Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Side 19
18
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
Iþróttir dv
Undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu:
Prófraun íslendinga
gegn Makedóníu
EM i keilu:
Uppistaðan
er úr KFR
Landslið íslands í keilu sem
keppa á Evrópumótinu í Finn-
landi um næstu helgi hafa ver-
ið valin.
Athygli vekur að í landsliði
kvenna og karla eru keppend-
ur frá aðeins tveimur liðum,
KFR og ÍR. Kvennaliðið skipa
þessir keilarar: Elín Óskars-
dóttir, KFR, Guðný Helga
Hauksdóttir, KFR, Heiðrún
Þorbjörnsdóttir, KFR, Sigríður
Klemensdóttir, ÍR, Sólveig
Guðmundsdóttir, KFR, og
Theódóra Sif Pétursdóttir, ÍR.
Karlaliöið skipa þessir leik-
menn: Ásgeir Þór Þórðarson,
ÍR, Ásgrímur Helgi Einarsson,
KFR, Björn Birgisson, KFR,
Jón Helgi Bragason, KFR, Stef-
án Ingi Óskarsson, KFR, og
Valgeir Guðbjartsson, KFR.
Þjálfari kvennaliðsins er
Theódóra Ólafsdóttir og Hall-
dór Sigurðsson þjáifar karla-
liðiö.
-SK
Leiðrétting við
kappreiðar
Því miður voru smámistök í
DV í gær um úrslit töltkeppni
á hvitasunnukappreiðum
Fáks.
Fríða Steinarsdóttir var í
fjóröa sæti á Hirti og OIU
Ámble í sjötta sæti á Kraka en
ekki öfugt. -EJ
Pancev þekkt-
astur
Leikmenn Makedóníu eru
ekki mjög þekktir. Ein undan-
tekning er þó á þvi en með lið-
inu leikur framherjinn snjalli
Darko Pancev. Hann lék áður
með landsliði Júgóslavíu og
var mikill markaskorari.
Pancev hefur reynt fyrir sér á
Spáni og nú síðast í Þýska-
landi.
„Starfið leggst
vel I mig“
„Starfið leggst vel í mig. Það
verður gaman að þjálfa lið sem
maður hefur lengi leikið með.
Ég mun á næstunni skoða út-
lending til að styrkja liðið. Það
verða flestir leikmenn áfram.
Óvíst er með þá Grissom, Al-
bert og Jón Kr. en það á eftir
að koma í ljós,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, nýráðinn
þjálfari Keflavíkur í körfu-
bolta. -ÆMK
Önnur umferð
í bikarnum
Nú er ljóst hvaða lið mætast
í 2. umferð Mjólkurbikar-
keppninnar í knattspyrnu en
hún verður leikin á laugardag,
mánudag og þriðjudag. Þessi
lið mætast:
Þróttur N.-Höttur
ÍA-23-Keflavík-23
Hvöt-Magni
Dalvík-Tindastóll
Fram-23-Ökkli
GG-Ægir
Grótta-Breiðablik-23
lR-KR-23
FH-23-Valur-23
HK-Stjarnan-23
Leiknir R.-Reynir S.
Þór A.-23-Völsungur
Afturelding-Víkingur Ó.
Víkingur R.-Selfoss
Bolungarvik-BÍ
KVA-Sindri
Sigurliðin í þessum leikjum -
fara í 3. umferð ásamt liðum 1.
deildar og sex efstu liðum 2.
deildar I fyrra. -VS
íslenska landsliðið í knattspyrnu
leikur á laugardaginn fyrsta leik
sinn í undankeppni heimsmeistara-
mótsins. Andstæðingurinn er
Makedónía og fer leikurinn fram á
Laugardalsvellinum klukkan 19.
Logi Ólafsson landsliösþjálfari
tilkynnti í gær 16 manna landsliðs-
hóp og er hann skipaður eftirfar-
andi leikmönnum:
Éirkir Kristinsson, Brann......42
Kristján Finnbogason, KR ........8
Guðni Bergsson, Bolton .........66
Ólafur Þórðarson, ÍA ...........65
Arnór Guðjohnsen, Örebro .... 65
Rúnar Kristinsson, Örgryte .... 52
Sigurður Jónsson, Örebro.......42
Arnar Grétarsson, Breiðabliki . 31
Hlynur Stefánsson, ÍBV .........23
Bjarki Gunnlaugss., Mannheim . 17
Ólafur Adolfsson, ÍA............13
Þórður Guðjónsson, Bochum ... 6
Ágúst Gylfason, Brann............4
Guðmundur Benedikts, KR.........4
Hilmar Björnsson, KR ............2
Lárus 0. Sigurðsson, Stoke......3
Arnar Gunnlaugsson, Eiður
Smári Guðjohnsen og Eyjólfur
„Við vitum að lið Makedóníu er
mjög sterkt. Við höfum séð á spólu
leiki þeirra gegn Dönum í und-
ankeppni EM og Gústaf fylgdist
með þeim leggja Liechtenstein að
velli í undankeppni, 3-0. Þeir eru
tekniskir og fljótir og viö gerum
okkur alveg grein fyrir að þetta
verður erfiður leikur," sagði Logi
Ólafsson landsliðsþjálfari um
leikinn gegn Makedóniu. Á góðum
degi eigum við að geta farið með
sigur af hólmi. Við verðum þá að
spila okkar leik og sýna góðan
varnarleik. Ég hef lagt mikla
0-1 Willum Þór Þórsson (23.)
0-2 Einar Örn Birgisson (67.)
1-2 Davlð Garðarsson (76.)
1- 3 Óskar Óskarsson (77.)
2- 3 Davíð Garðarsson (83.)
2-4 Ámi Pálsson (86.)
Þróttarar gerðu góða ferð til
Akureyrar þegar þeir lögðu Þórs-
ara í gærkvöldi á Þórsvellinum.
Viðureign liðanna var ekki
skemmtileg en kalt var í veðri og
völlurinn ekki upp á það besta.
Heimamenn voru meira með
boltann en sóknir þeirra voru
máttlausar. Þróttarar nýttu hins
1- 0 Guðni Rúnar Helgason (27J
2- 0 Hjörtur Hjartarson (33.)
3- 0 Guðni Rúnar Helgason (48.)
4- 0 Guðni Rúnar Helgason (90.)
Guðni Rúnar Helgason varð 25
þúsund krónum ríkari í gær-
kvöldi eftir að hafa skorað þrjú
mörk í 4-0 sigri nýliða Völsungs á
ÍR i 2. deildinni. Guðni innsiglaði
þrennuna með glæsilegri auka-
spyrnu, beint í samskeytin, á
lokaminútu leiksins og nældi þar
með í verðlaun sem fyrirtæki á
Sverrisson eiga allir við meiðsli að
stríða og Skagamaðurinn Sigur-
steinn Gíslason, sem átt hefur fast
sæti í landsliðshópnum, var ekki
valinn að þessu sinni.
Þann 5. júní leikur svo íslenska
landsliðið vináttulandsleik gegn
Kýpur á Akranesi.
Arnór Guðjohnsen, Rúnar Krist-
insson, Sigurður Jónsson og Bjarki
Gunnlaugsson eiga ekki heiman-
gengt í þann leik og óvíst er með
Ágúst Gylfason og Birki Kristins-
son.
Sex nýliðar valdir fyrir
leikinn gegn Kýpur
Logi hefur því valið sex leik-
menn til viðbótar sem verða í leik-
mannahópnum gegn Kýpur.
Þeir eru Þórður Þórðarson, ÍA,
Alexander Högnason, ÍA, Helgi Sig-
urðsson, Stuttgart, Ólafur Kristjáns-
son, KR, Hermann Hreiðarsson,
ÍBV, og Sverrir Sverrisson, Leiftri.
Tveir þeir síðastnefndu hafa ekki
verið í A-landsliðshópnum áður.
áherslu síðan ég tók við liðinu að
liðsheildin sé sterk og að menn séu
tilbúnir að vinna fyrir hver ann-
an,“ sagði Logi Ólafsson, landsliðs-
þjálfari íslands í knattspyrnu, á
blaðamannafundi í gær þar sem
hann tilkynnti liðið fyrir leikinn
gegn Makedóníu.
„Alltaf hugur í mönnum í
nýrri keppni"
„Það er alltaf mikill hugur í
mönnum þegar ný keppni er að
byrja og það er mikill metnaður hjá
okkur sem stöndum að liðinu að
vegar færin sín betur og upp-
skáru mikilvægan sigur. Annars
var fátt um fína drætti í leiknum.
Ekki verður annað sagt en að
Þróttarar byrji tímabilið vel. í
annars jöfnu liði hjá þeim var
Þorsteinn Halldórsson bestur.
Þórsarar nýttu færin illa og
þegar þannig háttar þarf varla að
spyrja að leikslokum. Meira býr í
liðinu samt.
Maður leiksins: Þorsteinn
Halldórsson, Þrótti.
-GK Akureyri
Húsavík hafa heitið fyrir slíkt af-
rek.
Völsungar voru sterkari allan
tímann og unnu sannfærandi sig-
ur sem sýnir að þeir geta vel
spjarað sig í sumar. ÍR-ingar náðu
þó upp nokkurri pressu á tímabili
í síðari hálfleiknum en lið þeirra
virkaði sundurlaust og liðsandinn
var ekki sem bestur. Þar var
Kristján Brooks frískastur en
hann var rekinn af velli fyrir
kjafthátt undir lokin.
Maður leiksins: Guðni Rúnar
Helgason, Völsungi. -GA/VS
U-21 árs liöiö leikur fyrr um
daginn
Leikur U-21 árs landsliða þjóð-
anna, sem er liður í undankeppni
Evrópumótsins í þessum aldurs-
flokki, fer fram í Kaplakrika klukk-
an 14 á laugardaginn.
Sex nýliðar eru í leikmannahópi
Atla Eðvaldssonar þjálfara og eru
nokkrir leikmenn sóttir i 18 ára lið-
ið sem náð hefur svo góðum ár-
angri. Hópurinn er þannig skipað-
ur:
Atli Knútssdn, Leiftri...........6
Árni G. Arason, ÍA...............6
Sigurvin Ólafsson, Stuttgart .... 7
Brynjar Gunnarsson, KR...........3
Jóhannes Harðarson, ÍA...........1
Ólafur Stígsson, Fylki...........1
Ólafur Bjarnason, Grindavík ... 1
Bjamólfur Lárusson, ÍBV.........1
Stefán Þórðarson, ÍA ............1
Þorbjörn A. Sveinsson, Fram ... 0
Valur F. Gíslason, Fram..........0
Bjarki Stefánsson, Val ..........0
Bjarni Guðjónsson, ÍA ...........0
Arnar Viðarsson, FH .............0
standa okkur vel. Leikurinn gegn
Makedóníu er gríðarlega mikilvæg-
ur fyrir framhaldið í keppninni.
Við þurfum að standa okkur vel á
heimavelli og það ríður á að fólk
fjölmenni á völlinn og standi með
íslenska landsliðinu. Við erum ekki
bara að bjóða uppá knattspyrnuleik
heldur heljarmikla skemmtun þar
sem allir ættu að fá eitthvað við sitt
hæfi. Það er von okkar að mikil
stemning geti myndast í Laugar-
dalnum á laugardagskvöldið," sagði
Eggert Magnússon, formaður KSÍ.
-GH
1-0 Friðrik E. Jónsson (31.)
1-1 Höröur Magnússon (89.)
„Mér fannst við sterkari þegar
á heildina er litið. Við lékum illa
i fyrri hálfleik en mun betur þeg-
ar á leið. Við eigum ýmislegt
ólært enn þá,“ sagði Ingi Björn
Albertsson, þjálfari FH, eftir
jafntefli við nýliða Leiknis á
gervigrasinu í Breiðholti.
Leiknismenn voru betri aðil-
inn í fyrri hálfleik og uppskáru
þá fallegt mark. Síðari háifleikur
var hins vegar eign FH-inga.
1- 0 Anton B. Markússon (24.)
2- 0 Valur F. Gíslason (87.)
Það fer ekki á milli mála að
Fram er með besta leikmannahóp-
inn í 2. deildinni og miðað við það
á liðiö ekki að vera í vandræðum
með að endurheimta sæti sitt með-
al þeirra bestu. En Framarar eiga
eftir að ganga í gegnum marga
bamingsleiki í sumar, eins og sig-
urleikinn gegn KA á Valbjamar-
vellinum í gærkvöldi, og hann gaf
vísbendingu um að þeir hafi karakt-
erinn til að sigla í gegnum þá.
Fram var betri aðilinn mestall-
2. deild
ámta
Leiknir R. 2 1 1 0 4-1 4
Þróttur R. 2 1 1 0 7-5 4
Fram 2 1 1 0 5-3 4
Skallagr. 1 1 0 0 5-0 3,
Völsungur 2 1 0 1 4-3 3
KA 2 1 0 1 3-4 3
Þór A. 2 1 0 1 3-4 3
FH 2 0 1 1 1-2 1
Víkingur R. 1 0 0 1 2-3 0
ÍR 2 0 0 2 0-9 0
Víkingur og Skallagrímur
mætast í Víkinni í kvöld klukkan
20.
Leiknismenn böröust hetjulega
og sterk vörn þeirra með Axel
Ingvarsson í broddi fylkingar
virtist ætla að halda en FH-ingar
náðu að jafna á elleftu stundu úr
vítaspyrnu.
Hjá Leikni léku Axel, Kjartan
Hjálmarsson og Heiðar Ómars-
son vel en hjá FH voru Arnar
Viðarsson og Lúðvík Arnarson
sprækastir.
Maður leiksins: Axel Ingv-
arsson, Leikni. -ÞG
an leikinn en KA náði þó tals-
verðri pressu í seinni hálfleiknum.
Færi norðanmanna voru samt fá
gegn sterkri vörn Fram þar sem
Jón Sveinsson stjómaði ferðinni.
Framarar voru síðan alltaf beittari
með Þorbjörn Atla og Anton Björn
ógnandi í fremstu víglínu. Halldór
Kristinsson hjá KA fékk rauða
spjaldið kortéri fyrir leikslok. KA
barðist þó áfram en Valur Fannar
innsiglaði sigur Framara undir
lokin.
Maður leiksins: Jón Sveins-
son, Fram. -VS
-GH
„Á góðum degi eigum við að
geta farið með sigur af hólmi“
- segir Logi Ólafsson landsliösþjálfari
Sex mörk á Þórsvelli
- þar sem Þróttur vann heimamenn, 2-4
Gróði hjá Guðna
- fékk 25 þúsund og Völsungur vann ÍR, 4-0
DV Húsavík:
FH jafnaði í blálokin
- í viðureigninni gegn nýliðum Leiknis
Fyrsti sigur Framara
- unnu KA, 2-0, á Valbjarnarvelli
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
23
John Stockton, leikstjórnandi Utah, reynir hér aö brjóta sér leiö framhjá Sam Perkins
í leik Utah og Seattle í nótt. Utah fór meö sigur af hólmi, 95-98. Símamynd Reuter
NBA körfuboltinn í nótt:
Utah heldur
í vonina
- eftir sigur á Seattle í nótt, 95-98
Utah Jazz heldur enn í vonina um að
komast í úrslitaleikinn gegn Chicago í
NBA-deildinni eftir sigur á á Seattle á
útivelli, 95-98, í nótt. Þar með er staðan
í einvígi liðanna, 3-2, Seattle í vU, og fer
næsti leikur fram á heimavelli Utah í
Salt Lake City á fimmtudagskvöld.
Leikurinn í nótt var æsispennandi og
þurfti að framlengja hann því staðan eft-
ir venjulegan leiktíma var, 90-90.
Seattle átti möguleika á að jafna undir
lok framlengingarinnar en þriggja stiga
skot frá Gary Peyton geigaði.
Að duga eða drepast
„Það var að duga eða drepast fyrir
okkur í þessum leik. Við vorum stað-
ráðnir í að halda keppninni áfram og nú
er komin pressa á leikmenn Seattle,”
sagði Jerry Sloan, þjálfari Utah eftir
leikinn.
„Við náðum því miður ekki að klára
þetta eins og við ætluðum að gera. Við
náðum með mikilli baráttu að jafna leik-
inn en í framlengingunni gekk ekki vel,”
sagði Gary Payton, leikmaður Seattle.
Payton átti mjög góðan leik og skoraði 31
stig en hann lék síðustu 11 mínúturnar
með 5 villur.
„Okkar stóru menn gerðu betur í þess-
um, bæði í því að blokkera og ná fleiri
fráköstum og það held ég að hafi skipt
sköpum,” sagði Karl Malone, hjá Utah.
Stig Seattle: Payton 31, Kemp 24,
Hawkins 12, Perkins 9, Schrempf 7, Skew
6, Mcmillan 4, Johnson 2.
Stig Utah: Malone 29, Hornacek 27,
Carr 16, Russell 15, Stockton 4, Eisley 3,
Foster 2, Keefe 2.
-GH
Hammarby vann toppslaginn
Pétur Marteinsson og félagar í Hamm-
arby unnu Spárvágen, 2-0, í toppslag
norðurriðils sænsku 1. deildarinnar í
knattspyrnu í gærkvöldi. Hammarby er
þá komið með 18 stig en Spárvágen er í
öðru sæti með 15 stig. -EH/VS
Evrópukeppninn í handknattleik:
Spánn með fullt hús
Spánn er eina þjóðin sem unnið hef-
ur alla leiki sína í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins í handknattleik á Spáni. í
gær sigruðu Spánverjar lið Rúmena,
26-21.
Júgóslavar og Króatar háðu mjög
spennandi leik og höfðu Júgóslavar bet-
ur, 27-24. Rússar sigruðu Þjóðverja;
22-18, í jöfnum leik þar sem úrslit réð-
ust ekki fyrr en i lokin. Svíar unnu
Frakka, 26-20, Danir lágu fyrir Tékk-
um, 28-22, og Ungverjar unnu Slóvena,
21-17. Frammistaða Dana og Þjóðverja
á mótinu hefur valdið vonbrigðum.
í A-riðli er Rússland og Júgóslavía
efst með 7 stig og Króatía 6 stig. I B-riðli
er Spánn með 8 stig og Tékkland og Sví-
þjóð hafa 6 stig. Riðlakeppninni lýkur í
dag en mótinu á sunriudaginn kemur.
-JKS
íþróttir
Besta handknattleikskona landsins á förum til Noregs:
Halla María til Sola
Halla Maria Helgadóttir, lands-
liðskona úr Víkingi, hefur skrifað
undir eins ára samning við norska
liðið Sola frá Stavanger sem vann
sig upp í 1. deild í vor. Þetta er mik-
il blóðtaka fyrir Víkingsliðið en um
leið mjög spennandi fyrir hana að
takast á við nýtt og spennandi verk-
efni eins og hún komst að orði við
DV í gærkvöldi.
„Þetta er einstakt tækifæri fyrir
konu í handknattleik á íslandi að fá
Kristján Halldórsson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari kvenna í hand-
knattleik, hefur skrifað undir þjálf-
arasamning við norska liðið Larvik.
Samið var tU 5 ára.
Lið Larvikur þykir eitt það
sterkasta í Noregi og komst meðal
annars í vor í úrslit Evrópukeppn-
innar en tapaði naumlega.
Norskur kvennahandknattleikur
þetta tækifæri. Ég skrifaði undir
samning til eins árs en þeir vildu að
ég skrifaði til tveggja ára. Sola-liðið
ætlar sér stóra hluti á fyrsta ári
sínu í 1. deild. Liðið hefur unnið sig
upp úr fjórum deUdum á fjórum
árum sem segir sitt um uppganginn
hjá liðinu. Liðið hefur verið að
styrkja sig að undanfórnu og hefur
landsliðsmarkvörðurinn verið feng-
inn til félagsins. Þetta er mjög
spennandi dæmi og ég hlakka tU að
hefur verið í háum gæðaflokki
lengi, bæði hjá félagsliðum og
landsliðinu, og því er það mikill
heiður fyrir Kristján að fá þetta
tækifæri með liðið.
Kristján mun byrja þjálfun hjá
Larvik 10. júní en hann mun leysa
af hólmi Gunnar Pettersen sem náð
hefur góðum árangri með liðið.
-JKS
takast á við þetta nýja verkefni,"
sagði Halla María Helagadóttir í
samtali við DV.
Sola fékk ábendingu um HöUu
Maríu frá sænska landsliðsþjálfar-
anum. íslendingar mættu Svíum
tvívegis í Evrópukeppninni í mars
og lék Halla María þar mjög vel,
stóð þar upp úr í liðinu. Það kemur
því ekki á óvart að sænski þjálfar-
inn hafi bent á Höllu Maríu.
-JKS
Hjálmar í HK
Hjálmar Vilhjálmsson horna-
maður, sem var einn besti leik-
maður HK í 1. deildinni i hand-
knattleik fyrir tveimur árum, er
genginn til liðs við Kópavogslið-
ið á ný. Hjálmar lék með Fylki í
2. deildinni i vetur. -VS
Skagamenn funda
Aðalfundur Skagamanna,
stuðningsmannafélags ÍA, verð-
ur haldinn í Höfðagrilli að BUds-
höfða 12 í Reykjavík í kvöld og
hefst klukkan 20.30. Guðjón
Þórðarson, þjálfari ÍA, mætir á
fundinn.
Kristján Halldórsson kvennaþjálfari:
Þjálfar eitt besta
félagslið Noregs
Hlutfall heimamanna í liðum 1. deildar
18 Leikmenn
■ ■ n s e i
fei i i i i i
in i i i i
I Mif
sLjmm §y t™
|ETmW b
II 1 1 I
■
Heimamenn
f Aökomumenn
DV
IBV með flesta heimamenn
ÍBV hefur teflt fram flestum heimamönnum i tveimur
fyrstu umferðum 1. deildarinnar í knattspyrnu. Þrettán
af sextán leikmörinum, sem Atli Eðvaldsson, þjálfari
Eyjamanna, hefur notað, eru frá Vestmannaeyjum og
léku með ÍBV í yngri flokkunum.
Skagamenn koma næstir með 12 menn af 16, eins og
sjá má á grafinu hér að ofan. Leiftursmenn eru hins veg-
ar nokkuð sér á báti því ellefu af tólf leikmönnum sem
þeir hafa notað eru uppaldir hjá öðrum félögum.
-VS
Eyjólfur ekki
með gegn
Makedóníu
Eyjólfur Sverrisson knatt-
spyrnumaður hjá Hertha Berlín
meiddist illa á hné í leik með liði
sínu í þýsku 2. deildinni um
helgina.
Liðband í innanverðu hnénu
rifnaði og krossbandið skaddað-
ist. Eyjólfur var settur í gifs í
gær og ljóst er að hann verður
frá í allt að 2 mánuði.
„Það var slæmt að missa Eyjólf
úr hópnum því hann hafði leikið
virkilega vel með landsliðinu í
síðustu landsleikjum. En þaö
kemur alltaf maður í manns
stað,“ sagði Logi Ólafsson lands-
liðsþjálfari.
-GH
ISLAND - MAKEDONÍA
Starfandi dómarar og aðrir með gild aðgangskort fá afhenta
aðgöngumiða á leikinn á Laugardalsvelli,
föstudaginn 31. maí kl. 11:00 - 18:00.
ATH! MIÐAR VERÐA EKKIAFHENTIR FYRIR
UTAN ÞENNAN TÍMA.
Aðilar utan af landi, með gild aðgangskort, geta hringt
á skrifstofu KSÍ, föstudaginn 31. maí kl. 08:00 - 12:00
og látið taka frá fyrir sig miða sem síðan verða aflientir
samkvæmt nánara samkomulagi.