Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 3 Fréttir Kona, sem féll af stól á heimili slnu, vinnur bótamál 1 Hæstarétti: Seljandi gallaðs stóls dæmdur til bótaábyrgðar - gallinn kom ekki á daginn fyrr en rúmu ári eftir aö stóllinn var keyptur Kona sem féll harkalega í gólf og slasaðist þannig á heimili sínu að- faranótt nýársnætur árið 1993 hefur fengið viðurkennda skaðabóta- skyldu verslunarmanns sem seldi henni stólinn. Framleiðslugalli er talinn augljós ástæða þess að stóll- inn gaf sig með fyrrgreindum afleið- ingum. Niðurstaða dómsins sem liggur nú fyrir í Hæstarétti þýðir að seljandi hinnar gölluðu vöru ber skaðabótaábyrgð og getur konan því stefnt honum í skaðabótamáli ef ekki verður samið milli aðila. Þá mun liggja fyrir hve háar bætur hún fær í sinn hlut. Konan keypti fjóra stóla og eld- húsborð af versluninni Húsgagna- loftinu í október 1991. Verslunin hafði hins vegar keypt vörurnar af heildverslun einum mánuði fyrr. Ekki dró til tíðinda fyrr en á heim- ili konunnar á Flateyri aðfaranótt nýársnætur 1993. Hún settist þá á stólinn, sem var borinn af málm- grind, þegar þverbiti undir framan- verðri setunni losnaði á samskeyt- um og féll konan við þetta utan í borð og miðstöðvarofn. Af þessu hlaut hún meðal annars opið við- beinsbrot og áverka á augabrún. Þrátt fyrir aðgerð átti konan erfitt með að hreyfa aðra öxlina og varð m.a. óvinnufær. Hún var síðan met- in til örorku að hluta. Hæstiréttur telur að seljandi beri ábyrgð á gallanum gagnvart not- anda stólsins. Auk viðurkenningar á skaðabótaskyldu var Húsgagna- loftið dæmt til að greiða konunni 400 þúsund krónur í málskostnað fyrir Héraðsdómi Vesturlands og fyrir Hæstarétti. -Ótt Litla-Hraun Gestir fanga sendir í röntgenmyndatöku Tvær konur, sem voru að fara að heimsækja fanga á Litla- Hrauni fyrir helgi, voru handtekn- ar skömmu áður en þær komu að fangelsinu og fór lögreglan með þær á sjúkrahúsið á Selfossi þar sem þær fóru í röntgenmyndatöku. Rökstuddur grunur var fyrir hendi um að konurnar væru að fara með fikniefni til fanga. Sam- kvæmt upplýsingum DV er þetta í fyrsta skipti sem leitað er á gest- um fanga með þessum hætti. Konumar heimiluðu sjálfar að leitað yrði á þeim. Rannsóknin leiddi hins vegar ekki í ljós neitt sem benti tO að þær væru með fikniefni á sér. Lögreglan sleppti konunum þegar niöurstööur lágu fyrir. -Ótt Grétar tekinn við Grétar Þorsteinsson, nýkjörinn forseti ASÍ, tók formlega við hús- bóndavaldinu í höfuðstöðvum sam- bandsins við Grensásveg í gær- morgun. Bæði varaforsetar Grétars og fyrrverandi forseti Alþýðusam- bandsins skipa sér þétt að baki for- seta sínum eins og sést á myndinni. Frá vinstri standa Hervar Gunnars- son, fyrsti varaforseti, Benedikt Davíðsson, fyrrverandi forseti ASÍ, og Ingibjörg Á. Guðmundsdóttir, annar varaforseti, og fyrir framan þau situr svo forsetinn, Grétar Þor- steinsson. Fyrrverandi forseti ASÍ og báöir varaforsetar sambandsins stóöu þétt aö baki hins nýja forseta þegar hann tók viö í gær. DV mynd. BG > HYUnoni B LADA & Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án átborgunar RENAULT GOÐIR NOTAÐIR BILAR BMW 520ÍA 2000 ‘91, ssk., 4 d., grár, ek. 110 þús. km. Verö 1.860.000 VW Golf ‘91, ssk., 5 d., rauður, ek. 15 þús. km. Verö 820.000 Nissan Sunny 1600 ‘92, ssk., 4 d., svartur, ek. 55 þús. km. Verö 940.000 Renault Clio vsk., 1200 ‘95, beinsk., 3 d., hvítur, ek. 44 þús. km. Verö 840.000 Honda Civic ESi 1600 ‘92, ssk., 4 d., rauður, ek. 75 þús. km. Verö 1.090.000 Renault Safrane ssk., 5 d., grár, ek. 11 þús. km. Verö 2.100.000 BMW 520i 2000 ‘88, beinsk., 4 d., grár, ek. 131 þús. km. Verö 1.090.000 Renault 19 GTS 1400 ‘90, beinsk., 5 d., grár, ek. 46 þús. km. Verö 620.000 Renault 19 RT 1800 ‘94, ssk., 4 d., grár, ek. 26 þús. km. Verö 1.200.000 Renault 19 RN 1400 ‘94, beinsk. 4 d., grár, ek. 48 þús. km. Verö 930.000 Lada Samara 1500 ‘93, beinsk. 4 d„ rauður, ek. 26 þús. km„ Verö 470.000 MMC Colt ‘91, ssk„ 3 d„ grár, ek. 30 þús. km. Verö 720.000 BMW316Í 1600 ‘89, beinsk., 2 d„ rauður, ek. 98 þús. km. Verö 720.000 MMC Lancer EXE ‘92, ssk„ 4 d„ blár, ek. 94 þús. km. Verö 890.000 Ford Bronco II ‘85, 6 cyl„ ssk„ 2 d„ svartur, ek. 124 þús. km. Verö 490.000 O/iið l irka daga frá kl. 9 -18, lauxardaxa 10-14 ihml NOTAÐIR BILAR SUÐURLANDSBRAUT 12, SÍMI: 568 1200, BEINN SiMI: 581 4060

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.