Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Qupperneq 20
24
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
Fréttir___________________________________________________dv
Óvissa um framtíö flugvallarins í Holti:
Mun fleiri ísfirðingar nýta
völlinn eftir gerð jarðganganna
- verða varla 3 áætlunarflugvellir á svæðinu, segir ráðherra
DV, Flateyri:
„Mér finnst afskaplega heimsku-
legt aö leggja flugvöllinn af og færa
allt flug til ísafjarðar meðan ekki er
kominn almennilegur flugvöllur á
Sveinseyri. Ég hef rætt þetta við þá
íslandsflugmenn. Það hefur sýnt sig
í vetur að það eru mjög margir dag-
ar sem hefur verið flogið hingað þó
ófært hafi verið á ísafjörð.
Eftir að jarðgöngin komu hefur
flugfarþegum frá ísafirði fjölgað
mikið með fluginu héðan. Það kost-
ar ekki svo mikið að halda þessum
flugvelli í lagi,“ sagði Kristján J. Jó-
hannesson, sveitarstjóri á Flateyri,
við fréttaritara DV.
Mikil óvissa ríkir á Flateyri um
þessar mundir um framtíð áætlunar-
flugvallarins í Holti sem er flugvöll-
ur Flateyringa. Reglubundið áætlun-
arflug til Flateyrar hefur verið sam-
fellt síðustu 25 árin. Undanfarin ár
hefur verið um daglegt flug að ræða.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra var á ferðinni á Flateyri nú
nýlega og DV innti hann eftir af-
stöðu hans til flugvallarins í Holti.
„Eins og nú horfir mun áætlunar-
flug falla niður til flugvallarins í
Holti en verða haldið uppi til ísa-
fjarðar og Þingeyrar. Ef athugun
leiðir það í ljós að heppilegra sé að
flugvöllurinn sé hér í Holti þá mun
það breyta dæminu en það hefur
verið lögð áhersla á hina flugvell-
ina. Það verða varla þrír áætlunar-
flugvellir hér á þessu svæði. Flug-
völlurinn mun verða þarna áfram á
meðan skipulag kallar ekki á landið
til annarra þarfa. Flugvöllurinn
mun fá lágmarksviðhald eins og
aðrir slíkir. Við erum að reyna að
ná samkomulagi við sveitarfélögin
um að taka við þessum flugvöllum
þar sem litið er um að vera,“ sagði
Halldór Blöndal. -GS
Vinningshafar í litaleik Krakka-
klúbbs DVog Rogga sjóræningja
H ' :
íý' ■
m/, '
! I;, !-•**
1. verðlaun:
SJÓRÆNINGJASKIPIÐ
Vignir Jónsson
Hjallavegi 30, 260 Njarðvík
2. verðlaun:
HITABELTISEYJA VILLIMANNANNA
Gísli Magnússon
Flétturima 21, 112 Reykjavík
3. verðlaun:
HAUSKÚPUHELLIR
Hrafnhildur Erla Guðmundsdóttir
Túngötu 22, Tálknafirði
Aukaverðlaun:
HÁSÆTI VILLIMANNANNA
Ingþór Þóreyjarson nr. 8990, Jón Baldur Bogason
nr. 8946, Guðlaug Sigfúsdóttir nr. 5580, Guðrún S.
Sigurjónsdóttir nr. 6371, Lilja Birgisdóttir nr. 3361,
Daði Baldur nr. 3473, Guðlaug I. Þorsteinsdóttir
nr. 7079, fris Edda Heimisdóttir nr. 6368,
Arnþór Sigfússon nr. 4374, Sindri Sigfússon nr. 5582,
Einar Þór nr. 3420, Sindri Ó. Sigurðsson nr. 5305.
Krakkaklúbbur DV og Lego þakka öllum sem tóku þátt
kærlega fyrir frábæra þátttöku.
Vinningar verða sendir vinningshöfum í pósti næstu daga.
7////////////J
Smáauglýsingadeild DV er opin:
! • virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22
Smá- ! auglýsingar ov 5505000
Kristján J. Jóhannesson, sveitarstjóri á Flateyri, og Halidór Blöndal samgönguráðherra aö ræða framtíö áætlunar-
flugs til Flateyrar. DV-mynd G. Sig
Akranes:
Olíumengun
í fjörunni
Olíumengun varð í Krókalóns-
fjöru á Akranesi á þriðjudaginn eft-
ir að hitaspíralrör hafði gefið sig í
katli á sjúkrahúsinu.
„Hitaveitan er með kyndistöð
sem er staðsett í sjúkrahúsinu.
Þama em katlar sem eru kyntir
með olíu. Þeir hafa ekki verið not-
aðir í fjölda ára en eru keyrðir
reglulega. Það þarf að hita svartolí-
una sem er kölluð húsaolía og hita-
spiralrör í olíutanki gaf sig þannig
að heitt vatn rann inn í tankinn.
Svartolían flæddi upp um yfirfall og
komst út í jarðveginn og seig í yfir-
borðsvatnslögn og þaðan út í hol-
ræsi,“ útskýrir Þorvaldur Vest-
mann, forstöðumaður tækni- og
framkvæmdadeildar Hitaveitu
Akraness.
Hann segir fljótt hafa uppgötvast
að olía var í fjörunni. „Það var strax
gengið í það að úða alla olíu sem
menn sáu og síðan hafa menn verið
að fylgjast með þessu. Menn hafa
enga fugla fundið. Þetta varð minna
en það hefði getað orðið.“
-IBS
vegfarendum sem fara um þjóöveg 1. Stjarnan er fagurgræn og sker sig úr
umhverfinu en heimilisfólkið á Skeiöflöt hefur boriö áburö á stjörnuna und-
anfarin ár. D-mynd Páll, Vík
Golfið heillar í Skutulsfirði
DV, Suöureyri:
Golfvöllurinn í Tungudal í Skut-
ulsfirði nýtur mikilla vinsælda
enda í fallegu umhverfi. Sagt er að á
hverjum degi bætist nýir áhuga-
menn í hópinn og margir hverjir
æfa sveifluna á hverju kvöldi.
Nú eru Súgfirðingar farnir að
heimsækja nágranna sína ísfirðinga
til að spila golf. Á dögunum voru
þeir Grétar Schmidt, verkstjóri á
Suðureyri, og Finnur Magnússon,
leikari og afgreiðslumaður á ísa-
firði, að glíma við völlinn. Þeir byij-
uðu báðir á sama tíma í fyrrasumar
að leika og eru nú miklir dellukall-
ar. Segja golfið gefandi - friðsæla
íþrótt sem allir geta verið með í.
-RS
Starfsmaöur Pósts og síma vegna símaatsins:
Óskaði að fjölskyldan fengi svefnfrið
Helga Ingólfsdóttir, blaðafulltrúi
Pósts og síma, segir að heimilisfað-
irinn, sem varð fyrir símaati að
næturlagi og DV sagði frá i siöustu
viku, hefði ekki haft rétt eftir vakt-
manni hjá bilanatilkynningum.
„Starfsmaðurinn sagði að því
miður gæti hann ekki aðstoðað en
óskaði þess jafnframt að viðskipta-
vinurinn fengi svefnfrið. Hann
sagði ekki að hann vildi sjálfur fá
svefnfrið," bendir Helga Ingólfs-
dóttir á.
Viðmælandi DV sagði að starfs-
maður Pósts og síma hefði látið i
ljósi þá ósk að hann fengi að halda
áfram að sofa. DV bar þau um-
mæli úndir yfirverkfræðing Pósts
og síma, Bergþór Halldórsson.
-IBS
Þessi fallega stjarna í brekkunni fyrir ofan bæinn Skeiöflöt í Mýrdal blasir viö