stóra sínum.
ÍA (1) 3 Stjarnan (0) 1
1-0 Bjarni Guðjónsson (39.) fékk
boltann eftir slæm mistök í vörn
Stjörnunnar og renndi honum í netið.
1- 1 Goran Micic (48.) skoraði af
stuttu færi eftir glæsilega stungu-
sendingu frá Kristni Lárussyni.
2- 1 Bjami Guðjónsson (68.) Eftir
að Skagamenn höfðu fengið auka-
spyrnu fyrir utan teig Stjörnunnar
barst boltinn til Bjarna sem hamraði
viðstöðulaust í netiö.
3- 1 Haraldur Ingólfsson (84.)
skoraði með skalla af stuttu færi eft-
ir skalla frá Bibercic.
Lið ÍA: Þórður Þórðarson @ -
Sturlaugur Haraldsson (Kári S. Reyn-
isson 52.), Gunnlaugur Jónsson, Zor-
an Miljkovic, Ólafur Adolfsson @ -
Sigursteinn Gíslason, Alexander
Högnason @, Ólafur Þórðarson @,
Haraldur Ingólfsson - Mihaljo
Bibercic, Bjarni Guðjónsson @@.
Lið Stjömunnar: Bjarni Sigurðs-
son ® - Helgi Björgvinsson @, Reyn-
ir Björnsson, Hermann Arason -
Ómar Sigtryggsson (Ragnar Árnason
30.), Rúnar P. Sigmundsson, Valdi-
mar Kristófersson @, Birgir Sigfús-
son (Bjarni G. Sigurösson 69.), Baldur
Bjamason @, Kristinn Lárusson -
Goran Micic @.
Markskot: ÍA 14, Stjaman 8.
Hom: ÍA 7, Stjarnan 4.
Gul spjöid: Gunnlaugur (ÍA), Milj-
kovic (ÍA), Sturlaugur (ÍA), Bibercic
(ÍA), Hermann (Stjarnan), Rúnar
(Stjaman), Bjarni (Stjarnan).
Rauð spjöld: Miljkovic (ÍA).
Dómari: Egill Már Markússon,
var spjaldaglaöur og ekki sannfær-
andi.
Áhorfendur: Um 800.
Skilyrði: Hæg suðvestan gola,
þurrt og góö skilyrði til knattspyrnu-
iðkunar.
Maður leiksins: Bjarni Guðjóns-
son (ÍA). Var sívinnandi, skoraöi tvö
góð mörk og átti nokkur dauðafæri.
Um Skagaliðið er það aö segja að
það virkaði ekki sannfærandi í
leiknum. Það býr mun meira í
liðinu. Bestur Skagamanna var
Bjarni Guðjónsson sem á örugglega
eftir að slá í gegn í framtíðinni. Þeir
Alexander Högnason, Ólafur
Adolfsson og Þórður Þórðarson áttu
einnig góðan leik.
Stjörnuliðið var nokkuð frískt í
fyrri hálfleik en eitthvað virtist
skorta upp á úthaldið í síðari
hálfleik. Bestir voru Baldur
Bjarnason, Bjarni Sigurðsson og
Helgi Björgvinsson.
-DÓ
Keflavík (1) 2
KR (0) 2
1-0 Eysteinn Hauksson (45.) skor-
aði með stórglæsilegri aukaspyrnu
utan vítateigs.
1-1 Ríkharöur Daðason (58.) með
sinni fyrstu snertingu náði hann að
leggja boltann fram hjá Ólafi mark-
verði sem kom út á móti.
1- 2 Guðmundur Benediktsson
(66.) með glæsilegri aukaspyrnu sem
framkvæmd var frá vítateigslínu og
hafnaði boltinn efst í markhorninu.
2- 2 Jóhann B. Guðmundsson (78.)
skoraði af miklu harðfylgi við mark-
línuna eftir fyrirgjöf Róberts Sigurðs-
sonar.
Lið Keflavikur: Ólafur Gottkálks-
son @ - Georg Birgisson, Ragnar
Steinarsson @, Jakob Jónharðs-
son @, Karl Finnbogason @ - Jón Þ.
Stefánsson ©, Eysteinn Hauksson,
Jóhann B. Magnússon (Róbert Sig-
urðsson 57.), Guðjón Jóhannsson (Óli
Þór Magnússon (23.), Sverrir Þ. Sverr-
isson (Jóhann B. Guðmundsson 75.) -
Ragnar Margeirsson.
Lið KR: Kristján Finnbogason -
Þormóður Egilsson @, Þorsteinn
Guðjónsson @, Brynjar Gunnars-
son @, Björn Skúlason (Ríkharöur
Daðason 55.) - Hilmar Björnsson,
Þorsteinn Jónsson, Heimir Guöjóns-
son, Ólafur Kristjánsson - Guðmund-
ur Benediktsson, Ásmundur Haralds-
son (Vilhjálmur Vilhjálmsson 77.)
Gul spjöld: Óli Þór (Keflavík),
Ragnar M. (Keflavík), Jakob (Kefla-
vík), Ragnar S. Keflavík, Þorsteinn J.
(KR), Viihjálmur (KR).
Rauð spjöld: Engin.
Markskot: Keflavík 7, KR 12.
Horn: Keflavík 2, KR 7.
Skilyrði: Frábært knattspyrnuveð-
ur, völlurinn góður á stórum hluta en
nokkrar sandgryfjur á vellinum.
Dómari: Sæmundur Víglundsson,
var með góð tök á leiknum.
Áhorfendur: 1050.
Maður leiksins: Ólafur Gott-
skálksson (Keflavík). Átti mjög góðan
leik og var öruggur mest allan leik-
inn.
Atli stefnir knatt-
spyrnudeild Vals
- krefur Valsmenn um hálfa milljón króna
Atli Eðvaldsson, þjálfari Eyja-
manna, hefur stefnt knattspyrnu-
deild Vals fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur og krefur hana um
hálfa milljón króna.
Fyrrverandi stjórn knattt-
spyrnudeildar Vals skuldaði Atla
hálfa milljón króna vegna samn-
ings við hann árið 1989. Hún var
gerð upp með víxli þar sem Atli
var sjálfur greiðandi og faðir hans,
Eðvald Hinriksson, útgefandi, en
ábekingur var Eggert Magnússon,
þáverandi formaður deildarinnar
og núverandi formaður KSÍ, fyrir
hennar hönd. Þremur árum síðar
féll víxiUinn á Atla, en ný stjórn
deildarinnar hafði þá greitt tvisvar
inná hann en síðan hætt greiðsl-
um.
„Þetta átti að vera útkljáð mál
og ég vissi ekkert af þessu fyrr en
krafan á mig birtist i Lögbirtinga-
blaðinu og ég þurfti að greiða hálfa
milljón með nokkurra daga fyrir-
vara. Vandamál Vals var alit í einu
orðiö mitt vandamál. Valur er bú-
inn að fá mörg tækifæri til að
losna við að þessi leið væri farin
en nýja stjórnin hefur engan áhuga
sýnt á að ganga frá málinu og því
var ekki annað fyrir mig að gera
en að leita réttar míns. Siðferði-
lega var annað ekki hægt og gamla
stjórnin styður mig í þessu máli.
Ég greiddi þessa kröfu og nú er
kominn tími til að Vaiur greiði
mér til baka. Þetta er ástæðan fyr-
ir því að síðan ég hætti að leika
með Vai hef ég ekki komið á Hlíð-
arenda nema til að spila leiki,”
sagði Atii við DV í gærkvöldi.
Knattspyrnudeild Vais krefst
sýknu í málinu sem verður vænt-
anlega tekið fyrir í næsta mánuði.
-Ótt/VS
0-1 Sverrir Sverrisson (23.) skor-
aði af stuttu færi eftir að Friðrik
varði glæsilega skot frá Pétri Birni í
slána.
0-2 Pétur B. Jónsson (39.) með
skoti úr teignum eftir glæsilegan
undirbúning Lazoriks.
1-2 Hlynur Stefánsson (88.) með
viðtstöðulausu skoti út teignum eftir
að Leifur Geir vann skallaeinvígi.
1-3 Sverrir Sverrisson (90.) fékk
boltann einn inn fyrir eftir sendingu
Páls, vippaði boltanum snyrtilega
yfir Friðrik og renndi boltanum í
autt markið. Rangstöðufnykur.
Lið ÍBV: Friðrik Friðriksson -
Friðrik Sæbjörnsson, Jón B. Arnars-
son, Hermann Hreiðarsson ©, Heim-
ir Hailgrímsson - Ingi Sigurðsson,
Hlynur Stefánsson, Bjarnólfur Lárus-
son (Nökkvi Sveinsson 46. @),
Leifur Geir Hafsteinsson, Tryggvi
Guðmundsson - Steingrímur Jó-
hannesson (Rútur Snorrason 40.)
Lið Leifturs: Þorvaldur Jóns-
son @ - Auðun Helgason ©, Júlíus
Tryggvason ©, Slobodan Milisic,
Daði Dervic - Pétur B. Jónsson @,
(Baldur Bragason), Gunnar Oddsson,
Páll Guðmundsson, Gunnar Már
Másson ©, Sverrir Sverrirsson @®
- Rastislav Lazorik @.
Markskot: ÍBV 17, Leiftur 11.
Hom: ÍBV 12, Leiftur 5.
Gul spjöld: Gunnar O.(Leiftri),
Daði (Leiftri), Baldur (Leiftri), Heim-
ir (ÍBV).
Rauð spjöld: Heimir (ÍBV).
Dómari: Kristinn Jakobsson, hef-
ur pft gert betur.
Áhorfendur: Um 800.
Aðstæður: Bestu hugsanlegar að-
stæður á íslandi, frábær völlur og
gott veður.
Maður leiksins: Sverrir Sverris-
son, Leiftri. Skoraöi tvö lagleg mörk
og skapaði hættu hvað eftir annað á
vinstri vængnum. Virðist í fantagóðu
formi og hefur aldrei verið betri en
nú.
Sprækir Leiftursmenn
skelltu Eyjamönnum
DV, Eyjum:
,Það var allt sem klikkaði í fyrri
hálfleik. Við byrjuðum hörmulega,
gáfum þeim fyrsta markið og þeir
fengu sjálfstraustið og áttu fyrri
hálfleikinn. Það var erfltt að vera
einum færri í seinni háifleik og þeir
voru einfaldiega betri og verðskuld-
uðu sigur. Pressan hér heima er
mikil á okkur og við þoldum hana
greinilega ekki. En botninum er náð
og við verðum að einbeita okkur að
Valsleiknum á mánudaginn,” sagði
Hlynur Stefánsson, fyrirliði ÍBV,
eftir verðskuldaðan sigur Leifturs á
ÍBV í Eyjum, 1-3.
Eyjaliðið var gjörsamlega óþekkj-
anlegt frá því í fyrra. Leikmenn
liðsins voru á rassgatinu allan leik-
inn og taldist til tíðinda ef leikmenn
gátu skilað boltanum þokkalega frá
sér. Leiftursmenn byrjuðu með lát-
um og léku á köflum stórskemmti-
legan fótbolta. Leiftur átti tvö stang-
arskot í fyrri hálfleik fyrir utan
mörkin tvö, fyrst Sverrir og svo
Lazorik, en Leifur Geir átti eina
færi ÍBV en Þorvaldur varði
stórkostlega og sló boltann í stöng.
Heimir Hallgrímsson var svo rek-
inn út af í lok fyrri hálfleiks og
Eyjamenn léku færri allan seinni
hálfleikinn. Leikurinn jafnaðist í
síðari hálfleik og Eyjamenn áttu
nokkur háiffæri en sigur Leifturs
var aldrei í hættu. Sverrir, Lazorik,
Þorvaldur og Pétur átti skínandi
leik hjá Leiftri en aðeins Hermann
og Nökkvi voru með lífsmarki hjá
ÍBV.
„Við þekkjum okkar vankanta og
erum að reyna að vinna í þeim. Þeir
komu í ljós þegar líða fór á leikinn.
Við höfum æft á smá grasblettum í
nokkrar vikur og svo komum við
allt í einu á 100 metra völl. Við kom-
um til að verjast með kjafti og klóm.
Við fáum alltaf okkar sénsa eins og
kom í ljós. Við lögðum það upp að
vera þolinmóðir en við verðum að
koma okkur niður á jörðina,” sagði
Óskar Ingimundarson, þjálfari
Leifturs.
Kristinn Tómasson skoraöi tvö af mörkum Fylkismanna gegn Breiöabliki í gær. Hér er hann á fleygiferö meö boltann og á
hæla honum kemur Blikinn Gunnlaugur Einarsson. Árbæingar fóru á kostum og sigruöu, 1-6. DV-mynd Brynjar Gauti
Óvænt úrslit í Keflavík:
••
Glæsimork ur
aukaspyrnum
- þegar Keflavík og KR skildu jöfn
DV, Keflavík:
„Við klikkuðum fyrri partinn í síðari
hálfleik og fáum þá á okkur tvö mörk.
Þessi mörk hefðum við ekki átt að fá á
okkur og þá hefðum við unnið þennan
helv... leik. Ég var ánægður með mína
menn nema í þennan smátíma. Það var
ekki hægt að sjá það hvort væri neðsta
liðið og efsta liðið að spila og berjast
samkvæmt spánni. Við áttum síðasta
hálftímann,” sagði Kjartan Másson,
þjálfari Keflvíkinga, við DV eftir jafn-
tefli gegn KR í Keflavík.
Það er óhætt að segja að úrslitin hafi
komið mönnum á óvart því flestir reikn-
uðu með sigri KR-inga. í heildina verður
að telja úrslitin sanngjörn. Hvorugt lið
var að gera neinar rósir í sínum sóknar-
leik og voru mjög fá alvöru marktæki-
færi sem litu dagsins ijós. Keflvíkingar,
sem eru þekktir fyrir mikla baráttu og
hafa náð langt á henni, náðu að sýna KR-
ingum klærnar svo um munaði og með
þessari baráttu gætu þeir halað inn
mörg stig. Það sem gladdi mest augað
voru tvö glæsileg mörk sem skoruð voru
úr aukaspyrnum.
Ekki tilbúnir í leikinn
KR byrjaði leikinn vel og á fyrstu mín-
útunum gerðu þeir nokkrum sinnum
harða hríð að vítateig Keflvíkinga. Besta
færið fékk Hilmar Björnsson þegar hann
komst einn innfyrir en Ólafur bjargaði
með góðu úthlaupi. Síðari hálfleikur var
mun fjörugri enda komu 3 mörk þá.
„Ég var ekki ánægður með úrslitin.
Þetta var týpískur fyrsti leikur í deild-
inni og við vorum að klúðra góðum fær-
um. Þetta voru samt ekki ósanngjörn úr-
slit. Við spiluðum ekki eins og við getum
best og við vorum einfaldlega ekki tfl-
búnir,” sagði Lúkas Kostic, eftir leikinn.
-ÆMK
Sonurinn sló á óánægju Skagamanna
Bjami Guðjónsson, sonur Guðjóns þjálfara ÍA, sló. aldeilis á þá sem voru
óánægðir með það að Guðjón skyldi velja hann í byrjunarliðið. Guðjón var mjög
ósáttur með þessar svartsýnisraddir og sagði að þeir sem væru að tala svona
smituðu út frá sér og það væri betra að þeir sætu heima heldur en að vera
gagnrýna störf hans.
Sonurinn þakkaði heldur betur traust föður síns. Hann skoraði tvö mörk og átti
frábæran leik í framlinu Skagamanna. Hann var ekki langt frá því að krækja sér
í 100.000 en íslenskar getraunir ætla að verðlauna þá leikmenn í sumar sem skora
þrennu í Sjóvár-Almennra deildinni.
Fyrsta snertingin
Eriendur Þór Gunnarsson úr
Fylki byrjaði feril sinn í 1. deild-
inni vel i gærkvöld. Erlendur
kom inn á sem varamaður á 82.
mínútu gegn Breiðabliki og 20
sekúndum síðar hafði hann
skorað sjötta mark Árbæinga
með sinni fyrstu snertingu.
Umferð á mánudag
Heil umferð er á annan dag
hvítasunnu. Klukkan 17 leika
ÍA-Keflavík og KR-Leiftur og
klukkan 20 leika Grinda-
vík-Breiðablik, ÍBV-Valur,
Stjarnan-Fylkir.
Sævar skoraði fyrstur
Sævar Pétursson, miðjuleik-
maður Breiðabliks, skoraði
fyrsta markið í Sjóvár-Almennra
deildinni í ár þegar hann skor-
aði eina mark Blika gegn Fylki á
16. mínútu.
Gunnar í nýrri stöðu
Gunnar Már Másson, Leiftri,
lék í nýrri stöðu, sem afturliggj-
andi tengiliður en hann hefur
hingað til leikið í fremstu vig-
línu. „Hann er líkamlega sterkur
og vinnur alia skallabolta. Ég
var mjög ánægður með hann,”
sagði Óskar þjálfari. -GH/ÞoGu
Þrjú rauð spjöld
Heimir Hallgrimsson vamar-
maður ÍBV, varð fyrsti leikmað-
ur í deildinni til að fá reisupass-
ann en honum var vikið af leik-
velli í fyrri hálfleik þegar ÍBV
tapaði fyrir Leiftri í Eyjum.
Heimir var ekki sá eini sem fékk
rautt því Zoran Miijkovic hinn
eitilharði vamarmaður ÍA, var
rekinn út af i síðari hálfleik í
leik ÍA og Stjörnunnar og Theo-
dór Hervarsson, varnarmaður
Breiðabliks, fékk að líta rauða
spjaldið undir lok leik Breiða-
bliks og Fylkis í Kópavoginum.
-GH
Óskar úr leik?
Óskar H. Þorvaldsson, varnar-
maðurinn sterki úr KR, meiddist
á hné í vikunni. Líkur eru á að
hann þurfi að fara í uppskurð og
þá er óvíst að hann geti leikið
mikið með KR-ingum í sumar.
Það yrði mikið áfall fyrir Vestur-
bæjarliðið.
Arnaldur í Þrótt
Arnaldur Loftsson, varnar-
maður úr Breiðabliki, er hættur
hjá Kópavogsliðinu og er geng-
inn til liðs við 2. deildar lið
Þróttar úr Reykjavík. -VS
IBV (O) O
Leiftur (2) 2