Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Qupperneq 14
veran
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 'SDt'Sf
14
Bruðkaup i tjaldi
„Fólk er aö átta sig á þessum
möguleika í brúðkaupum og tjöldin
eru mjög vinsæl í afmælum líka. Ef
fólk getur farið út í garð og verið
þar í tjöldunum verður veislan
miklu frjálslegri. Það er mikil
ánægja með þetta,“ segir Þorsteinn
Baldursson, framkvæmdastjóri
Skemmtilegt hf. sem leigir út há-
tíðatjöld. -
Skemmtileg tilbreyting frá hinum
hefðbundnu brúðkaupsveislum í sal
er sumarbrúðkaup í tjaldi. Þar sem
landið býður ekki upp á að hægt sé
að skipuleggja veðrið lengur en tvo
klukkutíma í senn er ekki hægt að
leggja gott veður í pant og ákveða
að halda garðbrúðkaup. Það getur
orðið rok og rigning og jafnvel snjó-
koma þótt um sumar sé. Þeir sem
vilja vera úti en þó inni geta leigt
sér tjöld af öllum stærðum og gerð-
um, allt eftir því hversu margir
gestirnir verða. Tjaldinu er hægt að
planta hvort sem er í garðinum eða
úti í náttúrunni og þá mega veð-
urguðirnir haga sér eins og þá lyst-
n■ r.■ • ' ■/ /
Giftir sig i juni:
Yndislegasti dagur
ævi minnar
„Hann bað mín í febrúar og þá
byrjuðum við örlítið að undirbúa
veisluna. Þetta á eftir að verða
yndislegasti dagur ævi minnar.
Dóttir mín tíu ára ætlar að vera
brúðarmey og hún ræður sér
ekki fyrir gleði yfir prinsessu-
kjólnum sem hún ætlar að vera
i,“ segir Berglind Ólafsdóttir sem
DV hitti að máli í Brúðarkjóla-
leigu Katrínar Óskarsdóttur.
Berglind var þar að skoða fylgi-
hluti og brúðarmeyjarkjól á dótt-
ur sína. Rakel Ólafsdóttur, sem
verður brúðarmey hjá móður
sinni þann níunda júni. Brúð-
guminn, Helgi Þór Guðbjartsson,
var ekki á staðnum en brúðgum-
ar mega oft ekki koma með til
þess að skoða fylgihluti sem
koma eiga á óvart.
„Við ætlum að hafa síðdegis-
brúðkaup í Dómkirkjunni. Eftir
það koma gestirnir í grillveislu
og borða góðan mat. Það verður
frekar létt yfir veislunni og eftir
matinn verður leikið fyrir dansi,“
segir Berglind.
Berglind vildi að sjálfsögðu
ekki segja neitt um það hvernig
kjóllinn hennar liti út því hann á
að koma á óvart á brúðkaupsdag-
inn. Væntanleg brúðhjón eru
búin að vera saman í fjögur ár en
eiga engin böm saman.
-em
Berglind Ólafsdóttir ætlar að gifta sig í júní. Oft eru brúðarmeyjarnar ekki
síður spenntar en brúðurin.
Tjöldin er hægt að fá í mörgum mismunandi stærðum.
ir án þess að trufla brúðkaupsgest-
ina hið minnsta.
Tjaldað úti í náttúrunni
Tjöldunum er hægt að tjalda
hvar sem er þar sem rými er nóg.
Það er hægt að setja þau upp á alls
konar undirlagi, til dæmis bílastæð-
um, grasblettum og gangstéttum.
Mjög auðvelt er reisa tjöldin.
„Það sem er skemmtilegt við
þetta er að allir eru svo ánægðir.
Við erum hluti af skandinavískri
keðju. Fólk á stórum vinnustöðum
tekur sig saman, leigir eitt stórt
tjald hjá okkur og heldur veislu úti
í sveit,“ segir Þorsteinn.
Alla hliðardúkana er hægt að losa
alveg eða að hluta og inngöngu er
hægt að hafa hvar sem óskað er. í
góðu veðri eru hliðarnar teknar úr
og tjaldið er ein stór sólhlíf. Hægt er
að tengja saman hvaða tjaldstærðir
sem er og fá skemmtilega samsetn-
ingu.
Það kostar 27.500 kr. að leigja
meðalstórt tjald, 70-80 manna, með
borðum og bekkjum.
-em
Brúðarvöndurinn má
ekki skyggja á brúðina
- daufir og fölir litir undirstrika hátíðleikann
„Brúðarvöndur-
inn má ekki vera
of stór né heldur
má hann
vera of
skraut-
um brúðkaupið.
„Það hefur verið
hefð fyrir
því í gegn-
um árin að
brúðguminn
velji vöndinn
og hefur
hann
verið gjöf
til brúðar-
innar frá
brúðguma.
Þetta hefur ver-
ið að breytast og
á seinni árum heyrir
það til undantekninga
að brúðguminn velji
blómin sjálfur. í dag er sú
hefð að skapast að hin til-
vonandi brúðhjón komi
og velji brúðarvöndinn og
skreytingarnar i
sameiningu. Það er
svo fagmannsins að
leiðbeina viðskipta-
vinum sínum um lita-
val m.t.t. hæðar brúðar-
innar, persónugerðar, ald-
urs, litarháttar og brúðar-
kjólsins," segir Halla Mar-
geirsdóttir.
-sv
farinn
brúð-
inni. Bestu brúð-
arvendirnir eru
þannig úr garði gerðir
að gott jafnvægi skap-
ast milli brúðarinnar,
brúðarvandarins og
kjólsins,“ segir Halla
Margeirsdóttir hjá
blómabúðinni Lífs-
blómi í
um brúðkaupsblóm
sem hún skrifaði í
Garðyrkjuskóla
ríkisms að Reykj-
um, Ölfusi.
Halla segir í rit-
gerðinni að dauflr
og fölir litir komi
mjög vel út þar sem
þeir undirstriki há-
tíðleikann í kring-
Njóttu dagsins
Það fer eftir því hversu vel
brúðkaupið er undirbúið
hvemig til tekst á brúðkaups-
daginn. Það hefur einnig sitt að
segja hvaða persónur eru að
gifta sig því brúðkaup eru jafn
ólík og fólkið sem giftir sig. Því
meira og betur sem brúðhjónin
undirbúa daginn því skemmti-
legri og afslappaðri verður
hann fyrir þau. Þau þurfa eng-
ar áhyggjur að hafa og geta not-
ið dagsins ef allt er tilbúið.
Undirbúningur
Það er mjög mikilvægt að
undirbúa daginn þannig að
brúðhjónin þurfi ekkert að gera
annað en njóta dagsins á sjálfan
brúðkaupsdaginn. Best er að
j vera svo raunsær að vera bú-
inn að fá aðstoð við allt sem
þarf að gera þann dag.
Dagbók
Gott er að setjast niður
nokkrum vikum fyrir brúð-
kaupsdaginn og skrifa niður frá
a til ö hvernig óskabrúðkaups-
dagurinn lítur úr. Ski'ifaðu nið-
ur allt sem gerist yfir daginn
frá morgni til kvölds og farðu
yfir hvort allir vita hvar þeir
eiga að vera og hvað þeir eiga
að gera. Haföu á hreinu alla
tima sem þarf að passa.
Flutningur
Hafðu á hreinu hvenær brúð-
hjónum verður ekið og hvert.
Það er ekki
að
leggja bara
fyrsta akstur dagsins. Einnig er
Imikilvægt aö muna eftir að
sækja ættingja utan af landi.
Best er aö kynna sér hvenær
þeir koma og vera fyrir fram
búinn að ákveða hver sækir þá.
Munið tappatogara
Það hræðilegasta sem höf-
undur greinarinnar Confident
Bride, Carroll Stoner, hefur
lent í var þegar tappatogarann
vantaði þegar opna átti vín-
flöskurnar. Það má ekki heldur
gleyma að láta þann sem stjórn-
ar veislunni vita að veita eigi
vín en ekki kampavín.
Dekrið við ykkur
Mikilvægt er að ætla sér
nægilegan tíma í greiðslu og
forðun til þess að lenda ekki í
tímahraki. Sumar brúðir velja
að vakna snemma á brúðkaups-
daginn og slaka á í góðu baði.
Það er mjög mikilvægt að muna
að borða eitthvað gómsætt því
oft gefst ekki tími til þess fyrr
en í veislunni sjálfri. Þá eru
Ígarnirnar famar að gaula af
krafti.
Gestalistar
Þegar bjóða á í brúðkaup er
gott að ákveða fyrir- fram
hversu miklu á að eyða í brúð-
kaupið og standa við það. Þegar
tvær fjölskyldur ásamt brúðar-
parinu bítast um það hverjum
eigi að bjóða og hverjum ekki
er gott að raðá gestum niður á
lista eftir mikilvægi þeirra.
Þegar niðurstaða um ákveðinn
fjölda gesta í brúðkaupinu er
I fengin er best að strika þá sem
1 eru um fram út.
Þýtt og endursagt úr Bridal
Guide