Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Side 16
16
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
^Stveraa
Álagskvillar:
Þrjú stig
Baráttan gegn álagseinkenn-
um verður að vera á mörgum
vígstöðvum og hér á eftir verð-
ur minnst á fáein atriði sem
gott getur verið fyrir fólk að
hafa í huga. Segja má að ein-
kennunum megi skipta niður í
3 stig. Fyrst koma eymsli í
hnakka, handlegg og úlnlið við
vinnu. Fólki líður betur í hvíld
og þegar það er ekki í
staða
vinnunm.
Á öðru stigi er
mikil, eymsli og verkir í úlnlið,
handlegg og öxl. Enginn bati
fæst með hvíld.
Stöðugir verkir og eymsli
fylgja þriðja stiginu allan
vinnudaginn og fólk á vanda til
svefntruflana vegna verkja.
Erfitt verður að vinna vegna
verkja og standi þetta í marga
mánuði getur vandinn orðiö
krónískur.
Hvað er til ráða?
Segja má að álagið á stoð- og
hreyfikerfið sé vandamál tím-
ans. Allt er undir því komið
hversu lengi unnið er undir
álagi. Mjög mikilvægt er að fólk
taki sér reglulega hlé og geri
hléæfingar til þess að fá blóð-
streymið til þess að flytja úr-
gangsefni burtu úr vöðvunum.
Er ég hokinn?
Mikilvægt er að fólk sé með-
vitað um líkamsstöðu sína. Ef
þú situr hokinn er hætt við að
brjóstvöðvamir styttist. Er
skjárinn rétt stilltur fyrir fólk
sem notar tvískipt gleraugu?
Þarf það kannski að reigja höf-
uöið aftur til þess að sjá á hann.
spegil til þess að minna sig á að
rétta úr sér.
Haltu á músinni eins hún sé
lítill fugl. Ekki hamra á lykla-
borðið. Notarðu fáa fingur tfl
þess að slá á lyklaborðið og
spennir þá sem þú ekki notar?
Líkamlegt form
Það er mikilvægt fyrir fólk
að vera i góðu líkamlegu formi.
Því er síður hætta búin að fá
álagseinkenni. Sund og heitir
pottar eru gott ráö til þess að
mýkja upp stífa vöðva.
Of mikið álag í vinnunni hef-
ur slæm áhrif og æskilegt er
því að ráða afleysingafólk á
álagstímum. Starfsfólkið er of
dýrmætt og vinnuveitendur
ættu því að huga aö áhættunni
við að sitja uppi með margt fólk
með álagseinkenni.
Langar neglur
Fólk með of langar neglur
notar fingurgómana tU ásláttar
á lyklaborðið í stað fremsta
hluta fingranna. Það veldur
miklu álagi á sinar og fingur-
liði.
-sv
Heimsfrægur iæknir og prófessor í iðjuþjálfun með námskeið á íslandi:
F
Alagskvillar em orðnir
mikið vandamál
segja iðjuþjálfarnir Guðrún Hafsteinsdóttir og Lovísa Ólafsdóttir
„Vaxandi vinna við tölvur hefur
leitt af sér aukningu í óþægindum
og álagsmeinum og það er alveg
ljóst að vandinn á eftir aö vaxa enn
frekar ef ekkert verður að gert.
Þetta er stórt vandamál I Bandaríkj-
unum og síst minna hér á landi en
annars staöar á Norðurlöndum.
Einhæfar endurteknar hreyfingar
eru stærsti skaðvaldurinn og við
viljum reyna að vekja fólk til um-
hugsunar um þessa hluti áður en í
óefni er komið. Álagskvillana sérðu
ekki á mynd og því er hætt við því
að fólk fái ekki rétta greiningu,"
segja iðjuþjálfarnir Guðrún Haf-
steinsdóttir og Lovísa Ólafsdóttir.
Margir þjást
Guðrún og Lovísa eru í undirbún-
ingshópi sem unnið hefur að því að
fá hingað til lands heimsþekktan
lækni og prófessor, dr. Emil
Pascarelli. Hann mun, ásamt Jane
Bear-Lehman, prófessor í iðjuþjálf-
un, halda fyrirlestur um álagsein-
kenni á liði og stoðkerfi líkamans.
Haldið verður námskeið fyrir fag-
fólk 31. maí en síðan verða þau með
fyrirlestur fyrir almenning daginn
eftir.
Lovísa og Guðrún segja mjög
marga þjást af þessum álagsein-
kennum, þrautum í hnakka og öxl-
um, verkjum í olnboga og úlnlið og
doða, pirringi og náladofa í höndum
og eymslum í beygjusinum vísifing-
urs.
Vinnuaðstaðan
„Danskur iðjuþjálfi segist á und-
anfórnum árum hafa orðiö var við
nýjan hóp sem kvartað hafi undan
t.d. ekki að borð sé of hátt, skjárinn
í rangri hæð, músin of langt í burtu
og stillingar stólsins ekki nýttar.
Vinnuveitendur ættu að sjá sér hag
í því að vinnuaðstaða starfsfólks sé
þannig að hún valdi því ekki óþæg-
indum,“ segir Guðrún.
-sv
megi þar til dæmis nefna fólk í fata-
og kjötiðnaði og hljóðfæraleikara.
„Fólk getur gert margt sjálft til að
fyrirbyggja rangt álag. Það eitt að
standa upp úr stólnum, koma blóð-
inu á hreyfingu og teygja lítillega á
höndum og fingrum
getur komið
sér vel.
Vinnuað-
staða
skiptir
álagseinkennum í öxlum og hönd-
um. Þetta hafi aðallega verið karlar
á aldrinum 30-50 ára sem unnið hafi
við tölvur. Ástæðan er að stórum
hluta slæm vinnuaðstaða og röng
líkamsbeiting við
tölvurnar," segir
Lovísa og Guð-
rún bætir við
að áhættu-
hóparnir
séu marg-
ir, auk
þeirra
sem
vinni
við
tölv-
ur,
og
Lovísa Ólafsdóttir iðjuþálfi segir fólk huga allt of lítið að vinnuaðstöðu sinni, hvort stóllinn sé rétt stilltur, tölvuskjár-
inn í réttri hæð o.s.frv. Hér sýnir hún Ásgerði M. Hólmbertsdóttur, á smáauglýsingadeild DV, hvað betur megi fara.
DV-mynd BG
Sárþjáð á þriðja ár vegna álagseinkenna:
Hélt ég væri orðin öryrki
- segir Ágústa Hrefna Lárusdóttir
„Eg vann í Alþingi, var mikið að
burðast með þungar möppur og eft-
ir að hafa kippt þeim niður úr hill-
um í nokkurn tíma var ég farin að
finna
Þegar þetta síðan ágerðist leitaði
ég til yfirmanna minna en var sagt
að fara að æfa lyftingar. Læknirinn
minn fann ekkert að mér því svona
nokkuð sést ekki á myndum. Eina
ráðið sem hann gat gefið mér var að
taka þunglyndislyf," segir Ágústa
Hrefna Lárusdóttir. Hún þjáist nú af
stanslausum verkjum í handlegg en
heldur í þá von að með því að laga
vinnustellingar geti þetta lagast af
sjálfu sér.
„Ég er sprautuð reglulega vegna
verkjanna og mér er sagt að ef til
vill lagist þetta af sjálfu sér eftir ein-
hvern tíma. í byrjun var ég send í
sjúkraþjálfun og læknir likti þvi síö-
ar við það að fótbrotinn maður
hefði verið sendur út í göngutúr.
Menn vita svo lítið um þetta. Ég
fékk mjög slæmt kast í vetur og þá
hélt ég hreinlega að ég væri orðin
öryrki.“
Ágústa er nú með spelkur um
Ágústa Hrefna Lárusdóttir þjáist af álagseinkennum eftir
að hún þurfti að burðast með þungar möppur. Einu leiðina
til þess að fá bata segir hún vera þá að reyna að laga vinnu-
stellingarnar. DV-mynd BG
úlnlið og handlegg og segir að með
tilkomu spelknanna sé fólk nú fyrst
farið að taka tillit til hennar. Fólki
finnist ekkert vera að þegar engir
áverkar sjáist og engar umbúðir.
„Ég skora á fólk að leita sér hjálp-
ar um leið og þaö fer að finna að
eitthvað er að. Við verð-
um að hlusta á skila-
boð frá líkamanum.
Ég nýt leiðsagnar
iðjuþálfa og ætla
mér að reyna að
laga þetta með
þeirra aðstoð.
Það er eina leið-
in. Ef mér tekst
að laga allar
vinnustelling-
ar er hugsan-
legt að þetta
geti skánað.
Þetta er
mannskemm-
andi og ég
verð að fá
mig góða,“
segir Ágústa
Hrefna.
-sv
Ert þú með
músar-
mein?
- á þetta við um þig?
Forðastu að nota veiku höndina?
Missirðu hluti út út höndunum á
þér?
Hristirðu höndina af því að hún
dofnar?
Áttu erfitt með að afhýða eða
skera matvöru?
Áttu erfitt með að bursta
tennurnar eða að opna með lykli?
Áttu erfitt með að halda á bók eða
dagblaði?
Áttu í erfiðleikum með einhverj-
ar daglegar athafnir sem þú gerðir
án umhugsunar áður?
-sv