Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1996, Side 19
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996
27
DV
KSÍ-klúbburinn
KSÍ-klúbburinn, sem er fé-
lagsskapur til stuðnings íslenska
landsliðinu í knattspyrnu, ætlar
að hittast fyrir leik íslendinga og
Makedóníu sem fram fer á Laug-
ardalsvelli 1. júní. Klúbbburinn
er opinn ölum góðum knatt-
spymuáhugamönnum og í ár
verður mikið um dýrðir hjá
klúbbnum.
Skráning í KSÍ-klúbbinn og all-
ar nánari upplýsingar veita Þór-
ir Jónsson í síma 569 9347 og
GSM 896 1625 og Steinar Guð-
geirsson í síma 587 0771.
Húsasmiðjuhlaup FH
Húsasmiðjuhlaup FH fer fram
á laugardag. Keppt verður í hálf-
maraþoni, 10 km hlaupi, klukk-
an 12.15 við Húsasmiðjuna og
einnig verður boðið upp á 3,5 km
skemmtiskokk frá sama stað
klukkan 13 og frá Húsasmiðj-
unni Skútahrauni í Hafnarfirði
frá klukkan 14.
Allir fá verðlaunapening og boð-
ið er upp á veitingar. Skráning
er frá klukkan 10 á hlaupadag.
Elín fær styrk
Nokkur fyrirtæki í Hafnar-
firði, Sundsamband íslands,
Sundfélag Hafnarfjarðar og
ólympíunefnd íslands hafa
ákveðið að fjármagna undirbún-
ing Elínar Sigurðardóttur, sund-
konu úr Hafnarfirði, til að gera
henni kleift að ná lágmörkum
fyrir ólympíuleikana í sumar.
Stuðningurinn nemur 730.000
krónum.
Fyrirtækin sem styðja Elínu
eru:
Hafnarfjarðarbær, Sparisjóður
Hafnarfjarðar, Vélsmiðja Péturs
Auðunssonar, Glerborg, Fjöru-
kráin og íslensk matvæli.
England sigraði
Englendingar lögðu Kíverja að
velli, 0-3, í vináttulandsleik í
knattspyrnu sem fram fór í Pek-
ing í gær.
Nick Barmby opnaði marka-
reikning sinn með enska lands-
liðinu og skoraði tvívegis og
Paul Gascoigne skoraði þriðja
markið.
Grant úr leik
Nú er ljóst að Horace Grant
leikur ekki meira með Orlando í
úrslitakeppni NBA. Grant
meiddist á olnboga í fyrsta leikn-
um gegn Chicago og þarf að hvU-
ast til að fá sig góðan.
Þriðji leikur Chicago og Or-
lando fer fram í Orlando annað
kvöld en í nótt leika Utah og
Seattle á heimavelli Utah.
All Star liðin
All Star liðin í NBA voru út-
nefnd í gær. í liði eitt eru: Mich-
ael Jordan og Scottie Pippen frá
Chicago, Anfernee Hardaway,
Orlando, Karl Malone, Utah og
Davið Robinson, SA Spurs.
í liði númer 2 eru: Shawn Kemp,
Seattle, Grant Hill, Detroit,
Hakeem Olajuwon, Houston,
Gary Payton, Seattle og John
Stockton, Utah.
I þriðja liðinu voru menn eins
og Charles Barkley, Phoenix og
Shaquille O’Neal, Orlando.
AIK bikarmeistari
AIK tryggði sér í gær sigur í
sænsku bikarkeppninni þegar
liðið lagði Malmö, 1-0.
Staðan eftir venjulegan leiktíma
var 0-0 en AIK gerði út um leik-
inn eftir 12 minútna leik í bráða-
bana.
Pasta á undan
öllum mat
Það skiptir miklu máli hvað
íþróttamenn setja ofan í sig.
Mörg lið eru oft með sérþarfir
þegar matur er annars vegar.
Kýpurmenn eru engin
undantekning í þeim efnum.
Þeir vilja pasta í öll mál á undan
aðalmálsverðinum.
íþróttir
Jón Arnar Ingvarsson og félagar hans í íslenska landsliöinu unnu mikilvægan sigur á Kýpur í Laugardalshöllinni í
gærkvöld. Jón Arnar komst ágætlega frá sínu f leiknum og átti nokkrar gullfailegar sendingar sem gáfu stig í lokin.
I kvöld mæta íslendingar írum og er ástæöa til aö hvetja fólk til aö fjölmenna og styöja viö bakið á liöinu. Meö sigri
ætti liöiö aö veröa í góöum málum fyrir leikina sem veröa um helgina. DV-mynd Brynjar Gauti
Stórleikur Teits
á lokakaflanum
- þegar ísland vann mikilvægan sigur á Kýpur, 70-61
íslenska landsliðið í körfuknatt-
leik stendur vel að vígi þegar tveim-
ur umferðum er lokið á Evrópumót-
inu í Laugardalshöllinni. í gær-
kvöld sigruðu Islendingar lið Kýpur
og réðust úrslitin ekki fyrr en á
lokakaflanum. Lokatölur urðu 70-61
eftir að staðan í hálfleik var jöfn,
29-29. Þar með hafa íslendingar
unnið fyrstu tvo leiki sína á mótinu
og lofar framhaldið góðu.
Fyrirfram var búist við jöfnum og
spennandi leik gegn Kýpur eftir sig-
ur þeirra gegn írum í fyrrakvöld.
Fyrri hálfleikur var einkennilegur
og um leið leiðinlegur á að horfa.
Kýpurmenn voru sökudólgarnir
en þeir héngu á boltanum og nýttu
sér 30 sekúndurnar til hins ýtrasta.
Þeir reyndu allt hvað þeir gátu til
að svæfa íslendinga og virtist það
ætla að takast en íslendingum tókst
að snúa við blaðinu áður en í óefni
fór.
Bæðin liðin léku sterkar varnir
lengstum en þó hefðu íslendingar
mátt vera grimmari í varnarfráköst-
unum. íslendingar byrjuðu leikinn
með tveimur þriggja stiga körfum
en eftir það var löng bið að sjá slík
skot rata ofan í körfuna.
Leikurinn var i járnum frá byrj-
un og það var ekki fyrr en á
lokamínútum hans að leiðir skildi.
Þegar íslendingar keyrðu upp hrað-
ann voru Kýpurmenn skildir eftir.
Það var meira en þeir réðu við.
Teitur Örlygsson skoraði sjö stig
á mikilvægum kafla og kom þar
með sigrinum í örugga höfn.
Mikilvægur leikur gegn írum
í kvöld
Sigur íslenska liðsins var sál-
fræðilegur sterkur og hlýtur að
hvetja menn til dáða í næstu leikj-
um. í kvöld mætir liðið írum og
með sigri er liðið í góðum málum.
Það er því brýn ástæða fyrir áhorf-
endur að fjölmenna í Höllina í
kvöld og hvetja íslendinga til sigurs.
Teitur Örlygsson hafði sig lítið í
frammi framan af en sýndi síðan
glæsileg tilþrif á lokakaflanum.
Guðmundur Bragason var einnig
drjúgur og Jón Arnar Ingvarsson
átti frábærar sendingar á kaflanum
margumrædda. Skytturnar héldu
sig á mottunni lengstum, kannski
að spara sig fyrir leikinn í kvöld.
-JKS
Ísland-Kýpur
(29-29) 70-61
0-2, 6-4, 6-10, 15-10, 15-18,
25-21, 26-24, 29-27, (29-29). 33-35,
35-39, 39-43, 41-47, 45-50, 51-51,
58-54, 61-59, 65-59, 69-60, 70-61.
Stig íslands: Teitur Örlygs-
son 16, Guðmundur Bragason 15,
Hjörtur Harðarson 11, Herbert
Arnarson 8, Guðjón Skúlason 6,
Jón Arnar Ingvarsson 6, Helgi
Jónas Guðfinnsson 5, Hermann
Hauksson 3.
Villur: ísland 22, Kýpur 25.
Skotnýting: ísland 57%, Kýp-
ur 56%.
3ja stiga körfur: ísland 19/6,
Kýpur 13/3.
Fráköst: ísland 31, Kýpur 29.
Dómarar: Hengel, Lúxem-
borg, Fassen, Hollandi, ágætir.
Áhorfendur: Um 250.
Stórsigur Dana
á Lúxemborg
Danir voru ekki í vandræðum
með Lúxemborg og sigruðu þá
stórt, 105-72. Danir hafa unnið
báða leiki sína á mótinu eins og
íslendingar en hafa betra stiga-
hlutfall.
írar lentu í erfiðleikum gegn
Albaníu en höfðu þó sigur, 97-77.
Þriðja umferð verður leikin í
dag. Lúxemborg-Albanía kl. 16,
Danmörk-Kýpur kl. 18 og fs-
land-írland kl. 20.
-JKS
Staðan
Danmörk 2 2 0 204-137 4
Island 2 2 0 166-124 4
írland 2 1 1 169-161 2
Kýpur 2 1 1 145-143 2
Albanía 202 142-195 0
Lúxemborg 2 0 2 135-201 0
Stórlið fylgjast
með í Höllinni
Evrópumótið í Höllinni er
eina stórmót ársins á vegum
FIBA. Útsendarar nokkurra liða
í Evrópu hafa boðað komu sína á
mótið til að fylgjast með leik-
mönnum. Aðstoðarþjálfari ný-
bakaðra Evrópumeistara Pan-
athinaikos var á leikjum í Höll-
inni í gærkvöld.
-JKS
Mótið kostar
fímm milljónir
Að halda stórmót á borð við
Evrópumótið í körfubolta kostar
sitt. Að sögn Péturs Sigurðsson-
ar, framkvæmdastjóra KKÍ, kost-
ar mótshaPHð sambandið í
kringum fimm milljónir. Á móti
kemur einhver styrkur frá Al-
þjóðasambandinu.
-JKS
Sjálfboðaliðar
koma við sögu
Það þarf vaskan hóp sjálfboða-
liða til ýmissa verkefna á Evr-
ópumótinu í körfubolta. Stór
hluti þeirra vinnur við tölfræði
sem er mjög vel unnin í alla
staði. Þeir sem að henni koma
eiga lof fyrir góða vinnu. Alls
vinna um 35 sjálfboðaliðar á
mótinu. -JKS
„Erfið fæðing"
Þetta var erfið fæðing en Kýp-
urmenn héngu á boltanum og
gerðu leikinn leiðinlegan. Það
var varla að maöur svitnaði í
fyrri hálfleik. Leikskipulag
þeirra fór í taugarnar á okkur en
þar var fyrir öllu að hrista þá af
sér í lokin,“ sagði Teitur Örlygs-
son eftir leikinn.
„Þetta var sætur sigur en leik-
urinn í kvöld við Ira verður
hreinn úrslitaleikur upp á fram-
haldið. Kýpurmenn léku leiðin-
legan bolta gegn okkur,“ sagði
Jón Kr. Gísláson þjálfari.
„Það var gott að vinna en
mótherjinn var ekki skemmtileg-
ur. Það skiptir mestu aö leika
hratt gegn svona liði og það tókst
undir lokin,“ sagði Herbert
Amarson eftir leikinn.
-JKS
OPIÐ GOLFMÓT
Opna Verölaun Skráning er
Grindavíkurmótiö hafin í síma
veröur haldið á 4' veröa veitt fyrir \ 426-8720
Húsatóftavelli / fimm efstu sætin. \
í Grindavík / Nándarverölaun verða ' Styrktaraöili:
sunnudaginn 26. júní. á 9/18 holu. Einnig verölaun fyrir W lengsta teighögg // j Sportbúð Óskars
Fyrirkomulag: á 1/10. y Veriö velkomin
Punktakeppni 7/8
punktar. Mótanefnd